Morgunblaðið - 20.08.1966, Page 2

Morgunblaðið - 20.08.1966, Page 2
2 MORGU N BIAÐIÐ Laugárdagur 20 ’ágúst 1966 Harður árekstur varð i gær á gatnamótum Bogahlíðar og Stlga hlíðar. Þar var gamalli Ford- bifreið ekið suðaustur Bogahlíð- ina. Ökumaður var að athuga hús sem voru í byggingu í grennd- inni, og veitti j>ví ekki athygli Þegar vörubifreiff var ekið inn á Bogahlíðina af Stigahlíð. Skipti engum togum að Ford bifreiðin lenti undir vörubílspallinum fyr- ir framan hægra afturhjólið, og *'skemmdist við það mjög mikið eins og sjá má á myndinni. (Ljósm. Mbl. Jónas Bjarnason). Tapaði veski með 6 þús. kr. Sjónvarpsmólið í Eyjum ALLT hefur verið hljótt um sjónvarpsmálið að undanförnu. En n.k. miðvikudag má búast við að til tíðinda dragi, því að þann dag verður málið tekið fyrir hjá fógetanum í Vestmannaeyjum kl. 13.30. Mun Jón Óskar fulltrúi bæjarfógeta í Eyjum annast málið. Einnig verða þar mættir lögfræðingar Úívarpsins, Pósts- og síma, og lögfræðingar Félags sjónvarpsáhugamanna í Eyjum, en sá félagsskapur á sendinn. FYHIR nokkrum dögum tapaði ungur piltur dökku peninga- veski einhversstaðar í miðbænum með sex þúsund krónum í. Voru það sumarleyfispeningar hans, sem hann hafði fengið út- borgað þann sama dag. Auk þess voru í véskinu ýmiss konar skilríki, svo sem ökuskír- teini. Veskið var merkt með heimilisfangi piltsins. Er finn- andi veskisins vinsamlega beðinn að snúa sér til lögreglunnar með það, en fundarlaunum er héitið. Kjurval gerir athugasemd MEISTARI Kjarval kom að máli við Mbl. og krafðist þess að fá að gera athugasemd við hend- inguna ur sálminum, sem hann fór með, er framkvæmdir hófust við byggingu myndlistarhúss á Miklatúni. Hending þessi hljóð- aði svo í frétt frá Skrifstofu borgarstjóra í gær af athöfninni: „Láttu standa í lífsbók þinni/ líka þeirra nöfn sem mitt“, en Kjarval sagði að síðari ljóðlínan ætti að vera: „líka þeirra nafn sem mitt“. Væri fyrri útgáfan af ^jóðlínunni svo í sálmabókum, þá væri það rangkveðið. Pnom Penh, 19. ágúst — NTB Æðsti ráðamaður í Kambódíu Shianouk prins, lýsti yfir því í dag að hann og stjórn hans hefðu að undanförnu átt í samn fngum við „frelsishreyfingu" N-Vietnam um landamæri Kam bódíu og N-Bietnam. í STUITU IVIÁLI Houston, Texas, 18. ágúst NT3 LÆKNAR í Houston sögðu í dag, að gervihjartað sem sett var í 37 ára gamla konu fyrir 10 dögum síðan annist nú aðeins 15% af venjulegri hjartastarf- semi konunnar, en upphaflega annaðist það 75% starfseminn- ar. Hjartað er þannig úr garði gert að eftir því sem hjarta kon unnar nær sér, minnkar starf- semi gervihjartans. Peking, 19. ágúst —NTB Ritari brezka sendiráðsins í Peking, T. Peters, gekk í dag út af fundi, sem Pekingstjórnin hafði boðað til. Var þar af opin- berri hálfu, haldið fram að brezka stjórnin og sú banda- ríska hefðu átt aðild að sérstöku samsæri, sem beint hafði verið gegn stjórn Ian Smith í Rhóde- síu. Vínarborg, 19. ágúst — NTB Mikil flóð hafa verið undan- farna daga í A-Týrol, og hafa a.m.k. 13 manns látiff Iífið. Þyrl ur eru nú notaðar til þess að bjarga fólki, sem er innilokað á flóðasvæðunum. Knin, Júgóslavíu, 18. ágúst AP 6 