Morgunblaðið - 28.01.1966, Side 12

Morgunblaðið - 28.01.1966, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Föstudágur 28. janúar 1966 NORBURLANDARÁÐSFUHDURIHN SEM HEFST ! KHÖFN I DAG — Sameiginlegar Framhald af bls. 11. skipulag og fjárhagslegan grund- völl „Allied Command Europe Mobile Force“. 12. Framkvæmdastjóri Atlants hafsbandalagsins flutti ráðherra- fundinum skýrslu sína sem for- maður sérstakrar nefndar varn- armálaráðherranna. Ráðherrarn- ir ræddu skýrsluna. !Frá fréttaritara Mbl. í Kaupmannahöfn. ÞEGAR Sigurður Bjarnason, ritstjóri og alþingismaður, læt- ur ai störfum á föstudaginn kemur, sem forseti Norður- landaráðs og við þeim tekur formaður dönsku nefndarinnar, Harald Nielsen, vinstrimaður, þá fer þetta fram í sal danska (þjóðþángEÍns í Kristjánsborg- arhöll, rétt eftir að sami stað- ur hefur verið leiksviðið fyrir ófriðsamlegan leik í dönskum stjórnmálum. Raunverulegar afleiðingar þess leiks hiverfa í framtíðinni. En eftir pólitískri afstöðu og skapferli gleðjast menn ýmist eða hræðast, að tæpra 16 ára samstarfi Vinstri- flokksins og fhaldsflokksins sé nú lokið. Ástæðan er sú að Vinstriflokkurinn 'hefur géng- ið í hagsmunabandalag við stjórnarflokkinn, Sósíaldemó- krata og Róttæka Vinstrifloikk- inn um ýmsar tollahækkanir, sem stjórnin hefur óskað eftir til þess að geta linað nokkuð á hinum ströngu lánahömlum, sem til var stofnað sl. sumar. Lánahömlurnar gera það að verkum, að ekki verður hægt að byggja 40 þúsund nýjar ibúðir á árinu 1966, eins og ætl unin var — eða líklega ekki nema 20.000. viljað eiga aðild að því að „gefa jafnaðarmannastjörninni auknar ríkistekjur“ og út frá Iþyí Ihefur Ihann jafnan neitað að semja neitt um bráðabirgða- talla nú. Samt verður bráðlega unnið að skattalagabreyting- um, sem annaðhvort verða fólgnar í smásölutolli eða verð Ihækkunartolli (sem verður lagður á öll stig sölunnar), og samkvæmt því verður í stór- um drá'ttum tekið, tekjuskatt breytt í söluskatt. Þessum samningum óskar fhaldsflokk- urinn að verði flýtt. íhaldsmönnuim fellur það (þungt, að borgaralega blökkin skuli hafa sundrazt. Það fara þeir ekkert í launkofa með, og í umræðunum í byrjun þessar- ar viku um þau tallafrumvörp, sem voru árangurinn af sætt ihinna þriggja flokka, hefur framsögumaður íhaldsflokks- ins, Poul Möller, beint Ibvöss- urn skeytum gegn Vinstri- flokknum og átalið hann fyrir það, að hann hafi — næstum án þess að nefna það á nafn við hina fornu bandamenn sína — gengið í lið með jafnaðarmönn- um, sem þeir hefðu hingað til barizt gegn. Við þetta verður valdatöku borgaraflokkanna — eins og í Noregi — frestað um óákveðinn tíma. Framsögumað- ur Vinstrimanna, Henry Ohrist ensen ritstjóri, varði aðfarir sinna manna og kvað flokkinn hafa fengið hlunnindi, þar sem lækkun á ska'ttalagningu fast- eigna og hlutabréfa en annars hélt hann því fram, að Vinstri- flokkurinn stefndi en að því að velta jafnaðarmannastjórninni og fá borgaralega samvinnu í staðinn. Þannig hefur verið þungt loft í fundarsalnum, alveg fram að samikomu Norðurlandaráðs. En svo hefur oft verið í dönskum stjórnmálum. Þegar fundur Norðurlandaráðs var haldinn í Helsingfors 