Morgunblaðið - 03.09.1966, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.09.1966, Blaðsíða 26
 »i u n u u i« u M u 11/ juaugardagui 3. sept. 1966 Enginn Norðurlandabúi með verðiaun ennþá A-Þjóðveriar hafa unnið flesta verðlaunapeninga AÐ FJÓRIJM keppnisdögum loknum á Evrópumeistaramót- inu í Búdapest bendir ailt til þess að enginn Norðurlandabúi komist á verðlaunapall á mótinu í ár. — Jafnvel Finnarnir „brugðust“ eða réttara sagt tókst ekki að vinna til verðlauna í spjótkastinu og þá er iokið í flest skjól fyrir Norðurlanda- búa. Nevala varð 4. í spjótkastinu og Kuisma sjötti. Sex Norðmenn voru í undanrásum í dag og aðeins tveim- ur tókst að komast í úrslitakeppni — í kúluvarpi og lang- stökki kvenna. Þá komst Svíinn Bo Forsander í úrslit í 110 m grindahlaupi og þar með er upptalið hvar Norðurlandabúar létu til sín taka. ' ■Úrslitagreinar. í gær var keppt til úrslita í 6 greinum. Fólsku stúlkurnar unnu gull og silfur í 200 m. hlaupi og þar var sett meistara- mótsmet. í stangarstökki sigraði Evr- ópumethafinn austurþýzki Nordwig — en í þeirri grein stukku 7 menn 4.80 og hærra. Lusis Sovét sigraði með mikl- um yfirburðum í spjótkastinu — en þar skorti 18 sm. á að Finninn Nevala hlyti bronsverð laun. 1 200 halupi karla sigraði Frakkinn Bambuck — (litaður Afríkumaður) en mikil harka var í þessari grein. Sama er að segja um 400 m. grindahlaupið þar sem Frinoili sigraði en 6/ÍO úr sekúndu skildu síðan 2. og S. mann. Úrsiitagreinar í gær: Stangarstökk. Evrópumeistari: W Nordwig A-Þýzkal. 5.10 Skipting verðlauna SKIPTING verðlauna á EM í Búdapest er þannig að lokn- 1 um 4 keppnisdögum: A-ÞýzkaL 524 Pólland 4 5 0 Sovétríkin 3 2 4 tV Þýzkal. 2 4 4 Frakkiand 2 3 6 Bretland 10 0 Tékkóslóvakía 10 0 Ítalía 10 0 Ungverjal. 0 2 1 Grikkland 0 10 2. Papanicolaou Grikkland 5.05 3. deEncausse Frakkiand 5.00 4. R. Dionisi ítalíu 4.80 5. I. Soinkj Spáni 4.80 6. ISokolwski Pólland 4.80 7. I. Butscher Pólland 4.80 8. Igor Feld Sovét 4.70 Finninn Altti Alarotu varð 13. með 4.60 og Svíinn Karl Bulin 14. stökk sömu hæð. Spjótkast: Evrópumeistari: J. Lusis Sovét 84.48 2. Nikiciuk Póiland 81.76 3. Kulcsar Ungverjalandi 80.54 4. Nevala Finnland 80.36 5. Nemeth Ungverjalandi 79.82 6. Kuisma Finnland 79.26 200 m. hlaup kvenna. Evrópumeistari: Kirszenstein Pólland 23.1 (nýtt mótsmet) 2. Klobukopyka Pólland 23.4 3. Popkova Sovét 23.7 4. Roggenkamp V-Þýzkal. 23.8 15. Tiedkte A-Þýzkalandi 23.9 6. Lehotska Tékkóslóvakía 24.0 Framhald á bls. 31 F o o„ a Club de Nantes JÍ V 'i í i CASTEL-SlMON-vlORT-SRA8OWSKI-BU0»NSKI-SONOeT-De MICHELE-ROBiN-MAGNt-EON LE CHENAOEC-SANTOS-BLANCHET-SEORGIN-MULLER-SUAUDEAU-ARRIBAS ent. Eitt bezta félagslið Evrdpu ÓHÆTT mun að segja að koma frönsku meistaranna Nantes F. C. til KR-inga í sambandi við Evrópubikar- keppni meistaraliða sé stærsti viðburðurinn á knatt- spyrnusviðinu hér á landi í sumar. Liðið er talið nú eitt af beztu félagsliðum i Kvrópu, hefur á að skipa miklu úr- vali knattspyrnumanua. bæði í röðum atvinnumanna og áhugamanna. í næstum hverri stöðu í liðinu er leikmaður er leikið hefur í landsliðum Frakk- lands — atvinnu- eða áhuga- manna. Frönsk knattspyrna stendur hátt, þó franska lið- inu í lokakeppni he msmeist- arakeppninnar hafi gengið miklu verr en búizt var við. Þrír leikmanna Nantes voru í liði Frakklands í heims- meistarakeppninni. Það er enn ein rósin í sveig frönsku meistaranna. Leikur KR og Frakklands- meistaranna er á miðviku- dagskvöldið. Verður leikur- inn að hefjast kl. 7. Við ráð- leggjum öllum að sjá þennan leik, þótt á óhentugum tíma sé, því takist Frökkunum vel upp, fáum við að sjá lær- dómsríka knattspyrnu. Þríþraut fyrir skólanemendur í VOR kynnti útbreiðslunefnd Frjálsíþróttasambands íslands þriþraut fyrir skólabörn, sem hún í samvinnu við Barnablaðið Æskuna og fleiri aðila gengst fyrir. Reglugerð um keppnina ásamt ýmsum upplýsingum hana varðandi var send öllum skóla- stjórum og