Morgunblaðið - 03.09.1966, Síða 18

Morgunblaðið - 03.09.1966, Síða 18
MORGUNBLAÐIÐ Liaugardngur 3. sept. 1966 Kópavogur Blaðburðarfólk vantar í Austurbæ og Hlíðarveg. Talið við afgreiðsluna — Sírni 40748. PkrgttttWn&iti ABYRGÐ A HUSGOGNUM Athugið, að merki þetta sé á húsgögnum, sem ábyrgðarskírteini fylgir' Koupið vönduð húsgögn. 1^0 2 54 2 FRAMLEIÐANDI I = NQ. HUSGAGNAMEISTARA- FÉLAGI REYKJAVÍKUR HÚSGAGNAMEISTARAFÉLAG REYKJAVIKUR Hraðvirk — Örugg Skrifstofuáhöld Skúlagötu 63. - Sími 23-188. Staða svæfingalæknis Landakotsspítala, er laus til umsóknar. — Umsókn- ir er greini menntun og fyrri störf sendist yfir- lækni spítalans. — Laun í samræmi við kjara- . samning l.æknafélags Reykjavíkur. COUPE — RASOIR — FRANSKAR — PARÍS — Karla- kvenna- barna- 1966 — 1967 klippingar. Sími — utan stofu- JÓN GEIR ÁRNASON tima 22708. hárskerameistari Borgarholtsbraut 5 — Kópavegi. t, Elskuleg eiginkona mín GUÐRÚN JOHNSON EINARSSON Skaftahlíð 18, lézt að heimili sínu 2. sept.ember. Benjamín Einarsson. Innilegar þakkir færum við þeim öl.lum, sem sýndu okkur hluttekningu, vinarhug og saniúð við veikindi, andlát og jarðarfarir systkinanna, GUÐRÚNAR PORFINNSDÓTTUR frá Brandsstöðum og SIGURBAR ÞORFINNSSONAR frá Skeggsstöðum. / Vandamenn. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við and- lát og jarðarför LÚÐVÍGS GUÐMUNDSSONAR fyrverandi skólastjóra. Sigríður Hallgrímsdóttir, Ingveldur Lúðvígsdóttir, Halldór Gröndal, Guðmundur Áki Lúðvígsson Hjórdís Geirdai, Sigríður St. Lúðvígsdóttir, Einar Árnason. — Á Ströndum Framhald af bls. 5. ekki eru meðfaerilegir einum manni. Lætur hann traktor- inn drífa hjólsög, og- drumb- ana renna á tálguðum tré- keflum á heimagerðum bekk. Rekaviðurinn á Ströndúm er nýttur í girðingarstaura og seldur á staðnum niður sag- aður eða klofinn, sem þykir betra. Endast slíkir rekaviðar staurar mjrg vel í girðingar miðað við annan við, sumir segja allt upp í 100 ár. Eru staurarnir seldir á 25—30 kr. stykkið á staðnum., Þá hafa mörg handtökin verið unnið á staðnum, allt frá því farið var á fjörur og bolunum bjarg að undan sj j og þar til þeir liggja niðurbútaðir, tilbúnir til flutnings. En bændurnir skapa sér með þessu vinnu, sem þeir geta gripið til, þegar timi er. Ðúnninn er sendur burtu til hreinsunar. Yiði of mikið verk að hreinsa hann heima, en Anna segist kaldhrista dúninn í síengur krakkanna. Þá brenni ekki burt úr hon- um fínustu angarnir, þessir sem grípa best og halda hon- um saman. Ekki er símasamband við Dranga. En þau hjónin hafa talstöð og geta þannig náð sambandi við umheiminn, ef á liggur. Læknishjálp er ekki á næstu grösum, og er heim- ilið vel útbúið lyfjum, sem hægt er að gn'pa til í samráði við læknir, sem ná má sam- bandi við um talstöðina. Tvisvar hefur sprungið botn- langi í barni meðan þau Kristinn og Anna bjuggu á Dröngum. í annað skiptið var dælt í barnið pensilíni og dugði það. í hitt skiptið braust IngjJfur á Eyri að Dröngum í vetrarveðri á báti og flutti barnið og móður þess að Gjögri, en þangað kom flugvél og sötti þau. í annað skipti sagaði eitt barnið af sér fingur, sem rétt hékk á einni taug. Þá var brotizt með barnið suður um og lækn ir kom á móti til Djúpuvik- ur, Bjargaði hann fingrinum og kvaðst Anna varla hafa trúað sínum eigin augum. Þetta heíur samsagt allt bless- ast, en öryggisleysið ef eitt- hvað verður að hlýtur að hvíla nokkuð þungt á þeim sem búa svo afskekkt. Ekki lítur Anna þó út fyrir að vera þjökuð af eiíiðleikum, svo Guðmundur Pétursson í Óíeigsfirði. glaðleg og hressileg kona. Hún hafði nýlega farið með systur sinni, sem kom í heim- sókn, gangandi til heimahag- anna í Skjaldabjarnarvík, og sagði að þa i hefði verið mjög skemmtileg ferð. Þegar þetta birtist eru þau Kristinn og Anna sennilega um það bil að flytja með börnin inn að Melum í Tré- kyllisvík fyrir veturinn. Þá verður énginn til að heyra; Hljóðabungu við Hrolleifsborg herða á striðum söngum meðan rinn olma organleik ofviðrið heyr á Dröngum eins og Jón Helgason kveður. Við sigluin aftur suður fyrir Drangrna sex, sem standa í röð með skörðum á milli og r>á út í sjóinn, 200— 250 m l.