1964, urðu háttsett ir danskir stjórnmálamenn að hypja sig heim áður en fundin- um var lokið, til þess að taka þátt í æsilegum samningagerð- um, pólitískum og efnahags- legym, og í fyrra var rétt að því komið, að menn yrðu að eiga viðræður um dönsk innan ríkismál í Reykjavík, af því að umræðurnar milli dönsku flokk anna stóðu alveg fram á sjálfa brottförina tiil Reykjavíkur. Ekki mun þó hafa orðið af þessu, en varla voru stjórnmála mennirnir komnir heim áður en umræðurnar náðu hámarki, sem raunverulega leiddi af sér fall Erik Eiriksens sem foringja Vinstrimanna. Við umræðurn- ar um sættir um efnalhagsmál- in, klofnaði Vinstriflokkurinn, og tveir þingmenn sögðu skil- ið við hann og stofnuðu flokk út af fyrir sig. Þróunin í Vinstriflokknum hafði sinn gang og Eirik Eriksen tók sjáif ur þá afstöðu, eftir klofninginn, að sveigja flokkinn til hægri. Eftir nokkrar vikur tjáði hann sig hlynntan því, að Vinstri- fliokkurinn og íhaldsflokkurinn sameinuðust. Þá risu upp kröftug mótmæli í vinstriblöð- um og — félögum, og Eriksen sagði af sér. Fyrir þennan fund Norður- landaráðs er þróun Vinstri- flokksins gengin fram, enn nokkur skref. Undir stjórn hins nýja formanns, Poul Hartling, kennaraskólastjóra, er flokkur- inn algjörlega laus við íhalds- flokkinn og hefur hafið aukna samvinnu við fyrrverandi banda menn jafnáðarmanna, Róttæka V instrif lokkinn. En frá föstudegi að telja og meðan Norðurlandaráð situr á rökstólum eru dönsk innanrík- ismál lögð til hliðar. Þar fyrir geta orðið ákafar umæður og spennandi ástand, einnig meðan hinir norrænu stjórnmálamenn byggja Þjóðþingssalinn í Krist- jánsborg. Starfsemi Norður- landaráðs er ekki litin eins á- hugalausum augum og oft er látið í veðri vaka opinberlega, bæði á Norðurlöndum og utan þeirra. Auk þess sem 110 þing- menn koma á þennan fund, koma þangað einnig 115 blaða- menn til að dreifa fréttum um umræður og ályktanir þing- mannanna. Þetta eru blaða-, út varps- og sjónvarpsmenn frá mörgum Evrópulöndum og auk þess hafa opinberir fulltrúar frá Sameiginlega markaðnum og EFTA boðað komu sína. Þeir eru formáður Beneluxráðsins, hinn hollenzki jafnaðarmaður J. A. W. Burger og varaforseti EFTA, Knut Hammarskjöld. Og-til hvers koma þeir? Erind ið er fyrst og fremst það að hafa auga með því, hvort Norð urlönd — eða áð minnsta kosti hluti þeirra— komi fram með hugsanlegar fyrirætlanir um tollasamband. Af Svía hálfu hafa komið fram óskir um sam ræmingu tollskráa Norðurlanda. Danskir og sænskir tollar eru að því leyti ólíkir, að Danmörk hefur hverfandi lága tolla á hrá efnum, en Svíþjóð allháa. Þetta kemur að gagni útflutningi Dan merkur undir núverandi áfram haldandi lækkun á tollum milli EFTA landanna. En þar eð Dan mörk er tiltölulega hráefna- snauð, hefur hún ekki áhuga á saroræmingu á þessu sviði. Aft- ur á móti hefur Danmörk mik- inn áhuga á lækkun innflutn- ingshamla á landbúnaðarvörum á Norðurlöndum. Eins og á fyrri fundum Norðurlandaráðs hafa komið fram óskir af Dana hálfu um rannsókn á möguleikum á sameiginlegum norrænum bú- vörumarkaði. Sjálfsagt verður þessari tillögu andmælt af Norð manna hálfu, og í ár verður það