Morgunblaðið - 03.09.1966, Side 1
28 síður
53 árgangur
200. tbl. — Laugardagur 3. september 1966
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Margrét ríkisarfi Dana
hyggur í hjónaband
með frönskum aðalsmanni
1 Tvær af nunnunum átta semi
I rauðu varðliðarnir í Peking
ráku af landi brott og sendu
' hraðfari suður til Hong Kong,
1 svo stranga ferð og langa að
varð að fjörtjóni þeirri
nunnanna sem elzt var og
sizt til siíkra stórræða fallin,
systur Eamon, írskættaðri,
85 ára gamalli, sem ekið var
á hjólvagni yfir landamærin
eins og myndin ber með sér.
Hún lézt í sjúkrahúsi í Hong
Kong á fimmtudagskvöld.
Tvær nunnur aðrar úr
hópnum sögðu nokkuð frá því
sem á gekk er rauðliðarnir
réðust til inngöngu i
klausturskóla þann sem syst-
urnar stjórnuðu í Peking og
var það ófögur lýsing. Þrett-
án nunnur kínverskar bjuggu
í skólanum og sögðu erlendu
nunnurnar að þær hefðu sætt
mjög iliri meðferð.
Járnbroutarverk
lallinu í Kanada
lokið
Ottawa, 2. sept., NTB.
í DAG hófst vinna að nýju við
járnbrautarfélðgin tvö í Kanada
eftir viku verkfall, sem náði til
118 þúsund starfsmanna. Vinna
hófst eftir að forustumenn stétt-
arfélaga járnibrautarstarfsmanna
tilkynntu félagsmönnum að
verkfallinu væri lokið. Hafði
ríkisstjórnin þá fengið lagafrum-
varp “samþykkt í þinginu, sem
batt enda á vinnustöðvunina.
Þrátt fyrir yfirlýsingar verka-
lýðsleiðtoganna, voru enn verK-
fallsverðir við ýmsar járnibraut-
arstöðvar, oé er ekki vitað
hvers vegna. Engar tafir hafa þó
orðfð á járnbrautarferðum. Hins-
vegar hafa nokkur verkalýðsfé-
lög gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir
að hafa gripið inn í deilurnar
með lagasetningu.
STAÐFESTING fékkst á því
í morgun við dönsku hirðina
að Margrét erfðaprinsessa
Dana, sem nú er 26 ára göm-
ul, hafi í hyggju, að giftast
frönskum aðalsmanni, 32 ára
gömlum, sem nú starfar sem
sendiráðsritari við sendiráð
Frakka í London. Sá heitir
Henri Marie Jean André de
Laborde de Monpezat og er
greifi að tign. Ekstrabladet
danska varð fyrst til þess að
IÐNISYNINGIN
w
Kaupum íslenzkar
iðnaðarvörur
De Caulle og Sihanouk vilja að gerður verði
Alþjóilegur samningur
um hlutleysi Vietnam
Pnom Penh, 2. sept. NTB.
CHARLES de Gaulle, Frakk-
landsforseti og Norodom Sihan-
ouk fursti í Kambodsja gáfu út
sameiginlega yfirlýsingu í dag
að lokinni þriggja daga opinberri
heimsókn Frakklandsforseta til
Kambodsja. í yfirlýsingunni var
lagt til að gerður yrði alþjóð-
legur samningur er tryggði hlut-
leysi í Vietnam og eftirlit með
því að það væri haldið, og þess
farið á leit að allir þeir er hlut
ættu að máli austur þar yrðu
á brottu með allt herlið sitt úr
landinu og virtu sjálfstæði Viet-
nam.
Þá segir í yfirlýsingunni að
margar orsakir liggi að baki
skiptingu Vietnam en miklu
meira atriði en skipting landsins
í tvennt, sé þó íhlutun erlendra
ríkja, sem orðið hafi til þess að
borgarastyrjöldin í landinu
breiddist út. Nú sé Vietnam-mál
ið alþjóðlegt vandamál og hern-
aðaraðgerðir þar aukist í sífellu.
Eina lausnin sé að allir sem hlut
eigi að máli skuldbindi sig til
þess að hlíta Genfarsamningnum
frá 1954, sem kveða á um að
virða beri sjálfstæði Vietnam og
ekki sé hlutast til um innanríkis-
mál landsins.
Ef komið yrði á alþjóðlegum
samningi sem Vietnam-búar
legðu sjálfir yíir blessun sína,
segir í yfirlýsingunni, og land-
inu yrði tryggt hlutleysi undir
alþjóðlegu eftirliti, myndi það
einnig vera öflugur stuðningur
við hlutleysi Kambodsja og Laos.
