Morgunblaðið - 02.02.1966, Side 8
8
MORGU N B LADIÐ
Miðvikudagur 2. febrúar 1966
Mál Lárusar Jóhannessonar gcgn Frjálsri þjóð
Verjandi blaðsins segir greinarnar
um Lárus almenns pólitísks eðlis
Kveður blaðið ekki haffa borið á hann
óheiðarleika eða refsivert athæfi
EINS og frá var skýrt í frétt
blaðsins í gær, hófst í fyrra-
dag munnlegur málflutning-
ur í máli Lárusar Jóhannes-
sonar, fyrrverandi hæstarétt-
ardómara, gegn aðstandend-
um Frjálsrar þjóðar, þeim
Einari Braga Sigurðssyni,
þáv. ábyrgðarmanni blaðsins
og fleirum. Þeir aðrir, sem
málið er höfðað gegn, eru
stjórnendur blaða- og útgáfu-
félagsins Huginn, sem ein-
göngu er stefnt vegna þess
að þeir höfðu látið undir höf-
uð leggjast að skrásetja fé-
lagið þegar meiðyrðagreinar
þær hirtust í hlaðinu, sem
mál þetta er höfðað út af.
Dómari í máli þessu er Guð-
mundur Jónsson, borgardómari,
en sækjandi í málinu Lárus Jó-
hannesson, fyrrum Hæstaréttar-
dóimari; flytur mál sitt sjálfur,
en verjandi er Ingi Ingimundar-
son, hæstaréttarlögmaður.
Lárus Jóhannesson gat þess í
upþhafi sóknarræðu sinnar, að
þegar hann hefði ákveðið að
höfða mál þetta, hefði það verið
vegna þess að hann kvaðst alls
engan frið hafa fengið til að
sinna störfum sínum í Hæstarétti
fyrir síendurteknum árásum
blaðsins. Hefði þessi málshö-fðun
þýbt það sama og biðjast lausn-
ar sem hæstaréttardómari. Hefði
hann gert það daginn eftir að
stefnan var birt aðalstefndum
í máli þessu .Síðan las Lárus
lausnarbeiðni sína, sem stíluð
var til dómsmálaráðherra. Var
Lárusi, sem kunnugt er, veitt
lausn frá störfum sem hæsta-
réttardómari með bréfi dóms-
málaráðuneytisins dagsettu 19.
marz 1964. Lárus sagði að skref
það er hann steig með þvi að
biðjast lausnar frá starfi hæsta-
réttardómara, hafi sér fallið
mjög þungt að þurfa að taka.
Hinsvegar hefði það að sínu áliti
verið nauðsynlegt og óumflýjan
legt, bæði sjálfs hans vegna,
Hæstaréttar og réttarfarsins í
landinu yfirleitt. Kvaðst hann
þvi lýsa sök á hendur ábyrgð-
armönnum Frjálsrar Þjóðar fyrir
að misnota prentfrelsið jafn
herfilega og þar hafi verið gert,
og með því neytt sig til að stíga
skref þetta.
Lárus Jóhannesson kvað_ mál
þetta hefjast með því, að Ágúst
Sigurðsson, verkamaður, Drápu-
hlíð 8 hér í borg, taldi sig hafa
greitt Jóhannesi Lárussyni af-
föll af víxli, sem Lárus seldi
síðan Búnaðarbanka íslands fyr-
ir Jóhannes og hafði í hönduim
kvittun Ágústs fyrir fullri
greiðslu víxilsins.
