Morgunblaðið - 20.08.1966, Page 10

Morgunblaðið - 20.08.1966, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Laugardaguv 20. ágúst 1906 Kirkjunnar starfs- menn og skólamenn Skyggnst að baki þurfa að vinna saman \„Kínverskur stodent Samtal við Hollendinginn dr. Heinkel sem heimsótt hefur kirkjur mótmælenda i Evrópulöndum Á SÍÐARI árum eru menn farnir að vakna til vitundar um, hversu fjarstætt það er og gagn stætt öllum góðum markmiðum, ef kirkjunnar starfsmenn ann- ars vegar og almennir skólamenn hins vegar hirða ekki um að vinna saman að einhverjum þýð ingamesta þætti uppeldis- og kennslumála, en það er kennsia í kristnum fræðum. Eftir síðustu heimsstyrjöld fór áhugi á þess- ,um efnum að leita inn á starfs- braut. Það var Hollendingur, Dr. O.V. Henkel, sem verið hafði prestur í Haag, sem gerðist for- göngumaður að samtökum ým- issa Evrópuþjóða í þessa átt, og er hann forseti sambands, sem stofnað var um málið. Undirritað ur kynntist Dr. Henkel sem stjórnanda alþjóðlegs fundar í forráðamanna kirkju og fræðslu mála hér. Ég hef átt ánægju'.eg samtöl við biskup íslands og menntamálaráðherra og ýmsa fleiri. Þessi samtök okkar, Inter- european Commission Churcn and School, voru stofnuð árið 1958 í Bossy í Sviss, og megin- tilgangur þeirra er að styðja að framgangi kristinna fræðslumáia á þeirri forsendu, að þau séu al- gerlega ómissandi þáttur í mann legri menntun í öllum skó’.um. Þrátt fyrir margt hið ólíka í kirkjuskipun, játningum og henn spekilegri skilgreiningu hinna ýmsu þjóða i Evrópu, og þóit þjóðernislegur og landfræðilegur mismunur sé mjög mikill, þá eru sameiginlegu vandamálin mörg, og þau kalla á samstarf. Skil- yrði fyrir slíku samstarfi eru líka Dr. Heinkel «g kona hans. Strasbourg haustið 1964, mætti þar af hálfu þjóðkirkju íslands og var einn af þeim, sem fluttu þar erindi um vandamál kirkju og skóla nú á dögum. Dr. Henkel hefur heimsótt tíu mótmælendakírkjur Evrópu og vinnur að því, að þær styðji hver aðra í að rækja sameiginlegar skyldur þeirra í fræðslu- og upp- eldismálum sérstaklega. Var hann nú hér á íslandi í 17 daga heim- sókn. Hann er maður lærður vel, starfsmaður mikill, djarfleg ur í framgöngu og fylgir honum hlýr og hressandi andvari. Er hann um fimmtugt, og vonandi á hann eftir að vinna enn mikið fyrir kristileg uppeldismál. Mik- illi ábyrgðarstö^u gegnir hann í heimalandi sínu. Kona hans ferð ast oft með honum síðustu árin, eftir að börn þeirra komust val á legg. Þegar hún klífur kletta eða stiklar íslenzkar urðir, myndi maðúr halda, að hún væri fremur frá Sviss en Hollandi. Hér er stutt samtal við Dr. Henkel. Hvað á ég helzt að segja ís- ' lenzkum lesendum um ferð þína og Kirkju -og skólasambandíð, sem þú stofnaðir og veitir for- stöðu? — Við hjónin komum ekki eingöngu sem túristar, en við höfum verið mjög heppin í ferðalagi okkar bæði um Suður- land og Norðurland, haft aðems þrjá regndaga, en séð mikið af fjallafegurð landsins í bezta veðri. Við komum raunar fyrst og fremst til að eiga formlega heimsókn af hálfu hollenzku reformertu kirkjunnar til æðstu fyrir hendi nú á síðustu árum. Samtök okkar eru ung, og hafa hingað til að mestu treyst á reglulega fundi innan vébanda kirknanna, svo