Morgunblaðið - 02.02.1966, Qupperneq 2
2
MORGU N BLAÐIÐ
Miðvikudagur 2. febrúar 1966
Síldveiði ein tryggir
ckki varanlega
aflaaukningu
Frá fiskiþingi, sem sett var i gær
í GÆR kl. 15 var 28. Fiskiþing
sett í byggingu Rannsóknastofn-
ana sjávarútvegsins við Skúla-
götu.
Til þingsins hafði verið boðað
sl. laugardag, en vegna samgöngu
erfiðleika voru margir fulltrú-
anna þá ekki komnir til þings og
var því setning þingsins frestað
þar til í dag.
Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri
setti þingið með stuttri ræðu og
bauð fulltrúa velkomna til þings.
Minntist hann tveggja fyrrv.
Fiskiþingsfulltrúa, sem höfðu lát
izt frá því þingið sat síðast,
þeirra Helga Pálssonar frá Akur-
eyri og Haraldar Guðmundssonar
frá ísafirði. Ennfremur minntist
fiskimálastjóri sjómanna, sem lát
izt höfðu við skyldustörfin á haf-
inu á þessu tímabili en þeir
eru 49 að tölu. Risu þingfull-
rtúar úr sætum sínum í virðingu
við hina látnu.
í setningarræðu sinni vakti
fiskimálastjóri athygli á ýmsum
málum, sem fyrir þinginu lægju
og snertu hagsmuni sjávarútvegs-
ins á einn eða annan hátt, en
lagði jafnframt áherzlu á nauð-
syn þess, að kröftunum yrði ein-
beitt að þeim málum, sem telja
mætti að hefðu grundvallarþýð-
ingu, ekki aðeins á líðandi stund
eða í næstu framtíð heldur um
alía tíð. í þeim flokki mála taldi
hann fyrst og fremst vera allt
það, sem snertir sjálfa fiskistofn-
ana, viðgang þeirra og viðhald
og þá einnig nýtingu þeirra.
Vissulega væri ánægjulegt að
sjá hversu fiskafliinn hefði auk-
izt ár frá ári og sýndi það eitt
með öðru hugkvæmni og dugnað
íslenzkra fiskimanna. En á þess-
ari þróun væri líka önnur hlið,
sem gefa yrði gætur en það væri
sú staðreynd að þorskaflinn færi
ekki vaxandi heldur hefði hann
minnkað á sl. ári og jafnvel þótt
síldveiðin sé betri en nokkru
sinni fyrr væri ekki hyggilegt
að loka augunum fyrir því að
þar gætu einnig orðið breyting-
ar. Sú ábyrgð hvíldi á okkur,
sagði fiskimálastjóri, að ekkert
það væri gert af okkar hálfu sem
Framh. á bls. 10
Veðurbarin hús og snævi þaktir bílar settu svip á Akureyri, þegar óveðrið lægði.
(Ljósm. Sv. P.)
Víöa rafmagnslaust í óveðrinu
SSæmt ástand á Vestfjörðum um tíma
VÍÐSVEGAR um landið urðu
miklar bilanir á rafmagni í
óveðrinu, sem gekk yfir um helg
ina. Strax og veðurofsann lægði,
var farið • að kanna skemmdir
og gera við og er víðast komið
á rafmagn eða kemur innan
skamms. Mbl. fékk fréttir af raf
magnsbilunum úti á landi hjá
Guðjóni Guðmundssyni hjá Raf-
magnsveitunum. Sagði hann að
símasambandsleysið gerði raf-
magnsmönnum erfitt fyrir og
hefðu þeir því ekki frétt um
bilanirnar ails staðar.
í Borgarfirði urðu nokkuð
miklar bilanir, einkum á ein-
stökum bæjum hér og hvar um
héraðið. M. a. slitnaði lína yfir
Hvítá, en í gær komst straumur
aftur á í Borgarhreppi. Anda-
Bóndi slasast
Jeppakerra hvolfdist yfir hairn
GELDINGAHOLTI, 1. febrúar.
