Morgunblaðið - 28.04.1966, Qupperneq 14
14
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 28. apríl 1966
Ávarp Birgis ísL Gunnarssonar d fundi borgarstjóra í Sigtúni:
2500 íbúðir byggðar í
borginni á sl. fjdrum árum
— eða fyrir 10 Jbús. manns —
— Ibúum borgarinnar fjölgaði um
5800 á þvi timabili
í>AÐ ER einkenni þess þjóð-
skipulags, sem við búum við, að
á fjögurra ára fresti eiga borg-
arar Reykjavíkur að gera upp
sinn hug um það, hverjir fara
eiga með stjórn borgarmálefna
næsta tímabil. Þetta leggur
borgurunum vissar skyldur á
herðar. Þeir þurfa að kynna sér
sem bezt, hvernig þeir, sem með
stjórnina hafa farið, hafi unnið
sitt verk og hvort þeir hafi stað-
ið að hagsmunamálum borgar-
búa á þann hátt, að við verði
unað. Borgararnir þurfa emnig
að kynna sér stefnuskrár þeirra,
sem bjóða handleiðslu sína, en
þar er þó sá hængur á, að á þeím
vikum, sem nú fara í hönd
skortir ekkert á fögur orð og
stór loforð — og oft kann að
verða erfitt að átta sig á þeim
orðaflaumi. En svo miklar, sem
skyldur borgaranna eru, hafa
stjórnendurnir ennþá meiri
skyldum að gegna. Þeim ber„
skylda til að skýra borgurunum
satt og rétt frá málefnum borg-
arinnar og gera allt, sem í þeirra
val-di stendur til að ræða á mái-
efnalegum grundvelli hin ýmsu
verkefni, sem borgin hefur með
höndum og þau vandamál, sem
að steðja hverju sinni.
I vaxandi borg verður per-
sónulegt samband stjórnenda og
borgara æ erfiðara. Stjórnend-
urnir verða þó að leggja sig
fram við að koma til móts við
borgarana — heyra aðfinnslur
þeirra og athugasemdir og svara
fyrirspurnum þeirra, því að á
þann eina hátt má vænta þess
að stjórn borgarinnar og al-
anennir hagsmunir borgarbúa
fari saman.
Það er ánægjuleg og skemmti-
leg nýjung að Geir Hallgríms-
son, borgarstjóri, skuli boða til
funda meðal reykvískra kjós-
enda í hinum ýmsu hverfum
borgarinnar. Þessir fundir eru
haldnir til að auðvelda borg-
urunum að gera sér grein fyrir
því, sem unnið hefur verið að
undanförnu. Ég hvet alla reyk-
viska borgara til að kynna sér
sem bezt málefni borgarinnar nú
næstu vikur og reyndar nota
tækifærið hér í kvöld ti'l að
varpa fram fyrirspurnum um
borgarmálin.
Þeir íbúar Reykjavíkur, sem
komnir eru nokkuð til ára sinna
hafa séð Reykjavík vaxa úr litlu
sjávarþorpi í stóra, fjölmenna
Og fagra borg. Sú þróun hefur
ekki orðið átakalaus og vafa-
laust finnst okkur nú, að sumt
hefði mátt betur fara. í þróun
borgarinnar, en verðum þó að
reyna að setja okkur í spor
þeirra, sem á hverjum tíma
stýrðu málum og voru mótaðir
af hugmyndum síns tíma. En
Reykjavík hefur ávallt átt fram-
sýna menn, sem hafa getað beint
sjónum sínum langt fram á veg-
inn.
Það eru nú t.d. hérumbil 100
ár síðan Sigurður Guðmunds-
son, málari, setti fram skipulags-
hugmyndir sínar um Reykjavík,
þar sem hann m.a. kvað upp úr
um það, að í Laugardalnum ætti
að vera íþróttasvæði í framtíð-
inni, einmitt á þeim sama stað,
þar sem nú er verið að búa
æskulýðnum framtíðaraðstöðu
til iþróttaiðkana með glæsileg-
um iþróttamannvirkjum.
