Morgunblaðið - 10.07.1966, Page 3
Rj Uiiil UUU^ UX
Sr. Jón Auðuns, dómprófastur:
Eftir vitrunina
A SXTNNUDAGINN var vorum
við hjá Páli, þegar honum veitt-
ist vitrunin fyrir hliðum Dama-
skusborgar. Við skulum fylgja
honum á veginum, sem lá frá
Damaskus.
Vitrunin var stórkostleg náð-
argjöf. En hvað hefði hún stoð-
að ef það hefði verið heigull,
sem sá þessa sýn, heyrði þessa
rödd? Heigull hefði ek'ki haft
skap eða þrek til að standa
við neitt, en sagt við vini
sína síðar: Jú, mér fannst
ég heyra þetta og sjá,
en það hefir auðvitað ekki ver-
ið annað en skynvilla, blekking.
Eða þá hann hefði sagt eins og
vitringar sumir siðar: Þetta var
sólstunga og annað ekki. Sólin
var heit og Páll var þryttur af
langri ferð.
Hvað hefði slíkum manni orð-
áð úr vitruninni hjá Damaskus?
Skemmtileg en marklaus rökk-
ursaga til að segja í vinaihópi.
En hér mættu stórir hlutir
stórri sál, og þessvegna varð
þessi virtun að heimssögulegum
atburði, ekkert minna.
Fyrir mörgum árum sagði
mér maður í trúnaði með tár-
stokknum augum frá reynslu,
sem hann hafði orðið fyrir og
taldi hreiniega kraftaverk. Ég
spurði hann um þetta atvik
nokkrum árum síðar og þá sagði
hann: Blessaður vertu, ég man
þetta ekki lengur, þetta hefir
áreiðanlega verið misskynjun
og annað ekki.
Auðvitað var þessi maður
enginn Páll postuli, og við erum
það ekki, ég og þú. En hvað
hefði það stoðað þennan mann,
að virtunin við Damaskus hefði
verið gefin honum? Það vex eng
in eik þótt eikarfræ falli í mold
arskán á steini. Það rís ekki
gnæfandi bára þótt þú blásir á
vatnssopa í skel. En við Damas-
kus mætti hin stóra vitrun
stórri sál, og hún merkti sálu
Páls svo óafmáanlegri minningu,
að hún fylgdi honum til ævi-
loka.
Hún kann að hafa verið það
síðasta, sem hann sá fyrir sér,
áður en böðulsöxi Neros hjó
höfuð hans frá bolnum.
Reynslan . við Damaskus var
svo ótvíræð og stáðfestingin svo
stórkostleg, sem Páll fékk inni
í borginni á sannleiksgildi vitr-
unarinnar, að fcann átti engan
annan kost en að láta sigrast.
Margsinnis síðar veittist Páli
náðargjöf nýrra vitrana. And-
spænis þeim var hinn stórlyndi,
geðríki maður auðmjúkur sem
barn. Og vegna auðmýktar hans
andspænis þessum leiftrum æðri
veruleika varð Kristur honum
allt. S^ro altekinn varð hann af
Kristi, að hvað sem segja má
og deila um sumar hinar gyð-
inglegu guðfræðikenningar hans,
þá andar frá honum þeim ilmi
tilbeiðslunnar og lotningarinnar
fyrir Kristi, sem varð aflvaki
þess óhemjulega starfs, sem
hann leysti af hendi.
Frá suntum þeirra vitrana,
sem Páll fékk síðar, segir í bréf-
um hans og í Postulasögunni,
sem vinur hans og samferða-
maður, læknirinn Lúkas, reit og
er þvi næst á eftir bréfum Páls
hin ákjósanlegasta heimild um
lif og starf hans á þessum árum.
I 12. kap. síðara Korintubréfs
má greinilegast lesa um „anda-
gáfur“ Páls sjáffs og annarra í
söfnuðunum. En allt, sem hann
reyndi og var honum skýlaus
vitnisburður um tilvist og ná-
lægð ójarðneskrar veraldar,
fölnaði hjá því, að Kristur sjálf-
ur hafði vitrazt honum meðan
hann var enn að ofsækja söfnuð
hans á jörðu.
