Morgunblaðið - 05.08.1966, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Fostudagur 5. Sgúst 1966
í FYRRI viku kom til
íslands yfirmaður söludeild-
ar RRC-sjónvarpsins í Evrópu
Mr. Collum, þeirra erinda að
ræða við íslenzka sjónvarps-
menn um sjónvarpsþætti þá,
sem EfRC hefur á boðstólum
og sem gætu hentað á íslandi,
þegar íslenzkt sjónvarp hefur
göngu sína. Hann sagði Mbl.,
í viðali, að ekki hefði verið
gengið frá neinum kaupum
núna, heldur rætt um leik-
þætti, fræðslumyndaþætti og
„frægra manna þætti“ og
yrðu sjálfsagt teknar ákvarð
Mr. Collum (annar frá vinstri) frá sjónvarpi BBC með íslenzkum sjónvarpsmönnum, Emil
Björnssyni, deildarstjóra fréttadeildar, Pétri Guðfinnssyni, framkvæmdastjóra sjónvarpsins
og Steindóri Hjörleifssyni, d eildarstjóra skemmti og fræðsludeildar.
Hlutverk sjónvarps að
skemmta, upplýsa, fræða
segir mr. Collum frá sjonvarpi BBC
anir um kaup á þeim fljót-
lega.
Mr. Collum sagði, að RBC
hefði byrjað almenningssjón-
varp fyrir 20 árum, á undan
öllum öðrum. Það væri hluti
af hinu kunna BRC, sem ekki
er ríkisfyrirtæki heldur sér-
stök stofnun, er hóf útvarp
1920. RRC skiptist í þrjár
deildir, sem fást við heimaút-
varp, sjónvarp og útvarps
sendihgar út um heim. Sjón-
varpið framleiðir sjálft 85%
af öllu sínu efni og það er
mikil framleiðsla á ári, þar
sem sent er út alla daga. Byrj
að er kl. 1 e.h. á kennsluþátt-
um, sem tengdir eru kennsl-
unni í skólunum. Síðdegis eru
barnaþættir. Og svo er haldið
áfram til kl. 11 á kvöldin og
'meira á laugardögum og
sunnudögum.
— Við teljum hlutverk okk
ar í BBC að skemmta, upplýsa
og fræða, sagði Mr. Collum.
Og mér sýnist að íslenzku
sjónvarpsmennírnir ætli að
fylgja sömu stefnu. Við sjón-
varpið hér er sýnilega skyn-
samt fólk, sem virðist ákveð-
ið í að gera vel. Ég held að
sjónvarp ætti að geta orðið
ágætt til að stytta stundir á
löngum vetrum.
Auk þess efnis, sem BBC
sjónvarpið framleiðir sjálft,
kaupir það efni frá öðrum
löndum í Evrópu og Ameríku
eða hefur samvinnu við aðra
um framleiðslu þátta, Euro-
vision getur t.d. sameinað
sendingar frá 8—9 löndum og
er það t.d. gert í söngkeppn-
um. Þegar sjónvarpsefni er
þannig flutt á milli landa,
þarf að færa það yfir á við-
komandi tungumál. Það er
ýmist gert með að þýða á let
ur neðanmáls eða að taka út
erlenda talið og láta leika
hitt málið inn á aftur. Það
síðarnefnda er miklu erfiðara.
Kvaðst Mr. Collum ekki vita
hvað gert yrði hér, en hann
gæti ímyndað sér að notað
yrði letur neðanmáls, nema í
fræðsluþáttum, þeir eru miklu
viðráðanlegri, þar sem aðeins
eru 1—2 raddir. Leikritaflutn
ingur er erfiðari, þar sem það
er túlkandi list, sem margir
taka þátt í. Á Norðurlöndum,
Hollandi og fleiri löndum er
fyrirkomulagið sem að ofan
greinir.
— Það eru til hjá okkur
ýmsir þættir, sem væru áreið
anlega hentugir fyrir ykkur
á íslandi og við viljum selja
sagði mr. Collum ennfremur.
En á þeim hvíla ýmsar kvaðr
ir, svo sem höfundaréttur,
aukagreiðsla til leikara o.fl.,
þannig að of mkill kosnaður
fylgir þeim fyrir sjónvarpið
hér. Við framleiðsluna er það
ýmst að við greiöum í eitt
skipti fyrir öll þeim, sem
starfa við það, eða aðeins fyr
ir okkar eigin sendingar og
síðan prósentur af útlánum til
annarra landa. Kostnaður við
framleiðslu efnis er alltaf
mjög mikill. En við erum
heppnir í Englandi miðað við
ýmsar aðrar þjóðir, því við
eigum svo mikið af góðum
leikurum, sem ekki eru á
„toppinum“ og þeir nýtast
mjög vel fyrir sjónvarp. Við
þurfum svo mikið úrval af
góðu fólki, því ekki er hægt
að vera með sömu andlitin í
sjónvarpsleikjum dag eftir
dag. T.d. gengur ekki að sama
andlitið sýni lögreglumann í
dag og glæpamanninn á morg
— Við seljum sjónvarpsefni
um allan heim, einnig nokkuð
til Austur-Evrópulandanna,
sagði mr. Collum. Að visu er
sent út með mismunandi línu
fjölda á skerminum, Við sem
fyrstir byrjuðum í Bretlandi
sjónvörpum á 405 línum, en
Evrópukerfið á meginlandinu
er 625 línur á skermi. Þessu
er hægt að breyta áður en efn
ið er sent út. Efninu frá okk-
ur yrði búið að breyta áður
en það kæmi hingað á filmu,
því hér er Evrópukerfið.