Rakti sækjandi síðan nokkuð
sögu þessra víxils, og sagði að
hann hefði komizt í vanskil og
þá til kasta Benedikts Guttorms-
sonar, bankafulltrúa, en hann
hefði einmitt sótt mjög fast að
verða bankastjóri, þegar Hilmar
heitinn Stefánsson léti af störf-
um, en hann varð að víkja
fyrir Stefáni Hilmarssyni. >á
sagði sækjandi að í stað
þess að skýra yfirboðurum
sínum frá þessari frásögn Ágústs
hefði Benedikt sent hann til Páls
Magnússonar, lögfræðings frá
Vallanesi, sem Hilmar sálugi
hafði sagt upp starfi sem lög-
fræðingi bankans. Hefði Páll
síðan búið út kæru á hendur
Búnaðarbankanum og Júhannesi
til sakadómara og síðan séð um
að senda hana þegar þeir feðgar
voru erlendis. >á skýrði sækj-
andi frá því að jafnframt hefði
Páll snúið sér til Frjálsrar Þjóð-
ar með ósk um birtingu kær-
unnar, eftir að Tíminn hafði
neitað að birta hana. Hefði
Frjáls Þjóð gripið kæruna feg-
ins hendi og birt hana orðrétta,
þó að margt væri við hana að
atlhuga, sem dró í efa sannleiks-
gildi hennar. Þetta hefði Frjáls
Þjóð gert án þess að snúa sér
til nokkurs þeirra er fyrir sök
voru hafðir, eða nefndir sem
heimildarmenn í kærunni og í
algjöru ósamræmi við allar siða-
reglur blaðamanna. >á gat sækj
andi þess einnig, að saksóknari
hefði neitað að taka þessa kæru
til greina með bréfi dagsettu 11.
nóvember 1963 að aflokinni
venjulegri rannsókn.
>á vitnar sækjandi, Lárus
Júhannesson, í ræðu sinni til um
mæla verjanda, þar sem segir í
greinargerð hans svo orðrétt;
„Stefnandi hefur ekki sannað
eða gert sennilegt, að honum
hafi verið hin minnsta nauð-
syn að grípa til þess ráðs að
segja af sér embætti hæstarétt-
ardómara, þótt nafn hans væri
stöku sinnum óhjákvæmilega
nefnt í sambandi við kærur á
hendur syni hans og Búnaðar-
bankanum. Bf stefnandi taldi
veitzt að sér, þá var honum inn-
an handar að krefjast opinberrar
rannsóknar og málshöfðunar,
sem tekið hefði tiltölulega stutt-
an tíma.“
Síðan segir verjandi í sömu
greinargerð;
„Úrsögn stefnanda úr Hæsta-
rétti er miklu víðtækari og
áhrifaríkari afleiðing en senni-
leg og eðlileg mátti teljast, og
eru þá skilyrði almennu saka-
bótareglunnar höfð í huga.“
Sækjandi kvaðst mundu taka
þessi ummæli, sem styngju svo
mjög í stúf við margar greinar
Frjálsrar Þjóðar, bæði á því tíma
bili sem þetta mál næði til, og
síðar, til rækilegrar athugunar
í máli þessu. En þó til enn ræki
legrar athugunar í sambandi við
málaferli hans við Berg Sigur-
björnsson, sem tekið hefði við
ritstjórn blaðsins við áramót
1963 til 1964.
í greinargerð sækjanda er upp
haf málsins skýrt, sem er æsi-
frétt með stærsta letri, -sem náði
yfir þrjá dálka á fyrstu síðu:
„Verkamaður kærir kunnan
lögfræðing og banka fyrir
meinta féflettingu.“
Er þannig gerð grein fyrir
máli Ágústs Sigurðssonar er
varð upphaf fyrrgreindra skrifa
blaðsins og þetta látið líta út
sem ný æsifrétt, þó að tvö og
hálft ár hafi verið liðið síðan
viðskiptin áttu sér stað.
Síðan segir Lárus Júhannes-
on í sóknarræðu sinni, að Ágúst
Sigurðsson og Jóhannes, sonur
Lárusar, verði algert aukatriði
í máli þessu en bendir á, að
úhætt sé að slá því föstu, að upp
hafsmenn ofsóknanna á hendur
Hilmari heitnum Stefánssyni,
bankastjóra Búnaðarbankans og
sér væru þeir Páll Magnús-
son og Benedikt Guttormsson.
Fyrir þeim hefði ekiki vakað á
nokkurn hátt að hjálpa Ágúsi Sig
urðssyni til að ná neinu ímynduð
um rétti á hendur Júhannesi, syni
Lárusar og Búnaðarbankanum,
heldur til að svala úslökkvandi
hatri sínu á Hilmari sáluga
Stefánssyni, fyrrverandi banka-
stjóra og megnri óvild sinni á
sér og andúð á stjórn landsins
og dómstólum.
