Morgunblaðið - 03.09.1966, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.09.1966, Blaðsíða 2
N0RGUN8LAÐIÐ Laugardagur 3. sept. 1966 l 2 Þjóðleikhúsið œfir Upp- stigningu Sig. Nordals í IMýtt leikár að hef jast I»ANN fyrsta þ.m. hófst nýtt 3eikár i Þjóðleikhúsinu. Kl. 10 að morgni þess fyrsta septem- her, boðaði þjóðleikhússtjóri alla leikara og starfsfólk lcikhússins á sinn fund og bauð leikara og starfsfólk velkomna til starfa, að loknum sumarleyfum. Þetta er 17. leikár Þjóðleikhússins, sem nú er að hefjast. 28 leikarar eru nú ráðnir hjá 3>j<áðleikhúsinu, en þar af eru 17 á A-samningi og 11 á B-samn- ingi. Margrét Guðmundsdóttir hefur nú verðin ráðin á A-samn- áng og leikararnir Erlingur Gíslason, Bríet Héðinsdóttir og Brynja Benediktsdóttif á B- samning. Kevin Balmer hefur verið ráð- Inn-leikstjóri hjá Þjóðleikhúsinu í vetur og Una Collins hefur ver ið ráðin þar sem leikmynda- teiknari. Palmer stjórnaði, sem kunnugt er, æfingum og svið- setti leikritið „Ó, þetta er indælt stríð“ á sl. leikári, og hlaut mik- ið lof fyrir. Föstudaginn 2. september hóf- ust æfingar á tveimur leikritum f Þjóðleikhúsinu, Kevin Palmer sviðsetur leikritið „Næst syng ég fyrir þig“ og verður það sýnt í Lindarbæ. en Baldvin Halldórs- son verður leikstjóri við leikrit- ið „Uppstigning, eftir Sigurð ISflL opnnr skrifsfohi i Hnfnorfirði ÚPP úr næstu mánaðamót- um mun ISAL, fyrirtæki það sem stendur fyrir uppsetningu og rekstri álverksmiðjunnar í Straumsvík, opna skrifstofur í Hafnarfirði. Hefur fyrirtækið tekið á leigu húsnæði fyrir skrif stofuna í hinu nýja húsi Spari- sjóðs Hafnarfjarðar við Strand- götu. Staðfesti stjórnarformaður Halldór H. Jónsson að svo væri, þó væri ekki búið að ganga endanlega frá samningum. Þarna er um að ræða hluta af annarri hæð Sparisjóðsins á horni Strandgötu og Linnets- stígs, að flatarmáli 160 ferm. Og er húsnæðið tekið á leigu frá 1. okt. Nordal, en það verður sýnt í Þjóðleikhúsinu í tilefni 80 ára afmælis höfundar. Síðar í þessum mánuði hefjast æfingar á leikritinu „Kæri lyg- ari“, og verður Gerda Ring leik- stjóri. Leikendur í því leikriti eru aðeins tveir, Herdís Þor- valdsdóttir og - Róbert Amf inns- son. Þann 11. þ.m. verður fyrsta sýningin I Þjóðleikhúsinu á þessu leikári, en leíkritið sem sýnt verður er „O, þetta er ind- ælt stríð“. Þetta leikrit var sýnt sex sinnum á sl. vori og kom- ust færi að en vildu til að sjá þetta sérstæða og ágæta leikhús- verk. f byrjun næsta mánaðar hefj- ast einnig sýningar á Gullna hlið inu, en það var sýnt 25 sinnum á sl. leikári. Nýr fullkominn flug- völlur á Raufarhöfn Raufarhöfn, 2. sept. RAUFARHÖFN er að fá flugvöll með 1200 m langri, fullkominni flugbraut, sem allar flugvélar í innanlandsf/ugi eiga að geta lent á, þar á meðal Fokker Friend- ship vélar. Verður flugvöllurinn væntanlega vigður næstu daga. Unnið hefur verið