sem þér er kunn- ugt frá fundi okkar í Strasbourg fyrir tæpum tveimur árum. Vrns erindi frá fundum okkar hafa verið prentuð á þremur tungu- málum og dreifast víða. I erind- um og umræðum eru vandamálin rædd frá ýmsum hliðum og hugs anlegar lausnir á þeim, og hver miðlar af reynslu síns lands. Framkoma ýmsar uppástungur viðkomandi kennslustarfi og upp eldisstarfi kirkju og skóla. — Hvað er að segja um fjár- málahlið starfsins? — Öll störf fyrir samtök okkar eru unnin kauplaust. Kirkjur í hverju landi sjá um ferðalög sinna manna í stjórninni og um skrifstofukostnað sameiginlega; einnig ferðakostnað almenna þátt takenda á fundi okkar. Málgagn þyrftum við bráðlega að eignast. Segðu okkur frá næsta fyrir- huguðum almennum fundi og hve margar þjóðir muni mæta þar. — Næsti fundur verður næsta sumar á Bástad í Suður-Svíþjóð, í samstarfi við Religionspedagog- iska Institutet þar í landi, og biskupinn í Lundi. Þar á að ræða um nauðsyn og gildi biblí- unnar í uppfræðslu æskunnar í venjulegum skóla virka daga, sérstaklega fyrir aldurinn 10 — 18 ára. Líklega verður þar fólk af 15 þjóðum. — Vitlu segja nokkuð frekar Framhald á bls. 23. hugsar ekki um stúlkur Per Kronvali er 19 ára gam- all, sonur sendiherra Svíþjóð- ar í Varsjá og verðandi blaða- maður. Hann iiefur nýlokið mánaðarheimsókn til Kína þar sem hann dvaldivt í menn- ingarskiptum. Per Kronvall hefur ritað fjórar stuttar grein ar fyrir AP um það, sem fyrir augu bar, og kynni sín af Kína Mao Tse-Tung. Munu greinar hans birtast í Mbl. næstu daga. í hinni fyrstu seg- ir hann frá viðræðum sínum við stúdenta í Pekingháskóla og því, sem hann varð vísari varðandi hugsanagang þcirra. Peking í ágúst — FYRSTA kvöldið, setn ég varði í háskólanum í Peking, lenti ég í stjórn- málaumræðum við hina nýju kínversku kunningja mína. Ég vissi ekki hversu frjálslega ég gæti sagt skoð anir mínar af ótta við að ég kynni að eyðileggja þann litla kunningsskap, sem til hafði verið stofnað. En ég varð þegar furðu lostinn yfir því, hversu illa kínversku stúdentarnir voru að sér um marga hluti, og í sumum tilvik- um höfðu þeir gjörsamlega á röngu að standa. Þegar þeir tóku eftir því, hve hljóðlátur ég var, hófu þeir að vitna í rit Mao Tse- Tung í æ ríkara mæli þar til „umræðurnar" stöðvuðust við að eipn stúdentanna spurði mig um heimaland mitt. Ég fór þá að tala um Sví- þjóð, hvernig landið sjálft væri, hvers konar fæðuteg- unda við neyttum o.s.frv. Stúdentar um heim allan eru forvitnir, og kínverskir stúd- entar eru engin undantekning. Og nú kom spurningin, sem ég hafði beðið eftir: „En sænskir verkamenn, eru þeir ekki mjög fátækir?" Stúdentinn, sem varpaði fram þessari spurningu, gerði það fremur eins og hann væri að vitna til staðreyndar en hann væri að spyrja. Ég tók þá til við að lýsa verkamanna fjölskyldu, sem ég er kunnug- ur heima. Fjölskyldan á sitt eigið hús, sumarbústað, bíl, lítinn seglbát o.s. frv. Stúd- entarnir horfðu allir grun- semdaraugum á mig. „Ur því hann er svona rík- ur, á bíl og allt til alls, hversu marga þjóna hefur hann?“, spurði einn þeirra. „Hann hefur enga þjóna“, svaraði ég. „Hver sér um hreingern- ingar og alla matseld?