Morgunblaðið - 10.07.1966, Qupperneq 8
8 MORGUNSLADIÐ
HVAÐ VERÐUR
Repúblikanar i Bandar'ikjunum eru
ræða forsetakosningarnar — Úrslit
munu ráða miklu um framboð
ÝMSUM kann að þykja, að
naumast sé timabært að hafa
uppi getgátur um framboð og
úrslit í forsetakosningum
þeim, sem fram eiga að fara í
Bandaríkjunum 1968. I»ó er
það svo, að blöð vestra hafa
allmikið um þessi mál ritað
á undanförnum vikum, og
veldur þar mestu um, að
þingkosningar eiga að fara
fram í Bandaríkjunum í nóv-
ember nk., og telja repúblík-
anar að þeir muni vinna veru-
lega á demókrata í þeim
kosningum. Þingkosningamar,
svo og rikisstjórakosningar í
tveimur ríkjum, Michigan og
Kaliforníu, munu að öllum
líkindum hafa mikil áhrif á
framboð repúblikana í for-
setakosningunum eftir tvö ár.
Framboð demókrata í forseta-
kosningunum liggur hinsvegar
Ijóst fyrir. I.yndon B. Johnson
mun án nokkurs vafa bjóða
ság fram fyrir annað kjör-
tímabil, endist honum líf og
beilsa.
Mikil vakningaralda er nú
meðal repúblí'kana vestra, og
í öllum ákafanum glittir í þá
óskhyggju flokksins, að hann
muni verulega bæta við
»ig þingsætum á kostnað
demókrata. Hinir bjartsýnustu
repúblíkanar hafa að meira
segja við orð, að vel kynni
svo að fara að sagan frá 1946
endurtaki sig í nóvember.
1946 misstu demókratar meiri-
hluta sinn í fulltrúadeild
Bandaríkjaþings. Harry Tru-
man var þá forseti.
Bjartsýni
Á þessu stigi málsins hafa
þegar allmörg nöfn verið
nefnd í sambandi við framboð
repúblíkana gegn Johnson
1968. Hæst ber þá George
Romney, ríkisstjóra í Michig-
an, Richard Nixon, fyrrum
varaforseta og Ronald Reag-
an, sem fyrir nokkru vann
mikinn sigur í undankosning-
Um innan repúblíkana í
Kaliforníu og keppir nú við
Edmund Brow, núverandi rí'k-
isstjóra í Kaliforníu, um ríkis-
stjóraembættið. Brown er
demókrati. Fleiri nöfn hafa
og verið nefnd.
Ahnennt líta repúblíkanar
svo á, að flokkur þeirra muni
vinna verulega á í nóvember-
kosningunum, og fer bjartsýni
í flokknum fremur vaxandi en
hitt. Sem dæmi má nefna, að
fyrir skömmu sögðu repúblí'k-
anar að þeir vonuðust til þess
að vinna 20 til 30 þingsæti í
fulltrúadeildinni í nóvember,
en nú segja þeir að vonir
standi til að þau verði fremur
30 til 40. Nú er jafnvel svo
komið málum, að ýmsir demó-
kratar spá því, að repúblík-
anar muni vinna allt að 50
eða 60 sætum.
Margir repúblíkanar telja,
að tvennar ríkisstjórakosning-
ar, sem fram eiga að fara í
haust, vísi leiðina beint til
ársins 1968, er forsetakosning-
ar fara fram.
í Miohigan er Romney, rik-
isstjóri, í fram'boði til endur-
kjörs, og er honum spáð mikl-
um sigri. í Kaliforníu hyggst
kvikmyndaleikarinn fyrrver-
andi, Ronald Reagan, ná ríkis-
stjórasætinu af Edmund ,,Pat~
Richard M. Nixon
— annað tækifæri 1968?
Brown. Beri Reagan sigur úr
býtum telja margir repúblík-
anar að ný öfl hafi verið leyst
úr læðingi innan flokksins.
Repúblíkanar á austurströnd
Bandaríkjanna hafa þegar haf
ið mikla herferð til stuðnings
Romney því að Romney verði
frambjóðandi flokksins 1968.
