Morgunblaðið - 20.05.1966, Blaðsíða 3
iUVi
3
Föstudagur 20. maí 1966
MORGUNBLAÐIÐ
Óðinn flutti kjöl
til Seyðisfjarðar
VARÐSKIPIÐ Óðinn var feng
ið í fyrradag til að flytja 3 tonn
af kjöti frá Borgarfiröi eystra
til Seyðisfjarðar, því þar var
allt að verða kjötlaust.
Sama dag fóru varðskipsmenn
af Albert í land í Aðalvík til að
lagfæra skipbrotsmannaskýli
þar, sem opnazt hafði í vetur
og var orðið fullt af snjó. Einn-
ig settu varðskipsmenn talstöð í
skipbrotsmannaskýlið í Horna-
vík.
Albert er einnig með um borð
matarbirgðir og hey til fólks-
ins í Hornbjargsvita, en þar er
allt að verða bjargarlaust. Ekki
hafa varðskipsmenn komizt þar
í land enn vegna veðurs og sjó-
lags.
Snjóar i
fjoll vestra
ÍSAFIRÐI, 19. maí. — í gær-
kvöldi snjóaði í fjöll hér um
slóðir og vorið hefur verið
einstaklega kalt.
Úrkomulítið hefur verið og
norðan átt ríkjandi, en minna
um hlýindi og sunnanblæ.
Fjallvegir eru flestir ófærir og
á Breiðadalsheiði, milli ísa-
fjarðar og Önundarfjarðar, er
geysimikill snjór og varla horf-
ur á að sú leið opnist fyrr en í
næsta mánuði.
Er þetta mesti snjóavetur, sem
komið hefur á norðanverðum
Vestfjörðum, síðan 1949.
Snjóskaflar eru hér enn í hlíð
um alveg niður á láglendi og
gróður sáralítið farinnað koma
til, þó er eilítið farið að grænka
á blettum í görðum bæjarins.
— H.T.
'AFRAM
Pípurnar í vatnsleiðsluna til Eyja eru komnar til Þorlákshafnar.
BYRJAD Á VATNSVEITU-
LOEN TIL EYJA I SUMAR
Kostnoðui við lögnina tolinn 55—60 millj. ki.
— 1000 tonn of pípum komin tU landsins
Vestmannaeyjum, 19. maí.
SEM alkunnugt er hefur verið
erfitt um vatn í Eyjum, bæði
neyzluvatn fyrir heimilin og
vatn fyrir atvinnufyrirtækin.
Um langt árabil hafa fram farið
athuganir á möguleikum til úr-
lausnar þessum vanda, m.a. með
jarðborunum.
Þetta verk er einsdæmi, í
Evrópu að minnsta kosti. Þ-að
munu að vísu hafa verið lagðar
pípur í sjó í Noregi, en innan
skerja og við allt aðrar aðstæð-
ur.
Miðað er að því, að verkinu
ljúki sem fyrst. Ætlað er, að
nægt vatn verði í Eyjum um
langa framtíð og það þótt íbúa-
fjöldinn tvöfaldist. Þetta er ein-
hver mesta framkvæmd, sem
Vestmannaeyjabær hefur ráð-
izt í. Kostnaður er talinn milli
55—60 milljónir króna með nú-
verandi verðlagi
Núverandi bæjarstjórn hefur
látið vinna að undirfoúningi
þess, að vatn verði fengið frá
meginlandinu og leitt í pípum
yfir úthafið Hefur þetta kostað
mikla vinnu, en nú er málið kom
ið á framkvæmdastig.
Er ákveðið að vatn fyrir
Vestmannaeyjar verði tekið í
iandi Syðstu-Merkur undir
Vestur nEy jaf j öllum.
1 sumar verður unnið að
fyrsta áfanga verksins, en það
er að leggja pípur frá Syðstu-
Mörk og niður að sjó. Pípurnar
komu fyrir nokkrum dögum til
Þorlákshafnar og er verið að
skipa þeim á land. Þetta eru
samtals um 1000 tonn af svo-
nefndum asbestvatnsleiðslurör-
Næsta sumar er fyrirhugað
að leggja vatnsleiðslu á sjávar-
botninn. Verða pípurnar tvær.