einmitt foringi bændastétt- arinnar, Peter Borten, hinn nýi norski forsætisráðlherra, sem kemur til fundarins, sem hinn raunverulegi hæstsetti stjórn- málamaður Noregs. Enda þótt aldrei hafi verið kveðið upp úr með það af Svía hálfu, er talið, að óskir þeirra um almenna tollasamræmingu á breiðum grundvelli hafi öðr- um þræði þann tilgang að hnýta Danmörku fastar Norður löndum og auka vegalengdina til sameiginlega markaðsins. Meðal danskrar bændastéttar eru einkum uppi miklar óskir um að gerast aðilar að sameig- inlega markaðnum, en auk þess er forsvari dansks iðnaðar, Iðn- aðarráðið, meðal þeirra, sem eru eindregið andvígir tillögum Svía um samræmingu tollanna. Einnig er Menningarsjóður Norðurlanda talsvert deiluefni. Enn hafa öll löndin til samans ekki veitt nema 600.000 d. kr. til sjóðsins, en fulltrúar frá öll- um löndum vilja auka hann upp í þrjár milljónir, svo að hann geti gert raunverulegt gagn. Ennfremur eru mikilvæg utan ríkismál á dagskránni: 1) Afstaða Danmerkur til S- Afríku, sem kom Noregi, Svi- þjóð og Finnlandi algjörlega að óvörum. Þetta hefur orðið til þess, að af hálfu Svíþjóðar og Noregs er von á tillögu um, að Norðurlönd séu ekki eins og hingað til, hvött, heldur skyld- ug til að halda hivert öðru vak- andi um mál SÞ, og vilja herða nokkuð á orðalagi þessa ákvæð is. Vafaláust verða harðar um- ræður, er þessi tillaga kemur fram. 2) Jens Otto Krag, forsætis- ráðherra, hefur ritað embættis- bræðrum sínum í Noregi og Svíþjóð um að stýðja frum- kvæði Harold Wilsons, forsætis- ráðherra um Vietnammálið, en þetta bréf var ekki sent forsæt isráðherra Finnlands, Johannes Virolainen, og það hefur vakið mikla gremju í Finnlandi. Þannig þufa umræðurnar inn an hárra veggja þingsalarins ekki að verða friðsamlegri þótt þær fari nú að snúast um nor- ræn mál í stað danskra. Enda koma ráðherrar fjölmennir til fundarins: frá Svíþjóð, Tage Er- lander, forsætisráðherra (sem hefur manna bezt sótt fundi ráðsins); Torsten Nilson utan- ríkisráðherra; Gunnar Lange, verzlunarmálaráðherra; Ragnar Edenmann, kennslumálaráð- herra; Herman Kling, dóms- málaráðherra og hinn nýi sam göngumálaráðherra, Olof Pal- me. Frá Noregi kemur forsætis- ráðherrann, Per Borten; utanrík isráðherrann, Helge Seip; sam- göngumálaráðherrann, Hakon Kyllingmark; dómsmálaráðherr ann, Elizabeth Schweigaard; kirkjumálaráðherrann, Kjell Bondevik og verzlunarmálaráð- herrann, Kaare Willock. Finnland hefur enn ekki til- kynnt sína fulltrúa, en talið er víst, að þeir komi, forsætisráð- herrann, Johannes Virolainen; utanríkisráðherrann, Ahti Karja lainen; dómsmálaráðherrann, Söderhjelm og verzlunarmála- ráðherrann Vilherhe'mo. Frá íslandi er von á Bjarna Benediktssyni, forsætisráð- herra. Þegar eftir setningu fundar- ins býður Þjóðþingið til hins venjulega móttöku-miorgun'verð ar í veitingasal þingsins og á laugardagskvöld er hátíðasýn- ing í Konunglega leikhúsinu, þar sem ballettarnir „Fanfare“, „Mánahreinninn" og 3. þáttur af ,Napoli“ verða sýndir. Á sunnudag verða bókmennta verðlaun Nohðurlandaráðs af- hent við hátíðlega athöfn í Ráð húsinu, hinu sænska ljóðskáldi Gunnar Ekelöf. Á þriðjudag býður