Nixon og Romney
Þá hafa stuðningsmenn Ric-
hard Nixon einnig hafizt
Gerald Ford
— varaforsetaefni?
handa, en sem kunnugt er
beið Nixon ósigur fyrir John
F. Kennedy 1960, og réði
naumt atkvæðamagn úrslit-
um. Nixon hefur ferðast mikið
um að undanförmi, og tryggt
sér stuðningsmenn, einkum í
héruðum þeim, sem studdu
Barry Goldwater gegn John-
son í síðustu kosningum.
Margir repúblíkanar, sem
fylgjast vel með rnálum, spá
1968?
jpegar farnir að
bingkosninga i nóv.
boðssæti repúblíkana 1968
muni standa milli Nixons og
Romneys. Þar munu kjörmenn
því að slagurinn um fram-
Kaliforníu á flokksþinginu
hafa mikið að segja.
Því er á það bent, að sigri
Ronald Reagan í ríkisstjóya-
kosningunum í Kaliforníu,
fjölmennasta ríki Bandaríkj-
anna, muni það, er öll kurl
eru til grafar komin, verða
Nixon að gagni. Bæði Nixon
og Reagan unnu baki brotnu
fyrir Barry Goldwater 1964,
en hinsvegar hélt Romney sig
frá Goldwater, en var endur-
kjörinn ríkisstjóri í Michigan
sem einskonar „sjálfstæður"
repúblíkani.
Mikið er rætt um þá stað-
reynd, að Romney hefur
reynzt óvenju happasæll at-
kvæðalega séð. 1962 braut
hann 16 ára gamla hefð í
Michigan, en það tímabil
höfðu demókratar farið sam-
fellt með stjórn ríkisins. 1964,
er Lyndon Johnson hlaut nær
1 milljón atkv. umfram Gold-
water í Michigan, sigraði
Romney í ríkisstjórakosning-
unum með 400.000 atkvæða
meirihluta. Ef litið er á at-
kvæðamagn Romneys í ríkis-
stjórakosningunum, og Gold-
waters í forsetakosningunum,
hlaut Romney 700.000 atkvæði
umfram þann síðarnefnda.
Því er spáð, að í ár muni
Romney hljóta enn fleiri at-
kvæði. Vinir hans segja, að
frjálslyndi hans lýsi sér m.a.
í því, að hann hefur skipað
marga negra í embætti, og
staðreynd er að fjármál
Michigan hafa tekið stakka-
skiptum til hins betra í stjórn-
artíð hans.
Ýmsir stjórnmálamenn telja,
Jacob K. Javits
— studdur af Rockefeller
að gangi Romney allt í haginn
á næstunni, muni hann hljóta
stuðning repúblíkana flestra
iðnaðarríkja austurstrandar-
innar, aiík heimarí'kis hans og
nokkurra annarra ríkja í Mið-
vestrinu á flokkslþinginu 1968.
Flestir repúblíkana telja, að
Suðurríkin muni fylkja sér
um Nixon, enda hlaut Gold-
water mikinn stuðning þaðan.
Og ekki eru mörg ár
síðan Suðurríkjamenn sáu
myndir í blöðunum, sem
sýndu Romney í mannrétt-
indakröfugöngu með negrum.
Tveggja áratuga starf
Urh Nixon er það að segja,
að hann hefur hagað sér á
mjög svipaðan hátt og hann
gerði, er hann sóttist eftir
framboðinu 1960. Hann er
ávallt reiðubúinn til þess að
mæta í fjársöfnunarkvöld-
verðum flokksins. Hann þek'k-
ir skírnarnafn flokksfioringja
allra ríkja Bandarikjanna og
að auki fiokksleiðtoga í mörg
hundruð héiuðum. Hann heí-
George Romney — nýtur
stuðnings í Austurríkjunum
ur og gert mörgum þeirra
greiða.
Nixon hefur nú unnið fyrir
flokkinn í tvo áratugi. Hann
þekkir því innanlandsmálefni
til hlítar, og ferðir hans um
heiminn hafa gert hann margs
vísari um utanríkismál. Hann
er í áliti hjá stuðningsmönn-
um Goldwaters, og hann hef-
ur, með sæmilegum árangri,
reynt að halda góðum tengsl-
um við „frjálslynda".