Þessu næst rakti Lárus Jóhann
esson allítarlega afstöðu löggjaf-
arinnar til meðferðar blaða á
dómsmálum, sem fjallað var um
á þingi norrænna lögmanna, sem
haldið var í Helsingfors, dagana
17.-19. ágúst 1937. Kvaðst hann
gera þetta, þar sem þessi afstaða
skipti miklu máli í samtoandi við
mál sín gegn aðstandendum
Frjálsrar Þjóðar, enda hefðu
mörg gildandi lög um þessi efni
á Norðurlöndum verið mótuð og
sett eftir þessa ráðstefnu.
Þessu næst tók nú sækjandi
greinargerð verjanda tfyrir lið
fyrir lið, Fyrst ræddi hann í all-
löngu máli tildrög skrifanna, og
segir að því loknu, að hann
telji sig hafi sýnt fram á, að
ofsóknin á Hilmar sáluga
Steflánsson og hann sjálfaji hafi
byrjað sem hatursmál tveggja
manna, og að aðstandendur
Frjálsrar Þjóðar hafi tekið hana
upp á sína arma blaðinu til fjár-
hagslegs stuðnings og aðstandend
um þess til pólitísks framdrátt-
ar. Svo og til þess að reyna að
skaða þann flokk sem Lárus
var þingmaður fyrir fjögur kjör-
tímabil, og þá sérstaklega til að
svívirða þann ráðherra, sem bar
ábyrgð á skipun Lárusar Júhann
essonar sem hæstaréttardómara.
Mál það, sem hér um ræðir er
hið fyrsta af átta sem Lárus
höfðar gegn aðstandendum
Frjálsrar Þjóðar. Fjallar það um
meiðyrði í um 35 greinum í 5
tölublöðum Frjálsrar þjóðar, og
birtust á tímabilinu frá 7. sept-
ember til 5. október 1963. Fyrir
áramót 1963-64 birtust alls yfir
60 greinar í blaðinu um þessi
efni, auk árásargreina á helztu
embættismenn þjóðarinnar, svo
sem sakadómara, yfirsakadúm-
ara, saksóknara ríkisins, dóms-
málaráðherra, skattstjóra, hæsta
réttardómara og fleiri. Lárus
kvaðst strax hinn 10. sept. 1963
hafa snúið sér til Gils Guðmunds
sonar og skýrt honum frá því, að
árásirnar í blaðinu væru með
öllu rangar og ástæðulausar, og
jafnframt að honum væri fyrir-
munað að svara þeim, meðan
hann gegndi embætti hæstarétt-
ardómara. Hefði hann jafnframt
tjáð Gils að ef þeim héldi áfram,
gæti til þess komið, að hann
neyddist til þess að segja af sér
embætti til að verja sig gegn
þessum árrásum. Hefði hann
jafnframt boðið að gefa þær upp
lýsingar sem óskað væri eftir til
þess að blaðið færi með rétt mál,
en því tilboði hefði ekki verið
tekið.
í greinargerð Lárusar Jóhann
essonar fyrir máli þessu, sem er
72 vélritaðar síður, tekur hann
fyrir skrif Frjálsrar Þjóðar
hverja grein fyrir sig og rekur
hana lið fyrir lið og ræðir sann-
leiksgildi þeirra. Er það of langt
mál að fjalla um í stuttri frétt
um málið.
í ræðu sinni leiddi Lárus Jó-
hannesson rök að því að í fyrr-
nefndum greinum væri hann
borinn svo þungum sökum, að
hann gæti ekki látið þeim ósvar-
að. 1 greinunum taldi hann koma
fram dylgjur og aðdróttanir um
okur, skattsvik og að hann
hefði mútað Hilmari Stefáns-
syni, bankastjóra, til þess að
kaupa af sér verðbréf bankanum
í óhag. Þá væru einnig dylgjur
um undanskot skjala, og að
Lárus hefði gert sig sekan um
stórfelld fjársvik með tiltekinni
umlboðssölu verðbréfa.