— Loftur Sigurðsson, bóndi á ný-
býlinu Breiðanesi í Gnúpverja-
hreppi varð fyrir slysi, er hann
á laugardagsmorgun var að aka
traktor með kerru aftan í heima
á Sandlæk.
Veður var mjög slæmt. Var
Loftur að bakka fyrir horn, er
kerran fauk upp og hvolfdist
yfir hann. Var hún föst við trakt-
orinn, en klemmdi Loft undir,
þegar hún hvolfdist. Hann meidd
ist mikið á baki og var fluttur
til Selfoss og síðan til Reykja-
víkur, þar sem hann liggur á
Landakotsspítala.
Óveðrið gekk hér yfir á laug-
ardag og sunnudag. Víða fuku
járnplötur og hey á stöku bæ.
Ekki 'hefur heyrzt um verulegt
tjón neins staðar. Rafmagns- og
símabilanir urðu, en allt er nú
komið í samt lag.
Frostin og þurrkarnir, sem ver
ið hafa að undanförnu, hafa
valdið nokkrum vandræðum, því
vatnslaust er orðið á nokkrum
bæjum.
— Jón.
DJÚPA lægðin suður af land-
inu þokaðist norður, og vindur
fór vaxandi við S-ströndina.
Voru 9 vindstig á Stórhöfða
um nónbílið. Annars staðar á
landinu var gola eða kaldi og
þurrt veður utan smáél á Rauf
arhöfn og Hornbjargsvita. —
Frost var víðast 4—10 stig,
mest 12 st. á Sauðárkróki.
Útlit er fyrir hvassa austan
átt sunnan lands í dag, og
verður þar sennilega orðið
frostlaust fyrir hádegi.
kílsárlinan til Akraness slitnaði,
er 4 e'ða 5 staurar fóru. Þar er
búið að gera við og er allt yfir-
leitt að komast í samt lag í
Borgarfirði.
Á Snæfelisnesi urðu talsverð-
ar truflanir, m. a. í Grafarnesi
og þar fyrir innan, en fljótlega
var gert við þar. Nokkuð margir
staurar brotnuðu á Fróðárheiði,
en unnið er að viðgerð nú. í
Saurbæjarhreppnum urðu nokkr
ar minni háttar bilanir, og átti
að gera þar við í gær.
Á Vestfjörðum var ástandið
mjög slæmt í rafmagnsmálunm
á tímabili. Voru allar höfuðlínur
allt frá ísafirði til Bolungarvík-
ur og suður til Sveinseyrar
straumlausar. Var Mjólkárvirkj
un þar með úr sambandi við
heildarkerfið. Allir þessir staðir
höfðu þó rafmagn frá varastöðv-
um, nema Þingeyri, þar sem
engin varastöð er. Kom í ljós
eftir að veðurofsann lægði, að
staurar voru brotnir á leiðinni
frá Hrafnseyri til Þingeyrar, og
var gert við þa til bráðabirgða.
Hinsvegar eru líka brotnir
staurar á leiðinni frá Þingeyri
til Flateyrar. Sagði Guðjón, að
allir staðir þar vestra væru nú
komnir með viðunandi rafmagn.
Nokkur bilun varð líka á innan-
bæjarkerfum, einkum í Bolung-
arvík og á Bíldudal. Var í gær
unnið að fullnaðarvi'ðgerð á
þessum háspennulínum.
í Húnavatnssýslu urðu tals-
verðar truflanii og minni háttar
rafmagnsbilanir, mestar á innan
bæjarkerfi á Skagaströnd. Hefur
verið unnið að viðgerð síðan
veðrinu slotaði. Einnig urðu
nokkrar truflanir í Laxárveitu
vegna krapa, en það er einnig
komið í lag.
í Skagafir'ði urðu ekki miklar
skemmdir á línum, en nokkrar
truflanir, einkum í Fljótum, þar
sem margir bæir urðu rafmagns-
lausir um tíma, mest vegna is-
ingar og krapa, sem hlóðst á
víra, staurá og spennustöðvar.