“,spurði sami maður. Ég útskýrði fyrir þeim upp- þvottavélar, þvottavélar og önnur nýtízku heimilistæki. Ég sagði þeim frá því, hvern- ig frystikista starfaði — hægt væri að taka út úr þeim freðið brauð, þíða það og innan stundar væri það sem nýbakað. Þegar ég spurði þá, hvort þeir tryðu því, sem ég væri að segja, fóru fóru stúd- entarnir allir að hlæja. „Nei, að sjálfsögðu ekki“. sagði einn þeirra kurteislega, „en við höfum ísskápa í Kina líka.“ Daginn eftir fór ég í fylgd tveggja stúdenta í Byitingar- safnið í Peking. Það fyrsta, sem við blasti, var risastói* mynd af Mao leiðtoga. Stúd- entarnir fóru báðir þegar að ræða í ákafa um hann. Við gengum um safnið og virtum fyrir okkur ýmsa sýn- ingarmuni, sem sýna átíu hve lífið hefði verið slæmt í Kína áður en kommúnistar komust til valda 1949. „Svo er Mao Tse-Tung fyrir að þakka, að svona er þetta ekki lengur", sögðu stúdentarnir. í forstofunni var sýning á pólitískum teikningum. Auk hinna venjulegu andbanda- rísku teikninga, var mörgum skripamyndanna beint gegn kristnum kirkjum. Fyrir utan gengum við yfir „Rauða torgið", og kunningj- ar mínir sýndu mér hvar Mao stæði við hátíðahöldin 1. maí ár hvert. Ég spurði, hvort Mao hefði enn full völd. Þeir viit- ust báðir forviða. „Auðvitað hefur hann þau. Hver ætti annar að hafa þau?“ svöruðu þeir. Á meðan ég dvaldist í Pek ing hitti ég nokkra stúdenta reglulega. Þeir töluðu rniitið um, að Bandaríkjamenn hefðu varpað sprengjum á sjúkra- hús í Hanoi. Ég sagði, að vera mætti að flugmanninum hefð’i orðið á mistök. Ónei, þeir voru sannfærðir um að Banda ríkjamenn hefðu gert þevta af ráðnum hug. „Teljið þið í raun og veru, að Bandaríkjamenn séu siæmt fólk?“, spurði ég. „Nei“, svaraði einn þeirra. „Eins og Mao Tse-Tung segir, eru 90% Bandarikjamanna gott fólk. Það er aðerns John- son og stjórn hans sem við hötum.“ „En fólkið hefur kjörið hann til þess að stjórna iandi sínu“, sagði ég. „Já, bandaríska fólkið held ur að hann sé góður sökum þess að hann gaf þeiin mikið af peningum", svaraði einn Kínverjanna. „Hugsið ykkur“, sagði ann- ar. „Að fimm prosent af fólk- inu í heiminum skuli ráða vf- ir 50% af hráefnalindum hans.“ „Hvað haldið þið, að hægt sé að gera í þeim efnum?“, spurði ég. „Áður en heimurinn getur fengið að lifa í friði verður að mala bandarísku heimsvalda stefnuna mélinu smærra“, sagði einn stúdentmna. „Land ykkar liefur á að skipa kjarnorkuvopnum. Hví notið þið þau ekki?“, spurði ég. „Kína óskar ekki eftir styrjöld, og mun aldrei verða fyrri til að nota kjarnorku- sprengjuna.” Við annað tækifæn fórum við að tala um kvenfólk. Ég spurði stúdent einn hvaða stúlkur hann teldi fallegar. „Kínverskur stúdent hugs- ar ekki u-m stúlkur“, svaraði hann. „Vertu nú svolítið raun- sær“, sagði ég. „Alhr karl- menn hafa áhuga á stú!kum.“ „Það er bannað að giítast meðan menn eru i háskólan- um“, svaraði hann. Síðan útskýrði hann málið eilítið nánar. Hann sagði að það skapaði kínvsrskum stúd entum einungis vandræði, et þeir umgengjust sömu stúlk- una. Þeir væru að vísu ekki reknir úr skóla, en þeir væru ávíttir á fundum. „Áður en heimurinn getur lengið að lifa í friði verður að mala bandarísku heimsvalUastefn- ( una mélinu smærra . .

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.