Morgunblaðið - 23.02.1966, Blaðsíða 8
8
MORCU N BLAÐIÐ
Miðvikudagur 23. febrúar 1966
= FRÁ ALÞINGI =
Ríkisfyrirtæki greiði
aðstöðugjöld
Magnús Jónsson fjármálaráð-
herra mælti í gær fyrir frum-
varpi um breytingu á lögum um
tekjustofna sveitarfélaga. Sagði
ráðherra m. a. í ræðu sinni að
með frumvarpi þessu væri lagt
til, að ákvæðum um ákvörðun
landsútsvars sumra ríkisfyrir-
tækja yrði breytt. Yrði breyting
unni þannig háttað, að landsút-
svör ákveðinna ríkisfyrirtækja,
og skipti þar síldcirverksmiðjur
rikisins mestu máli, yrði ákveð-
ið með sama hætti og tekjuút-
svör félaga. Einnig væri lagt til,
að þessi ríkisfyrirtæki greiddu
aðstöðugjald til þeirra sveitar-
félaga, þar sem þau væru starf-
rækt, en samkvæmt núgildandi
lögum væru þau undanþegin
aðstöðugjaldi.
Tilefni frumvarps þessa væru
eindregnar óskir sem komið
hefðu fram frá sambandi ísl.
sveitarfélaga um að núverandi
fyrirkomulagi yrði breytt og
höfuðröksemdin væri að þessi
ríkisfyrirtæki greiddu gjöld
eftir öðrum reglum, en einka-
fyrirtæki, þrátt fyrir mjög svip-
aðan rekstur væri að ræða.
Frumvarp þetta hefði verið sent
til stjórnar síldarverksmiðja
ríkisins og hefði hún fyrir sitt
leyti samþykkt þau sjónarmið er
Atvinnufyrirtæki njóti
skattfríðinda
Jón horsteinssom (A) mælti í
gær fyrir frumvarpi er hann flyt-
ur ásamt Friðjóni Skarphéðins-
syni um heimild til að veita nýj-
um iðju- og iðnaðarfyrirtækj-
um skattfríðindi. Flutningsmaður
sagði m. a. í framsöguræðu sinni
að megintilgangur með flutningi
þessa frumvarps væri sá, að
hvetja til stofnunar nýrra at-
vinnufyrirtækja og staðsetningar
þeirra á þeim stöðum, þar sem
iþörfin fyrir þau væri mest. Rakti
flutningsmaður síðan ákvæði
frumvarpsins, en í 1. grein þess
segir svo: Iðnaðarmálaráðherra
er heimilt að veita nýjum iðju-
og i^naðarfyrirtækjum, sem stofn
uð eru eftir gildistöku laga þess-
ara og staðsett eru í sveitarfélög-
jim, þar sem atvinna er ónóg,
undanþágu frá greiðslu tekjuút-
srvars, aðstöðugjalds og tekju-
skatts fyrstu fimm árin, er fyrir-
tækin starfa. Eftir þann tíma
greiði fyrirtæki þessi útsvör og
skatta sem aðrir samkvæmt gild-
andi lögum. Undanþáguheimild
er bundin því skilyrði, að fyrir
liggi meðmæli stjórnar Atvinnu-
bótasjóðs og meðmæii viðkom-
andi sveitarstjórnar. í annarri
grein frumvarpsins segir að at-
vinnufyrirtæki, sem aðnjótandi
Bloð lögmanna
Nýtt hefti komið út
BLAÐ LÖGMANNA, 4. tbl., er
'fyrir nokkru komið út. Útgefandi
blaðsins er Lögmannafélag fs-
lands, en ritstjórn skipa lögmenn
irnir Egill Sigurgeirsson, hrl.,
og Þorvaldur Ari Arason, hrl.
Margvíslegt efni er í þessu
hefti, og má til nefna Bréf Dóm-
arafélags íslands til Lögmanna-
félags íslands um málflutnings-
leyfi dómara og dómarafulltrúa,
greinina Starfsemi L.M.F.Í.
