Morgunblaðið - 02.02.1966, Síða 28

Morgunblaðið - 02.02.1966, Síða 28
Langstæista og fjölbreyttasta blað landsins Helmingi útbreiddara en nokknrt annað íslenzkt blað Bílar fuku, 11 kindur fór- ust, kýr drapst Tjón af voBdum veðurs í Skagafirði SAUÐÁRKRÓKI, 1. febrúar. Á einum bæ í Skagafirði, Stapa í Lýtingsstaðahreppi, varð mikið tjón í veðrinu um heigina. Fjögurra tonna bíll fauk og eyðilágðist, svo og jeppabifreið og heygrind. Frosinn vegg tók úr fjár- húsi, með þeim afleiðingum að 11 kindur fórust. Gluggar og hurðir brotnuðu í fjósinu og kýrnar ofkældust og er ein þeirra dauð. Rúður brotn- uðu í spón í nýbyggðu stein- húsi á bænum og fleiri skemmdir urðu. Bóndinn á Stapa er Jóhann Guðmundsson. Hefur heimilið orðið fyrir mjög miklu tjóni. Hey fru fikru- nesi uusfur AKRANESI, 1. febrúar. — Ms. ísborg kom í morgun til að sækja 130 tonn af heyi handa bænd- um á kalsvæðunum austan lands. Allir línubátarnir eru á sjó í dag. — Oddur. Veðurofsinn mun hafa náð há- marki á þessum slóðum aðfara- nótt sunnudags. í framhluta Akrahrepps var veðurofsinn gífurlegur. Þak fauk af fjárhúshlö'ðu að Úlfs- stöðum og skemmdir urðu einnig á peningshúsum að Sól- heimagerði. Að Giisbakka á Kjáika fennti kindur í fjárhúsi. Fjárhúsið var nýbyggt, en ekki búið að byggja hlö'ðu við það. Tókst að bjarga kindunum lif- andi. Þess má einnig geta, að síma- sambandslaust hefur verið við Skaga og engar fregnir þaðan borizt. — Jón. Snjó mokað úr íbúðar húsum á Skagaströnd Skagaströnd, 1. febrúar. EhTNÞÁ hefur ekki verið hægt að meta tjónið, sem varð af völdurn ofviðrisins um helgina, en fullvíst þykir, að það er milijón króna tjón. Hafa allir haft nóg að gera við að byrgja þök, og glugga sína, og við að moka snjó út úr húsum sinum, en víða fennti inn í íbúðarhús hér, bæði inn um glugga, sem brotnað höfðu, og inn um göt á toúsþökum. Þá hafa menn líka verið önnum kafnix við að tína saman þakplötur, sem eru hér allsstaðar eins og hráviði, ef svo færi að ofviðrið endur- tæki sig. Eina tilfinnanlegast virðist tjónið hafa orðið hjá Sildar- Influensa í Bretlandi í erlendum blöðum hafa að und- anförnu verið fregnir um að brögð séu að influensu í Hollandi Bretlandi og Skotlandi, einkum í Glasgow. Mbl. sneri sér því til landlæknis, Sigurðar Sigurðsson- ar, og leitaði frétta af þessu. Landlæknir sagði, að ekki væri getið um influensu í frétáa tilkynningu frá Aiþjóðaheil- brigðisstofnuninni, sem dagsett er 28. janúar. En þar sem hann hafði heyrt að influensa væri í Englandi, spurðist hann fyrir hjó miðstöðinni fyrir inifluensu í London, og fék'k það svar að influensa gengi í Englandi, eink- um í Bristol. Væri þar um B- tegund að ræða, en ekki mun búið að finna hvaða stofn af B- tegund þetta sé. verksmíðju ríkisins, en þar fauk járn utan af stálgrindarhúsi, sem í voru geymd soðkjarnatæki, auk þess sem rúður brotnuðu, hurðir fuku upp ,og sópuðust burtu. Eru heiiu snjóskaflarnir inni í verksmiðjunni, jafnt og fyrir utan, en geysileg fannkoma fylgdi óveðrinu, og barst snjór- inn inn í verksmiðjuna gegnum opna glugga og dyr. — Þórður. Þessi fallega mynd var tekin á Húsavík í gærmorgun, Snjó- skaflinn myndar ramma um s vipmynd frá höfninni. Ljósm. S. P. B. Símalínur slitnar og staurar brotnir víðsvegar um landið Menn og efni sent til viðgeröa Miklar símabilanir urðu í ó- veðrinu um helgina, því víða brotnuðu staurar og línur eða jafnvel grófust í snjó. Símasam- bandslaust var því viða um land ið og er talsvert bilað enn. Mbl. fékk í gær yfirlit yfir hin bil- uðu svæði hjá Ársæli Magnús- syni, símamanni. Símabilun er í hluta af Dala- sýslu