Morgunblaðið - 28.05.1966, Side 4
4
MORCUNBLAÐIÐ
BÍLALEIGAN
FERÐ
SÍMI 34406
SEN DUM
LITLA
bílaleigan
Ingólfsstræti 11.
Volkswagen 1200 og 1300.
m—"*BíLALEIGAN
Falur z
«M_3i
RAUÐARÁRSTÍG 31
SÍMI 22022
S,MI 3-í I GO
mflifiÐ/fí
Volkswagen 1965 og ’66.
BlfRIIBALEIGAK
VECFERÐ
Grettisgötu 10.
Simi 14113.
FjOlvirkar skurðgrofur
AVALT TIL REIÐU.
SÍmi: 40450
BILA
LEIÐA
IMAGNÚSAR
skiphoiti 21 símar21190
eftirlokun simi 40381
bifreidXleican
erCUáovm 33924
Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar
púströr o.fL varahlutir
í margar gerðir bifreiða.
Bilavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. — Sími 24180.
B O SC H
Háspennuketli
6 volt.
12 volt.
Brœðurnir Ormsson
Lágmúla 9. — Sími 38820.
í L'augardagur 28. maí 1966
Leiður mis-
skilningur
í mörgum bréfum, sem
birtast hér í dálkunum, bera
lesendur fram fyrirspurnir til
ýmissa aðila, bæði opinberra
og annarra. Oft bregða við-
komandi aðilar skjótt við og
veita svörin greiðlega, en
stundum fæst ekkert svar, jafn-
vel þótt spurningarnar séu
ítrekaðar.
I>eir, sem eru vakandi og
samvizkusamir í starfi sínu hja
opinberum aðilum svara yfir-
leitt umsvifalaust — og telja
það skyldu sína að upplýsa al-
menning. Hinir, sem skella
skollaeyrum við öllu slíku, eru
kóngar í ríki sínu og telja, að
fólkið sé fætt til þess að þjóna
ríkinu — en ríkið ekki fólk-
inu. Leiður misskilningur það.
-Jc Morgunbæn
'Kona nokkur hringdi og
bað okkur að koma þeim til-
mælum áleiðis til prestanna,
sem fara með morgunbæn í
útvarpinu, að þeir geti þess
hvaðan ritningargreinarnar,
sem þeir fara með, eru teknar.
„Morgunbænin hefur góð
áhrif á mig, mjög góð — og
oft langar mig til þess að taka
biiblíuna og halda áfram lestr-
inum þar sem presturinn hvarf
frá“, sagði konan. „Þessvegna
þyrfti tilvísun að fylgja með í
hvert sinn“.
Fleiri hafa látið í ljós
ánægju með morgunbænir
prestanna og ljóst er, að á þær
er mikið hlustað.
'Jr Húsgrunnar
í framhaldi af fyrri skrif-
um um óvarða húsgrunna, sem
ranglega voru sagðir við
Vorsabæ 8—10 hefur Sverrir
Guðmundsson hjá lögreglunni
tjáð okkur, að á vegum lög-
reglunnar væri starfandi mað-
ur, sem hefur það sérstaklega
með höndum að sjá um að
menn gengju sómasamlega frá
húsgrunnum á bæjarlandinu.
„Lögregluþjónar skrifa skýrslur
um þetta, en síðan tekur eftir-
litsmaður okkar að sér að reka
á eftir hlutaðeigandi aðilum,
og það er oft erfitt og mikið
verk*. Umræddur húsgrunnur
var opinn um skeið og mun
ástæðan hafa verið sú, að eig-
endur og verktaka greindi á
um það hver vinna ætti verk-
ið.
Annað himnabréf
frá álfameynni
Fyrir u.þ.b. mánuði birt-
ist bréf frá lesanda, sem nefndi
sig Ólaf liljurós. „Álfamær ‘
svarar honum í eftirfarandi
bréfi:
„Aumingja Ólafur minn
Liljurós.