Bandaríkin eru ekki nefnd á
nafn berum orðum í yfirlýsing-
unni, en í ræðu sinni á fimmtu
dagskvöld mæltist de Gaulle til
þess að þau skuldbindu sig til
þess að verða á brottu úr Viet-
nam og einnig önnur lönd sem
þar hefðu herlið, Ástralía, Nýja
Sjáland og Suður-Kórea.
Ekki hefur neitt heyrzt um
undirtektir Bandaríkjamanna við
ræðu de Gaulle eða yfirlýsingu
þeirra Sihanouks um Vietnam en
Lord Avon (Anthony Eden),
fyrrum forsætisráðherra Breta,
sagði í París í dag að hann væri
sömu skoðunar og de Gaulle.
Frá Kambodsja heldur de
Gaulle til Nýju Kaledóníu, ný-
lendu Frakka í Kyrrahafi sunn-
anverðu.
skýra frá þessu og bar þá
danska hirðin fréttina til
baka, en síðar fékkst það stað
fest að Margrét prinsessa
hyggði á hjónaband með
Henri greifa og fylgdi það
sögu að málið hefði verið rætt
innan fjölskyldunnar undan-
farna daga og einnig hefði
forsætisráðh erranum verrð ‘
kunngert um það.
Bið verður þó á því að opinber
tilkynning verði gefin út um trú
lofun Margrétar og greifans, því
að lögum verður að leggja málið
fyrir þingið og þingmenn eru nú
í leyfi fram í október. Úrskurðar
vald í málinu hefur svo ríkis-
ráðið og verður að leggja form-
lega blessun sína yfir ráðahag-
inn áður en frá því verði skýrt
opinberlega hvað í vændum sé.
Málið er því, eins og talsmaður
dönsku konungsfjölskyldunnar
komst að orði, einungis „fjöl-
skyldumál" fyrst um sinn.
Henri greifi af Monpezat er
sagður maður menntur vel og
hefur háskólapróf í sígildum bók
menntum en er auk þess mikill
tungumálamaður og hefur m.a.
numið kínversku og víetnömsku
og starfaði við Austurlandadeild
Framhald á bls. 3
Reynt að telja U
Thant hughvarf
New York, 2. september. NTB
FULLTRÚAR Afríku- og Asíu-
ríkja í Öryggisráðinu leituðu í
dag liðs stórveldanna við tilraun
ir sinar til að telja U Thant fram
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, hughvarf og fá hann til
þess að gegna embætti áfram.
Heldur eru menn vondaufir um
að tilraunir þessar beri nokkurn
árangur og fáir einir telja nokkr
ár líkur á að U Thant verði tal-
inn á að gegna áfram embætti
því sem hann hefur sagt af sér
frá og með nóvember n.k. Sumir
eru þó þeirrar skoðunar að ef
til vill muni U Thant fáanlegur
til að vera framkvæmdastjóri
S.Þ. til bráðabirgða eða í eitt
eða tvö ár ef aðildarríkin skuld-
bindi sig til þess að styðja friðar
viðleitni S.Þ. og aðgerðir fram-
kvæmdastjóra samtakanna í því
augnamiði.
Rauðu varðliðarnir í Peking
Lýsa stríði á hendur Bandaríkjunum
og sovézkum endurskoöunarsinnum
Sovézkar heimildir segja tvo tugi fallna i átökunum undanfarna daga
Peking og Moskvu,
2. september, NTB.
RAUÐA varðliðið, æsku-
lýðsfylking kínverskra
kommúnista, lýsti í dag í
grein í aðalmálgangi
flokksins, „Dagblaði þjóð-
arinnar“, stríði á hendur
hvorum tveggja, Banda-
ríkjunum og sovézkum
„endurskoðunarsinnum".
Sögðust varðliðarnir
vera kallaðir til að jafna
við jörðu hinp garma
heim heimsveldissinna og
auðvaldshyggjumanna. —
„Við viljum gera uppreisn
og gjöreyða gamla heimin-
um og öllu því sem honum
fylgir og berjast fyrir nýj-
um heimi“, sagði í grein
þessari, að því er kínverska
fréttastofan „Nýja Kína *
hermir.
Þá kváðust rauðu varðlið-
arnir reiðubúnir til þess að
berjast við „glæpamennina“
í Bandaríkjunum hvenær sem
væri. „Okkur hefur verið fal-
ið að grafa gamla heiminum
gröf“, sagði í greininni, „og
við erum hreyknir af þvi að
við skulum eiga að ráða nið-
urlögum bandarískrar heims-
veldisstefnu“.
Um Sovétríkin er farið svo-
felldum orðum í greininni:
„Sovézka endurskoðunarsinna
Framhald á bls. 27. 1