Morgunblaðið - 20.08.1966, Síða 8

Morgunblaðið - 20.08.1966, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Laugardaghr 20 ágúst 196« Sjötugur \ dag: Einar Steindórsson framkvæmda stjóri, Hnífsdal í D A G á Einar Steindórsson, framkvæmdastjóri og fyrrum oddviti í Hnífsdal, sjötugsafmæli. Hann er einn af vinsælustu og virtustu borgurum þessa þrótt- 'mikla athafnabyggðarlags, þar sem sjór hefur um langt skeið verið stundaður af óvenjulegu harðfengi, fyririhyggju og dugn- a'ði ágætra sjómanna og útvegs- manna. Frá Hnífsdal er og komið margt mikilla aflaskipstjóra á íslenzka togaraflotanum. Einar Steindórsson er fæddur 20. ágúst árið 1896 að Leiru í Grunnavíkurhreppi í Jökulfjörð- um. Foreldrar hans voru Stein- dór Gíslason bóndi þar, síðar í Hnífsdal, og kona hans, Sigur- borg Márusdóttir. Hann aflaði sér ungur góðrar menntunar og lauk prófi frá Verzlunarskóla ís- lands árið 1920. Starfaði hann síðan um árabil við fyrirtæki Guðmundar heitins Sveinssonar í Hnífsdal. Voru honum þegar á unga aldri falin ýmis trúnaðar- störf. Hann varð framkvæmda- stjóri Hraðfrystihússins hf. í Hnífsdal árið 1948 og hefur gegnt því starfi síðan. Oddviti Eyrarhrepps var hann fyrst árin 1922—’25 og aftur frá árinu 1948 til ársins 1966, er hann gaf ekki lengur kost á sér til setu í hrepps nefnd. Hann hefur einnig átt lengi sæti í skólanefnd í Hnífs- dal og fulltrúi Eyrarhrepps í sýslunefnd Norður-ísafjarðar- sýslu hefur hann veri'ð frá ár- inu 1948. Jafnhliða hefur hann tekið þátt í fjölmörgum öðrum félagasamtökum í byggðarlagi sínu. Einar Steindórsson er ágæt- lega greindur og starfhæfur maður. Öll störf hans hafa ein- kennzt af frábærri samvizku- semi og atorku. Hann hefur látið öll framfara- og umbótamál Hnífsdælinga og Eyrarhrepps í heild til sín taka. Fyrir þessi störf sín hefur hann hlotið al- mennar vinsældir og traust hreppsibúa sinna. Allir þeir, sem þekkja Einar Steindórsson vita, að hann er frábærlega grandvar maður til orðs og æðis. Hann kemur ævinlega fram af góð- vild og heiðarleik í hverju pví máli, er hann hefur afskipti af. Sá sem þetta ritar hefur átt langt og ánægjulegt samstarf við Einar Steindórsson um fjölmörg mál er varða byggðarlag hans og héraðið í heild. Hann hefur verið vakinn og sofinn í barátt- unni fyrir hagsmunamálum Eyr- arhreppsbúa og aldrei tali'ð eftir sér nokkurt ómak, er til gagns mátti verða. Einar Steindórsson er góður maður og hreinskiptinn, sem fengur er að kynnum og sam- starfi við. Kona Einars Steindórssonar er Ólöf Magnúsdóttir frá Hóli í Bolungarvík, elskuleg og góð kona, sem staðið hefur við hlið manns síns af myndarskap og dugnaði í erilsömu og erfiðu starfi. Hafa þau hjón alið upp tvö fósturbörn. Einar Steindórsson er um ýmsa hluti sérstæður maður. Hann er t.d. svo óeigingjarn, að til fádæma verður að teljast. Hagur hreppsbúa hans og byggð- arlags eru honum ævinlega efst í huga. Hann og kona hans dveljast nú um nokkurra vikna skeið er- lendis. Ég óska þessum gamla vini og samstarfsmanni og skylduliði hans allra heilla og blessunar á merkum tímamótum, um leið og ég þakka honum mikilvægt sam- starf á liðnum tíma. S. Bj. Svifflug hér á landi 30 árcs í SÓLFÖGRUM ágústmánuði ár- ið 1936 var efnt til félagssam- taka áhugamanna