Ósköp áttu bágt. Þarna situr
þú fúll og geðvondur í myrkr-
inu fyrir utan sárhneykslaður
yfir því að allir skulu ekki
vera skrúfaðir til að trúa eins
og þú gerðir, þegar þú vársc
barn.
Enn heldur þú, að trúin sé
einhver þula, sem menn geti
lært utan að á óvitaaldri,
cbagganlegur lærdómur, sem
vaxandi þroski og skilningur
mega ekki koma í nánd við.
Þetta sýnir hversu hugmyndir
þínar eru bernskar.
Ef þú hefðir fæðzt meðal
Hottintotta mundir þú vera
ævareiður, ef allir tryðu ekki
á hinn „heilaga kött“, og þú
mundir ákalla einhvern galdra-
mann í Blálandi ti-1 að sam-
þykkja þetta með þér. Mætti
ég minna þig á Pál postula.
Hann fór öðruvísi að. Hann
sagði: Þegar ég var barn, talaði
ég eins og barn, hugsaði eins
og barn og ályktaði eins og
barn .... Þegar ég varð full-
tíðáf maður lagði ég niður
barnaskapinn".
_ Þetta ættir þú líka að gera,
Ólafur sæll.
Var Eiríkur blóðöx
Guð?
í Arinbjamarkviðu er Eirík-
ur blóðöx nefndur drottinn og
einhvers staðar kallar Þjóðóif-
ur úr Hvini Óðin „foldar
drottin." Samkvæmt rök-
seindum þínum væri óhugs-
andi, að þessir menn væri
nokkuð annað en Guð aLmátt-
ugur, fyrst þeir létu ávarpa sig
þannig.
Guðfræðin þín er skelfing
léleg, Ólafur minn. Þú skilur
ekki algeng orð, veizt ekki að
jafnvel herkonungar voru í
fornöld kallaðir guðssynir. Ég
er ekki með þessu að mótmæla
því, að Jesús hafi verið „guð-
legrar ættar“, þekki heldur
'engan íslenzkan prest, sem lík-
legur sé að mótmæla því. Hitt
er annað mál, hvar setja ber
takmörkin milli þess guðlega
og mannlega. Mig minnir að
sjálfur Lúther,- sem þú virðist
trúa mikið á, segi í fræðum
sínum, að Jesús hafi bæði ver-
ið sannur maður og sannur
guð. Hvar ertu staddur í guð-
fræði þinni, ef þú hugsar um
það af alvöru, að sannur mað-
ur og sannur guð geti verið eitt
og hið sama?
Hver er undirstaða
kristinnar trúar?
Sagði ekki Jesús, að ekki
mundi hver sá, sem kallaði
sig drottin (herra, herra) kom-
ast inn í guðsríkið, heldur
þeir sem gerðu vilja föður
síns á himnum? Jesús lagði
áherzlu á, að menn þyrftu að
taka sinnaskiptum. En það er
ekki fólgið í neinni tilfinninga
vímu eða þeirri ímyndun
sumra trúaræsingaflokka, að
„frelsun“ fáist með sérstökum
játningum og kennisetningum.
Þau sinnaskipti eru meiri í
orði en á borði. Mönnum hætt-
ir alltaf við að reyna að kom-
ast sem áreynsluminnst frá
öllum hlutum. Swami Vivek-
ananda, sem var vitur maður
komst einhvern tímann þannig
að orði, að þegar fólk þættist
ætla að verða trúað, mætti
gera ráð fyrir að 80% yrðu
hræsnarar, 15% gengju af göfl-
unum, en aðeins 5% næðu ein-
hverju broti af sannleikanum.
Það er fyrirhafnarminna, að
þykjast vera frelsaður fyrir
einhverja kenning, setja upp
guðræknissvip og þakka guði
fyrir að vera ekki eins og aðr-
ir menn, heldur en gera vilja
guðs! En það voru þess konar
sinnaskipti sem Jesús átti við.
