Morgunblaðið - 28.01.1966, Page 11

Morgunblaðið - 28.01.1966, Page 11
FostudagOT 28. janúar 1066 MORGU NBLAÐID 11 Ijóðlistarinnar. Kannski væri svo einfaldast að afgreiða henn ar mál þannig: yrkið betur — „og þá mun allt veitast yður Jón nr Vör: að auki“. Hinu verður þó trauðla neitað að á umræddum standa í fararbroddi norrænnar nútímal j óðagerðar. Jóhannes úr Kötlum vettvangi sé aðstaða íslenzkra — sem og finnsk-finnskra — ljóðskálda einna örðugust. Virðið mér eigi til fordildar né viðkvæmni þó ég taki mitt eigið verk, ljóðabókina Trega- slag, sem dæmi, þar sem hún var eina bókin sem lögð var fram að þessu sinni af hálfu ís- lendinga og jafnframt eina bók- in sem þýða þurfti á erlenda tungu. Vil ég þá sérstaklega benda á síðasta hluta hennar, Stef úr glataðri bók, þar sem burðarásar formsins í hverju einasta kvæði eru stuðlar og samrím, auk margvíslegra til- brigða mismunandi ljóðlínu- lengdar, ekki einungis í hverju erindi út af fyrir sig, heldur og milli allra erinda hvers kvæðis innbyrðis. Þegar þar við bætist að hinn ofur einfaldi tjáningarmáti ljóðanna er mjög svo háður sérstökum blæbrigð- um frumtungunnar, þá má nærri geta hvernig fer þegar þeim er snarað á laust mál er- lent, hversu samvizkusamlega sem sjálf órðaþýðingin er af hendi leyst. En svipuðu máli gegnir um ærinn hluta bund- innar Ijóðagerðar islenzkrar: hvernig færi t.d. um marg- slungnustu kvæði Snorra Hjart ersonar í slíkri formupplausn á sænsku? Séu slíkar þýðingartilraunir á ennað borð gerðar, bæri að leita til úrvalsþýðenda einna — á borð við t.d. norska skáldið Iv- er Orgland. En þá kemur óð- ara það babb í bátinn að slíkt þýðingarstarf mundi taka lengri tíma en um getur verið að ræða roeð því fyrirkomulagi sem hingað til hefur tíðkazt. Raunhæfust til úrbóta virðist eú krafa að helzt allir, en að minnsta kosti annarhvor dóm- nefndarmanna hvers lands kynnu til hlítar frumtungur þeirra verka sem um er fjall- að. En þætti slík lausn óbil- gjörn, mætti verða að því nokk- ur bót að nefndarmenn hefðu sér til ráðuneytis lærða sam- landa sína í þeim málum sem þeir ekki kunna, þar sem það má teljast ofætlun íslenzku og finnsku fulltrúunum einum — hversu ágætir sem eru — að túlka á skammri dagstund mál- bundinn sérleik þeirra verka sem þeir leggja fram til mats. Að síðustu skal það skýrt tek- ið fram að það sem hér hefur verið sagt felur ekki í sér neinn persónulegan efa um réttmæta niðurstöðu dómnefndar við ný- afstaðna úthlutun. Eins og ég hef áður sagt tel ég að verð- launaveitingin til Gunnars Ekelöf hafi verið mjög svo „valförtjant“. Hversu ólíkt sem viðhorf okkar til listar annars kann að vera, ér hann tvímæla- laust eitt af þeim skáldum sem í FYRSTA lagi verðum við að bæta starfsskilyrði íslenzkra rithöfunda, svo að hæfileikar þeirra fái að njóta sín. í öðru lagi þarf að endurskoða úthlut- unarreglurnar og breyta þeim í samræmi við þá reynslu, sem þegar er af þeim fengin. Vík þá strax að því, sem að okkur sjálfum snýr hér heima fyrir. Afstaða almennings og ráðamanna þjóðarinnar til rit- höfunda er mjög ónútímaleg, svo ekki sé fastar að orði kveð- ið. í öllum greinum mennta- mála nema í rithöfundafaginu — jafnvel í öðrum listgreinum — þykir sjálfsagt að styðja rækilega að menntun ungra efnismanna. Það er löngu vitað að flestum rithöfundum hæfir bezt sjálfsnám og námsdvalir með erlendum þjóðum, er