Linan frá Skeiðsfossi til Siglu-
fjarðar bilaði, og var í gær verið
að leita a'ð bilunarstöðum. En
Siglufjörður hefur rafmagn frá
varastöð og sildarverksmiðjun-
um. í Ólafsfirði var rafmagns-
laust um tíma. Línan þangað frá
Skeiðsfossvirkjun komst fljót-
lega í lag, en á línunni frá
Skahðsárvirkjun til kaupstaðar-
ins brotnuðu 13 staurar og er
viðgerð ekki lokið enn. Þá
skemmdist nokkuð af innanbæj-
arlfnum. í Eyjafirði urðu sömu-
leiðis talsvehðar truflanir á raf-
magni, en ekki meiri háttar bil-
anir.
Lítið er vitað um ástandið á
Norðausturlandi, því símasam-
bandslaust er þar. En ekki hefur
þó frétzt af meiri háttar skemmd
um. Á Austfjarðarveitum urðu
nokkuð miklar truflanir og
skemmdir á línum. Þó ekki á ö'ðr
um aðallínum en frá Eskifirði.
til Neskaupstaðar. Þar brotnaði
eitthvað af staurum. Einnig j
brotnuðu staurar á Norðfirði og
háspennulínustaurar innanbæj-
ar, samtals um 15 staurar. En
þar er dieselstö'ð og því alltaf
rafmagn. I Borgarfirði eystra
brotnaði allmikið af háspennu-
staurum, en þaðan eru óljósar
fréttir vegna símasambandsleys
is. í Stöðvarfirði brotnuðu
12—15 staurar í innanbæjarkerf-
inu.
Er unnið a'ð viðgerðum á öll-
um þessum stöðum og vonazt til
a'ð þeim Ijúki sem fyrst.
— Sovétrikin
Framhald af bls. 1
merkis um að Brezhnev og aðr-
ir leiðto'gar flokksins hafi gefið
frá sér alla von um að komizt
verði að sáttum við Kínverja.
Einnig segir að í bréfinu sé
Kína sakað um undirróðursstarf-
semi og um að koma af stað
sýndarskærum á landamærum
ríkjanna, um áróðursherferð
gegn Sovétríkjunum og sitthvað
fleira. Þá er og sagt að Sovét-
ríkin hafi ekki getað flutt sem
skyldi hergögn til Norður-Viet-
nam, því Kínverjar hafi tafið
fyrir slikum sendingum. Ennfrem
ur er Kínastjórn borin þeim sök-
um, að hún sé þrándur í götu
friðsamlegrar lausnar á Vietnam
málinu, með sífelldum ásökun-
um sínum um að Sovétríkin og
Bandaríkin hafist þar ekki að án
vitundar hvors annars.
STOKKHÓLMI. — 126 þing-
menn sænskir hafa lagt til að
Östen Undén, fyrrum utan-
ríkisráðherra Svía, hljóti frið
arverðlaun Nobels fyrir árið
1966.
tfúyen
-------/sJa<Fúf~ //-Z&jctft.
'/sjac/ay / /s6k /966
*
MsÍ€s&€Br£siÆa csSiur
£§^r N-R Ic&sadi
1 GÆR tór flugvél landhelgis-1
gæzlunnar í ísikönnunar'flug all't'
norður undir Jan Mayen. Gerði
veðurstofan síðan meðfylgjandi
kort, sem sýnir ísjaðarinn á
tveimur mismunandi tímabilum.
Það er 11.—20. janúar, að áliti
brezku veðurstofunnar og svo
hins vegar jaðarinn, eins og flug
menn landihelgisgæzlunnar sáu
(hann í gær.
Er þarna talsverður munur á.
Áður teygðist ísinn langt suður
fyrir norðan Melrakkas-léttu, en
var heldur lengra frá Horni. Nú
hefur sléttast mikið úr ísjaðrin-
um, svo hann liggur nærri í þráð
beina línu frá suðvestri til norð-
austurs, og er nú 120 sjómílur
undan Melrakkasléttu og 65 und
an Korni. Er ísinn því minni
ógnun við Norðausturlandið en
um daginn.
Flugmenn landlhelgisgæzlunn-
ar gátu þess, að þeir hefðu séð
ísinn mest í ratsjá, en 30 mílur
frá Melrakkasléttu töldu þeir sig
verða vara við ishrafL