Morgunblaðið - 03.09.1966, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.09.1966, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 3. sept. 196« ÚTVARP REYKJAVlK ÆVAH Kvaran flutti erindi um hinn mikla keisara Asoka er var sonarsonur Chandragupta þess er náði aftur af Grikkjum löndum þeim er Alexander mikh vann. Asoka ríkti að því er brezka alfræðibókin, stóra, seg- ir frá 264 til 226-227 fyrir Kr. b. Hann lagði undir sig allt Ind- land, svo og Nepal Kasmír, Afganistan og Balischistan. Varð mikill siðbótamaður og dugandi stjórnandi. Samtímaheimildir um hann er höggnar í steinsúl- ur og hella, alls 36 leturfletir, auk þess geta rit Búddatrúar- manna um hann. Aftur á móti geta grískir sagnritarar hans ekki. Erindi Ævars var afar vandað að efni og flutningur afbragð. Geri ég ráð fyrir að hann sé einn af vinsælustu fyrir- lesurum, er mikið láta til sín taka í útvarpinu, venjulega fróðlegt og skemmtilegt að hlusta á hann. „í kvöld“ þeirra Hólmfríðar Gunnarsdóttur og Brynju Bene- diktsdóttur, 20. ágúst var skemmtilegt og fræðandi. Talaði Hólmfríður, að ég held, fyrst um merkilegan mann, Lappa, að nafni Nils Nilson, er uppi var 1872—1951, stórbóndi er átti fjölda hreindýra og síðar teikn- ari mjög rómaður um langa hríð. Afburðamaður til líkama og sálar og ekki við eina fjöl- ina felldur. — Þá talaði Brynja (?) um för austur í Skaftafells- sýslu nú í sumar. Kom þangað eftir storminn mikla og var við hátíð þá er haldin var til minn- ingar um séra Jón Steingrims- son. Þá hitti hún að máli tvær gamlar konur er búa í Heiði. Náði hún nokkru tali þeirra og kveðskap á segulband. Var gaman að heyra það er þær sögðu, sérkennilegt og fremur óheflað. Ekki virtust þær hafa mikið dálæti á eldprestinum sáluga eða Skagfirðingum þeim, er slæddust suður í Skaftafells- sýslu, né ættum þeirra. Önnur þeirra, Elín, er afbragðsgóður smiður. Þetta eru miklar hetju- konur. Laugardagsleikritið var Draumurinn eftir Paols Levi. Leikstjóri Ævar Kvaran. Þetta er frambærilegt útvarpsleikrit af því að það er engin langloka. Fjallar um skoplega eða sjúka afbrýðissemi og vel með efnið farið, bæði af höfundi og leik- urum. Hetjusaga frá átjándu ðld, um ævi séra Jóns Steingrímsson- ar nefndust tvö erindi er Krist- in E. Andréssoft flutti sunnu- dagana 14. og 21. ágúst. Voru þetta frábærlega vönduð erindi um séra Jón, þessa miklu hetju og afreksmann, sem aldrei bilaði í þyngstu raunum og erfiðleik- um á einum af hræðilegustu tímum er yfir þjóð þessa hafa dunið, Skaftáreldunum og öll- um þeim plágum er þeim fylgdu. Ævisaga séra Jóns er snilldar- verk, þar sem höfundur segir af sjálfum sér og öðrum alger- lega rauplaust og trútt svo að Það eru hinir geysi vinsœlu TEMPÓ sem leika í Þjórsárveri í kvöld kl. 10 til 2 NÝTT NÝTT Hver verður kosinn maður kvöldsins ? NÝTT NÝTT Það eru TEMPÓ, sem leika á KINKS hljómleikunum. Sætaferðir verða frá Umferðarmiðstöðinni og Hafn- arfirði kl. 9, Þorlákshöfn, Hveragerði, Selfossi og Laugarvatni, til þess að allir geti mætt í Þjórsárveri. nærri því broslegt verður, stundum. Ég held að Kristinn E. Andrésson, magister skilji séra Jón alveg rétt og viðhorf hans til lífsins og samtíðar sinnar. Á náttmálum, þáttur Hjartar Pálssonar og Vésteins Ólafsson- ar. Ég heyrði ekki fyrri hluta þessa þáttar. En síðar sögðu þeir, að ennþá mætti heyra hér, að fólk hallmælti Dönum, eink- um eldra fólk. Ég held að mjög lítið sé um þetta, miklu fleiri hallmæla Bandaríkjamönnum, Þjóðverjum og Rússum, einkum hinum fyrsttöldu, af því að þeir hafa hér landvarnir, samkvæmt beiðni okkar sjálfra. Auðvitað munu allir óska þess, að ekki þyrfti að vera hér erlendur her, en eins og ástatt er í heiminum hygg ég að stór meirihluti þjóð- arinnar