★ Guð er andi
Þú heldur, Ólafur minn, að
trúin sé eitthvert lagaboð, sem
menn geti lært utanað og þá sé
allt í lagi. Meistarinn sagði, að
þið ættuð að tilbiðja guð í anda
og sannleika. Trúin er ekki
kennisetning, heldur starf og
líf. Hún er kærleikurinn í
hjartanu og sannleikurinn í sál
ykkar. Og hvernig getur sá
sannleikur blómgazt í hugan-
um, ef þið nennið ekki að
hugsa? Enginn á himnum virð-
ir það hót við þig, þótt þú trú-
ir einhverju, sem þér var sagt,
en iþú reynir ekki að skilja.
Með því móti verðurðu ekki
annað en kreddustaglari, and-
legur þurs aftan frá steinöld
mannlegrar hugsunar. Leiðin-
legast við þig er þó ofstækið,
löngunin til að skipa öllum að
standa á sama stigi og þú ert.
Þetta er því verra sem ég get
ekki annað séð en þú sért ger-
samlega trúlaus sjálfur og haf-
ir ekki hugmynd um í hverju
sannur kristindómur er fólg-
inn.
'tr Hin eilífa glötun
Við sem búum við hið
tæra uppheimsloft, er breiðir
sig kring um guðanna dýrðlega
bústaði hér hjá Olympstindi,
þar sem ríkir fegurð og friður
og andlegt frelsi, undrumst
þetta ólundarlega myrkur, sem
umlykur ykkur kredduriddar-
ana. En þetta myrkur er bara
í ykkur sjálfum og stafar af
þröngsýni ykkar og kúgunar-
anda. Þið hugsið ykkur guð al-
máttugan með vöndinn í hend-
in-ni og tilbiðjið hann með
þrælslund þeirra, sem reyna
með hræsni að kaupa sig frá
sjóðandi víti. Hvernig getur
nokkur sannleikur eða kær-
leikur skinið inn í svona vol-
aðar sálir? Þetta er hin eilífa
glötun þeirra, sem ekki elska
sannleikann.
Vesalings ólafur. Hver megn-
ar að frelsa þig, meðan þú vilt
það ekki sjálfur? ,
Álfamærin.‘* .
k
V
★ Karlakórinn Vísir
Ánægður hlustandi skrif-
ar eftirfarandi:
„Er ég las hér í blaðinu, að
Kariakórinn Vísir frá Siglu-
firði væri væntanlegur til
Reykjavíkur, gat ég ekki leng-
ur orða bundizt. Það er stund-
um sagt að íslendingar séu
stórhuga þjóð, og það hafa
hinir siglfirzku garpar sannað
með söngför sinni til Dan-
merkur. Mér finnst það mikill
kjarkur af óþekktum kór frá
litlum bæ á norðurhjara ís-
lands að leggja upp í slíka för,
en um þá má segja: „Þeir
komu, sáu og sigruðu“.
Ég varð þeirrar ánægju að-
njótandi að hlusta á söng
þeirra í Danmörku og víst er
að það voru ekki Danir einir
er urðu orðlausir af hrifningu
eftir þá skemmtun.
Nú hyggjast þeir gefa sunn-
lendingum kost á að hlusta á
söng sinn og það er mikið
gleðiefni fyrir alla er góðri
tónlist unna.
Með þökk fyrir birtinguna.
Ánægður hlustandi.“
ORÐSENDING
frá Bifreiðastöð Steindörs og Kaupfélagi Arnesinga
Þann 1. júní 1966 flytjum við afgreiðslu sérleyfisb ifreiða okkar í Umferðamiðstöðina við Hringbraut.
Sími 22300. — Á það skal bent að fyrsta áætlunarferð Steindórs til Keflavíkur kl. 6 árdegis fer frá
Bifreiðastöð Steindórs, Hafnarstræti 2 og ekur um Hafnarstræti, Lækjargötu, Sóleyjargötu og um
Miklatorg. — Síðasta áætlunarferð Steindórs frá Keflavík—Reykjavík kl. 11,45 síðdegis mun enda hjá
Bifreiðastöð Steindórs, Hafnarstræti 2.
*
Bifreiðastöð Steindórs Kaupfélag Arnesinga