Morgunblaðið - 28.05.1966, Síða 10

Morgunblaðið - 28.05.1966, Síða 10
10 M0RGUNBLAÐ1Ð Laugardagur 28. maí 1884 Nýr sendiherra Japans hér Rætt v/ð sendiherrann, Michitoshi Takahashi HINGAÐ til lands kom fyrir skönvmu nýr sendiherra Jap- ans, en hann hefur aðsetur í Stokkhólmi. Hinn nýi sendi- herra heitir Michitoshi Taka- hashi. Hann afhenti forseta ísiands, hr. Ásgeir Ásgeirs- syni, embættisskilríki sín fyrir nokkru, við hátíðlega at höfn að Bessastöðum, að við- stöddum Emil Jónssyni utan- ríkismálaráðherra. í gær gekk sendiherrann á fund ráðherra og ræddi við þá, en skömmu áður hafði fréttamaður blaðsins tal af honum og ræddi stuttlega við hann um Japan og viðskipti landanna beggja. — Kynni mín af íslandi eru næsta lítil, sagði hr. Takahashi, — en mér finnst loftslagið hér stórkostlegt. Hér er allt svo hreint og lit- irnir svo tærir og skýrir. Ég mun dvelja hérlendis í nokkra daga og skoða mig um, en heimleiðis til Stokk- hólms held ég á þriðjudag- inn. — Álitið þér, að viðskipti Japans og fslands hafi farið vaxandi? — Já, þau hafa farið vax- andi, en enn sem komið er Michitoshi Takahashi, sendiherra. eru þau tiltölulega lítii, eða sem nemur 300 mdlljlónum króna á ári. Við flytjum að- allega fiskinet til íslands, eins og kunnugt er. Japanir hafa einnig gert tilboð í túr- bínur væntanlegrar Búrfells- virkjunar og mun það vera langlægsta tilboðið, sem í þær voru gerðar, eða eða um 20 milljón króna. — Hafið þér dvalið lengi í Stokkhólmi? — Nei, í Stokkhólmi hefi ég aðeins verið í tvo mánuði, áður dvaldist ég í Svisslandi og var ambassador Japans þar. Hr. Takahashi ræddi síðan nokkuð um gæði japanskra vara, og sagði m.a.: — Japanskar vörur hsrfa farið stórbatnandi frá stríðs- lokum og er nú svo komið, að tæplega er völ á vandaðri og ódýrari vörum en þeim jap- önsku. Það er keppikefli okk- ar, að geta enn bætt vörurnar og aukið maítkaðinn, sem er í raun og veru geysimikill fyrir vörur frá heimalandi mínu, og vonandi getum við einnig lækkað verðin á þeim jafnframt, en það er eins og öllum er kunnugt mjög lágt og ekki sambærilegt við annað, enda er vinnukraftur- inn ódýr í Japan og það er okkar sterkasta stoð. Kvennaskólanum bárust góðar gjafir við skólauppsögn KVENNASKÓLANUM í Reykja vík var sagt upp laugardaginn 21. maí síðastliðinn að viðstöddu fjölmenni. Skólaslitaræðu flutti frú Guð- rún P. Helgadóttir skólastjóri. ÍÆinntist hún í upphafi séra Bjarna Jónssonar vígslubiskups, en hann hafði ungur kennt við skólann og verið í skólanefnd frá 1914 til dauðadags. Færði hún fram þakkir fyrir allt sem hann hafði unnið í þágu skólans og fór miklum viðurkenningar- orðum um störf hins mikla kennimanns og mannvinar. Þar .næst gerði forstöðukonan grein fyrir starfsemi skólans þetta skólaárið og skýrði frá úr- slitum vorprófa. 226 námsmeyj- ar settust í skólann í haust og 41 stúlka brautskráðist úr skól- anum í vor. Miðskólaprófi luku 33 stúlkur, 65 unglingaprófi og 62 luku prófi upp í 2. bekk. Hæstu einkunn á lokaprófi hlaut Elín Hjartardóttir 9,34. í 3. bekk hlaut Soffía M. Eggertsdóttir hæstu einkunn 9,00. í 2. bekk Ingibjörg Ingadóttir 9,16 og í 1. bekk Guðný Ása Sveinsdóttir, en einkunn hennar var 9,44. Sýning á hannyrðum og teikn- ingum námsmeyja var haldin í skólanum 15. og 16. maí og var mjög fjölsótt. Mikill mannfjöldi var við skólauppsögn og voru Kvenna- skólanum færðar góðar gjafir. Fyrir hönd Kvennaskólastúlkna, sem brautskráðust fyrir 40 ár- um mælti frú Guðbjörg Birkis. Færðu þær skólanum peninga- gjöf, sem varið skyldi til lista- verkakaupa til að prýða skól- ann. Árnaði'frú Guðbjörg skól- anum og stúlkunum, sem voru að útskrifast alls góðs á kom- andi árum. Fyrir hönd Kvenna- skólastúlkna, sem brautskráð- ust fyrir 25 árum mælti frú Bryndís Þorsteinsdóttir og gáfu þær einnig peningaupphæð til listaverkakaupa. Fyrir hönd 20 ára árgangsins mælti frú Guð- rún Guðmundsdóttir. Gáfu þær skólanum vandaða silíurgaffla I og teskeiðar, sem er mikil eign fyrir skólann. Fyrir hönd 10 ára árgangsins mælti frú Guðrún Halla Guðmundsdóttir, og færði sá árgangur skólanum peninga- gjöf til eigin ráðstöfunar. 