Morgunblaðið - 20.05.1966, Side 24

Morgunblaðið - 20.05.1966, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 20. maí 1966 — Þetta táknar fyrri konuna mína — hún skildi mig ekkL Mary Raymond: STÚLKA MEÐ CRÍMU Þegar ég kom niður í garðsal- inn, stóð Steve þar og var að lesa í dagblaði. Hann fleygði frá sér blaðinu, þegar hann sá mig. — Jæja, er nú allt í lagi? Ég kinkaði kolli. Um leið og ég gekk framhjá skotinu við stig ann, varð mér á að segja: — Ég vildi, að þér vilduð setja stór- an blómvönd hérna. — Þér megið tína öll blómin, sem þér viljið, en bara ekki núna. — Ég ætla nú ekki að fara að draga hálfan_ garðinn inn í húsið, sagði ég. Ég er sjálf garð yrkjukona. Sem snöggvast störð um við hvort á annað. — Er þetta ekki einkennilegt? sagði ég. — Ég veit, að ég hef gam- an af garðyrkju. Og ég held líka, að ég kunni að sitja á hesti, en Tom get ég alls ekki munað. — Já, það er skrítið, sagði Steve. — Það er margt skrítið í sambandi við þetta. Við ókum út á búgarð, sem var í eitthvað fimmtán mílna fjarlægð. Ilmurinn af blómum og jurtum barst inn um glugg- ana á bílnum. Hitabylgjan var nú í almætti sínu, þrátt fyrir dálitla golu og strjál ský á himn inum. Ef til vill færi að rigna á morgun, en í dag gat veðrið ekki betra verið. Bruno sat í aftursætinu og stakk trýninu út um gluggann og golan kembdi eyrun aftur af honum. Þegar við komum á bæinn, sem var með stóru, hvítkölkuðu húsi. fór Steve að reka erindi sín við bóndann, en ég gekk um húsagarðinn, hallaði mér þar fram á grindverk og horfði á nautgripina, sem voru þar á beit, skammt frá. Ég fann mig svo heimamannlega, að ég sagði við Steve, að ég hlyti að vera alin upp í sveit. — En áreiðanlega í Englandi, bætti ég við. — Þér eruð sannarlega farin að átta yður á sjálfri yður, sagði ert heim við það, sem ætti að vera. Við ókum til að skoða dálítinn skóg, sem Steve var að rækta upp. Hann vildi láta mig sjá, hverrtig ungu trjáplöntunum gengi að stækka. Við skildum ‘bílinn eftir, klifruðum yfir hlið ið og gengum síðan yfr akur með Bruno hoppandi á undan okkur, og síðan inn í skóginn. Trén hjá Steve voru ekki stór, en virtust vera komin vel á veg. — Faðir minn gróðursetti fjölda mörg tré, sagði hann, — og ég man enn hvílíka ánægju hann hafði af því að ganga um skóg- inn, sem hann hafði einu sinni gróðursett, og var orðinn svo stór, eftir fjörutíu ár, að trén voru vaxin honum yfir höfuð. Hann klappaði þeim rétt eins og þau væru krakkar. Mig langaði næstum að gera slíkt hið sama. Þegar hann sagði þetta, minnt ist ég þess, að ég hafði sjálf ekki þekt minn eiginn föður og ég öfundaði hann af þessu. Það hlaut að vera ánægjulegt að eiga heima í húsi þar sem for- feður manns höfðu átt heima, og rækta þar tré og vita, að af- komendurnir mundu geta haft gagn af þeim á einn eða annan hátt. — Þér eruð hamingjusamur maður, sagði ég. Steve leit snöggt á mig og virtist skilja hugsanir mínar. — Það er ég sjálfsagt, sagði hann, — að mestu leyti. Þegar við héldum heimleiðis, fórum við samt ekki beint heim, heldur fengum okkur te í krá einni við ána. Fyrir framan okk- ur var áin, sem var nú reyndar lítið meira en lækur, dökk og kolmórauð en hvítar endur syntu á vatninu. Við sögðum ekki margt, en mér leið vel. Hinar áleitnu hugsanir létu mig í friði. Þessi eftirmið- dagur hafði verið einskonar milli þáttur. Þegar við loksins snerum heim, var ég næstum eins og drukkin af hitanum og sól skininu, — það var unaðsleg draumkennd. Ég óskaði að dag- urinn yrði aldrei á enda. Sólin var að setjast þegar við komum aftur til Sorrell. — Ég^ verð að hringja, sagði Steve. Ég átti að fara í kvöld- boð, en ég er svo þreyttur, að ég held að ég verði að vera kyrr heima. Ég tíndi nokkrar rósir á kvöld um kertum í ljósahjálminum, og við borðuðum kvöldverðinn í daufri birtunni af þeim. Eftir matinn sátum við Steve með kaffið okkar úti í garðinum, því að enn var veðrið eins gott og það gat verið. Mér leið afskaplega vel og var alveg hætt að gera mér áhyggjur af þvi, hver eða hvað ég væri. Ég naut augnabliksins — og var búin að gera það allar. daginn. 