Framhald á bls. 19
i
FASTEIGNAVAL
HÉ« «■ fcððk vM oH.o kcafl l TÍilÍlÍT t'« V, Imnn I F:rx\. r pNn I brOxii ii» í« •» fooiíin 11 4EA
Skólavörðustíg 3 A, II. hæð
Símar 22911 og 19255.
Til sölu m.a.
6 herb. efrihæð við Goðheima.
5 herb. efrihæð við Mávahlíð.
5 herb. risíbúð við Hofteig.
4ra herb. íbúð að mestu full-
gerð við Fellsmúla.
3ja herb. íbúð við Laugarnes-
veg. Útb. kr. 350 þús.
2ja—3ja herb. lítil risíbúð við
Mávahlíð. Útb. kr. 200 þús.
I smíðum
VI® HRAUNBÆ
3ja, 4ra og 5 herb. íbúðir selj-
ast tilbúnar undir tréverk
og málningu. SérþvOttahús
á hæð fylgir stærri íbúðun-
um.
Á FLÖTUNUM
138 ferm. raðhús á einni hæð
ásamt tvöföldum bílskúr.
Seljast fokheld en pússuð
að utan með tvöföldu verk-
smiðjugleri og öllum úti-
hurðum.
VI® VALLARGERÐI
8 herb. einbýlishús að mestu
fullgert. Geta verið tvær
íbúðir. Skipti á góðri 4ra—5
herb. íbúð koma til greina.
Jón Arason hdL
Höfum kaupanda að
2ja herbergja íbúð á góðum
stað í borginni.
Höfum kaupanda að
3ja herbergja íbúð í vestur-
borginni. Útb. um 500 þús.
Ilöfum kaupanda að
3ja til 4ra herbergja íbúð
í Háaleitishverfi eða Hlíð-
unum, mikil útborgun.
Höfum kaupanda að
4ra herbergja íbúð fok-
heldri eða lengra kominni.
Höfum kaupanda ai
5 til 6 herbergja íbúð, helzt
í austurborginni, nýrri eða
nýlegri. Mikil útborgun.
Höfum kaupendur að
einbýlishúsum í borginni og
víðar með miklar útborgan-
ir.
Skip og fasteignir
Austurstræti 12. Sírai 21735
Eftir lokun sími 36329.
Sími
14226
Höfum kaupendur
að öllum stærðum íbúða,
einbýlishúsum og raðhúsum.
Höfum kaupanda að einbýlis-
húsi í Mosfellssveit.
til sölu
Vönduð
4 herbergja
íbúð
7/7 sölu
3ja berb. íbúð við Hverfis-
götu. Lítil útborgun.
Lítið einbýlishús við Framnes
veg.
8 herb. íbúð við Skaftahlíð.
Vefnaðarvöruverzlun
við Laugaveg.
Fiskbúð í fjölmennu íbúða-
hverfi.
Fasteigna- og skipasala
Kristjáns Eiríkssonar, hrl
Laugavegi 27.
Sími 14226
Kvöldsími 40396.
við Lönguhbð
Ólaffur
Þorgrímsson
HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR
Fasteigna- og verðbréfaviðskifti
Austursfræfi 14, Sími 21785
PILTAR, ==
EFÞIÐ ElölD UNHUSTUNA
Þ'A Á tO HRINOANA /
Afgreiðslumaður
Óskum að ráðn lipran og ábyggilegan afgreiðslu-
mann í teppadeild okkar.
Upplýsingar á skrifstofunni (ekki í síma).
Geysir hf
Vesturgötu 1.
Jörð tíl sölu
Jörðin Norður-Botn í Tálknafjarðarhreppi, er til
sölu og laus til ábúðar í næstu fardögum.
Vélar og áhöfn geta fyigt. Semja ber við undirritað
an eiganda og ábúanda, sem gefur nánari upp-
lýsingar.
BJÖRGVIN SIGURBJÖRNSSON
Símstöð: Innsta-Tunga.