við flugvöll inn í sumar og gekk verkið betur en hægt var að vona. Er völlur- inn í smágerðu hrauni, um 5 km vegalengd frá Raufarhöfn, og var hægt að ýta upp hrauninu. Er nú verið að girða kringifm völlinn, sem er tilbúinn að öðru leyti. Hefur flugmálastjóri þeg- ar lent þar á flugvél sinni til revnslu. Tóku kvikmynd um starfsemi F.I. ■ gær ÞÝZKU kvikmyndamennirnir komu frá Dyrhólaósi í gærmorg- un og tóku í gærkvöld stutta kvikmynd um starfsemi Flugfé- lags íslands, sem ætlunin er aff sýna sem aukamynd með kvik- myndinni um SigurS Fáfnisbana. Fréttamaður blaðsins náði tali af framkvæmdastjóranum við kvikmyndatökuna Kortowski í biðsal F.í. í gærkvöldi skömmu áður en taka aukamyndarinnar hófst. Sagði Korytowski að Þjóð- verjarnir hefðu verið tveimur dögum á undan áætlun við töku kvikmyndarinnar um Sigurð Fáfnisbana og unnizt hefði upp sá tími. sem glataðist í rigning- unUm fyrir nokkrum dögum. Korytowski sagði, að kvik- myndatakan við Dyrhólaós hefði gengið framar vonum og þakk- aði sérstaklega íslenzku aðstoð- armönnunum en fyrir þeim var Gís'li Alferðsson og Flugfélag ís- Blaðburðarfólk vantar í eftirtalin hverfi: Tjarnargötu Hrauntcigur Laugaveg frá 1—32 Grettisgata II Barónsstígur frá 36—98 Meðalholt Vesturgata 2—45 Hringbraut I Lynghagi Víðimel Skerjafjörður Grettisgata I sunnau flugv. Fálkagata Grettisgata 36—98 Laugaveg 33—80 Meðalholt Sólheiinar I Eskihlíð 14—35 Grenimelur Túngata Laufásvegur 2—57 Lau gar nesvegur Njörvasund Bræðraborgarstíg Álftamýri II Laugarásveg Talið við afgreiðsluna simi 22480. lands fyrir alla fyrirgreiðslu. Kvikmyndamennirnir halda til Þýzkalands n.k. sunnudag. Kvik- myndin um Sigurð Fáfnisbana verður frumsýnd í Miinchen 9. okt. nk., og fá íslendingar vænt- anlega að sjá hana skömmu eftir áramót. Hafsteinn Austmann Hafsteirtn Austmann sýnir í Vnuhúsi HAFSTEINN Austmann, listmál- ari, opnaði í gær sýningu í sýn- ingasalnum í Unuhúsi við Veg- húsastíg. Hann sýnir 26 málverk, máluð á s.l. tveim árum. Lista- safn ríkisins hefur þegar keypt eitt málverkið, en flest hinna eru til sölu. Sýningin stendur í um hálfan mánuð. Sýning Hafsteins er 4 sýning- in sem Ragnar Jónsson heldur í þessum tiltölulega nýja sal. Er sýning Hafsteins 3 sjálfstæða sýningin, sem hann heldur á ís- landi. Hann opnaði fyrst sýn- ingu í Listamannaskálanum vor- ið 1956. Þá tók hann þátt í norr- ænu sýningunum í Odense 1959 og Helsinki 1963. Sumarið 1965 ferðaðist hann úm Évrópu og dvaldist lengst í Rómaborg. f lok Klaki enn í jörðu í Borgarfirði BORGARNESI, 2. sept. — í sum- ar hefur verið mikið um það talað hér um slóðir að klaki hafi ekki farið úr jörðu, einkum norðan I móti í hæðum. Hafa menn á skurðgröfum orðið varir við klaka er þeir hafa verið að grafa. Nýlega kom einn þeirra niður á 10-15 sm. klakalag um 60—70 sm. niðri í jörðinni. Þá hafa bændur talað um að erfitt væri