1964 eftir Ágúst Fjeldsted, hrl.,
formann lögmannafélagsins, frá-
sögn af aðalfundi LMFÍ, fréttir
frá Hæstarétti, greinin Mál-
fluningsmanninn eftir Ahnfeldt
-Rönne, |>gu um Pál lögmann
Vídalín og vísu eftir hann, árs-
reikninga lögmannafélagsin,
minningarorð um Lárus Fjeld-
sted, hrl., og Guðmund Ásmunds
son, hrl., Alþjóðlegan lögdag eft-
ir Egil Sigurgeirsson, skrá um
nýveitt lögmannsréttindi (hæsta
réttarlögmenn og héraðsdómglög
menn), fréttaþáttinn Embætta-
veitingar, Frá Sakadómi Reykja
víkur 196411905, Fréttir frá borg-
ardómaraembættinu, Frá em-
bætti saksóknara ríkisins, fréttir
frá lögmannastofum og ýmsa
amáþætti og srnælki.
skattfríðinda samkvæmt lögum
þessum, sé óheimilt að borga út
sem arð til hluthafa eða eigenda
það fé, sem fyrirtækinu spar-
ast vegna undanlþágunnar frá
greiðslu gjalanna.
Magnús Jónsson fjármálaráð-
herra sagði mál þetta athyglis-
vert og til þess væru dæmi meðal
annarra þjóða að þessi leið væri
farin og einnig notuðu sumar
þjóðir hliðstæðar aðferðir til að
laða til sín erlent fjármagn. Mál-
ið væri hinsvegar mjög flókið og
erfitt í framkvæmd og erfitt yrði
að finna reglur er gætu þjónað
vel öllu réttlæti. Mætti t. d. nefna
að þeim fyrirtækjum sem fyrir
væru á þessum ákveðnu stöðum
væri nú gert að greiða mikla
skatta og því yrði um að ræða
verulega mismunun, ef öðrum
nýjum yrði veitt skattundan-
þága. Nú væri það rætt að gera
framkvæmdaáætlun fyrir þá
staði sem verst væru settir at-
vinnulega og sennilegt væri að
einhverjar ráðstafanir yrðu gerð-
ar í sambandi við þá uppbygg-
ingu. Nauðsynlegt væri að meira
þyrfti til undaniþáguheimildar en
meðmæli eins sjóðs, — slíkar að-
gerðir yrðu að vera í samræmi og
samkvæmt uppbyggingaráætlun.
Ríkissjóður styrki
skjólbeltagerð
Ingólfur Jónsson landbúnað-
arráðherra mælti í gær fyrir
frumvarpi um viðauka við lög
nr. 3/1955, um skógrækt.
Ráðherra sagði m. a. í ræðu
sinni að lengi hefði verið unnið
að því í norðan-
og vestanverðri
Evrópu, a ð
koma upp skjól
beltum til þess
að auka gróður-
inn. Það væri
talið, að skjól-
beltin gerðu
mikið til þess
að auka gróður-
vöxtinn og þá sérstaklega þar,
sem veður væru óstöðug og
kuldasöm. Væri það talið, að
hitastigið yrði hærra á hinu
skýlda svæði en á berangri og
minni hætta væri þar á nætur-
frostum.
í seinni tíð hefðu íslendingar
gert sér ljóst, hvers virði það
væri fyrir þjóðina að vernda
gróðurinn og auka hann. Vitað
væri, að á landnámsöld hefði
verið hér miklu gróðursælla og
fróðir menn teldu, að svo hefði
verið komið okkar málum um
síðustu aldamót, áður en sand-
græðslan tók til starfa, að ef
ekki hefði verið hafizt handa,
hefðu heil héruð lagst í auðn.
En nú hefði verið spyrnt við
fótum, sandgræðslan hefði unnið
þrekvirki í meira en hálfa öld,
og nú væri komin sókn í stað
undanhaldsins og jarðvegur og
gróðurinn verndaður. Á síðasta
þingi hefðu verið sett lög um
gróðurvernd og landgræðslu, og
í seinni tíð hefði verið aukið
það fé, sem varið væri til gróð-
urverndar, uppgræðslu og rækt-
unar. Skógræktin hefði einnig
fengið talsvert fé til umráða,
enda væru flestir sammála um,
að hún gegndi í megin atriðum
því hlutverki að binda gróður-
inn, vernda jarðveginn, skapa
skjól og gera allan vöxt jurt-
anna örari.