En skipulagshugmyndir Sig-
urðar, þótt framsýnar væru,
voru þó meir byggðar á fegurð-
arskyni og eðlishvöt hans sjál's
heldur en vísindalegum útreikn-
ingum. Þær skipulagshugmynó-
ir, sem nú eru uppi og birtast í
bókinni um aðalsktpulúg
Reykjavikur 1962—1903 eiga það
sameiginlegt með skipulagshug-
myndum Sigurðar Guðmunds-
sonar, að þær eru framsýnar, en
eru hinsvegar byggðar á traust-
um, fræðilegum grundvelli, þar
sem nýjustu tækni í skipulags-
málum er beitt, tækni, sem ekki
var farið að beita fyrr en fyrir
örfáum árum síðan.
í aðalskipulaginu er reynt að
sameina niðurstöður ýmissa
fræðigreina og ýmissa þátta,
Birgir ísleifur Gunnarsson
sem taka verður tillit til, þegar
borg er skipulögð eins og glögg-
lega kom fram í ræðu borgar-
stjóra hér áðan.
En á sama hátt og taka verður
tillit til margra þátta við sjálft
skipuiagsstarfið eru verkefni
borgarstjórnar margiþætt og um-
fangsmikil og virðast fara vax-
andi. Þessi fjölþættu verkefni
eru nátengd lífi og starfi Ibú-
anna í borginni. Geir Hallgríms-
son hefur í sinni ræðu gert grein
fyrir mörgum þessara verkefna
og um þau verður ekki fjölyrt
hér, en ég nefni þó aðeins sem
dæmi um hin fjölþættu verk-
efni: undirbúning nýrra bygg-
ingarsvæða með gatna- og hol-
ræsagerð, svo og endanlegan
frágang gatna, byggingu skóla,
íþróttamannvirkja, sjúkrahúsa
og annarra heilbrigðisstofnana,
barnaheimila og leikvalla. Upp-
byggingu og rekstur hinna ýmsu
borgarfyrirtækja eins og Raf-
magnsveitu, Vatnsveitu, Hita-
veitu og Reykjavíkurhafnar. Þá
hefur borgin beint í ríkum mæli
að undanförnu kröftum sínum
að lausn ýmissa félagslegra
vandamála, eins og t.d. málefn-
um aldraðra. Þetta eru þó aðeins
dæmi um hina fjölþættu og vax-
andi starfsemi Reykjavíkur-
■borgar. Og það er sameiginlegt
öllum þessum verkefnum að þau
verða ekki í nútímaþjóðfélagi
leyst eftir því sem vandamálin
berast mönnum upp í hendur
frá degi til dags, heldur verður
að skyggnast í hverju máli langt
fram í tímann og mynda sér
fyrirfram hugmyndir um fram-
tíðaruppbyggingu.
Þróun borgarinnar er ör. Gest-
ir, sem hingað koma og það
jafnvel á fárra ára fresti undr-
ast stórlega þær íramkvæmdir
og framfarir og þá útþenslu, sem
á sér stað hér í borginni. Við
skulum taka byggingarmálin til
dæmis. Á sl. fjórum árum hafa
verið byggðar um það bil 2500
íbúðir í Reykjavík. Rannsóknir
sýna, að að meðaltali búa um 4
íbúar í hverri íbúð í Reykja-
vík, en þetta þýðir, að byggt hafi
verið fyrir um 10.000 manns eða
byggt yfir meira en alla íbúa
Akureyrar eða yfir allt það fólk,
sem býr í kaupstöðunum, Ólafs-
firði, Sauðárkróki, ísafirði,
Seyðisfirði, Neskaupstað og
Húsavík. Þó byggt hafi verið yf-
ir 10.000 manns á sl. 4 árum,
fjölgaði íbúum hér í borginni
hvergi nærri svo mikið eða um
5800 manns. Það sem umfram
hefur verið byggt, hefur því
farið til að bæta húsnæðis-
ástandið í borginni.