íþróttakennurum landsins, svo og ungmenna- og íþróttafélögum. Voru íþrótta- kennarar beðnir að kenna nem- endum sínum undirstöðuatrioi í keppnisgreinum þrautarmnar, 60 m. hlaupi .hástökki og knatt- kasti. Margir íþróttakennarar brugðust vel við þes'sári mála- leitun. Þá birti Barnablaðið Æskan kennsluþætti fyrir þá, sem ekki nutu íþróttakenns! u. Ætlunin var að börnin hefðu síðan sumarið til að undirbua sig fyrir keppnina. Fréttir hafa bor- izt um að mörg hafa æft af kappi, ýmist ein eða undir leið- sögn. Meðal annars hefur þraut- in verið æfð í sumarbúðum viða um land. Undankeppni stendur yfir 1. sept. — 31. október n.k. Enn hefur öllum íþróttakennurum verið skrifað og þeir beðmr að hvetja og aðstoða sína nemend- ur, Aðstöðu er víðast hvar hægt fJrslitaleikir í 2. og 3. deild og ýmsEr aðrir leikir um helgina Á MORGUN verður úr því skor- ið með kappleik milli Fram og Breiðabliks í Kópavogi, hvort liðið fær lausa sætið í 1. deild næsta ár. Leikurinn hefst kl. 4 síðdegis og má vænta þess að hvorugt liðanna láti sitt eftir liggja þegar svo mikið er í liúfi. Breiðablik komst auðveldlegs 1 úrslitin með öruggum sigri í öðrum riðli 2. deildar. Ver gekk það fyrir Fram og voru ýmsar bJikur á lofti á leið þenra til úrsiitanna og rétturinn til úr- slitaleiksins vanst ekki fyrr en eftir æsispennandi baráttu við Vestmannaeyinga. A morgun fer einnig fram leikur í 1. deild og leika Akur- nesingar og Akureyringar á Akranesi. Fyrri leikinn unnu Akureyringar á heimavelli 2-1. Þessi leikur getur ekki haft telj- andi áhrif á úrslit mótsins — nema ef bæði bæði Valsmenn og Keflvíkingar tapa, þá geta Ak- ureyringar náð þeim að stigum með sigri yfir Akurnesingum. Ferðir verða með Akraborginni til Akraness kl. 13,30 og tii baka að leik loknum kl. 18,30. í dag — laugardag — íer fram úrslitaleikur í 5. flokki milli Fram og FH. Þetta er anu- ar leikur liðanna. því þau skildu jöfn — í marklausum leik — fyrir nokkru. Leikurinn verður á Melavelli kl. 14,30. Kl. 15.30 fer fram leikur í BÍKarkeppninni á Melavelli og keppa KR b og ísfirðingar. A morgun fer fram úrslita- leikur i 3. deiid á Sauðárkróki. Eigast við lið UMS Skagafjarðar og UMF Selfoss. Bæði liðin hafa 6 stig og það lið er vinnur fær- ist í 2. deild. að finna fyrir keppnina. Markmið útbreiðslunefndar F.R.Í. með þessari keppni er að örfa áhuga skóiaæskunnar á íþróttum og gefa íþróttakennur- um kost á fjölbreytni í starfi sinu. Keppni þessi er mikið átak og ein f jölmennasta íþrótta • keppni hérlendis næst Norr- ænu sundkeppninni og I.anós- göngunni á skíðum. Er það von útbreiðslunefndar, að vel takist með framkvæmdina og treystir þar mest á dugnað og áhuga íþróttakennaranna. Þar sem ekki eru starfandi íþróttakennarar, treystir nefndin skólastjórum og almennum kennurum til að að- stoða börnin. Að lokum þakkar- útbreiðslunefnd öllum þeim að- ilum, sem hingað til hafa stutt þetta framtak. Ber þar að nefna Barnablaðið Æskuna, stjórn íslenzkra barnakennara, stjórn íþróttakennarafélags íslands, Flugfélag íslands, dagblöðin öll, útvarpið og síðast en ekki sízt, íþróttafulltrúa ríkisins, Þorstein Einarsso n. Þeir sem þurfa á frekari upplýsingum að halda, eru beðnir að snúa sér til formanns útbreiðslunefndar F.R.Í., Sigurður Helgasonar Laugargerðisskóia, Snæfellsnesi, eða íþróttafulltrúa. (Frá útbreiðslunefnd F.R í.). M0LAR Real Madrid sigraði WAC í Marokko með 2-0 á laugardag en þá hófst keppni um bikar sem ber nafnið „Mohamed V“, í hálfleik stóð 0-0. Steinar Robarth setti nýtt norskt met í 100 m. bringusundi í Drammen á sunnudag. Synti hann á 1:15,3 en gamla metið var 1:15,8. Á Evrópumótinu í sundi í Utrecht skiptust verðlaunin þannig: G S B Sovét 10 7 5 A-Þýzkal. 5 5 3 Holland 3 11 Frakkland 2 0 1 Bretland 1 3 3 Italía 10 1 Svíþjóð 0 2 2 Ungverjal. 0 11 Austurríki 0 10 Spánn 011 V-Þýzkal. 0 10 Finnland 0 0 1 Pólland 0 0 1 Rúmenía 0 0 1 Júgóslavía 0 0 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.