ríkisstjórn in til kvöldverðar í ráðhúsinu á Friðriksibergi 13. Ráðherrarnir samþykktu á- lyktun, þar sem fastaráði banda- lagsins var falið að gera áætlun um aðstoð í varnarmálum við Grikkland og Tyrkland fyrir ár- ið 1965 með þátttöku sem flestra aðildarríkja og að tryggja, að skuldbindingar í þesum efnum séu efndar eins tafarlítið og unnt er. Fastaráðið mun flytja ráð- herrafundinum, sem haldinn verður vorið 1966, skýrslu um framkvæmd þessarar áætlunar og leggja fram tillögur um nýja áætlun fyrir árið 1966, sem Samdar verða í ljósi athugana á varnaráætlunum að þesu leyti. 14. Ráðherrarnir h 1 ý d d u á skýrslu framkvæmdastjórans um sambúð Grikkja og Tyrkja, en fyrirrennara hans var falið að fylgjast vandlega með þessum málum á ráðherrafundinum í Haag í maí 1964. Þeir lýstu yfir stuðningi sínum við aðgerðir framkvæmdastjórans í þessum efnum og samþykktu, að þeim skyldi haldið áfram. Þeir lýstu einnig að nýju yfir stuðningi sín- um .við tilraunir Sameinuðu þjóðanna til að draga úr spenn- unni á Kýpur og endurtóku á- kvörðun sína um að stuðla að friðsamlegri og óhlutdrægri lausn á Kýpurdeilunni, sem báðir að- iljar gætu sætzt á og væri í sam- ræmi vi'ð meginreglur stofnskrár Sameinuðu þjóðanna. Ráðherra- fundurinn tók undir áskorun framkvæmdastjórans um að við- ræður í anda sáttfýsi verði fljót- lega hafnar að nýju milli Grikkja og Tyrkja. Ráðherrarnir lýstu yfir trausti sínu á því, að máls- aðiljar mundu ekki grípa til neinna aðgerða, sem spill't gætu slíkri lausn. Um leið lagði ráð- herrafundurinn áherzlu á mikil- vægi skjótrar úrlausnar fjár- hagslegrar og annars konar mála, sem spretta af áframhald- andi friðargæzlu Sameinuðu þjóð anna. 15. Ráðherrarnir samþykktu skýrslu um almannavarnir. Þeir vöktu athygli á því, að endurmat almannavarna fer nú fram, og lögðu enn áherzlu á mikilvægi slíkrar starfsemi til verndar ai- menningi. 16. Næsti ráðherrafundur Atl- antshafsbandalagsins verður hald inn í Briissel seinast í maí eða fyrst í júní 1966, samkvæmt boði belgísku rikisstjórnarinnar. St}óm Fiski- málasjóðs Á FUNDI sameinaðs Alþingis h. 16. des. 1965 fór fram kosning stjórnar Fiskimálasjóðs, fimm manna og jafnmargra varamanna, allra til þriggja ára, frá 1. janúar 1966 til 31. desember 1968, að við- hafðri hlutfallskosningu, sam- kvæmt 1. gr. laga nr. 89 1947. — Hlutu þessir kosningu: Aðalmenn: Sverrir Júlíusson, alþingismað- ur; Sigurvin Einarsson, alþingis- maður; Davíð Ólafsson, fiskimála stjóri; Jón Axel Pétursson, banka stjóri, og Björn Jónsson, alþingis- maður. Varamenn: Sigurður Egilsson, framkvstj.; Jón Sigurðsson, skipstjóri; Már Elíasson, skrifstofustjóri; Sifefús Bjarnason, framkvæmdastjóri, og Konráð Gíslason, kompásasmið- ur. Hin nýkjörna sjóðsstjórn hélt sinn fyrsta fund 26. j’anúar 1966 og fór þá fram kosning formanns og varaformanns. Sverrir Júlíusson, alþingismað- ur, var kosinn stjórnarformaður, og Jón Axel Pétursson, banka- stjóri, varaformaður. (Frá Fiskimálasjóði) fhaldsflokkurinn hefur ekki Fundarsalur danska Þjóðþingsins í Kristjánsborgarhöll. í þessum sal verða fundir Norðurlandaráðs.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.