að þurrka á nýrækt- um, því þar væri svo blautt og mundi klaki undir. Bóndinn í Einarsnesi í Borg- arhreppi var um daginn á trakt- or norðan í hæð og festi hann. Átti hann ekki von á klöppum eða neinu slíku Undir jarðveg- inum og er hann gætti að, kom í ljós að hann hafði spólað nið- ur á klaka. Sami bóndi ætlaði að þurrka hey á svæði þar sem hann er vanur að fá það þurrt á nokkrum dögum. Lá heyið í viku og náðist ekki þurrt. Var talið að klaki undir gerði það að verkum að jarðvegurinn þornaði ekki. Þá veittu menn, sem voru ný- lega á ferðinni á veginum yfir Galtarholtsflóa því athygli, að vegurinn hristist óeðlilega mik- ið, og gekk í bylgjum undan þungum bíl. Töldu þeir að það stafaði af klaka undir mýrinni. Er i rauninni ekki undarlegt þó klaki sé lengi í jörðu. því sl. vétur var svo lengi bert og stöðug frost. þeirrar ferðar var honum boðið til Hasselby í Svíþjóð í tilefni af mynd sem hann átti bar á samsýningu höfuðborga Norður- landa. S.l. sumar átti hann 4 myndir á Biennale de París. og einnig átti hann 4 myndir á Norð urlandasýningunni í Hannover. Hafsteinn sýnir nú 26 málve.'k frá síðustu 2 árum og eru þar m.a. myndir málaðar með cryla- litum, en slíkar myndir hefur hann ekki sýnt opinberlega fyrr. Tónleikum í Borgorfirði oflýst FYRIRHUGUÐUM tónleikum sópransöngkonunnar Leónu Gor don og manns hennar, Marcusar Gordons píanóleikara, í Borgar- firði hefur vérið aflýst. Veiktist Marcus Gordon skyndilega og gengur undir uppskurð. svo ekki getur orðið af ferð þeirra hjóna til fslands. Fréttir frá Vopnafirði: Fyrsta listaverkasýningin Fyrsti minkurinn - Fremur lítil síld - Heynýting góð VOPNAFIRÐI, 2. sept. — Hey- skap má heita lokið. — Spretta var hér ágæt og nýting heyja góð með örfáum undantekning- ingum. Hey eru nokkuð mikil en misjöfn að gæðum. Hér á Vopnafirði hefur verið tiltölulega lítið af síld, því veiði svæðin hafa verið sunnan og norðan við okkur, en Vopnafjörð ur og Borgarfjörður verið of miðsvæðis, til að komið væri með síldina þangað. Verksmiðj- an er þó búin að taka á móti 14000 tonnum, fyrir utan það sem komið hefur af stöðvunum. Söltunarstöðvarnar eru 4 og hafa saltað þetta: Hafblik 1000 tunn- urborg 1100 tunnur, Auðbjörg Kristján Gislason 3600 tunnur, 1030. Hér stendur yfir listaverkasýn ing, sem Kristján Guðmundsson, listaverkasali í Reykjavík er með. Hefur hann sett upp nokkuð mikið af myndum i Félagsheim- ilinu, bæði frummyndir og eftir- prentanir. Sala hefur verið góð í málverkunum. Þetta er í fyrsta skipti sem listaverkasýning er sett upp á Vopnafirði. f sumar var nokkuð vart við mink hér og er það í fyrs’a skipti. Náðust tveir minkar nið- ur undir ós í Selá, en talið er að eitthvað sé af mink í heiðinui. Er það slæmur gestur, einkum við laxárnar, sem er 3 hér. — Ragnar. KAUPUM ÍSLENZKARIONAÐARVÖRUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.