um svifflug. Var helzti forgöngumaður iþess Agnar Kofoed-Hansen, núverandi flugmálastjóri, en 'þá nýútskrif- aður flugliðsforingi úr danska flotanum. Aðrir helztu braut- ryðjendur svifflugsins voru þeir Bergur G. Gíslason, ræðismaður og bræðurnir Geir og Indriði Baldurssyni. Þessir menn höfðu áður smíðað renniflugu eftir er- lendri teikningu og gjört tilraun- ir til flugs með henni. Með stofnun Svifflugfélags ís- lands var mikill fjöldi kraftmik- illa hugsjónamanna dreginn sam- .an undir eitt merki. Verulegur hluti hinna ungu manna, sem hlýddu kallinu um að ryðja þess- ari fögru íþrótt braut hér á landi, voru úr skátahreyfingunni, eins og við mátti búast. Sú einarða sveit, sem þarna gekk fram undir forystu hins stórhuga flugforingja, hófst þeg- ar handa um smíði renniflugu fyrir byrjendakennslu. Var sú smíði unnin af flestum félögun- um undir handleiðslu bræðranna fyrrnefndu Geirs og Indriða, sem eru hinir mestu völundar. Fyrstu æfingar Svifflugfélags- ins með þessu flugtæki, fóru fram í vatnsmýrinni, þar sem nú er Reykjavíkurflugvöllur. Var renniflugunni skotið úpp með teygjukaðli eingöngu fyrst í stað, en síðar gerðu svifflugfélagarnir sér spilvindu, sem olli mikilli bættu svifflugmenn tækjakost breytingu og framför. Fljótlega sinn og bæði smíðuðu og keyptu erlendis að betri flugur og jókst við það áhugi og aðsókn. Reynd- ist æfingasvæðið í vatnsmýrinni ófullnægjandi, og fluttist því flugstarfsemin út fyrir bæinn, fyrst að Sauðafelli í Mosfells- sveit, en síðar á Sandskeið, þar sem höfuðstöðvarnar eru enn. Fyrsti kennari svifflugmanna var Agnar Kofoed-Hansen, en síðar voru fengnir erlendir kenn- arar og einnig leituðu nokkrir íslenzkir svifflugmenn til Þýzka- lands, sem þá var fremsta svif- flugland heims, og luku þar kennaraprófum, og tóku að sér kennsluna, þegar þeir komu heim. Árið 1938 bættist félaginu nýr góður flugtækjakostur, með komu þýzks svifflugleiðangurs hingað. Var þá einnig haldinn fyrsti flugdagur á íslandi, sem vakti mikla athygli almennings. Allt frá þessum fyrstu árum hefur verið mikil gróska í félags- starfinu og tæki og aðferðir þró- azt fram. Er nú svo komið, að á þrítugasta afmælinu ræður fé- lagið yfir fjölda tækja af nýjustu gerð, eða samskonar og gerist bezt erlendis. Svifflugfélagið mun minnast afmælisins með kaffisamsæti í Silfurtunglinu (yfir Austurbæj- arbíói) kl. 15—17 n'k. laugardag þ. 20. þ. m. og er þess vænzt, að sem flestir eldri og yngri fé- lagar og áhugamenn um svifflug komi þar saman. Olíusoðinn mótakrossviður óskast til kaups. Má vera notaður. Einnig notuð eldhúsinnrétting, má vera lítil. Sími 50994 og 41937. DIESEL mótorar 321. með gírkassa. 636. með gírkassa, hvorttveggja Mercedes Benz. 1 stk. Taunus 17 M með gírkassa. Upplýsingar í síma 40403. Matvöruverzliin Hluti í matvöruverzlun á góðum stað í bænum til sölu. Kvöldsala. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir þriðjudagskvöld, merkt: „Hlutur — 4020“. Dömurnar velja Dorothy Gray snyrtivörur Ingólfs Apótek Gólfklæðning frá DLW er heimskunn gæðavara. GÓLFDÚKAR GÓLFFLlSAR GÓLFTEPPI við allra hæfi. Munið merkið er trygging yðar fyrir beztu fáanlegri gólfklæðningu. Deutsche Linoleum Werke AG

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.