Fliman er leigð og endursend
að lokinni notkun. Þannig get
um við selt efnið á sömu film
unn oft. Það má nota sömu
filmuna á 7—8 stöðum', án
þess að á henni sjái, ef vel er
með hana farið. Aftur á móti
má líka eyðileggja hana í eitt
skipti. Og útsendingin verður
að vera góð og gallalaus. T.d.
hefur það engan tilgang að
endurvarpa tónlist illa.
Við höfum spjallað vítt og
breitt við Mr. Collum um sjón
varpsefni og sölu á því. Fyrir
okkur, sem lítið þekkjum txl
þessa nýja skemmti- og
fræðslutækis, er efnið óþrjót
andi. En nú voru íslénzkir
sjónvarpsmenn komnir til að
sækja Mr. Collum og þeir eru
sjálfsagt ekki síður áfjáðir í
að ræða við reyndan sjón-
varpsstarfsmann frá BBC. Svo
við létum þeim hann eftir.
Um læknaskort dreifbýlisins
BLAÐAGREIN hins unga læknis,
Gísla G. Auðunssonar, sem ný-
lega birtist, um læknaskort dreif-
býlisins, hlýtur að vera íbúum
hinna dreifðu byggða í landinu
mikið fagnaðarefni a. m. k. því
fólki, sem búið hefir við mestan
skort á læknaiþjónustu nú um
;keið. Og þeir eru vissulega
nargir, sem við slíkan skort hafa
>úið og hafa orðið að horfast í
mgu við þá staðreynd, að ekki
nundi úr rætast í þessu efni að
ibreyttu fyrirkomulagi lækna-
ójónustumála dreifbýlisins. Grein
3.G.A. er hin merkasta og verð-
jkuldar greinarhöfundur fyllsta
þakklæti fyrir sína glöggu grein-
argerð og ágætu upplýsingar í
þessu máli. Kemur þar fram fag-
leg greinargerð í þessu máli, sem
leikmenn hafa ekki á sínu valdi,
svo sem eðlilegt er. Er ánægju-
legt að heyra það að þó sú stað-
reynd sé augljós ,,að ungir lækn-
ar eru með öllu afhuga héraðs-
læknisstörfum, eins og þau eru
í dag“ eins og G.G.A. segir,
mundu þó ýmsir þeirra hafa hug
i að helga sig læknisstörfum í
ireifibýlinu, að tilskildu þvr fyrir
komulagi þessara mála og þeirri
uppbyggingu úti í dreifbýlinu,
;em gerir læknum mögulegt að
;tarfa á þeim grundvelli, sem
nútíma læknisfræði krefst og
hinir ungu læknar eðlilega vilja
þ. e. á grundvelli hópxstarfs.
Er ljóst af grein G.G.A. að
læknamiðstöðvar er það sem
koma þarf út um hinar dreifðu
byggðir.
G.G.A. segir í grein sinni:
„Geri almenningur sér þetta
ljóst“, það er þörfina á skilyrð-
um til vísindalegra vinnubragða
lækna, „hlýtur krafan um hóp-
s'tarf einnig að koma frá honum,
en betri Iiðsmann gætu læknar
ekki fengið“.
Því verður að treysta, að þenn-
an liðsmann, almenning, hljóti
læknar að fá( svo mjög sem al-
menningur, víðast hvar, hefir á
því þreifað hvert alvörumál hér
er um að ræða.
„Hinn mikli segull“ Reykja-
vík er hinum dreifðu byggðum
erfiður keppinautur í þessum
efnum, sem ýmsum öðrum. En
vel má taka undir þau ummæli
G.G.A. að „íslenzka þjóðin er
enginn brjóstmylkingur lengur,
og hún getur vel skapað þá
starfsaðstöðu héraðslækna, sem
fullnægir kröfum tímans, ef hún
hefir áhuga á“. Geri hún það
ekki, mun hún heldur ekki njóta
liðveizlu okkar, og hvernig leys-
ir hún vandamálið þá?“.
Já, hvernig leysir hún málið
þá? Því má hér við bæta, að
hinar dreifðu byggðir eru heldur
ekki svo miklir efnahagslegir
brjóstmylkingar, að ekki sé hægt
með sameiginlegu átaki aiþjóðar
og einstakra svæða dreifbýlisins
að framkvæma þá uppbyggingu
sem til þarf, að þessi mál komist
í það horf, sem þróunin augljós-
lega krefst.
