Morgunblaðið - 20.08.1966, Síða 1
24 síður
k
Surtsey gýs nú aftur. Flugvél nálgast eyjuna, þar sem reykur stígur upp frá eldstöðvunum í
eynni. Sjá frétt á baksíðu. (Ljósm.: Sv. Þorm.).
Miklir jaröskjálftar uröu
í gær í Tyrklandi
Jarðskjálftinn mældist í Sovétríkjunum —■ óvist
um tölu látinna og særÖra. en 80 eyði-
legging á stóru svæði
Istanbul, 19. ágúst — AP.
MIKILL jarðskjálfti varð
í dag í fjórum héruðum í
Tyrklandi, og er þegar vit-
að um 24, sem týnt hafa
Iífi. Jarðskjálftinn var
mikill, og munu um 80%
húsa og annarra verðmæta
á jarðskjálftasvæðinu hafa
eyðilagzt.
í þeim fregnum, sem í dag
'bárust frá jarðskjálftasvæS-
unum, sem nú eru að mestu
einangruð, segir, að a.m.k. ‘>5
manns hafi slasazt. Þá segir,
að á einum stað hafi sjúkra-
hús og lögreglustöð hrunið
algerlega til grunna.
Fregnir frá Sovétríkjunum
herma, að jarðskjálftinn hafi
mælzt þar, og munu mælar
hafa sýnt, að hann væri 9
stig, á mæli, sem mælir mest
12 stig.
Tyrkneski Rauði krossinn
vann í dag að því að koma
matvælum og lyfjum til
þeirra þorpa og svæða, sem
verst hafa orðið úti.
Talsmaður tyrkneskra yfir-
valda sagði fréttamanni AP í
dag, að engin leið væri að
segja til um, hve tjónið af
jarðskjálfanum væri mikið.
Þá mætti gera ráð fyrir, að
mun fleiri hefðu látið lífið en
fyrstu tölur bentu til, því að
afskekkt þorp væri á jarð-
skjálftasvæðinu, og væri nú
ekkert samband við þau.
„Á að endurvekja trúna
á grýluna í austri?"
— segir „Praváa", og ræbst harkalega á norsk fc/öð fyrir
skrif, sem sovézka stjórnarmálgag nið telur runnin
beint undan rifjum NATO
Moskvu, 19. ágúst — NTB.
HÖFUNDUR, sem nefnir sig
Y. Kuznetsov, gerir í dag í
„Pravda“, málgagni sovézka
kommúnistaflokksins, harða
árás á þau blöð á Vesturlönd-
um, sem hann telur hægri-
sinnuð. í skrifum sínum
ræðst Kuznetsov fyrst og
fremst á norska blaðið
„Handels- og Sjöfarts- Tid-
ende“ og „Aftenposten“. Seg-
ir Kuznetsov, að þessi hlöð
leggi sig sérstaklega fram um
að gera verri sambúð Noregs
og Sovétríkjanna.
Eru norsku blöðin tvö sögð
málgögn Atlantshafsbanda-
lagsins, NATO, og því bætt
við, að þau haldi fram stað-
lausum stöfum um stefnu
Sovétríkjanna; séu Sovétrík-
Framhald á bls. 23.
Harðir bardagar -
í Vietnam
2/3 skæruliðar Vietcong féllu i bar-
dögum við ástralska hermenn
Saigon 19. ágúst. AP-NTR.
ÁSTRÖLSK hersveit barðist í
dag í fjórar stundir við skæru-
liða Viet Cong, um 70 km. suð-
austur af Saigon, höfuðborg S-
Vietnam. I bardaganum féllu
213 skæruliðar Og 17 úr liði
Ástralíumanna. Er þetta mesta
mannfall í liði Ástralíumanna á
einum degi í S-Vietnam. Þá
særðust 26 þeirra.
