Morgunblaðið - 28.01.1966, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 28.01.1966, Qupperneq 16
MORGU NB LAÐIÐ Föstudasrur 28. janúar 1966 — Erl. tlðindi Framhald af bls. 15. tveimur vígstöðvum. Hann hef ur orðið að leggja sig allan fram við að halda saman sam- steypustjórn sinni. Þá hefur hann orðið að glíma við klofn- ing innan síns eigin flokks, Kristilega demokrataflokksins. Kristilegir demokratar hafa, einir eða með öðrum flokkum, verið við völd á Ítalíu, allt frá lokum heimsstyrjaldarinnar síðari f>á var flokkurinn hægri- sinnaður, en á því hefur síðan orðið mikil breyting. Þróun sú, sem átt hefur sér stað á Ítalíu undanfarna tvo áratugi, hefur leitt til djúptæks skoðanamun- ar helztu ráðamanna flokksins. Nokkrir eru öfgamenn til hægri, aðrir til vinstri. Innan flokksins leikur á því grunur, að vinstrimenn hyggi á sam- starf við annan stærsta flokk landsins, flokk komúnista. Þótt leiðtogar Kristilegra demokrata hafi til þessa hald- ið saman við kosningar, eink- um vegna öflugs stuðnings kaþólsku kirkjunnar, þá hefur sú eining ekki nægt til þess, að Moro tækizt að stjórna land inu í samráði við Sósíalista- flokkinn, Sósíaldemokrata- flokkinn og Lýðræðisflokkinn. í hvert skipti, sem Moro hef- ur þurft að láta undan kröf- um Sósíalistaflokksins í efna- hagsmálum, hefur hann þurft að leita samþykkis hægrisinna í eigin flokki. Samtímis hafa vinstrisinnaðir flokksbræður Moro, þá einkum fyrrverandi forsætis- og utanríkisráðherra, Amintore Fanfani, sem sagði af sér í síðasta mánuði, látið að því liggja, að Sósíalistaflokk- urinn verði sniðgenginn, og samstarf tekið upp við komm- únista. Kr stjórnin féll í síðustu viku var það við atkvæðagreiðslu (atkvæðagreiðsla í ítalska þing inu er leynileg) um uppeldis- stofnanir og skóla ríkisins. Um 50 stuðningsmenn stjórnarinn- ar, sennilega flestir skoðana- bræður Fanfani, snerust gegn tillögu, sem miðaði að mála- miðlun milli leikmanna og tals manna kirkjunnar. Því varð Moro að biðjast lausnar. Hafi hér verið um ræða al- varlega tilraun vinstrimanna Kristilega demokrataflokks- ins, sem harðast fylgja Fanfani að málum, til að víkja Moro úr flokksforystunni, kann löng stjórnarkreppa að vera fram- undan. Flestir stjórnmálafréttaritar- ar hallast þó fremur að því, að hér hafi verið um að ræða skipulögð mótmæli stuðningsmanna Fanfani gegn undanlátssemi Moro við Sósíalistaflokkinn. Það styður þessa hugmynd, að Gius eppe Saragat, forseti Ítalíu, lýsti því yfir á þriðjudags- kvöld, að viðræður við helztu stjórnmálaleiðtoga hefðu leitt í ljós, að Moro einn gæti tekið að sér nýja stjórnarmyndun. Sama dag féllst forsætisráð- herrann fyrrverandi á að gera tilraun til myndunar stjórnar. Takist honum það, verður það þriðja myndun samsteypu- stjórnár, sem honum tekst á tveimur árum. — Hvita Framhald af bls. 14. búið í útlegð á Spáni. Og nú virðist Peron, sem er sjötug- ur, ætla að reyna að endur- taka söguna. Núverandi eig- inkona hans, og jafnframt sú þriðja, heitir Isabel, er 32 ára, og var dansmær í næturklúbb áður en hún giftist fyrrver- andi einræðisherranum. Hún kom til Argentínu snemma í október s.l. en um það leyti voru tuttugu ár liðin frá því er Peron tók fyrst við völd- um í landinu. Flokkur Peronista var bann aður fyrst eftir brottrekstur einræðisherrans, og enn er bannað að nota nafn Perons við kosningar. En þrátt fyrir það skipar flokkurinn, sen> nú nefnist Unión Popular fimmtíu og tvö af 192 sætum á þingi Argentínu. Og Isa- bel er ætlað að tryggja enn meiri framgang