Þessar tölur sýna glögglega, að
hér hefur verið mikið byggt og
húnæðisástand því batnað að
mun, enda t.d. braggaíbúðum nú
útrýmt og hús eins og Pólarnir
rifið. Þetta segir þó ekki alla
söguna, enda byggingarkostnað-
ur hér svo hár, að borgarstjórn
hefur talið þörf sérstakra úr-
ræða til að aðstoða þá, sem mið-
ur væru staddir í þessum efnum.
Á sl. fjórum árum hefur Reykja-
víkurborg sjálf byggt 298 íbúðir.
Af þeim hafa 128 verið seldir,
en 170 verið leigðar út.
Borgarstjórn hefur nú nýlega
samþykkt heildartillögur um
áframhaldandi aðgerðir í hús-
næðismálum. í tillögunum er
gert ráð fyrir miklum fram-
kvæmdum á þessu sviði á árun-
um 1966—1970, en jafnframt hef-
ur verið séð til þess, að fjár-
magn væri fyrir hendi miðað
við, að lánsfé fáist, sem gert er
ráð fyrir í lögum og reglugerð-
um um húsnæðismál. Sam-
kvæmt þessum tillögum á að
'fryggja 100 litlar, en hagkvæmar
íbúðir fyrir aldrað fólk sam-
kvæmt sérstakri áætiun, sein
gerð hefur verið um máleíni
aldraðra. Þá verði byggðar 200
litlar íbúðir, tveggja, þriggja og
fjögurra herbergja að stærð.
Verði þær eign Byggingarsjóðs
Reykjavíkurborgar og leigðar
efnalitlum fjölskyldum, þ.á.m.
ungum hjónum.
Þá verði byggðar 50 Jbúðir,
tveggja, þriggja og fjögurra her-
bergja að stærð og þær seldar
með hagstæðum kjörum eða
leigðar út. Að lokum er gert ráð
fyrir, að Byggingarsjóður
Reykjavikurborgar veiti hag-
stæð lán út á 300-400 í'búðir, allt
að 100 þúsund krónum á íbúð,
enda sé um að ræða litlar íbúðir,
er falli undir lánveitingu Hús-
næðismálastjórnar. Þessi lán
verða m.a. veitt ungu fólki, er
stofni til samtaka um byggingu
fjölbýlishúsa eða félögum og
stofnunum, sem byggja leigu-
íbúðir fyrir tiltekna hópa fólks,
t.d. gifta stúdenta, aðra náms-
menn eða öryrkja. Um þessi lán
verða settar sérstakar úthlutun-
arreglur.
Samkvæmt þessu hyggst borg-
arstjórn ýmist byggja eða veita
beina aðstoð við byggingu al'lt
að 750 íbúða á næstu 4-5 árum.
Byggingarþörfin í allri borginni
er talin vera um 700 íbúðir á
ári og því er sá fjöldi íbúða, sem
byggingaráætlun borgarinnar
tekur til 27% eða 21% af heild-
arbyggingarþörfinni eftir því
hvort tillögurnar verði fram-
kvæmdar á 4 eða 5 árum. En
hvaða aðstoðar geta þeir vænst,
sem ekki falla undir byggingar-
áætlun borgarinnar. Sú aðstoð
er nú fólgin í lánum frá hús-
næðismálastjórn eða öðrum
stofnunum, sem slíka þjónustu
veita. Það er enginn vafi á því,
að hinn hái byggingarkostnaður
og það hve tiltölulega lítill hluti
fæst að Iánl, er eitt, mikilvæg-
asta verkefni íslenzkna stjórn-
mála í dag, sem snei Vr. ekki sízt
yngri kynslóðina, sem vill og
þarf að koma sér upp eigin hús-
næði. í samningum ríkisstjórn-
arinnar og verkalýðsfélaganna,
sem gerðir voru á sl. sumri, er
gert ráð fyrir ákveðnu kerfi,
þar sem kaupendur þeirra
íbúða, sem þar greinir geti feng-
ið 80% kostnaðarverðsins að
láni, og þurfa þó ekki að greiða
þau 20%, sem þá eru eftir í einu
lagi. Slíkt kerfi þarf að útvíkka
og gera sem flestum húsbyggj-
endum, sem vilja byggja litlar
og hagkvæmar íbúðir, kleift að
verða þess aðnjótandi. Hér er
ekki um að ræða beint verkefni
borgarstjórnar Reykjavíkur, en
snertir íbúa borgarinnar — og
þá ekki sízt unga fólkið mjög
mikið.
