Morgunblaðið - 28.01.1966, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.01.1966, Blaðsíða 3
Föstudagur 28. Janúar 1966 MORCUHBLAÐIÐ 3 Hræsni Nokknr hinna fjolmorgu ges ta í samkvæmi bægarstjórnarinnar. r r NOKKRAR SVIPMYNDIR FRA ISAFIRÐI ísafirði, 27. jan. EINS og sagt var frá í blað inu í gær barst ísafirði mik- ill fjöldi heillaskeyta og gjafa í tilefni af aldarafmælinu. Auk þeirra gjafa, sem sagt var frá í gær gáfu hjónin Lára Eðvarðsdóttir og Elías J. Pálsson 20 þús. kr., sem vísi að afmælisgjafasjóði vist manna elliheimilisins, Arne Sörensen og frú gáfu 5 þús kr. til Elliheimilisíns. Félög hétu gjöfum til elli- Iheimilisins fyrinhugaða, Odd- felilowstúkan sjónvarpi eða útvarpsgrammófóni í setu- stofu, Kvenfélagið Ósik 25 þús. kr. til kaupa á borðbúnaði og Kvenfélagið Hlíf borðtoúnaði í setustofu. Bæjarstjórn Húsavíkur sendi heillaskeyti og tilkynnti gjöf er kæmi síðar, mynd af Húsavík. Vestfirðingafélagið í Kefla- A hátíðarfundi bæjarstjórna r ísafjarðar á 100 ára afmællnu. — Bæjarstjórnarforseti taiar. vík gaf málverkið „Brimgný“ eftir Kjarval, og hjónin Her- dís Þorvaldsdóttir, leikikona og Gunnlaugur Þórðarson til- kynntu að þau myndu gefa málverk eftir Gunnlaug Schev ing, sem afhent verður síðar. Mikill fjöldi heillaskeyta bárust frá bæjar- og sveitar- stjórnum, átthagafélögum og mörgum öðrum félögum, fyr- irtækjum, stofnunum og ein- staklingum og voru þau öll lesin upp í samsæti bæjar- stjórnar í gærkvöldi, sem var hið ánægjulegasta og lauk um eittleytið. Nokkrir sendu heillaskeyti í ljóðum og meðal ræðumanna í hófinu var Sturla Jónsson, forseti Fjórðungssamibands Vestfjarða og var mestöll ræða hans í bundnu máli. Eggert G. Þorsteinsson félags málaráðherra flytur kveðjur ríkisstjórnarinnar. A þessari mynd eru forsetinn Asgeir Asgeirsson og Eggert G. Þorsteinsson félagsmálará ðherra, ásamt nokkrurr frammá mönnum í móttöku bæjarstj órnarinnar. Það hefur vakið sérstaka at- hygli að undanförnu, að málgögn Framsóknarmanna og kommún- ista hafa haft uppi tilburði í þá átt að viðra sig upp við ákveðinn hóp ungra atvinnurekenda í land inu, sem nú eiga við nokkra erfið leika að etja vegna breytinga í innflutnings- og tollamálum. Framsóknarmenn og kommún- istar láta nú svo sem þeir séu aðalverndarar þessara manna og hjá þeim sé það skjól að finna sem dugi. Hin einstaka hræsni, sem fram kemur í þessum skrif- um Framsóknarmanna og komm- únista verður öllum ljós, þegar hugurinn er látinn reika nokkur ár aftur í tímann, til þess tima þegar uppáhaldsþjóðskipulag Framsóknarmanna og kommún- ista ríkti hér á landi með höft- um og bönnum og skömmtunum í öllum sínum blóma. Þá var öld- önnur, og þá töldu þessír aðilar enga þörf á því að viðra sig upp við einkaatvinnurekend- ur í landinu. Þvert á móti beittu þeir öllum áhrifum, sem þeir gátu til þess að koma einkaat- vinnurekstrinum á kné og hygla samvinnuhreyfingunni og ýmsum kommúnistafyrirtækjum. Framsókn og leyíisveitingarnar Á þessum tíma efldist Sam- bandið og systurfyrirtæki þess, þar á meðal ýms iðnfyrirtæki til mikilla muna. Það gerðu þau fyrst og fremst í skjóli hafta — og skömmtunarstefnunnar, en auðvitað beittu Framsóknarmenn áhrifum sínum til þess að Sam- bandsfyrirtækin sætu fyrir leyf- isveitingum, enda varð raunin og sú, að þau efldust og stækk- uðu meðan einkafyrirtækin áttu í vaxandi erfiðleikum vegna inn- flutningshafta og skömmtunar- stefnu. Þegar breyting verður í innflutnings- og tollamálum með valdatöku núverandi ríkisstjórn- ar, verður gjörbreyting á að- sötðu einkaatvinnurekstursins í landinu. Hann hefur síðan stækk- að og blómgast, þrátt fyrir nokkra erfiðleika ákveðinna iðn- greina. Á sama tíma hefur hlutur Sambandsins og systurfyrirtækja þess í viðskiptalifi landsmanna minnkað. Þetta er auðvitað skýr- ingin á því að Framsóknarmönn- um er nú svo mjög í mun að taka hér aftur upp þjóðskipulag hafta- og skömmtunar, stefna á „hina leiðina“, sem þeir hafa prédikað án afláts, allt frá því á síðastliðnu hausti. Þeir sjá sem er, að hlutur hinna pólitísku Sam bandsfyrirtækja fer stöðugt minnkandi í samkeppni við frjáls og vel rekin einkafyrir- tæki, og þess vegna telja þeir, að nú sé ekki seinna vænna að snúa við á þeirri frelsisbraut, sem núverandi ríkisstjórn hefur markað, og hefur yfirleitt orðið einkaatvinnurekstrinum til mik- ils happs. Ogeðfellt smjaður í ljósi þessara staðreynda, v'erður smjaður Framsóknar- manna og kommúnista við ákveðinn hóp einkaatvinnurek- enda í landinu mjög ógeðfelldur, og þeir menn, sem fyrir því verða, ættu að hugsa nokkur ár aftur í timann til þess tímabils sem getið er um hér að ofan og minnast þess þá í hvaða aðstöðu þeir voru, og hvort Framsóknar- menn og kommúnistar lögðu sig þá sérstaklega í líma við að veita þeim aðstoð sina á þeim tíma hafta og skömmtunar, sem þá var hér á Islandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.