Krist upprisinn vissi hann
daglega í för með sér eftir þetta,
Kristur upprisinn var S'tænsti
veruleikinn í trúarlífi hana,
sæla hans í sorgum og neyð, afl-
gjafi hans á stundum veikleik-
ans, ljós hans á hverjum dimm-
um vegi. (
Minningin um Kristsvitrunina
við Damaskus fylgdi Páli alla
ævi, eins og aldrei gæti hljóðn-
að röddin, sem hafði sagt: „Sál,
Sál, hví ofsækir þú mig?“ En
hinsvegar fyllti sannfæringin
um nálægð Krists Pál þeirri
sælu, að allt varð honum sæla
í baráttunni fyrir fagnaðarerind
ið.
Svo liðu árin, unz pislarvætt-
isdauðinn innsiglaði þetta dæma
lausa líf, þrungið sælu og sorg,
baráttu og vitrunum, sigrum og
ósigrum.
Og svanasöngur Páls varð
’þessi: „Lifið er mér Kristur".
Loks þekkti Páll ekkert lif,
nema hann sem hann hafði áður
hatað heilu hatri og ofsótt, en
elskað siðar eins og fáir einir
hafa elskað Krist.
Lykillinn að þessum leyndar-
dómi er vitrunin við Damaskus.
UTAN AF LANDI UTAN AF LANDI UTAN AF LANDI
UTAN AF L
EEHD
Siglufirði 5. júlí.
UNNIÐ er af kappi að dýpk-
unarframkvæmdum hér í
Siglufjarðarhöfn. Eru þar að
verki dýpkunarskipið „Grett-
ir“ og dýpkunarpramminn
„Björninn", og gengur báð-
um vel við verk sitt. „Gretti“
er ætlað að grafa rás inn
fjörðinn að hafskipabryggju
bæjarins, svo og fyrir framan
hina nýju löndunarbryggju
SR. En „Björnin“ mun moka
fyrir framan og inn á milli
síldarsöltunarbryggja, þ a r
sem dýpi er of lítið fyrir
stærri síldarskip. En hér bíð-
um við Siglfirðingar alltaf í
voninni, og bíðum eftir bless-
aðri síldinni, að henni þóknist
að láta sjá sig, og viljum við
hafa allt til reiðu, er hún
kemur.
„Grettir", dýpkunarskipið, er
nokkuð þekktara en „Björn-
inn“ enda skrásett í Reykja-
vík og í eigu „Hafnar- og
vitamála“. Grettir getur verið
afkastamikill, fer eftfr hvern-
ig botninn er. En gamaldags
er margt af útbúnaði hans
enda er „Grettir" kominn til
ára sinna. En ófyrirgefanlegt
finnst mér þó að útbúnaður sá
sem notaður er á tveim fylgi-
Þrír menn erfiða við að loka botnhlerunum á öðrum
prammanum frá Gretti.
„Grettir" að ljuka við að fylla annan prammann fyrir framan löndunarbryggju SR.
prömmum „Grettis", til að
hífa upp botnlokurnar, eru
enn í dag árið 1966 eins og
þær voru þegar prammarnir
komu til landsins fyrir 10—15
árum eða hvenær sem það nú
var, en útbúnaðurinn er nán-
ast sagt mjög fornaldarlegur.
„Grettir" mokar upp í tvo
pramma til skiptis og eru
þessir prammar dregnir af
mótorbát norðaustur í fjörð-
inn. Þar eru prammarnir los-
aðir á þann hátt að slegið er
á k.lossa með sleggju og opn-
ast þá botnhlerar prammans
og „uppgröfturinn" sígur í
botninn. Á prammanum eru
þrír menn (sem ganga á milli
prammana eftir þörfum) og
hefst nú þeirra puð fyrir al-
vöru. Þeir leggjast á sveif og
byrja að snúa. nei þeir eru
ekki að snúa vél í gang, það
er enginn vél um borð, heldur
þrír menn sem snúa og snua
þungu handsnúnu „spili“,
fyrst tveir i einu á einni sveif
sá þriðji hagræðir vírnum
með sleggju. Spilin eru tvö,
og lokar hvert þeirra þrem
lúgum á botni prammans, en
áður en öllum 6 lúgunum er
lokað hafa þremeningarnir
snúið 600 snúninga og þar af
síðustu snúningana þrír í
einu, því þunginn eykst því
nær sem lokun dregur og
valda ekki tveir fullhraustir
karlmenn að „loka“, heldur
þarf þriðja manninn, og dug-
ar rétt, því svitinn bogar af
mönnunum — og pramminn
er kominn að „Gretti" aftur,
og hinn pramminn að fyllast.