Á þessum fundi hefur þegar
verið rætt um margvíslegar
framkvæmdir borgarinnar — og
líklegt er að þær verði frekara
umræðuefni hér á eftir. En all-
ar þessar framkvæmdir kosta fé,
sem aðeins verður tekið frá
borgurunum sjálfum. Það ríður
því á miklu, að fjármagn það,
sem borgin hefur til umráða
hverju sinni nýtist sem bezt. Að
visu er það svo að stór hluti út-
gjalda borgarsjóðs er lög'bund-
inn, t.d. til starfsemi almanna-
trygginga, til atvinnuleysis-
tryggingasjóðs og annarra
skyldrar starfsemi. Að því er
þau útgjöld snertir, sem borgin
ræður sjálf, hversu mikil eru,
er það víst að rekstursútgjöldúm
er haldið niðri eins og mögulegt
er, og reynt er að beita hagsýni
við fjármálastjórn borgarinnar.
Sú hagsýni, sem beitt er við
rekstur borgarinnar sést einna
Þ O G N I N
Sænsk 1963.
Leikstjóri og handrit:
Ingmar Bergman.
Kvikm vndataka:
Sven Nykvist.
Tónlist: Bach, Bo Nilsson.
UM ÞESSAR mundir er Hafnar-
fjarðarbíó að sýna Þögnina eftir
Ingmar Bergman. Þetta er síð-
asta myndin í þríleik hans um
Guð. Áður voru komnar: Sem í
skuggsjá og Kveldmáltíðar gest-
irnir. Þeirra mynda beggja hefur
verið getið hér í blaðinu, svo
óþarfi ætti að vera að rifja upp
efni þeirra.
í þessari mynd segir frá tveim
ur systrum, Ester og Önnu og
syni hennar Jóhanni, sem eru á
ferðalagi í ókunnu landi. Vegna
veikinda Ester verða þau að
nema staðar í ókunnri borg, sem
nefnist Timuka. Þarna á gisti-
húsinu í hinni framandi borg
kynnumst við svo systrunum nán
ar. Sú eldri þeirra, Ester, er kyn
vilt og fellir ástarhug til systur
sinnar. Anna hatar aftur á móti
systur sína, finnst að alltaf hafi
verið látið meira með hana. Hún
hefur ánægju af því að kvelja
hana óg segir henni frá ástar-
ævintýrum sínum í þeim tilgangi
Milli þeirra stendur svo Jóhann.
Á göngum gistihússins, sem
eru stórir og skrautlegir, leitar
Jóhann litli sér skemmtunar. —
Hann kynnist nokkrum dverg-
um, sem sýna listir sínar á einu
fjölleikahúsi borgarinnar. Hann
kynnist einnig gömlum þjóni, og
milli þeirra tekst þögult sam-
band. Á meðan fer Anna út í
borgina, og á einu veitingahúsi
hittir hún þjón, og þau veita
hvort öðru athygli. Síðan fer hún
í húsið, þar sem dvergarnir
skemmta, og verður vitni að því,
er maður og kona elskast.
Um kvöldið á Anna stefnumót
við þjóninn af veitingahúsinu.
Áður en hún fer út, taka þær
systur tal saman. Anna segir
Ester, að hverju bún hafi orðið
vitni fyrr um daginn og að hún
hafi leitað þjóninn upp og átt
bezt á því, að hlutur rekstursút-
gjalda í heildarútgjöldum borg-
arsjóðs hefur lækkað á sl. 4 ár-
um. Árið 1960 var hlutur verk-
legra framkvæmda í útgjöldum
borgarsjóðs 31.9%, en rekstrar-
gjöldin voru 68.1%. Árið 1965
voru verklegar framkvæmdir
39.8% af heildarútgjöldum borg-
arsjóðs, en rekstursútgjöld
60.2%.