Nixon er pólitískur raun-
sæismaður. Hann gerir sér
grein fyrir því, að margir líta
til ósigurs hans í forsetakosn-
ingunum 1960 og ríkisstjóra-
kosningunum í Kaliforníu
1962, og að hann er af mörg-
um talinn óheilla'kráka í
kosningum. Hann gerir sér og
grein fyrir því, að þetta mun
reynast honum erfiður ljár í
þúfu.
Hinsvegar er talið, að Nixon
muni halda sínu striki ótrauð-
ur, og stefna að settu marki.
Hann á marga öfluga stuðn-
ingsmenn, og á flokksþingi
repúblíkana 1968 mun ugg-
laust kveða að honum.
Repúblfkanar eru og þegar
farnir að ræða um hvaða
menn kæmu til greina í fram-
boð til varaforseta fyrir flokk-
inn. Er Nelson Rockefeller,
ríkisstjóri, dró framboð sitt
til baka á síðasta flokksiþingi,
bar hann fram tillögu um þá
Romney ríkisstjóra og Jacob
K. Javits, öldungardeildar-
þingmann frá New York.
Aðrir repúblíkanar hafa
rætt um að Gerald R. Ford,
leiðtogi þingflokks repúblík-
ana í fulltrúadeildinni, verði
í framboði með Nixon, en
þeir eru gamlir vinir.
Þannig ræða repúblíkanar
hvað gerast muni 1968. En
óþarft er að taka fram, að allt
Charles H. Percy — gæti orð-
ið skæðasti keppinautur Fords
er það undir því komið,
hversu flokknum reiðir af í
þingkosningunum á þessu ári.
Sunnudagur 10. júlí 1966
10
íbúðir óskast
Höfnm kaupendur
að einbýlishúsum og 2ja—8
herb. íbúðum í borginni.
Hlýjafasteipasalan
Laugavop 12 - Sími 24300
7/7 sölu
PARHtJS
við Hlíðarveg í Kópavogi.
Húsið er tvær hæðir samt
103 ferm. 4 svefnherb.,
tvær stórar stofur, sér-
þvottahús. Teppalagt og
vandaðar innréttingar.
4RA RERBERGJA ÍBÚB
á 4. hæð í næstu húsaröð-
inni við Hraunbæ. Herb. í
kjallara fylgir. Innréttingar
að miklu leyti komnar.
Sameign fullgerð. Afhent
strax.
SÉRHÆÐIR
í smíðum í Kópavogi, frá
120 ferm., allt sér.
2ja og 3ja herb. íbúðir víðs-
vegar í borginni.
4ra—6 herb. íbúðir í austur-
borginni.
2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir
í smíðum í Hraunbæ. Afh.
1. okt. Sameign fullgerð.
FASTEIGNASALAN
HÚS&EIGNIR
BANKASTRÆTI á
Símar 16637 og 18828.
7/7 sölu
Góð kjallaraíbúð 2ja herb. 1
Smáíbúðahverfinu. Útb 350
þúsund.
Við Þórsgötu 3ja herb. íbúð.
Við Ásvallagötu 4ra herb. ris-
íbúð, ásamt bílskúr, ný-
standsett.
Fokhelt raðhús í Hafnarfirði
selst með tvöföldu gleri í
gluggum, verð 650 þúsuind.
fasteignasalan
Skólavörðustíg 30.
Sími 20625 og 23987
7/7 sölu
Vii flliitavatn
bátaskýli til sölu.
Sumarbústaðaland
við Álftavatn.
Höfum kaupendur að íbúðum
af öllum stærðum. Háar útb.
finar Sigurðsson hdl.
Ingólfsstræti 4. Simi 16767.
Kvöldsimi milli 7 og 8 35993.
Peningalán
Útvega peningaián:
Til nýbygginga.
— íbúðarkaupa.
— endurbóta á ibúðum.
Uppl. kl. 11-12 Lh. og 8-9 eÁ.
Sími 15385 og 22714.
Margeir J. Magnússon
Miðstræti 3 A.
JOHANNFS L.L. HELGASON
JONAS A. AÐALSTEINSSON
Lögfræðingar
Klapparstig 26. Simi 17511.