þeir hafa lokið undirbúningsmennt- un í almennum skólum. Góð byrjendabók á ekki að vera lakara prófskírteini en náms- árangursplögg frá menntastofn unum. Síðan á að styðja ungu skáldin með alvöru og alúð fyrstu starfsárin. Reynist þau hinsvegar ekki sem skyldi, eða kannski í öfugu hlutfalli við það sem fyrir þau hefur verið gert, verða þau að snúa sér að öðrum verkefnum .Mislukkaður rithöfundur á ekki að verða að eilífðaróamaga á ríkinu, þeim til háðungar sem betur gera. Sízt af öllu á að setja slíka menn yfir alvöruhöfundana. Bókmenntalega rithöfunda, sem ekki rita metsölubækur, á að styðja til starfa með hófsam- legum hætti, svo að þeir geti sinnt köllun sinni og menning- arlegum embættisverkum. Há- skóli fslands verður að koma sér upp slíku mannvali í pró- fessorastöðurnar, að hlutaðeig- andi rithöfundum þyki sæmd að þiggja úr þeirra höndum þann ríkisstyrk, sem fámenn þjóð getur veitt skáldum sín- um. Þá mun og upp vaxa hæfi- legur hópur menntaðra og víð- sýnna gagnrýnenda, sem ritað geta af skynsemi fyrir blöð og útvarp um bókmenntir heima og erlendis. Loks þarf að laða hingað erlenda námsmenn, kenna þeim mál okkar, og kynna þeim nútímabókmennt- ir okkar, ekki síður en þær eldri. Efni í fornaldargrúskara, sem fræðimönnum okkar þykir nú svo mikill fengur að, fáum við örugglega nóga og fyrir- hafnarlaust hvaðanæva að. Bókaforlögin hér, undir forystu Menningarsjóðs, þyrftu að koma sér upp a.m.k. einni bók- Jón úr Vör menntalegri snyrtistofu, þar sem agnúar væru burtnumdir af efnilegum handritum, að sjálfsögðu í samráði við höf- undana. Slíka leiðbeinendur hafa öll meiriháttar forlög á Norðurlöndum. Þá ætti Menn- ingarsjóður — helzt í samvinnu við erl. bókaforlög — að láta þýða og géfa út beztu bækur sem út koma, svo að úthlutun- armenn Norðurlandaráðs og al- menningur á Norðurlöndum geti kynnzt þeim, og við og þeir séð hvaða viðtökur þær fá erlendis. Nógu illa standa ísl. höfundar samt að vígi, þótt þetta væri gert til að rétta hlut þeirra í samkeppninni. Þetta væri okkur mikill menningar- legur ávinningur og myndi ekki kosta meira en sem svar- aði nokkrum smærri veizlu- kostnaðarliðum á reikningi ut- anríkisþ j ónustunnar. Þá kem ég að hinni hlið máls ins: úthlutunarkerfinu. I sjálfu Bókmenntaráði Norðurlanda þyrftu ekki að vera nema fimm menn og jafnmargir til vara. En ég tel sjálfsagt, að þeir hafi allmarga ráðunauta, sem væru bókmenntalegir fræðimenn að mennt. Þeir skiluðu skriflegum umsögnum um þær bækur, sem greitt væri atkvæði um og fengju góðan tíma til síns starfa. Einhverjar reglur yrði að setja um það, hve oft í röð eða með hve löngu millibili má veita verðlaunin til sama lands- ins, og hve lengi er hægt að setja eitt þeirra hjá. Allir hljóta að gera sér ljóst, að við svona úthlutanir er óhugsandi að koma við fullkomnu rétt- læti. Hvernig er hægt að bera saman listrænt gildi tveggja bóka, ef báðar teljast verð- launahæfar, önnur kannski ljóð, hin skáldsaga? Það tel ég ótækt fyrir okkur, að einungis tveggja ára bækur og yngri skuli vera hlutgengar, en að jafnframt skuli vera hægt að verðlauna bók, sem út hefur komið í einu nágrannalandanna fyrir nokkr um vikum. Ég fyrir mitt leyti tel vinnubrögð nefndarinnar í ár og í fyrra algjört hneyksli. Það ætti að vera augljóst mál, að glæriýtt skáldverk eftir eitt frægasta skáld fjölmennustu þjóðarinnar, kannski