flokksins, sem á mikil itök, sérstaklega inn- an verkalýðsfélaganna. Peron istar höfðu ætlað sér að halda mikla hátíð á tuttugu ára af- mæli valdatöku Perons s.l. haust, og þar átti Isabel hlut- verki að gegna. Hún kom til landsins undir dulnefni, sett- ist að í gistihúsi í Buenos Air- es sem Maria Estella Mart- inez. En fljótlega var kom- Kuldaskórnir KOMNIR Stærðir 24—38. Skóhúsið Hverfisgötu 82. — Sími 11-7-88. Bankastræti. — Sími 22-135. Grensásvegi 50. izt að raun um hver var þar á ferð. Fyrrverandi hershöfðingj- ar, ráðherrar og verkalýðs- leiðtogar urðu tíðir gestir í gistihúsinu, og Isobel hafði ingjanum“. Hann vildi aðeins sagði hún, reyna að sætta hina ýmsu leiðtoga Peronista og koma á einingu innan fiokksins. En koma „friðardúfunnar" ®; Vetrarhörkunum í Evrópu j virðist ekkert ætla að linna. ; Hvaðanæva að berast fregnir : um snjó og kulda og víða ; hefur firði og flóa lagt. Með- : fylgjandi mynd er af einum • ísbrjota Svía þar sem hann ; er að ryðja skipum braut í • isnum í Gávleflóa. boðskap að flytja þeim frá manni sínum: „Ég mun brátt verða meðal yðar“. En svo auðvelt reyndist það ekki. Framan við gistihúsið kom til mikilla átaká milli Peronista, andstæðinga þeirra og lögreglu. Aðrir gestir höfð ust ekki við í gistihúsinu af ótta, svo forstöðumenn þess vísuðu Isabel kurteislega á dyr. Ekkert varð úr fyrirhuguð- um fjöldafundum í tilefni tuttugu ára afmælisins, og leika varð sérstakan boðskap, sem Peron hafði talað inn á segulband, fyrir luktum dyr- um. Þá ræddi Isaibel við frétta menn, og sagði m.a.: „Ég er komin sem hvít dúfa með friðarboðskap frá hershöfð- varð ekki til þess að bæla niður óeirðir, því til blóðugra átaka kom milli verkamanna og lögreglu. Og þegar svo vopnabirgðir fundust við hús leit hjá ýmsum verkalýðsfé- lögum Peronista, fékk herinn því til leiðar komið að verka lýðssamtökum voru með lög- um bönnuð afskipti af stjórn- málaflokkum. Eftir þetta fór Isabel huldu höfði. En síðan hafa hvað eftir annað skollið á fyrirvara iaus verkföll, og óeirðir brot- izt út. En hvað sem heim- komu Perons líður, þá hefur Isabel miðað vel áfram. Því í síðustu viku var frá því skýrt að hún væri hinn nýi leiðtogi flokks Peronista. (Þýtt og endursagt). — Dr. Oddur Framhald af bls. 8. þrjú myndarbörn, Maríu, sem gift er Karl-Heinz Bertrand og býr í Hamborg, Lieselotte, íþrótta kennara og Þóri, stud. jur. Þau hjónin dvelja í dag hjá dætrum sínum og tengdasyni í Hamborg, og er heimilisfang þeirra: Mooreye 35, 2 Hamburg 62. Þangað streyma í dag hlýjar kveðjur og heillaóskir frá hin- um fjölmenna vinahópi afmælis- barnsins. Þórhallur Ásgeirsson. Magnús Thorlacius hæstaréttarlögmaður. Málflutningsskrifstofa. Aðalstræti 9. — Sími 1-1875. Bjarni Beinteinsson LÖGFRÆÐINOUR AUSTURSTRÆTI 17 Isilli A VALDIf SlMI 13536 Brauðstofan Simi 16012 Vesturgötu 25 Smurt brauð, snittur, öl, gos og sælgæti. — Opið frá ki. 9—23.30. LOGI GUÐBRANDSSON héraðsdómslögmaður Laugavegi 12 — Sími 23207. Viðtalstími kl. 1—5 e.h. Rauða myllan Smurt brauð, heilar og náifar sneiðar. Upið frá kl. 8—23,30 Simi 13628 Húseigendafélag Reykjavíkur Sími 15659. Gpin kl. 5—7 aila vírka daga, i.ema laugardaga. JON EYSTliINSSON lögfræðingur Laugavegi 11. •— Sími 21516. STOW lofthitarar fyrirliggjandi. Algjörlega sjálfvirkir og brenna steinolíu. Þ. Þorgrímsson & Co. Suðurlandsbraut 6 — Sími 3 86 40. Skurðgrafa Priestman Cub V árgerð 1963 til sölu. Upplýsingar gefur Jóhannes í síma 38900 og 51587.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.