Morgunblaðið - 03.09.1966, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 03.09.1966, Blaðsíða 28
Helmmgi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað Langstærsta og íjölbreyttasta blað landsins Fjölmenni við réttarhöld í sjónvarpsmáli í Eyjum VerzSunum lokað á meðan Vestmannaeyjum 2. sept. RÉTTARHÖLD í sjónvarpsmál- inu í Vestmannaeyjum hófst hjá bæjarfógeta kl. 2,30 í dag. Voru l»ar tekin fyrir tvö mál, annars vegrar málið Ríkisútvarpið gegn Félagi sjónvarpsáhugamanna í Vestmannaeyjum og hins vegar Péstur- og sími gegn sama aðila. Til að leggja áherzlu á þýð- irigu málsins ákvað Félag kaup- sýslumanna og Kaupfélag Vest- mannaeyja að loka sölubúðum sínum í dag frá kl. 2—4 e.h. til að gefa mönnum kost á að vera viðstaddir réttarhöldin. Var þröngt á þingi og komust færri að en vildu, því réttarsalurinn er lítill. Var þó troðfullt og fullt af fólki á öllum göngum og jafn vel utan dyra. Bæði •málin voru tekin fyrir. Lögfræðingur Félags sjónvarps- áhugamanna, Bragi Björnsson hdl., sem jafnframt er formað- ur félagsins, bað um frest í mál inu við Póst- og síma til frekari gagnsöfnunar, en var neitað um hann. Fyrir hönd Ríkisútvarps- ins flutti málið Gunnar Guð- mundsson hrl. úr Reykjavík. Voru málin skýrð á báðar hliðar. Ríkisútvarpið heldur sig við lög um útvarp frá 1934, sem það telur hafa verið brotin. En Félag sjónvarpsáhugamanna byggir sinn málflutning á því að athæfi það, sem þeir eru sakaðir um, sé framið af meiri hluta þjóðar- innar, magnarinn umræddi sé lítið stærri en tæki annars stað- ar og Vestmannaeyingar kunna því illa að fá ekki að njóta þess sama sem fólk í Stór-Reykjavík og suður með sjó. Bæði málin fóru í úrskurð, og er líklegt að nokkrir dagar líði þar til hann verður upp kveð- inn. Sjónvörpum hefur nú fjölgað mjög hér í Eyjum. Mest fyrst eftir að mastrið kom, en síðan jafnt og stöðugt. Ekki er vitað hve mörg tæki eru hér, en talið að þau séu 150—200 talsins. Skil- Framhald á bls. 27 Vinnuslys í Safamýri VINNUSLYS varð við Safa- mýri í gærkvoidi um 8 leytið. Var verið að steypa bilskúr, er sílóið slóst í höfuðið á manni, sem var uppi á skúrnum og mun hafa ætlað að segja krana- manni til. Fékk hann höfuðhögg og skurð á höfuðið og var flutt- ur á Slysavarðstofu. Maðurinn heitir Sveinbjörn Sigurðsson. Hann var á Slysavarðstofunni í nótt. Frá blaðamannafundinum í gær. Til vinstri heri landbúnaðarráðherra V-Þýzkalands en situr Bjarni Guðmundsson blaðafulltrúL er Hermann Höc- við hlið hans Hermann Höcherl ráðherra: Eg mun aldrei fallast áneina f iskimálastef nu innan EBE sem yrði islendingum til tjóns Nuverandi stefna runnin undan rifjum Frakka MÉR er ekki kunnugt um, að nein þjóð í víðri veröld hafi kom • ið fram við Þjóðverja af slíku göfuglyndi á hinum erfiðu árum eftir stríðið sem íslendingar. Því verður afstaða okkar til Islands i öllum málum að motast með tilliti til þess, hvað íslendingar gerðu fyrir okkur einu sinni. Þar þýðir ekki að fara eftir ströng ustu bókhalds- og viðskiptareglum. Ég mun aldrei fallast á neina stefnu í fiskveiði- og fiskafurðamálum innan Efnahags- bandalags Evrópu, sem getur orðið tslendingum til tjóns. Ég mun senda íslenzkum blöðum afrit þeirrar skýrslu, sem ég mun láta Erhard kanzlara í té um för mína til íslands. Þannig komst Hermann Höcherl landbúnaðarráðherra Vestur-Þýzkalands, en hann fer einnig með sjávarútvegs- mál í landi sínu, m.a. að orði á fundi, sem hann átti með blaðamönnum í gær í þýzka gæzluskipinu Póseidon, þar sem það lá í Reykjavíkur- höfn. Á