Hér er um að ræða eitt af
þeim grundvallar málum, sem
varða framtíð dreifb/lisins, og
þegar á það er litið, hvað fram-
undan er, ef ekki verður að því
snúist að leysa þessi mál á áður-
greindan hátt, ber að vísu ekki
fyrst og fremst að líta á hina
fjárhagslegu hlið málsins, heldur
á þá miklu þörf, sem á því er
að leysa málið til frambúðar.
Húsvíkingar hafa um skeið
búið við mikinn skort læknis-
þjónustu, þrátt fyrir afburða
gott starf fyrrverandi héraðs-
læknis, Daníels Daníelssonar.
Því var það, að framkvæmda-
ráð Sjúkrahúss Húsavikur, sem
hefir náin kynni af þessum
vandamálum hér í Húsavík, og
Húsavík og Húsavikurlæknishér-
að er engin undantekning í þess-
um efnum, samþykkti eftirfar-
andi ályktun og greinargerð á
fundi sínum 12. apríl sl. :
Framkvæmdaráð Sjúkrahúss
Húsavíkur litur svo á, að lækna-
þörf Húsavíkur og nágrennis
verði ekki fullnægt til frambúð-
ar nema með nýrri skipan lækna-
mála. Sú nýskipan telur fram-
kvæmdaráðið að vera eigi í því
fólgin, fyrst og fremst, að sett
verði upp læknastöð í Húsavík,
er þjónað geti og fullnægt lækn-
isþjónustuþörf stærra svæðis,
enda verði gerðar aðrar þær ráð-
stafanir, í þessu sambandi, sem
nauðsynlegar reynast, til að ný-
skipan þessi eða önnur því lík
nái tilætluðum tilgangi.
Greinargerð:
Á seinni árum hefir það komið
skýrt í Ijós, að landsbyggðin hef-
ir notið ófullnægjandi lækna-
þjónustu. Hafa erfiðleikar al-
mennings í þessu sambandi
keyrt svo úr hófi, að ekki verður
við unað, og er því bráð nauðsyn,
að sem fyrst verði leitað leiða
út úr þessum vanda.
Sú skipan læknamála, sem
varað hefur marga undanfarna
áratugi er nú orðin með öllu
ófullnægjandi. Segja mætti að
þróunin hefði sprengt hina gömlu
skipan þessara mála af sér.
Er því í tillögu þessari lagt til,
að tekin verði upp ný skipan
þessara mála. Ennfremur má út
frá því ganga, að því aðeins verði
hér breyting á, að þrýstingur til
breytinga í þessu efni komi frá
þeim, sem harðast hafa orðið úti
vegna þróunar þeirrar sem orðið
hefur á undanförnum árum.
Þessi ályktun ásamt greinar-
gerð var send landlækni og
ráðuneyti. Að framkominni hinni
faglegu greinargerð G.G.A. get-
ur almenningur dreifbýlisins,
þeir sem verst eru settir til að
byrja með, tekið höndum saman
við lækna, einkum hina yngri,
til þess að vinna að varanlegri
lausn þessa mikla vandamáls.
Verður í þessu máli að ryðja
úr vegi öllum hindrunum sem í
vegi kunna að verða. Er hér
eftir engu að bíða.
Hér er um að ræða málefni,
ásamt mörgum öðrum, sem ætti
að verða viðfangsefni fyrir fjórð-
ungasamtök. Hvað Norðurlandi
viðkemur ætti þetta mál að
verða ekki veigaminnsta atriðið
í uppbyggingaráætlun Norður-
lands.
Er ekki með þessu verið að
draga úr því, að einstök svæði
leggi sig fram til hins ýtrasta og
láti einskis ófreistað til að vinna
að framgangi þessara mála.
Húsavík 26. júlí 1966.
Páll Kristjánsson.
íbúð óskast
til leigu strax. Nýtízku íbúð 3ja—5 herb. —
Há leiga í boði. — Þarf að vera laus strax til íbúð-
ar. — Tvennt fullorðið í heimih. — Fyrirfram-
greiðsla ef óskað er.
EINAK SIGUBÐSSON,
Ingólfsstræti 4 — Sími 16767.
Kvöldsími milli kl. 7 og 8, 35093.
Iðnaðarhúsnæði
í nýbyggingu er til leigu 1200 ferm. iðnaðarhúsnæði
á götuhæð. — Lofthæð er 4,40 m, engar súlur. —
Húsnæðið er ennþá óinnréttað, en gert er ráð fyrir
vönduðum frágangi. — Þeir, sem hafa áhuga á
slíku húsnæði, eru vinsamlegd beðnir að tilgreina
nafn, iðngrein og aðrar upplýsingar í bréfi, merkt:
„Iðnaðarhúsnæði — 4793“ er afhendist afgr. Mbl.
fyrir II. ágúst nk.