Morgunblaðið - 28.05.1966, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.05.1966, Blaðsíða 2
2 MORGU N BLAÐIÐ Laugardagur 28. maí 1960 Vandað hefti lce land Review f NÝTX hefti tímaritsins Iceland f IReview er komið út. Er það f jöl- ibreytt að efni, vandað að frá- ;gangi 0g hið glæsilegasta í alla staði eins og ávallt áður og er aiú að hluta tileinkað Vest- anannaeyjum. Gísli J. Ástþórsson rithöfund- ur, skrifar um Vestmannaeyjar * og líf fólksins þar, stutt viðtal •við Guðlaug Gíslason — og Páll Steingrimsson, kennari, segir frá lundaveiðum í úteyjum. Fjöl- margar fallegar myndir eftir Sigurgeir Jónasson og Hermann Schlenker prýða greinarnar og ennfremur eru þar margar teikn ingar frá Vestmannaeyjum eftir Baltasam Ljósmyndir eru bæði svart-hvítar og í litum. Elín Pálmadóttir skrifar grein um hraun-keramik Glits og birt ast myndir af ýmsum unnum amunum og veggmyndum úr þess ari nýju keramikblöndu, sem vakið hefur töluverða athygli. Greininni fylgir ennfremur lit- mynd af veggmynd þeirri, sem Ragnar Kjartansson gerði úr hraunkeramik, og prýðir hið * nýja félagsheimili í Ytri-Njarð- vík. í ritinu birtist grein og mynd- ir frá Iceland Food Centre í London — og Amalía Líndal skrifar grein um ballet á ís- landi, skreytta myndum úr >jóð leikhúsinu. >á er grein um íslenzka örn- inn ásamt fjölmörgum myndum, bæði svart 'hvítum og í litum. Eru litmyndirnar teknar úr kvik- mynd þeirri, sem Magnús Jó- hannsson hefur gert um örninn og vakið hefur mikla athygli. Gunnar Rögstad í utanríkis- ráðuneytinu í Osló ritar fyrir Iceland Review grein um norsk- íslenzk verzlunarviðskipti, og Mats Wibe Lund jr. skrifar um skipabyggingar fyrir íslendinga í Noregi. Undir fyrirsögninn „Sport- light on Business“ kynnir Ice- land Review ýmsa þætti atvinnu lífsins og auk greinar Mats Wibe Lund eru hér ýtarlegir frásagnir af Sambandi ísl. sam- vinnufélaga og starfsemi þess eftir Andrés Kristjánsson, Baad er-þjónustunni, ferðaskrifstof- unni Útsýn, kraftblökkinni og Ingvari Pálmasyni eftir Jónas Kristjánsson, málningarverk- miðjunni Hörpu svo að það helzta sé nefnt. Af öðru efni má nefna frétta- þátt þar sem greint er í stuttu máli frá viðburðum vetrarmán- aðanna — því, sem útlendingar hafa einkum áhuga á að fylgj- ast með. Þáttur er um íslenzk frímerki — í umsjá Jónasar Hallgrímssonar. Er þar m.a. mynd af umslagi, sem prentað Framhald á bls. 31. Myndin sýnir írönsku tundur spillana í Reykjavíkurhöfn í g ær. Franskir tundurspillar í Reykjavík ÞRÍR franskir tundurspillar I heimsókn. I er 1290 tonn að stærð. Samtals sigldu inn í Reykjavíkurhöfn í Tundurspillarnrr eru: Surcouf, eru á skipunum um 1000 manns. gærmorgun kl. 10. Munu þau sem er 2750 tonn að stærð, og Almenningi gefst kostur á að dvelja hér fram á þriðjudags- aðmírálsskip, Bouvet, sem er skoða skipin eftir hádegi i dag, morgun, en þau eru i kurteisis- jafnstórt, og loks Le Picard, sem i og á hvítasunnudag. Gallar á Moskvitz biffr. lagfærðir MBL. hefur