Fregnir af bardögunum herma
að skæruliðar hafi verið átta
sinnum fleiri en áströlsku her-
mennirnir. Bardaginn stóð á
gúmmíekru, og hellirigndi á
meðan.
Fréttamenn segja, að ástralska
liðið hafi verið umkringt um
tíma, og hafi verið á það skotið
frá öllum hliðum. Þá kom skrið
drekasveit á vettvang, og tókst
að rjúfa hring þann, sem sleg-
inn hafði verið um Ástralíu-
mennina. Mun hér hafa verið
um að ræða einn harðasta bar-
daga, sem háður hefur verið í
S-Vietnam.
Alls var varpað yfir 3000 hand
sprengjum, auk þess, sem varp-
að var eldsprengjum og öðrum
sprengjum yfir lið skæruliða,
Viet Cong. .
Bardaginn hófst er Ástralíu-
mennirnir voru á eftirlitsferð,
og gengu fram á lið Viet Cong.
Skæruliðarnir gerðu margar ár-
ásir, en urðu hverju sinni að
hörfa, og urðu fyrir miklu
mannfalli.
í loftorustu, sem háð var yfir
Vietnam í dag, skaut bandarísk
flugvél niður sovézk byggða or-
ustuþotu af gerðinni MIG-17. Þá
voru einnig gerðar loftárásir á
ýmsar herstöðvar í N-Vietnam
í dag.
,Nýir tímar nýir siðir'
— hreingerning Pekingstjórnarinnar
Tokyo, 19. ágúst. — AP.
SKÝRT var frá því í Peking í
dag, að kínverska kommúnista-
flokknum hefði verið valin ný
forysta. Ekki virðist listi sá, sem
Sjávarútvegs-
málaráðherra
V-Þýzkalands
*
til Islands
LANDBÚNAÐAR- og sjávarút-
vegsmálaráðherra Sambandslýð-
veldisins Þýzkalands, Hermann
Höckerl, er væntanlegur í opin-
bera heimsókn til íslands dag-
ana 30. ágúst til 3. september
í boði ríkisstjórnarinnar. f fylgd
með ráðherranum verða dr.
Meseck, fiskimálastjóri og dr.
Eisenkrámer, fulltrúi.
(Utanríkisráðuneytið).
þar hefur verið birtur, fullkom-
inn, og segja fréttastofur, að allt
bendi til þess, að margir af ^
fyrri vinum og stuðningsmönn-
um Mao Tse tung hafi nú orðið
að draga sig í hlé, þar eð þeir
njóti nú ekki verndar leiðtogans
mikla.
Meðal þeirra, sem ekki er tal
ið að hafi lengur hæfileika til að
stjórna í anda æðstu valdhafa,
eru:
• Lio Po-Cheng, eineygður
hershöfðingi, sem mikið hefur
komið við sögu Kína á undan-
förnum árum.
• Nieh Jung-Chenh, frægur her
listarmaður og gamall byltingar
sinni, varaforseti og ráðamikill
Framhald á bls. 23.
Engin nfstoðn
til „Loftleiðn“
kunngerð enn
Osló, 19. ágúst. — NTB.
AFSTAÐA Norðurlandanna
þriggja, Noregs, Danmerkur
og Svíþjóðar, til óska ísienzka
flugfélagsins Loftleiða, um að
fá að halda uppi flugferðum
til þessara landa með RR-400
flugvélum sínum, hefur verið
til umræðu í Osló undanfar-
iS.
Á fundi fulltrúa rilcis-
stjórna landanna þriggja,
sem staðið hefur í Osló, en
lauk í dag, mun hafa verið
ákveðið að senda tilmæli til
samgöngumálaráðuneyta ríkj
anna, en ekki vildu þeir,
sem fundinn sóttu, neitt um
það segja, á hvern veg til-
mæli þessi eru.
25. þ.m. hefst í Kaup-
mannahöfn ráðstefna um mál
efni Loftleiða.