Þarna álít ég, þó ég sé ekki
neinn vélaverkfræðingur, að
koma mætti fyrir litilli loft-
kældri bensínvél mikið niður-
gríaðri, sem mundi vinna
verkið auðveldlega.
En kannski það sé of dýrt,
dýrara en mannakaupið, sem
það mundi spara?
S.K.
UTAN AF LANDI UTAN AF LANDI UTAN AF LANDI UTAN AF LANDI
Höfnin
dýpkuð
En höldum áfram með dýpk
unina, „Björninn“ er dýpkun-
arprammi eins og áður segir,
og er um hundrað lestir að
stærð útbúinn sterkum lyfti-
krana, sem „krabbar" úr
sjávarbotninum og lestar
„Björninn" um 65 tenings-
metra, sem pramminn siglir
síðan með norðaustur í Siglu-
fjörð og losar þar farm sinn
á sama hátt. Prammi þessi
er í eign Age Jóhannssen og
Björns Þórðarsonar á Siglu-
firði.
— /jb róttir
Framhald af bls. 26
Öll löndin fjögur er unnið hafa
heimsmeistaratitilinn hafa áunn-
ið sér rétt til lokakeppni 16 landa
í Englandi nú. Brasilía leikur í
riðli með Búlgaríu, Ungverja-
landi og Portúgal. Ítalía í riðli
með Sovétríkjunum, Chile og N-
Kóreu. Uruguay í riðli með Eng-
landi, Frakklandi og Mexico og
V-Þýzkaland í riðli me'ð Argen-
tinu, Sviss og Spáni.
Það er mikið um dýrðir í
Englandi, „móðurlandi knatt-
spyrnunnar" þessa dagana og
næstu vikurnar. Lifið í London
ber mikinn svip keppninnar. Um
100 þús. erlendir gestir gista
England •— aðallega London —
vegna keppninnar. Á strætum og
torgum er seldur allskyns varn-
ingur sem minnir á keppnina,
alls kyns merki, hálsbindi, jakk-
ar, treflar o.fl. o.fl. Aðgöngumið-
ar ganga kaupum og sölum á
svörtum markaði fyrir margfalt
verð. Á börum og krám, í stof-
um og vinnustöðum er skegg-
rætt um leikmenn og lið, hæfi-
leika, getuleysi o.s.frv. Víðsvegar
um heim biða svo tug- eða
hundruð miUjóna manna í spenn-
ing eftir fréttum af leikunum.
í STUTTU IUÁLI
BELFAST, N-írlandi, 4. júlí,
NTB, AP. — Elísabet Breta-
drottning er nú komin til Bel-
fast í tveggja daga heimsókn.
Óttast hafði verið að heimsókn-
in yrði tilefni til endurnýjaðra
illdeilna irsku þjóðernissinnar-
anna kaþólsku og mótmælend-
anna í Úlster í N-írlandi, en
ekki ehfur þó komið þar til alv-
arlegra óeirða enn, enda varúð-
arráðstafanir miklar. Átök hafa
verið með mótmælendum og ka-
þólskum í Úlster undanfarna
mánuði og oft komið til uppþota.
Er drottning og hertoginn af
Edinborg maður hennar óku um
götur Belfast var varpað að bif-
reið þeirra múrsteini og nokkru
síðar kom flaska fljúgandi en
hitti ekk’
Berlín, 6. júní (NTB) /
HÓPUR austur-þýzkra her-
manna hóf í dag að rifa nið-
ur hluta af Berlinarmúrnum
og setja upp gaddavirsgirð-
ingar í staðinn. í Vestur-
Berlín er talið að yfirvöldin
í austurhlutanum hafi í
hyggju að koma upp kerfi
af gaddavírsgirðingum og við
vörunarkerfi til þess að
hindra flóttafólk þannig í því
að komast yfir borgarmörk-
in.