fregnað að gallar hafi komið fram á Moskvitz- bifreiðum. Til þess að fá nánari staðfestingu á þessu sneri Mbl. sér til Félags íslenzkra bifreiða- eigenda, sem upplýsti að mikið af kvörtunum hefðu borizt frá Moskvitsbifreiðaeigendum þeim, sem eiga nýjustu árgerðina. Hefði í mörgum tilfellum ver- ið kvartað yfir galla í blönd- ung þessara bifreiða, en þær eru gefnar upp með 9% lítra eyðslu á hverja 100 km. en í nokkrum tilfellum hefur benz- íneyðsla þessara bifreiða kom- izt upp í rúma 16 lítra á hverja 100 km. í>á hefði ennfremur verið kvartað yfir því að gúmmí litar og þéttingar og annar frá- gangur væri ekki nógu góður. Mbl. sneri sér næst til Guð- mundar Gíslasonar, forstjóra Bifreiða- og landbúnaðarvéla, Sveinn K. Sveinsson með I»yt sinn, sem nú er Islandsmeistari á 300 m. spretti og nú verður reyndur á 800 m. hlaupi. Knapi er Aðalsteinn Aðalsteinsson. Tíu kunnir hlaupahestar keppa í 800 m. á kappreiðum Fáks á annan i hvitasunnu HESTAMANNAFÉLAGIÐ Fákur efnir til hinna árlegu kappreiða á skeiðvellinum við Elliðaár á ^ annan hvítasunnudag. Taka marg ir kunnir hestar þátt í keppn- inni og veitt verða góð verðlaun, þ.á.m. tveir farandbikarar. Einn- ig verður góðhestakeppni og munu um 60 hestar alls koma fram á vellinum. Mesta athygli vekur vafalaust keppni í 800 m. hlaupinu því þar taka þátt 10 frægir hlaupahestar víðsvegar að af landinu og verða veitt 8000 kr. verðlaun fyrir fyrsta hest, auk farandbikars Björns Gunn- laugssonar, sem keppt var um í fyrsta skipti í fyrra. Meðal þátttakenda í 800 m. hlaupinu má nefna >yt Sveins K. Sveinssonar, methafann á 300 m. spretti, gráan hest frá Kefla- vík, Gust Baldurs Bergsteinsson *ar, Blesa Þorgeirs í Gufunesi, sem er margverðlaunaður hlaupa hestur og Þröst Ólafs Þórarins- sonar, sem vann þetta hlaup í fvrra. Auk þeirra eru aðrir kunn ir hlaupahestar. í 300 m. hlaupi taka þátt marg ir hestar og m.a. má nefna Áka Guðbjarts Pálssonar, Ölvald Sig- urðar Tómassonar úr Mýrarsýlu og Goða Kjartans Ólafssonar úr KópavogL í 250 m. folahlaupi taka þátt fjöldi óþekktra fola. Að lokum kemur 250 m. skeið, en þar má nefna Hjalta "Hreinsson og Blakk úr Reykjavík, og Hroll Sigurðar Ólafssonar sem vann þetta hlaup í fyrra. í góðhestakeppni verður keppt u-m Viceroy farandbikarinn frá Globus. Tekur bikarhafinn, Viðar Hjaltason, hestur Gunnars Tryggvasonar, þátt í keppninni nú ásamt 1. verðlaunahestinum frá firmakeppni Fáks. Þá mun kennari reiðskóla Fáks, Ragnheið ur Sigurgrímsdóttir, stjórna hóp- sýningu á hestum þar sem ungir nemendur hennar úr reiðskólan- um munu koma fram. Einnig mun Ragnheiður stjórna öðrum sýningaratriðum á vel tömdum hestum, sem. nemendur hennar munu eininig framkvæma. Þessi sýningaratriði Ragnheiðar eru alger nýjung hér á landi og er eitt af fyrstu skrefum ísl. hesta- manna til að gera hestaíþróttina fjöibreytta og glæsilega, segja Fáksmenn. Dnegið í happdrætti Fáks. Á mótsdaginn munu Fákskon- ur ljúka sölu á happdrættismið- um í hinu árlega happdrætti Fáks og verður dregið í því um kvöldið. í verðlaun er táminn skagfirzkur gæðingur, brúnn að lit, flugferð til Kaupmannahafn- ar fram og til baka með F.