Morgunblaðið - 05.08.1966, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.08.1966, Blaðsíða 4
4 MORCU N BLAÐIÐ Fostudagur 5. águst 1966 BÍLALEIGAN FERÐ Daggjald kr. 400. Kr. 3,50 per km. SÍMI 34406 SENDUM MAGIMUSAR skipholti21 s:mar 21190 eftir lokuri simi 40381 sfM' 3-lí-GO mnif/Ð/R Volkswagen 1965 og ’66. Ymm"BiLALEICAN rALUR 2 1 RAUÐARÁRSTÍG 31 SÍMI 220 22 LITLA bílaleigun Ingólfsstræti 11. Volkswagen 1200 og 1300. Sími 14970 33924 22-1-75 PILTAR — EFRlOfiOíP UNNUSTVNA ÞÁ A ÉC HRlNCANA /IsM'jní/s jðtotPftréM/ S ' BOSCH Þurrkumótorar 24 volt 12 volt 6 volt Brœ&urnir Ormsson Lágmúla 9. — Sími 38820. Þjóðhátíðin Einn af lesendum blaðs- ins skrifar okkur bréf um þjóð hátíðina í Vestmannaeyjum, en hún verður haldin um næstu helgi að mig minnir. Segist bréfritari hafa farið ásamt konu sinni á þjóðhátíðina í fyrra — og í framhaldi af því segir hann m.a.: „Vorum við í tjaldi eins og allir aðrir. Fyrsta kvöldið fórum við úr tjaldinu um 12-leytið til þess að skemmta okkur — og kom- um aftur tveimur stundum síð- ar. (Hér mun vera átt við 12 á miðnætti). Urðum við þá vör við að plága hafði herjað tjald okkar. Öllu hafði þar verið snú ið við. Horfnar voru tvær flösk ur af víni, myndavél, sem kost aði 6.000 krónur, skór, sem keyptir höfðu verið fyrir 900 krónur fjórum dögum áður. Frá konunni var stolið snyrti- áhöldum og auk þess kr. 3.000, sem hún hafði í gáleysi skilið eftir í veskinu sínu. Sama plágan hafði herjað tjöldin við hliðina á okkar tjaldi. Mikið magn af víni hafði horfið — svo til allt, sem unga fólkið hafði haft með sér. Svefnpoki og prímus hurfu líka. Forráðamenn skemmtunar- innar svo og lögreglan vildu allt fyrir okkur gera, en gátu ekkert. Vonlaust var að finna þann eða þá, sem farið höfðu með ránshendi um tjaldbúðirn ar. 1 framtíðinni væri hægt að koma i veg fyrir betta og ann- að hliðstætt með því að koma upp skúr á hátíðarsvæðinu — þar sem starfsmenn hátíðarinn ar tækju við og geymdu muni fyrir hátíðargesti. Hingað til hefur fólki verið bent á að skilja dýrmæta muni ekki við sig, en ekki er hægi að bera allt á sér meðan á skemmtun- inni stendur. Eða heldur þú að þægilegt væri að dansa með 2—3 vínflöskur um hálsinr, myndavél og annað lauslegt? f>á þyrftu konurnar að hafa veski sín í höndunum allan tímann — og ef vel ætti að vera þyrftu gestirnir að vera með svefnpoka, tjöld og bak- poka á bakinu meðan á dans- inum stæði — og hafa prímus dinglandi við læri.“ Með flöskurnar bundnar um háls- inn Þetta segir bréfritari væntanlegum þjóðhátíðargest- um til viðvörunar og bendir forráðamönnum hátíðarinnar jafnframt á það, hvernig koma megi í veg fyrir að dýrmætum munum sé stolið. Velvakandi er hins vegar þeirrar skoðunar, að þeir þjóð hátíðargestir, sem koma klyfj- aðir brennivíni til leiks, ættu umfram allt að dansa með flöskurnar bundnar um háls- inn. í>að færi þeim bezt. En að koma upp gæzluliði til þess að gæta vínbirgðanna ti'l þess að eigendur geti drukkið frá sér vitið í ró og næði — já, sltKt mætti telja góða þjónustu. Mundi sennilega flokkast und- ir menningarmál. Hins vegar ætti að vera hár sem annars staðar — í sam- göngumiðstöðvum og í stærri bæjum — greiður aðgangur að einhverjum þeim aðila, sem tæki að sér að geyma verð- mæti í lengri eða skemmri tíma. En sérstök brennivíns- geymsia á útivistarsvæði mundi sennilega ekki stuðla að bættri umgengni eða auka mik ið svonefnda drykkjumenn- ingu. * Stolið frá Bakkusi Oft hefur verið rætt^ og ritað um ólæti og slæma hegð un, sem beinlínis hefur átt rót sín að rekja til vínneyzlu ung- linga á þjóðhátið í Vestmanna- eyjum. Til Eyja flykkist fólk í stór- hópum yfir þessa hátíð, eink- um ungt fólk. Mér er sagt, að margir Vestmannaeyingar séu farnir að flýja Eyjarnar þessa daga — og ljóst er, að heima- menn eiga minnstan þátt í því, sem aflaga fer. Þjóðhátíðin í Eyjum virðist vera komin i sama vanda og Þórsmörk Var komin í um verzlunarmannahelgina. Þar átti sér stað alvarleg þróun. Sem betur fer virðist nú margt benda til þess, að sú þróun hafi verið stöðvuð. Skát ar og bindindismenn virðast nefnilega á góðri leið með að „stela“ verzlunarmannahelg- inni frá Bakkusi — og eiga hinir framtakssömu leiðtogar íslenzks æskufólks skilið stuðning allra góðra manna. Það kæmi engum á óvart, þótt Bakkus færi líka halloka í Vest mannaeyjum — og þjóðhátíð- inni yrði „stolið“ á sama hátt: Að skátar, bindindismenn og aðrir, sem láta sig varða