Þoka neyddi þyrluna fii
lendingar á heiðinni
Egilsstöðum, 19. maí.
ÞYRLA Landhelgisgæzlunnar,
sem á miðvikudag flaug nokkr-
ar ferðir milii Egilsstaða og
Seyðisfjarðar með fólk, þar sem
landleiðin er ófær, fór í síðustu
ferðina um 9 leytið um kvöld-
ið.
Þegar þyrlan var að koma til
baka frá Seyðisfirði í þessari
ferð neyddist hún til að lenda
uppi á miðri Fjarðarheiði, þar
sem svo mjkil þoka hafði skoll-
ið á, að flugmennirnir gátu
ekki haldið áfram.
LÆG©IN var í gærmorgun
komin suður af Ingólfshöfða
og hreyfðist austsuðaustur. —
Gekk vindur því meira til
norðurs og norðausturs á land
inu, og fylgdi honum súld og
snjogangur a annesjum
nyrðra. Var hiti við frostmark
í Látravík og kafsnjóaði. —
Sunnan lands birti aftur á
móti svo sem venjulega í
landátt.
Farþegar voru með þyrlunni
er hún varð að lenda á heið-
inni, meðal annars börn.
Þyrlan beið þarna á heiðinnj
í 3 klst. eftir því að þokunni
létti og kom hingað heil á húfi
upp úr miðnætti.
í dag fór þyrlan til Eskjfjarð-
ar með farþega og gekk ferðin
vel.
Þoka hefur í dag hindrað flug
til Seyðisfjarðar, en þangað átti
þyrlan að fljúga í morgun.
Nokkrir farþegar þurftu að
komast frá Seyðisfirði til Egils-
staða til að ná áætlunarvél F.í.
ti’l Keykjavíkur. Var tekið til
þess ráðs að fara með snjóbíl,
en ferðin gekk illa.
Síðdegis í dag fór þyrlan á
móti snjóbílnum og tók farþeg-
ana uppi á heiði. Náðu þeir í
flugvélina til Reykjavíkur.
Áætlað er að þyrlan verði á
Egiisstöðum næstu 8-10 daga,
þar sem ekki er unnt að ryðja
Fjarðarheiði vegna óvenjumik-
illa snjóalaga. Undanfarna daga
hefur verið gott veður og snjór-
inn sigið nokkuð. — Þ.J.
Leiðrétting
Tvær meinlegar villur urðu
síðunni „Frá Sjálfstæðiskonun
i blaðinu í gær. Var sagt að f:
Sesselja Magnúsdóttir væri
fjórða sæti á lista Sjálfstæði
manna í Keflavík, en á að ve:
i þriðja sæti.
Þá var sagt að Sjálfstæði
kvennafélagið í Keflavík h<
Sólin en á að vera Sókn. — Ei
hlutaðeigendur beðnir velviri
ingar á mistökum þessum.
Kartöflugarðar
undir fönn nyrðra
Húsavik, 19. maí.
HÉR er leiðindaveður í dag,
norðan kaldi og rigning. Flest-
ir bátar hafa tekið upp hrogn-
kelsanetin og eru hættir veið-
um. Vertíð. þeirra hefur verið
erfið, miklar ógæftir og eftir-
tekjan minni en á s.l. ári.
Ekki er fullvíst hvaða verð
fæst fyrir hrognin, en vitað er
að það verður lægra en í fyrra.
Þá var tunnan rúmar 5 þúsund
krónur.
Þorskveiði hefur gengið treg-
lega í vor, bæðj lélegar gæftir
og litill afli.
Varla er hægt að segja, að
húsablettir séu farnir að grænka
aftur og úthagi víðast þakinn
snjó. Engum manni hefur enn
dottið í hug að setja niður kart-
öflur, því garðarnir eru víða
undir fönn. — Fréttaritari.