BÖRN á aldrinum 5 til 13 ára, biðu bana í dag, er gömul hand- sprengja sem þau höfðu fundið sprakk á meðal þeirra. Voru börnin í berjaleit er þau fundu sprengjuna og tóku að berja á hamar og nagla með áðurgreind um afleiðingum. Viðeyjarferð Heim- dallar á morgun HEIMDALLUR FUS efnir til Viðeyjarferðar á morgun, sunnu- dag, kl. 2. Ekki er enn ákveðið hvaðan farið verður en upplýs- ingar um það og önnur atriði fer’ðarinnar verða gefnar á skrif- stofu Heimdallar í dag kl. 1—5, sími 17102. Árni Óla, ritstjóri, verður leiðsögumaður í ferðinni og skrýir frá sögu staðarins. Þess er að vænta að félagsménn Heim dallar fjölmenni I þessa Viðeyj- arferð, enda er ekki svo oft sem Reykvikingum gefst kostur á að fara í Viðey, þótt ekki sé lángt að fara. Ámi Krisliánsson dómari ■ alþjóð- legri samkeppni í pianóleik ÁRNI Kristjánsson, píanóleikari, hefur verið skipaður í dómnefnd hinnar alþjóðlegu Van Cliburn samkeppni í píanóleik, sem hald- in verður í Fort Worth, Texas um mánaðamótin september okt- óber. Þetta er í annað sinn, sem samkeppnin er haldin, og er gert ráð fyrir að úrslit keppn- innar veki heimsathygli nú eins og 1962, þegar fyirsta samkeppn- in fór fram. í samkeppninni taka Þykkvabæ, föstudag, 19. ág. NÚ er gott vatn að komast í hvers manns krana hér í bæn- um. Um helgina verður lokið við að leggja vantsleiðsluna á hvern bæ hér, fimmtíu talsins. Er almenn ánægja ríkjandi með al manna. Vatnið er leitt í plast- rörum frá Selalæk á Rangárvöll- um, 14 kílómetra vegalengd. Sér stakur bor var smíðaður til þess að leggja leiðsluna undir Ytri- Rangá fyrir neðan Bjóluhverfi. Búizt er við sæmilegri kartöflu uppskeru í haust. Tíðarfar fyrir kartöflurækt hefur verið fremur slæmt í sumar, og verður því upptaka allt að þrem vikum síð- ar í haust en venjulega. Vonast kartöfluræktendur eftir hlýju London, 19. ágúst — NTB Brezka stjórnin hefur ákveðið að draga stórlega úr útgjöldum sínum vegna herliðs þess, sem hún hefur nú í V-Þýzkalandi. Er hér um aff ræða sparnaðar- ráðstöfun, sem nemur miklum fjárhæðum, en í tilkynningu brezku stjórnarinnar í dag segir að ekki verði fækkað í brezka herliðinu í V-Þýzkalandi. þátt fjöldi ungra píanóleikara frá mörgum löndum Evrópu og Ameríku. Dómnefndina skipa, auk Árna, þekktir tónlistarmenn og gagnrýnendur frá ýmsum löndum, m.a. dómara er Gerald Moore, hinn heimsfrægi píanó- undirleikari. Fort Worth Star Telegram, stærsta blað Fort Worth, birti nýlega mynd af Áma ásamt grein um hann þar sem tónlistar- ferill hans er rakinn. hausti, og seinum frostum, svo uppskeran frjósi ekki niðri. — Liggja rörin einn metra og þrjá- tiu sentimetra undir botni ár- innar. Magnús. Hafði nær valdið stórslysi Við stórslysi lá 1 Sætúni í gærkveldi. Þar hafði ökumaður einn stöðvað bifreið sína, og fór hann aftur fyrir hana til þess að huga að varadekki. Sicyntíi- lega veitti hann athygli annarri bifreið, sem stefndi á nokkurri ferð á hina kyrrstæðu bifreið. Tókst manninum á siðustu stundu að forða sér, áður en hin bifreiðin skall á bíl hans. Skrám aðist maðurinn þó nokkuð á hendi er hann kastaði sér frá. Ökumaður hinnar bifreiðaiinn- ar reyndist