Heilbrigð og farsæl stjórn
fjármála borgarinnar er undir-
rót alls þess, sem gera þarf.
Hinar miklu framkvæmdir i
gatnagerð og hitaveitu, svo að
dæmi séu tekin, hafa ekki sízt
getáð orðið vegna hins trausta
fjárhags borgarinnar. Það ríður
því á miklu að haldið verði
traustri og heilbrigðri stefnu í
fjármálum borgarinnar.
Góðir Reykvíkingar. Yið skul-
um minnast þess að Reykjavík-
urborg er fyrst og fremst skö'p-
unarverk borgaranna sjálfra.
Borgin verður hvorki betri né
verri en borgararnir sjálfir
vilja að hún verði. Það er rétt,
sem sagt var á fundi svipuðum
þessum í gærkvöldi, að þessir
fundir eru haldnir undir kjör-
orðinu: Hvað get ég gert fyrir
borgina mína, og það þurfa allir
Reykvíkingar að hafa í huga.
Það er að vísu hlutverk borgar-
stjórnar að hafa forgöngu og
frumkvæði að framfaramálum
borgarbúa, en það er ekki sízt
gert á þann veg að samhæfa og
beina á ákveðnar brautir þá
krafta og þau öfl, sem leikast á
meðal sjálfra borgaranna. Við
viljum öll búa í fagurri og þrótt-
mikilli borg. Við viljum vafa-
laust öll, hver á sinn hátt, legg.ja
okkur öll fram um, að áfram
verði haldið á braut uppbygg-
ingar og framfara.
með honum ástarfar í kirkju
(þetta er í eina skiptið, sem
minnzt er á þá stofnun í mynd-
inni). Vitni að stefnumótinu
verður Jóhann. Þegar hann er að
hátta, segir hann Ester frá því,
og hún leitar uppi systur sína.
Þær systur gera upp mál sín.
Daginn eftir halda þau mæðgin
á brott, en Ester verður eftir.
Það er sagt, að í þessari mynd
fjalli Bergman um þögn Guðs.
Guð er hvergi nærstaddur, og
þetta óhamingjusama fólk nær
ekki sambandi við hann. En það
er fleira, sem kemur til. Þarna
er líka fjallað um tómleika sálar
innar, einangrun hennar og ör-
yggisleysi. Þarna, í þessari fram
andi borg, aka bryndrekar um
götur, og það heyrist gnýr í flug
vélum. Áhorfendur eru undir
sömu sök seldir og þær systur:
þeir eru staddir í framandi borg
og skilja ekki það tungumál, sem
þar er talað. Þeir skilja gamla
þióninn ekki nema að litlu leyti,
þegar hann sýnir Jóhanni mynd-
ir sínar, sem virðast helzt benda
á dapra æsku. Með þessum hætti
nær Bergman betri tökum á við
fangsefni sínu.
Það hafa verið notuð stór orð
um Bergman með og á móti. Sum
ir segja, að hann beri höfuð og
herðar yfir aðra samtíma leik-
stjóra, en þeir eru Mka til, sem
kalla hann allt upp í loddara,
tízkufyrirbrigði, sem með tækni-
legum brellum breiði yfir jnnan
tóma heimspeki sína og Guð-leg
ar vangaveltur. Vissulega beitir
Bergman ýmsum brögðum til að
halda áhorfendum við afnið. C'g
hann gerir það oft meistaralega
vel. Hann er að sumu leyti nýr
í þessari mynd sinni: það er eins
og hann hafi á köflum losað tölu
vert um leikhúsáhrifin, sem gætt
hefur í myndum hans. Mörg at-
riði myndarinnar eru mjög vel
gerð, nærmyndir margar, þegar
lestin kemur til borgarinnar og
af Jóhanni litla, þegar hann leik
ur sér á göngunum. Effektarnir
verða sterkir, hvort heldur mynd
Framhaid á bls. 31