O'g Barðastrandasýslu, eða á svæðinu frá Ásgarði í Dölum og til Patreksfjarðar. Er t.d. mikið slitið í Raknadalshlíð í Patreksfirði, og Svínadalnum er línan sums staðar á kafi í snjó. Við ísafjörð eru bæði slitnar línur og brotnir staurar. Er sam- bandslaust við Djúpið allt frá Súðavík og að Kirkjuibóli. Og „Fjárhúsið fór í spón og strákurinn barst 20 m. En íbúðarhúsið fluttist bara breidd sina 66 sagði bóndinn á Reykjarhóli í símtali við Mbf. — Jú, við voruirn í húsinu, þegar snjóflóðið skall á þvL Þetta er járnklætt timburhús með kjallara úr steini. Kjall- arinn brotnaði undan því og gólfið fylgdi húsinu, þegar það rann breidd sína. Snjó- flóðið var nú ekki kraftmeira en það, þegar það lenti á húsinu. Áftur á móti fóru fjárhúsin í spóm og sonur minn barst með snjóflóðinu um 20 m. Þetta sagði bóndinn á Reykj ar'bóli í Fljótum, Alfreð Jónsson, er Mbl. átti simtal við toann í gær. En snjóflóð féll á bæ hans á suninudag, eins og skýrt var frá f telað- imi í gær. — Við vorum fjögur heima tengdamóðir mín, ég og tveir synir. Annar strákurinn var við fjárhúsið, en við hin inni, sagði Alfreð. Fjárhúsið brotn aði alveg niður og kindurnar grófust í snjóinn. Tvær þeirra drápust, en nokkrar eru eitt- hvað lemstraðar. En sonur minn fluttist með snjóflóðinu um 20 m. Hann flaut ofan á og sakaði ekki. — Þetta var rétt eftir há- degið og ég hafði lagt mig, tengdamóðir mín var í eld- toúsinu og annar strákurinn í forstofunnd. Þau köstuðust út í vegg, en sakaði ekki. Allir hlutir í húsinu köstuðust til, en lentu ekki á neinum. Ég vissi ekki hvað var að gerast, ag hreyfði mig ekki fyrr en húsið hafði stöðvast. Enda tók þetta ekki langa stund. — Hvað gerðuð þið þá? Var ekki vitlaust veður? — Jú, það var alveg brjál- aS veður. Ég kom gömlu kon unni í fjósið til bráðabirgða, en það er góðan spöl frá og slapp alveg. Síðar fórum við með hana á sleða á næsta bæ. í fjárhúsinu voru 30 kind ur og við hringdum á næstu bæi eftir hjálp til að grafa þær upp úr snjónum. — Gátuð þið hringt? Slitn- aði ekki símalínan, þegar hús ið fluttist úr stað? — Nei, húsið færðist í þá áttina, sem símah'nan liggur. Um 30 kindur voru í fjárhús inu, því ég er aðalleiga með Framh. á bls. 3 töluvert er um smábilanir, sem ekki eru fullkannaðar. Frá Guðlaugsvík í Hrútafirði og til Hólmavíkur í Steingríms- firði eru línur mikið slitnar, Kvaðst Ársæll hafa óljósar fregn ir um að línan sé slitin á 5 km. löngum kafla hjá Hvalsá. Skriða á símalínunni. Húnavatnssýslusíminn er i sæmilegu lagi, en á Skaga er mikið bilað á notendalínum og sambandlaust milli Sauðárkróks og stöðva úti á Skaganum. Frá Siglufirði til Ólafsfjarðar liggur lína ura Fljótin og Lágheiði, en um 3 km. suður af Þrastastöð- um hefur fallið snjóskriða á hana á 3 km. löngum kafla. Á Norðaustanverðu landinu er sambandlaust við Raufarhöfn. Er eitthvað brotið af staurum og slitnar línur á Melrakka- sléttu, en ekki liggja fyrir ná- kvæmar upplýsingar um það. Þórshöfn er alveg sambandslaus. Frá Vopnafirði fréttist að bæði notendalínur og landssímalínur séu slitnar. Á Héraði er sam- bandslaust við nýja símstöð 1 Tunguhreppi, og notendalínur eru mikið skemmdar. Símasam- band er komið við Egilsstaði, en samibandslaust er í BorgarfjÖrð eystri vegna bilana frá Hjalta- stað að Unaósi, en þaðan eru skemmdir ókannaðar. Frá Seyð- Framhald á bls. 10 VÖRÐUR ÞEIR, SEM hafa fengið happ- drættismiöa frá Afmælishapp- drætti Varðar, eru vinsamlega beðnir að gera skil sem fyrst. Skrifstofan er í Sjálfslæöis- húsinu við Austurvöll, — simi 17104.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.