skipu- lega lofsungið og auglýst af voldugu útgáfufyrirtæki í þessu augnamiði, stendur ólíkt betur að vígi en eldri ritverk lítt kunnra rithöfunda utan síns heimalands, og þar að auki kannski í vafasamri þýðingu, eins og ljóðabækur hljóta allt- af að verða, hversu vel og sam- vizkulega sem um þær er vélt. Ekki vildi ég taka að mér að þýða, þótt ekki væri nema nokkur af ljóðum Gunnars Eke- löfs á örfáum mánuðum. Um- hugsunartími nefndarinnar bendir til fyrirframskoðana og hrossakaupmennsku. Viðbrögð okkar fulltrúa við sífelldum ó- sigrum benda og til uppgerðar kurteisi fremur en til eðli- legrar skapfestu. Eða eru þeir kannski svona ánægðir með úr- slitin ár eftir ár? Um úthlut- unina eiga málsmetandi-menn að tala feimnislaust, bæði á undan og á eftir. Hér á engin lognmolla við. En blöðin eiga að sjálfsögðu að sjá um að gætt sé viðeigandi háttvísL Kristmann Guðmundss.:. VERA má að bezta ráðið sé það, sem einn kollega minn lagði til, að við förum öll að skrifa á dönsku, sænsku eða Kristmann Guðmundsson norsku til þess að hafa ein- hverja möguleika. Margir eru líka þeirrar skoðunar, að skipta þurfi um fólk í nefndinni en ég er hræddur um, að erfitt kunni að reynast, að fá alveg hlutlausa og nógu sanngjarna menn í hana. Síðasta verðlaunaveitingin var raunar réttlát, því Ekelöf er forláta gott ljóðskáld. En ekki held ég, að hann hefði hlotið þessi verðlaun, ef hann skrifaði á íslenzku. Sameiginlegar varnir Atlants- hafsríkjanna tryggðar Eining aðildarrikja bandalagsins treyst Frá ráðherrafundi NATO i Paris RÁÐHERRAFUNDUR Atlants- hafsbandalagsins kom saman í París 14., 15. og 16. desember 1965. 2. Ráðherrarnir fjölluðu vand- lega um allt ástand alþjóðamála, þ. á m. sérstaklega samskipti „austurs" og „vesturs". 3. Á grundvelli hins sameigin- lega takmarks síns að tryggja frið og öryggi, hafa aðildarríki Atlantshafsbandalagsins treyst og aukið tengsl sin og samskipti við Sovétríkin og önnur löndAustur- Evrópu. Munu þau halda áfram að leita eftir bættri sambúð við þessi lönd. Ráðherrarnir lýstu ánægju sinni með að þessi við- leitni hefði borið árangur, eink- um á sviði tvíhliða samskipta. 4. Ekkert meiriháttar deiluefni hefur komið upp í Evrópu (á ár- inu), en hins vegar er stjórn Sovétríkjanna enn andvíg því, að gerðir verði samningar um helzta ágreiningsefni „austurs" og „vesturs“. Slík samningsgerð, sem yrði að tryggja lögmæta hagsmuni allra hlutaðeigandi, er enn sem fyrr eitt höfuðtakmark bandalagsins. Um leið bendir ráðherrafundurinn á, að Sovét- ríkin halda áfram að verja aukn- um hluta af f jármunum sínum og tæknimætti í hernaðarskyni. 5. Við þessar aðstæður leggja ráðherrarnir áherzlu á þann á- setning sinn að viðhalda einingu bandalagsins og tryggja sameig- inlegar varnir þess. 6. Ráðherrafundurinn hefur á- hyggjur af því, að ekkert hefur miðað í áttina að lausn þess vandamáls, sem fólgið er í skipt- ingu Þýzkalands. Ásakanir, sem bornar hafa verið fram á hendur Þýzka sambandslýðveldinu, gera slíka lausn ekki auðveldari. Ráð- herrafundurinn vísar þessum á- sökunum á bug og ítrekar það viðhorf að réttlát og friðsamleg lausn á þýzka vandamálinu verði aðeins fundin á grundvelli sjálfs- ákvörðunarréttar. Þá lýstu ráð- herrarnir enn yfir því, að ríkis- stjórn Þýzka sambandslýðveldis- ins er hin eina þýzka ríkisstjóm, sem mynduð er á frjálsan og lög- legan hátt, og ber því réttur til að tala í nafni Þýzkalands sem fulltrúi þýzku þjóðarinnar í al- þjóðamálum. Að því er tekur til Berlínar, stendur Atlantshafs- bandalagið við yfirlýsingu sína frá 16. desember 1956. 