í. og flugferð til Sauðárkróks fram og til baka fyrir tvo og þá miðað við landsmót hestamanna, sem haldið verður á Hólum í Hjalta- dal dagana 15.—17. júlí. Og loks er í vinning hringferð kringum land á fyrsta farrými fyrir tvo með Skipaútgerð ríkisins. Veðbanki Fáks verður starf- andi mótsdaginin eins og venju- lega og hefur margur orðið rík- ari eftir viðskipti sin við bank- ann, en þar hafa fengizt allt upp í 15 föld framlög. Veðjað er í 25 kr. einingum. Annar hvítasunnudagur er orð inn sérstakur Fáksdagur, því þann dag eru jafnan aðalkapp- reiðarnar á árinu. Um 600 hesta- menn eru nú í Fáki og fóðrar félagið fyrir þá í vetur um 600 hesta, auk þess sem álíka margir eru á fóðrum í hesthúsum í Reykjavík. Unnið er að bygging- arframkvæmdum á nýja Fáks- svæðinu, komin hús fyrir 112 hesta og verður byggt fyrir jafn marga í sumar, þó í rauninni þyrfti að tvöfalda þá tölu, ef fullnægja ætti aukinni eftir- spurn samkvæmt reynslu síð- ustu ára. Lokaæfing verður á skeiðvell- irmrn fyrir hvítasunnukappreið- arnar kl. 2 í dag og rná þar vafa- laust sjá margan kar«»-^i«afák- inn og góðhestinn. sem upplýsti að gallar hefðu komið fram í fyrstu bifreiðun- um, sem bárust hingað af síð- ustu árgerð, en kvað slíkt allt- af geta komið fyrir, þegar um nýjar árgerðir væri að ræða. Á hinn bóginn hefði umboðið ekki orðið vart þessara galla í síðari sendingum af þessari árgerð, auk þess sem verksmiðj- an hefði sent hingað nýja rúss- neska blöndunga og skipti um- boðið um blöndunga í þeim bif- reiðum, sem gallar hefðu komið fram á, eigendunum að kostn- aðarlausu. Varðandi hina óeðlilegu bens- íneyðslu, sem hér er að fram- an getið, sagði Guðmundur, að umboðið hefði látið reyna marg ar bifreiðar, sem kvartað hefði verið yfir að eigendunum við- stöddum, og hefði bensíneyðsl- an þá reynzt vera milli 8-9 lítr- ar á hverja 100 km. eða hið sama og verksmiðjan gefur upp. Myndin sýnir slökkviliðsmenn að slökkvistarfi við Laugaveg 93, en mikill eldur kom upp í húsinu í gær. Mikill eldur í húsi á Laugavegi Var ekki búið i þvi, og átti að rifa Jbað ELDUR kom upp í húsinu að Laugaveg 93 í gær. Slökkviliðið fékk tilkynningu um að eldur væri laus í húsinu um kl. 14,30, en kvaðningin hefur verið lengi á leiðinni, því er síökkviliðið kom þar að var rishæð hússins, sem er ein hæð, hátt ris og kjall- ari, alelda. Slökkviliðið hóf þegar slökkvi- starf og tókst að ráða niðurlög- um eldsins eftir um klukkustund ar slökkvistarf. Miklar skemmd- ir urðu á húsinu bæði af eldi, vatni og reyk, t.d. rishæðin al- gjörlega ónýt af eldi, og eins hafa orðið talsverðar skemmdir á hæðinni vegna vatns. Hins veg- ar er vart hægt að tala um fjár- hagslegt tjón, þar sem ekki var búfð í húsinu, og átti að fara að rífa það innan skamms.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.