4. kafli. Daginn eftir var ég enn í sömu sæluvímunni. Ég vaknaði glöð og hélt áfram að vera glöð. Ég kom mér saman við ungfrú Daly um að láta laga á mér hárið um daginn og bað hana að panta tíma fyrir mig hjá Chez Mich- elle, og eftir að hafa borðað morgunverð í rúminu, fór ég út í garðinn. Ég hafði. leyfi Steve og notaði mér það nú og tíndi saman heljarmikinn blómvönd. n---------------------------□ 12 □------------------------—□ Ungfrú Daly útvegaði mér klippur og ég undi mér ágæt- lega við þetta. En ég fór samt varlega að því að tína blómin. Ég vildi ekki móðga gráhærða manninn, sem ég hafði séð í garð inum með skóflu í hendi, en annars var þarna svo mikið af blómum, að þar hefði aldrei séð högg á vatni. Þegar ég hafði fengið nóg, setti ég blómin á borð í forsaln- um, og fór að leita að keri eða einhverju hentugu íláti, til þess að setja í stigakrókinn. Ég komst fram í eldhús og gat gert Ameliu skiljanlegt, hvað mig vantaði. Hún fór með mig inn í einskonar búr, með stein- lögðu gólfi, sem hafði sjálfsagt einhvern tíma verið strokkhús. Þarna voru á hillum allskonar blómaker, þar á meðal var forn legt blómker úr dökkum leir, og þetta var einmitt eins og ég vildi fá, svo að ég fyllti það vatni og bar aftur inn í forsalinn. Ég hafði um það bil lokið við þessa miklu skreytingu, er ég heyrði í bíl á mölinni úti fyrir. Dyrnar opnuðust og ég leit upp til að sjá, hver þar væri á ferð- Þarna stóð lágur, blár sport- bíll úti fyrir, og ljóshærð stúlka hafði ekið honum. Hún sneri sér fimlega út úr bílnum og gekk inn í húsið. Sem snöggvast störðum við hvor á aðra, og ég hélt enn á blómunum, sem ég var enn ekki búin að koma fyrir. Stúlkan ávarpaði mig að fyrra bragðL — Halló! Ég heiti Jill Stans- field. Þér hljótið að vera Júlía Gerard. Ég er vinkona hans Steve — og kom til að sjá, hvern ig yður liði. — Fallega gert af yður, svar- aði ég eins og ósjálfrátt, en ein- hvernveginn fannst mér hún ekkert vingjarnleg að sjá. Aug- un voru mjög blá, en mér fannst þau sérlega kuldaleg, þegar hún leit á mig og blómin og plástur- inn á höfðinu á mér. Hún virtist eitthvað óánægð með það sem hún sá. — Ég hélt að þér væruð enn í rúminu, sagði hún, — eftir þetta hræðilega bilslys. — Ég er búin að vera á fótum eina tvo daga. Ég setti blómin á borðið. — Mér líður nú miklu betur enda þótt ég sé varla mönn um sýnandi enn. Ég snerti um- búðirnar um höfuðið á mér. — En ég ætla í hárgreiðslu í dag, og vonandi verður hægt að laga mig eitthvað tiL — Steve spurði mig hvernig „Chez Michelle“ værL sagði hún. — Það er ekki sem verst stofa...... En þetta er meiri glásin af blómum, bætti h-ún við. — Ég hef víst tínt of mikið af þeim, sagði ég og samþykkti þannig það sem hún var að gefa í skyn. — Ég get ekki annað en ver- ið hissa á , hvað þér lítið vel út, sagði Jill og horfði enn á mig. — Þegar Steve gat ekki komið í kvöldverðinn í gær- kvöldi, hélt ég, að yður hefði slegið niður. — Og kannski var hún óá- nægð, að mér skyldi ekki nafa slegið niður, hugsaði ég með sjálfri mér. Hún var afskaplega vel til fara og að mestu hvítklædcL Hárið var mjög ljóst og snúið um höfuðið í ofurlítið breyttum „Býkúpustil." Hörundið var mjög fallegt og hún var sama sem ekkert máluð. Hún leit út eins og einhver snjódís, eintóm- ur eldur og ís, og bún orkaði þannig á mig, að mér fannst ég vera eins og einhver tatararæf- ill, með þennan ferlega plástur á höfðinu og hárið allt aflagað. — Steve segir mér, að þér munið ekkert eftir slysinu, hélt hún áfram. — Er hann annar* við? — Ég hef ekki séð hann í morg un. —- Get ég nokkuð gert fyrir yður? Get ég ekið yður inn 1 borgina í dag. Ég á heima hér skammt frá. Ég get hæglega kom ið og tekið yður með mér,______ hann, en það kemur bara ekk borðið og Piero kveikti á nokkr- ínm. GLÆSILEGUR AÐ ÖLLU YTRA OG INNRA ÚTLITI VOLKSWAGEN 1600 TL „Fastback" er glæsilegur bíll í sérflokki að öllum ytri og innri búnaði. Tvær farangursgeymslur. 65 ha. loftkæld vél. VOLKSWAGEN 1600 TL „Fastback“ er fyrsti Volkswagninn, sem er með diskahemlum að framan. VOLKSWAGEM 1600 TL „FASTBACK77 VOLKSWAGEN 1600 TL „Fastback" er rúmgóður 5 manna bíll. Sérstæð framsæti, still- anleg og með öryggislæsingum. Leðurlíki í öllum sætum, í toppi og hliðum. Skemmti- legar litasamstæður. Aftari hliðarrúður opnanlegar. VOLKSWAGEN 1600 TL „Fast- back“ er með sjálfstæða snerilf jöðrun á hver ju hjóli, heila botnplötu og hinn vandaða og viðurkennda frágang, sem er sérkenni Volkswagen. KOMIÐ, SKOÐIÐ OG KYNNIST HONUM AF EIGIN RAUN VERÐ KR. 209-7oo SYMIMGARBÍLL Á STAÐMLM HEILDVf RZLUNIN HEKLA hf Laugavegi 170-17 2

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.