7. Varðandi vandamál utan Atl antshafssvæðisins taka ráðherr- amir fram, að dregið hefur úr spennu í sumum heimshlutum. í Suðaustur-Asíu eru þó enn árekstrar og deilur. Varðandi Víetnam tók utanríkisráðherra Bandaríkjanna enn á ný fram, að um leið og Bandaríkjamenn væru ákveðnir í að standa við skuld- bindingar sínar, væm þeir enn sem fyrr reiðubúnir til þess að hefja samningaviðræður í því skyni að binda enda á styrjöld- ina, án skilyrða fyrirfram. Hann ítrekaði skoðanir ríkisstjórnar sinnar á því, hver verið gætu undirstöðuatriði friðarsamkomu- lags. Varnarmálaráðherra Bret- lands skýrði stefnu brezku ríkis- stjórnarinnar í málefnum Ród- esíu og lýsti yfir þakklæti stjórn- arinnar vegna stuðnings þess, sem bandalagsþjóðirnar hefðu veitt henni. Hann lagði áherzlu á nauðsyn frekari samræmdra aðgerða bandalagsríkjanna. Ráð- herrarnir munu halda áfram að ráðgast við, ekki aðeins um þessi mál, heldur einnig um önnur vandamál, sem nokkrir ráðherr- anna vöktu athygli á, og rætur eiga að rekja til stefnu Kinverska alþýðulýðveldisins. 8. Ráðherrarnir staðfestu á ný áhuga ríkisstjórna sinna á fé- lagslegri og efnahagslegri vel- ferð í þróunarlöndunum og áframhaldandi framförum þar. 9. Ráðherrarnir staðfestu á ný, að eitt af megintakmörkum ríkis- stjórna þeirra væri enn sem fyrr að koma á fullkominni allsherj- arafvopnun undir raunhæfu al- þjóðaeftirliti. Þeir lýstu yfir von- brigðum sínum með það, hve lít- ið hefur enn áunnizt að þessu leyti. Þeir hafa áhyggjur af þeirri hættu, að kjarnorkuvopn kunni að breiðast út í ýmsum heimshlutum. Þeir voru sammála um, að stöðugt skuli fylgzt með þróun þessa vandamáls og að haldið skuli áfram að leita að leiðum, sem komið geti í veg fyrir þessa hættu. Ráðherramir fögnuðu þeirri ákvörðun, sem nýlega hefur verið tekin, um að boða til reglubundinna funda á vegum NATO til þess að kanna í öllum nánari atriðum tæknileg- ar hliðar vígbúnaðareftirlitsins og til þess að athuga nýja mögu- leika á þróun afvopnunarmála. 10. Ráðherrarnir lýstu yfir á- nægju sinni með þær framfarir, sem orðið hafa á rannsókn hinna skyldu vandamála, er snerta her- stjórn, herbúnaðartþörf og fram- lög í því skyni, en ráðherrafund- urinn í Ottawa í maí 1963 beitti sér fyrir slkri athugun. Verið er að vinna að herskipulagningu fyrir tímabilið frá 1966 til árs- loka 1970, og er það fyrsta skref- ið af fleirum, sem tryggja eiga nánari samræmingu á hernaðar- legum þörfum Atlantshafsbanda- lagsins og áætlunum um heri hinna einstöku aðildarríkja inn- an ramma hinnar herfræðilegu kenningar, sem samþykkt hefur verið og byggð er á framvörnum. Þeir féllust í meginatriðum á nýjar aðferðir, sem miða að því að bæta hina árlegu athugun á vörnum bandalagsríkjanna og framiögum þeirra hvers um sig. Þessar aðferðir, sem gera ráð fyrir að herstyrkur og stefnu- mörk bandalagsins og einstakra ríkja séu á hverju ári íhuguð 5 ár fram í tímann, eiga að auka hæfni bandalagsins til þess að aðlaga varnaráætlanir sínar nýj- ungum í hertækni og breyttu á- standi alþjóðamála. 11. Ráðherrarnir fólu fastaráði bandalagsins að endurskoða Framhald á bls. 12

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.