þessum fundi voru fisksölur íslendinga til Vest- ur-Þýzkalands og annarra ianda Efnahagsibandalagsins efst á baugi en þau mál hafa komið mjög vi'ð sögu undan- farið og er mikil eftirvængting ríkjandi, hvað í þeim málum gerist á næstunni. Vestur-þýzki ráðherrann sagði í upphafi, að hann væri hingað kominn í umboði vest- ur-þýzku ríkisstjórnarinnar. íslandsheimsókn sín væri ekki einungis gestrisnisheimsókn, Framhald á bls. 21 SYNDIÐ 200 metrana Járn hamraö í smiðju í tilefni af degi málmiðnaðari ns á Iðnsýningunni í gær var komið upp eldsmiðju við austurvegg sýningarhallarinnar og störfuðu þar eldsmiðir við að smiða skeifur og annað, eins og gert var áður fyrr. Var gamaldags eldstæði með fýsibelg kom ið fyrir. Loftur Ámundason, eldsmiður, er þarna að hamra járnið. Margt áhorfenda safnaðist að, til að horfa á þessi vinnu brögð. (Ljósm. Ingimundur. Ætlaði að stunda hjónabandsmiðlun Almenningur misskildi starfsemina NÝLEGA tók svonefnd Kynn- ingarmiðstöð í Hafnarfirði að auglýsa þjónustu sína, en mark- mið hennar var að kynna fólk af báðum kynjum með hjúskap fyrir augum. Var gefið upp heim ilisfang á Strandgötu. Skömmu seinna bárust kvartanir úr hús- inu^ til lögreglunnar, vegna ónæðis sem skapaðist þegar fólk var að berja þar upp um nætur, og var með drykkjulæti kringum húsið.. Munu menn hafa lagt annan skilning í aug- lýsinguna en forstöðumaður stofnunarinnar ætlaðist til, og leituðu þangað um nætur jafnt sem daga. Þegar kvartanirnar bárust var skrifstofan flutt úr húsinu fyrir tveimur dögum. Forstöðumaður fyrirtækisins var danskur mað- ur, nýkominn til landsins, og hafði hann ætlað að reka hjúskaparfyrirtæki eins og munu tíðkast annars staðar, en viðskiptavinir ekki almennilega skilið tilganginn. Auk þess mun hann ekki hafa haft nein leyfi til vinnu eða atvinnureksturs. Til að binda endi á ólætin við húsið, hlutaðist lögreglan til um að maðurinn setti auglýsingu í sama blað sem hann hafði áður auglýst starfsemi sína í, þar sem hann tilkynnti að Kynningar- miðstöðin væri hætt störfum. Ferðir í Skálholt EINS og skýrt var frá í blaðinu í gær, hefst biskupsvígslan í Skálholti kl. 3 á sunnudag. Ferð austur í Skálholt verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 12,30 á sunnudag. Sr. Ágúsf kosinn PRESTKOSNING fór fram I Vallanesprestakalli sunnudaginn 28. ágúst. 417 voru á kjörskrá og af þeim greiddu 216 atkvæði. Umsækjandi var einn, Ágúst Sigurðsson, og hlaut hann 205 atkvæði. Auðir seðlar voru 9, tveir ógildir. Agætt veður - engin veiði VEÐUR var ágætt á gíldarmið- unum i gæi;, en engin veiði, að því er síðast fréttist í gærkvöldi. Sama var sólarhringinn á und- an. Var leitað síldar víða, en lít- ið fannst. 17 skip tilkynntu þá afla, samtals 1.055 lestir, sem fékkst að mestu 90 mílur SA. af A frá Dalatanga. Ók inn um verzlunarg/ugga drukkinn, réttindalaus og á stolnum bil 1 FYRRINÓTT um kl. 4.20 ók 16 ára gamall piltur bifreið nið ur Skólavörðustíg. Kom hann, að eigin sögn, auga á lögreglu- þjón og varð hræddur, þar sem hann var á stolnum bíl. Fipað- ist honum aksturinn við þetta, svo hann tók of krappa beygju við Laugaveginn og lenti á horn húsinu, þar er Hatta- og skerma búðin á jarðhæð. Lenti billinn á sýningarglugga og brotnaði rúðan. Pilturinn hljóp á brott, en átt aði sig svo og kom til baka. Var hann undir áhrifum áfengis, of ungur til að hafa ökuréttindi og auk þess á stolnu farartæki. Bíllinn var nokkuð skemmdur en pilturinn ómeiddur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.