SUKSTHMR
Sundiung vinstri
manna mest í
Reykjavík
Tíminn kemst í gær m.a. að
orði á þessa leið í forustugrein
sinni:
„Frá þeim tíma er kommúnist-
ar klufu Alþýðuflokkinn og
hindruðu með því áframhaldand-
andi samstarf hans og Framsókn
arflokksins, hafa völd Sjálfstæðis
flokksins byggzt á sundrungu
íhaldsmanna. Einkum hefur þessi
sundrung verið mikil í Reykja-
vík og skapað íhaldinu mögu-
leika til þess að hampa þar sund-
urleitisgrýlunni. Vegna sundur-
lyndis andstæðinganna hefur í-
haldið haft óeðlilega mikil völd“
Þarna viðurkennir Timinn
hreinskilnislega, að hvergi hafi
sundrung hinna svokölluða
vinstri flokka verið jafn mikil
og í Reykjavík. Fáum Reyk-
vikingum mun finnast sú stað-
reynd benda til þess, að hyggi-
legt væri að efla áhrif vinstri
flokkanna. Það er líka staðreynd,
sem allir þekkja, að hinir svo-
kölluðu vinstri flokkar geta ekki
starfað saman, hvorki í ríkis-
stjórn né annars staðar, án þess
það leiði til vandræða og upp-
lausnar. Vinstri stjórn sat aðeins
rúmlega tvö ár að völdum. Hún
var margklofin, úrræðalaus og
sundurþykk, allt frá fyrsta valda
degi sinum. Engum Reykvíkingi
getur þess vegna komið til hug
ar, að vinstri stjórn í Reykjavík
væri likleg til þess að verða
dugmikil og framkvæmdasöm
borgarstjórn. Þvert á móti hlyti
hún að hafa í för með sér upp-
lausn og margháttuð vandræði
fyrir íbúa borgarinnar.
Svipur 'kosninga-
baráttunnar
Kosningabaráttunni fyrir þess-
ar bæjar- og sveitarstjórnarkosn-
ingar er nú að ljúka. Svipur
hennar í höfuðborginni hefur í
stórum dráttum verið þessi:
Kosningabarátta Sjálfstæðis-
manna undir forustu Geirs Hall-
grimssonar, borgarstjóra, hefur
mótast af hinni jákvæðu og
dugmiklu iramkvæmdastefnu
flokksins. Hagsmunamál borgar-
innar hafa verið lögð fyrir fólk-
ið með rökum og raunsæi. Sjálf-
stæðismenn hafa gert Reykviking
um grein fyrir störfum sínum og
viðhorfum til framtíðarinnar.
Reykvíkingar vita þess vegna að
hverju þeir ganga með því að
fela Sjálfstæðismönnum áfram
forustuna.
Málflutningur vinstri flokk-
anna hefur hinsvegar mótast af
glundroðakenndu fálmi, skömm-
um og skætingi um það, sem vel
hefur verið gert á liðnum tima,
og algjöru hugsunarleysi gagn-
vart framtíðinni.
Það er af þessu auðsætt að
allt það fólk, sem vill áfram-
haldandi þróun og uppbyggingu
í Reykjavik, trausta og örugga
stjórn borgarmálefna, hlýtur að
fylkja sér um D-listann, lista
æskunnar og framfaraaflanna.
Lífæð Reykjavikur
Reykjavík óx í upphafi og dafn
aði í skjóli sjósóknar og verzlun-
ar. Þess vegna hlaut Reykjavík-
urhöfn að verða lifæð vaxandi
byggðar. Að framkvæmdum í
þágu hafnarinnar hefur verið
unnið af framsýni og dugnaði
undir forustu Sjálfstæðismanna.
En nú stendur fyrir dyrum
bygginga nýrrar hafnar, Sunda-
hafnar. Með byggingu hennar
hefst nýtt og merkilegt timabil í
hafnarmálum Reykvíkinga. Þar
er um að ræða glæsilega fram-
kvæmd, sem stuðla mun að aukn
ingu útgerðar pg eflingu far-
mennsku oe sis’linea