5 ára árgangur gaf peningaupphæð til listaverkakaupa. Fyrir hönd þessa árgangs talaði frú Ragnl heiður Karlsdóttir. Gísli Jónsson fyrrv. alþingis- maður færði skólanum stóra peningagjöf og fallega blóma- körfu, en kona hans frú Hlín heitin Þorsteinsdóttir útskrifað- ist úr skólanum fyrir 50 árum. Óskaði gefandinn eftir að upp- hæðinni yrði varið til eflingar hljómlistar í skólanum. Þá gaf frú Karitas Sigurðsson gjöf I Minningarsjóð frú Thoru Mel- sted. Forstjóri Elli- og hjúkrun- arheimilisins Grundar, Gísli Sigurbjörnsson sendi skólanum kr. 5.000,— í þakklætisskyni fyrir þá velvild, sem stúlkurnar höfðu sýnt vistmönnum á und- anförnum árum og var ákveðið að sú upphæð rynni í Hildar sjóð, sem námsmeyjar stofnuðu s.l. vor til minningar um látna skólasystur. Nemendasamband Kvennaskólans færði skólanum að gjöf vandað kaffistell úr dönsku postulíni fyrir 88 manns og er það ein mesta gjöf, sem skólanum hefur borizt. Einnig bárust skólanum bókagjafir, blóm o. fl. Forstöðukonan þakkaði eldri nemendum alla þá tryggð, sem þeir hefðu sýnt skóla sínum, og kvað skólann og hinum ungu námsmeyjum mikinn styrk að vináttu þeirra og hún væri þeim öllum hvatning. Þá fór fram verðlaunaafhend- ing. Verðlaun úr Minningar- sjóði frú Thoru Melsted hlaut Elín Hjartardóttir 4. bekk Z. Verðlaun þessi eru veitt- fyrir ágæta ástundun og beztan ár- angur við bóklegt nám. Einnig hlutu Margrét Stefánsdóttir 4. bekk Z, Margrét Matthíasdóttir 4. bekk C og Guðrún Erlends- dóttir 4. bekk Z bókaverðlaun fyrir ágætan námsárangur. Verð laun fyrir bezta frammistöðu í fatasaum voru veitt úr Verð- launasjóði frú Guðrúnar J. Briem. Þau verðlaun hlaut Elín Magnúsdóttir 4. bekk Z. Verð- laun fyrir beztan árangur í út- saum hlaut Anna Sjöfn Stefáns- dóttir 3. bekk C. Þá voru veitt verðlaun fyrir beztu ritgerðina á burtfararprófi. Þau verðlaun hlaut Kristín Á. Ólafsdóttir, 4. bekk C. Þá gaf þýzka sendiráðið verð- laun fyrir góða frammistöðu í þýzkunámi. Þau verðlaun hlutu Margrét Matthíasdóttir 4. bekk C og Soffía M. Eggertsdóttir 3. bekk C. Verðlaun bárust einnig frá Dansk-íslenzkafélaginu fyrir ágætiseinkunn á burtfararprófi í dönsku, en þau verðlaun hlutu Elín Hjartardóttir og Hildur Reykdal báðar í 4. bekk Z. í lok skólaársins hafði verið úthlutað styrkjum til námsmeyja úr Systrasjóði 25.000,— kr. úr Styrktarsjóði Thoru og Páls Mel sted 2.7000,— kr. og úr Krist- jönugjöf 8000,— kr. Að lokum þakkaði forstöðu- konan skólanefnd og kennurum ágætt samstarf á liðnum vetri og ávarpaði stúlkurnar, sem brautskráðust, og óskaði þeim gæfu og gengis á komandi ár- um. Blfreið til sölu Mercedes Benz 220 S. E., árg. 1962 til sölu. — Upplýsingar í síma 10957 eða 17438 á laugardag frá kl. 2—7 e.h. Aðalfundur Pöntunarfélags náttúrulækningafélags Reykjavík- ur verður haldinn í húsi Guðspekifélagsins, Ingólfs stræti 22, 3. júní nk. kl. 8,30 e.h. ,. 4:t~í Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Til leigu Efsta hæðin ásamt plássi í turni til leigu í húsinu Skólavörðustíg 16. — Húsnæðið er óinnréttað. — Upplýsingar gefur Helgi Hjartarson, sírni 20578. Sími 19636. Opið 2. ■ hvítasunnu Reynir Sigurðsson og félagar leika og syngja. TON AR og söngvarinn Terry Patrick frá Englandi Dansleikur í Brautarholti 4 annan í hvíta- sunnu. — Kynnt verður ný unglinga- hljómsveit. Á ANNAN HVÍTASUNNUDAG OPIÐ TIL KL. 1.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.