vera undir áhrifiun áfengis. Árni Kristjánsson. Þjóðdansar * í Arbæ f DAG kl. 4 sýnir Þjóðdansafé- lag Reykjavíkur víkivaka og þjóðdansa á sýningarpallinum í Árbæ. Flokkurinn er nýkominn heim úr sýningaför til Danmerkur, Svíþjóðar, Þýzkalands, Bret- lands og Belgíu. Vígsla vígslubiskups ÁKVEÐIÐ hefur verið að vígsla hins nýkjörna vígslubiskups í S;kálholtsbiskupsdæmi hinu forna, séra Sigurðar Pálssonar, fari fram í Skálholti sunnudag- inn 4. sept. n.k. og nánar verður þetta auglýst síðar. (Biskupsskr ifstof an). Lagningu vatnsleiðslu í Þykkvabæ senn lokið — Kartöfluuppskerunni seinkar Ein sfærsta brú í þétt- býli verður í Bolungarvík — Brúin verbur bogalöguð — Smiði lokið eftir 4-5 vikur Bolungarvik, 19. ágúst. EINHVER viðamesta brúarsmíði sem um getur í þéttbýli er nú ný hafin hér í Bolungarvík. — Til þess að vinna að þessari brúar- smíði er kominn hingað 16 manna brúarflokkur undir stjórn Sigfúsar Kristjánssonar. Verður brúin byggð yfir Hólmsá, sem rennur um sjálfan bæinn. Johnson í ferðalag Washington, 19. ág. AP NTB Johnson, Bandaríkjaforseti leggur eftir tvo daga af stað í ferðalag til fimm ríkja í NA-Bandaríkjunum. Þar mun hann halda ræður, og er gert ráð fyrir, að hann ræði eink um innanríkismál og styrj- öldina í Vietnam. Að loknum heimsóknum í ríkin fimm, heldur Johnson til Kanada, þar sem hann mun eiga viðræður við Pear- son, forsætisráðherra. I Brú sú sem hér um ræðir verð ur 10.7 metrar að breidd. Þar af verður aukbrautin sjö metrar, en gangbraulin 2.85 metrar að | breidd, og er hún sérstæð að því I leyti, að undir henni verða göng, þar sem vatnslögn, síma- og raf- magnslögnum verður komið fyr- ir. Lengd brúarinnar verður 16 metrar milli stöpla, og þetta því með stærstu — ef ekki stærsta brú sem byggð hefur verið í þéttbýli. En brú þessi er sérstæð að fleira leyti, en sem hér á undan er getið. Vegurinn sem liggur að brúnni, er í sveig og fylgir brúin beygjunni eftir og er því bogamynduð. Mun þessi brú verða hin eina þess konar hérlendis, er hún er komin í gagnið. Handriðið á brúnni verð ur þétt rörahandrið. Brúarflokkurinn hefur einsett sér að hafa lokið smíði brúar- innar á 4—5 vikum. Áætlað, er að í brúna fari milli 70—80 tonn af sementi, en milli 10 og 12 tonn af járni. Stöðugt er unnið hér að und- irbúningsframkvæmdum fyrir malbikun Hafnargötunnar hér, og er búizt við að þeim fram- kvæmdum verði lokið um miðj- an september. Á hinn bóginn er óráðið hvort það verður at mal bikun í ár. — Hallur. Hafa flutt 2160 sjúklinga SJÚKRAFLUGVÉLAR Björns Pálssonar og Siysavarnafélags íslands hafa flutt samtals 2160 sjúklinga síðan þessir aðilar hófu sjúkraflug 1949. Árið 1960 höfðu vélarnar flutt 1072 farþega frá byrjun, en síðan hefur mikil aukning orðið í sjúkrafluginu. Árið 1961 voru fluttir 162 sjúkl ingar, 1962 voru fluttir 174 sjúklingar, árið 1963 og 1964 189 sjúiklingar hvort árið, og 1965 222 sjúklingar, eða þá samtals 2008 sjúklingar frá byrjun. Það sem af er þessu ári hafa verið fluttir 152 sjúklingar, og er því talan frá byrjun sjúkraflugsins orðin 2160 eins og áður segir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.