vilji vestrænt lýðræði frekar en kommúnisma, a.m.k. benda kosningar á það. — Árið 1757 sendi alþingi Danakóngi bænaskrá þess efnis, að íslend- ingar mættu sjálfir hengja þjófa sina til þess að komast hjá kostnaði við að senda þá á Brimarhólm. Var þessari frómu ósk synjað. — Þá las dr. Jón Helgason upp þýtt kvæði, franskt, frá 15. öld, mjög vel gert ljóð. — Loks var langt mál um Kristínu Adolfsdóttur, Svía- drottningu (f. 1626, d. 1689) þá er sagði af sér konungdómi og gekk af lúterskri trú og tók pápísku og bjó í Róm siðari ár og dó þar. Fara um hana margar sögur og misjafnar. Sveinn Kristinsson talaði um daginn og veginn 22. ágúst. Var það nákvæmlega eins og ég tel að þessi þáttur eigi að vera, enginn fyrirlestur um ákveðið efni, heldur rabb um það sem er að gerast, svo sem veðráttu, heyskap, fiskveiðar og ýmislegt umtalsvert, sem er að gerast á líðandi tíma. Hann gat um greinar Gísla Auðunssonar læknis um læknaskipun og heil- brigðismál, en þessi ungi, gáfaði læknir, virðist hafa fengið hálfsofandi yfirvöld til að rumskast.— Ræðumaður minnti á, að síðastliðinn vetur var með þeim hörðustu og víða snjó- snjóþyngstu sem komið hafa lengi. Þó varð hvergi fellir né vandræði og Htið urðu menn varir við kuldann, híbýli manna og skepnuhús nú svo miklu betri en áður var, hey handa þúsundum skepna flutt land3- fjórðunga á milli. Sem sagt, gjörbreyttar aðstæður til að taka mannlega á móti harðind- um. Margt fleira sagði Sveinn athyglisvert, sem ekki er hér getið, en að lokum gat hann þess að tveir andans menn í fremstu röð, eiga áttræðisafmæli á þessu ári: Jakob Thorarensen og Sig- urður Nordal. Karlmennska og þróttur einkenna skáldskap Jak- obs, hleypidómalaust mannvit og afburða ritsnilld allt það er Sigurður hefur ritað, hvort heldur er eigin skáldskapur eða annað, en hann er viðurkennd- ur fremsti bókmenntafræðingur hér um langan aldur. Engir standa þessum öldungum fram- ar, samtímamanna. — Jóhannes úr Kötlum las upp fáein kvæði Stefáns G. Stephan* sonar, snilldarkvæði, vel lesin. „Fanginn á Múnkshólmi** nefndist erindi er Jón R. Hjálm- arsson, skólastjóri, flutti 25. ágúst. Hann er með beztu út- varpsmönnum, talar fallegt mál, hefur ágætan málróm, svo að ekkert orð fer fram hjá hlust- endum. í þetta sinn talaði hann um Griffenfeld greifa, afburða gáfumann, er komst til æðstu valda og metorða um stund hjá Kristjáni 5. einveldisherra, en kunni sér ekki hóf, var hand- tekinn, dæmdur til dauða, en náðaður og sat í fangelsi nær því til dauðadags, 1699. Jón R. Hjálmarsson, kemst ætið að kjarna málsins í erindum sín- um, án óþarfa umbúða og vil ég ráðleggja þeim, er vilja fá góða fræðslu, að hlusta á hann, er hann lætur til sín heyra í útvarpi. Þorsteinn Jónsson. í KILI SKAL KJÖRVIÐUR IPNlSÝNINGIN W IÐNSYNINGIN 19661 Opin 30. ágúst. — Opin í 2 vikur. Opin fyrir kaupsýslumenn kl. 9—14 og almenning kl. 14—23 alla daga KAUPSTEFNA AIjLAN DAGINN Veitingar á staðnum. Aðgangseyrir: 40 kr. fyrii fullorðna 20 kr. fyrir börn ★ Silfurmerki fylgir hverjum aðgöngu- miða. BARNAGÆZLA FRÁ KL. 17—20. Sérstakur strætisvagn allan daginn á heil- um og hálfum tímum frá Kalkofnsvegi. KOMIÐ — SKOÐIÐ — KAUPIÐ Það er alltaf til ein LAGOMARSINO reiknivél sem hentar yður Grond Totol er samlagningarvél með marg- földun og tveim teljurum. Vél þessi er tilvalin í lanuaútreikn- ing, verðútreikning, vörutaln- ingu og ótal fleiri verkefni. Sjálfvirkur prósentuútreikning- ur er stórkostlegur eiginleiki vélarinnar. Totolio Super er einföld samlagningarvél með innbyggðri talnageymslu. Það er tækni, seir hefur náð mik- illi útbreiðslu og eykur afköstin ótrúlega. OTTO A. MICHELSEN Klapparstig 27 Simi 20560.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.