mál- efni æskufólks, beindu straumn um í aðra átt með sameigin- legu átaki. Þá gætu Vestmanna eyingar verið heima hjá sér á þjóðhátíðinni. -fc Grænmetismat- stofa G. J. skrifar: „í tímariti Náttúrulækninga- félags íslands, „Heilsuvernd“, birtist fyrir skömmu ávarp til áhugamanna um stofnun mat- stofu hér í Reykjavík og var þess getið að þegar hefðu bor- izt loforð margra um fjárfram- lög. Það hefir oft verið um þetta rætt, þótt ekki hafi orðið úr framkvæmdum. Það væri æski legt að hér væru fleiri litlir snyrtilegir matsölustaðir, sem gætu selt máltiðir á hóflegu verði. Ferðamannastraumurinn eykst ár frá ári. Fólk utan af landsbyggðinni þarf að dvelja á höíuðstaðnum um lengri eða skemmri tíma. Til þess að fá góðan mat, þarf þetta fólk að fara in á eitthvert hinna fínu hótela. Verðið fyrir slíkar mál- tíðir, og þá þjónustu, sem þar er látin í té, er eðlilega of- viða pyngju hvers venjulegs ferðamanns, ef um lengri tíma er að ræða. Útlendingar sem hér þurfa að dvelja, eru flestir vanir því að neyta meira grænmetis og ávaxta en við gerum, og kvarta undan því að geta ekki fengið keyptar léttar máltíðir. Ég minnist þess að hafa les- ið grein eftir grænmetisfram- leiðanda, þar sem hann gat þess, að húsmæður kynnu ekki að nota sér á réttan hátt það grænmeti, sem á boðstólnum væri á hverjum tíma. Það er leitt fyrir húsmæður nútímans, með hihar glæsilegu eldhúsinnréttingar og fullkomn ustu vélar til matargerðar, að láta segja um sig að þær kunni ekki nógu vel til matreiðslu. Það hefir heyrst að eldhús- menning hér á landi sé komin á svo hátt stig að þar megi ekki matarlykt finnast. Ef rekin væri grænmetismatstofa í Reykjavík, væri æskilegt að húsmæður hefðu greiðan að- gang að því að kynnast græn- metisréttum og tilbúningi þeirra. Gæti það orðið þeim aðstoð og hvatning til þess að bæta daglegt viðurværi fjöl- skyldunnar. Við óskum þess öil að börn okkar séu hraust og heilbrigð. Flestar húsmæður þekkja hvernig stofublómin þeirra líta út ef þær trassa að gefa þeim áburð og vökvun. Það er marg sannað að ýms- ir þeir kvillar er sækja á börn og unglinga á uppvaxtarárum þeirra, stafa af því, að fæðan, sem þau fá, er ekki nógu nær- ingarík. Það hefir löngum geng ið treglega að vekja áhuga ís- lendinga á notagildi og neyzlu matjurta. Um miðja átjándu öld voru fyrst fluttar hingað til lands kartöflur til útsæðis. Á þeim tíma féllu árlega um eitt þús- und landsmanna úr hungri og harðrétti. Björn Halldórsson presíur i Sauðlauksdal var þá einn helzti brautryðjandi í garð- rækt og átti mestan þátt í þvi að kenna landsmönnum að nota grænmeti til matar. Til- raunum sínum í þá átt lýsir hann á þessa leið: „Þegar hjú mín urðu þeas áskynja, að ég ætlaði að gefa þeim kál til matar, risu þau öndverð gegn því, að sögðu að það væri ekki sómasamlegur matur. Ég varð að slá undan í það skiptið og láta eins og mer hefði ekki ver ið alvara að knýja fram þenn- an ásetning minn. Kálið stóð i garðinum og hélt áfram að vaxa fram eftir hausti." Sem betur fer þurfum við fslendingar tuttugustu aldar- innar ekki að berjast við hung- urvofuna. Nú er það fremur ofát og offita, sem fólk hefir áhyggjur af. Allskonar óholl- um efnum er blandað í matvæl in, til þess að verja þau skemmdum eða til bragðbætis. Niðursoðinn matur er mikið notaður. Við þurfum að hafa matvælaeftirlit til þess að verja neytendur heilsu og fjör tjóni af allskonar eiturmeng- uðum matvælum. Jónas heitinn Kristjánsson læknir barðist manna mest fyrir aukinni grænmetisneyzlu. Á heilsuhæli Náttúrulækninga félags íslands í Hveragerði má sjá árangurin af hinu mikla starfi hans. Grænmeti það, sem notað er þar, er ræktað með lífrænum áburði, eftir ströngustu kröfum. Þar eru miklir og góðir ræktunarmögu- leikar og allar aðstæður fyrir hendi til þess að sjá matstofu í Reykjavík fyrir fyrsta flokka grænmeti. Grænmetismatstofa hér myndi ekki verða rekin sem gróðafyrirtæki. Það ætti að vera trygging fyrir því, að neytendur fengju þar máltíðir á sanngjörnu verði. Línur þessar eru ritaðar I þeim tilgangi að hvetja þá, sem kynnu að vilja styrkja þetta málefni á einhvern hátt, til þess að hafa samband við skrifstofu Náttúrulækninga- félags íslands, að Laufásvegi 2l — GJ.“ Nestispakkar — Smurt brauð Kaldur veizlumatur Heitur veizlumatur Matur fyrir vinnuflokka Álegg í úrvali MIÐBÆR KJOTBURIÐ HF. Háaleitisbraut 58—60 - Sírni 37140

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.