Um skjólbeltin væri hinsveg-
ar lítið um að ræða hérlendis
enn sem komið væri, þrátt fyrir
að þau hefðu eigi að síður miklu
hlutverki að gegna hér í fram-
tíðinni, ekki síður en á hinum
Norðurlöndunum.
Ráðherra vék síðan að ein-
stökum greinum frumvarpsins
en samkv. 1. grein þess er lagt
til, að ríkissjóður styrki rækt-
un skjólbelta eftir því sem fé
verði veitt til á fjárlögum
hverju sinni. f 2. grein er
kveðið á um, að allir ábúendur
lögbýla og félagsbundin samtök
um ræktun korns og garðávaxta
geti komið til greina til þess
að njóta styrks.
Samkvæmt 4. grein er styrkur
því háður, að skógarvörður og
héraðsráðunautur hafi mælt
með landinu, sem tekið er til
ræktunar. Einnig er kveðið svo
á, að það skuli ekki veittur
styrktur fyrr en vissum áfanga
er náð, þannig að það sé sýni-
legt, að rétt hafi verið að farið
og það sem gert hafi verið beri
árangur.
i>á er ákveðið með 5. grein,
hvernig skuli fara með girðing-
ar og annað, sem þessi mál
snerta og í 6. grein er ákveðið
hversu styrkurinn megi nema
miklum kostnaði, en gert er ráð
fyrir ,að hann megi verða lh af
girðingarkostnaði og helmingur
af gróðursetningarkostnaði.
fram kæmu í frumvarpinu, en
nokkur skoðanamunur hefði
komið fram varðandi það atriði
hvernig útsvarsálögunum yrði
hagað og þeim skipt niður.
Hefðu komið fram raddir um að
ástæða væri til að breyta regl-
um um skiptingu landsútsvara,
en þær hugmyndir hefðu mætt
mótspyrnu frá sambandi ísl.
sveitafélaga. Ráðherra sagði að
lokum, að mál þessi væru mjög
flókin og margþætt og gera
þyrfti sér ljósa grein fyrir þeim
afleiðingum er samþykkt frum-
varpsins hefði í för með sér.
Jón Þorsteinsson (A) sagði að
með frumvarpi þessu væri tekin
stefna í rétta átt, þótt einstök
atriði frumvarpsins væru nokk-
uð óljós t. d. hvernig landsút-
svar verði lagt á. Mætti um það
spyrja hvort leggja ætti þetta
landsútsvar á í hverju sveitar-
félagi fyrir sig, eða í einu lagi,
og ef það væri gert, eftir hvaða
reglum ætti þá að fara um út-
hlutun til sveitarfélaganna. Jón
taldi einnig að tillögur sem fram
hefðu komið í stjórn Síldarverk-
smiðja ríkisins, væru athyglis-
verðar, þar sem þær miðuðu að
því að jafna aðstöðugjaldinu
meira milli sveitarfélaga. ,
FYRIR KONUR FYRIR BÖRN
NÆLONSLOPPAR NANKIN
lítil númer GALLABUXUR
775 kt. 770 kr.
NÆLON GREIÐSLU- GOLFTREYJUR
SLOPPAR 750 kr.
490 kr. POLLABUXUR
BLÚSSUR 75 kr.
(straufríar) 160 kr. ULLAR DRENGJABUXUR
KVENBUXUR 250 kr.
25 kr. NÆLONUNDIR- KJÓLAR DRENGJASKYRTUR 65 kr.
750 kr. NÆRBUXUR
NÆLONNÁTT- 25 kr.
KJÓLAR 750 kr. BOLIR
NÆLONSOKKAR 25 kr.
75 kr. KREPSOKKAR UNGBARNA- SAMFESTINGAR
27 kr. BÓMULLARPEYSUR 40 kr.
20 kr. KREPHOSUR
KVENSPORTBUXUR 75 kr.
275 kr.
FYRIR KARLMENN
NANKIN GALLABUXUR 225 kr.
HERRASKYRTUR 750 kr.
NÆLONSKYRTUR lítil númer 2 00 kr.
SPORTSKYRTUR 750 kr.
KREPSOKKAR 30 kr.
NÆRFATNAÐUR margar teg. — Lágt verð.
Allskonar metravara. — Lágt verð.
Allf selt fyrir ótrúlega
lágt verð
AUSTURSTRÆTI 9.