áir, mikið og fagurt náttúrusmíð. Fyrir sunnan þá tekur við eyðibýlið Dranga- vík, sem þeir Eyrarmenn eiga og þar fyrir sunnan Ófeigsf jörður, gamla höfuð- bólið, sem stóð mannlaust sl, vetur. Pétur Guðmundsson og Ingibjörg kona hans voru fyrir sunnan svo og Sigríður systir Péturs og Guðmundur sonur hans í Bolungavík með sína fjölskyldu Yfir sumarið voru allir heima Guðmundur kom í Ófeigs- fjörð urn miðjan maí vegna æðarvarpsins. Og nú er verið að slá og þurrka þarna engja- gras, til að bera undir koll- urnar næsta vor. Þær sækj- ast eftir að verpa í svo vel útbúin hreiður. Guðmundur segir okkur að í vor hafi fengizt um 40 kg. af dún í Ófeigsfirði. Selveiði var með minna móti, veiddust eitthvað yíir 120 k''par. Mikill reki hafði verið í Ófeigsfirði sem annars staðar á þessum slóð- um, en lítið farið að vinna hann, þar eð rafmagnið var bilað. Þó var búið að vinna um 2000 staura. Áður fyrr v^r farið í há- karlalegur frá Ófeigsfirði. Þar var s;ðast gerður út opinn hákarlabátur, hinn frægi Ófeigur, sem Guðmundur Pétursson gerði út 1915. Létu Drangamenn halda honum yið, en nú hofur Þjóðminja- safnið látiö bvggja yfir Ófeig í byggðasafni sýslanna þriggja að Reykjum í. Hrúta- firði. Þar fengum við .að skoða þennan stóra þunga átt- æring á leið suður. í Ófeigs- firði minnir ýmislegt annað á hákarlaveiðina. Þar stend- ur t. d. lýsisOræðslupotturinn enn óhrevfður og heimagerð- ar geysistórar lýsisámur með gjörðum úr viði liggja þar enn. Já, það er margt að skoða í Strandasýslu, sem nú er að opnast ferðamönnum með veginum. En gæta verður þess að gera ekki átroðning um of í svo fémennum byggðum. — E. Pá. — Á slóðum Framhald af bls. 15. Af Helgatindi blasir Þórisdal- ur við. Þetta er hrjóstrugur dal- ur, ekki langur, várla meira en 2 km, en alldjúpur. Undirlendi er sáralítið, en í dalsbotninum er aflangt vatn um 1 km. á lengd og % km. á breidd, skol- grátt af jökulleir og fellur dá- lítil jökulspræna úr skriðjökl- inum í vestanvert vatnið. Yfir- borð dalsins er brött með hvöss- um brúnum og klettabeltum hið efra, en gráum grjótskriðum, þegar néðar dregur. Norðvest- an að dalnum rís þverhöggvinn berghamar Þórishöfðans, en stórgrýtisurð og jöfculöldur fyrir neðan. í suðvesturkrikan- um nær skriðjökull langleiðina niður í dalbotninn, og er hann greiður yfirferðar. Að sunnan- verðu við dalinn er allhár hamraveggur næst vatninu, en síðan tekur við aflíðandi fjalls- hryggur með móbergshlíðum meðfram dalnum. Miðhlíðis er dálítill hjalli og ágæt göngu- leið eftir honum austur fyrir enda vatnsins, en síðan er tor- færulaust fast með vatninu norðanverðu til baka. Að austan er lágur móbergshryggur, en sem svo hefur verið nefndur, siðan tekur við Þórisdalur syðri en er í raun og veru framhald af hinum eiginlega Þórisdal land fræðilega séð. Hann er allmiklu stærri og liggur til suðurs, þvert á stefnu Þórisdals. Vatn er einn ig í Þórisdal syðri og er það miklum mun stærra en Þóris- dalsvatn. Afrennsli er úr hvor- ugu vatninu ofanjarðar. Þórisdalur er ekki búsældar- legur dalur og hvergi um sam- felldan gróður að ræða, aðeins ein og ein jurt á stangli hér og þar, enda mundi þar nú ekki auðfenginn viður til skálagerð- ar eins og á dögum Grettis Ásmundarsonar. Vafalaust er lífsbaráttan hörð í gróðrinum þarna inni á milli jöklanna og oft teflt í tvísýnu með afkom- una. Sá sigúr, sem vinnst í dag, tapast kannski á morgun. Samt hafa fundizt þarna yfir tuttugu tegundir jurta við láuslega át- hugun og eru sjálfsagt tals- vert fleiri. Mestur og fjölbreytt- astur er gróðurinn á syllum og stöllum í móbergshamrinum i Þórishöfða og meðfram honum. Segja má, að innflytjendur dalsins séu ennþá strjálir og dreifðir og setji lítinn svip á dalinn, fljótt á litið. Samt er undarlega gaman að rekast þarna á lítið blóm á stöku stað í grjótinu, óvænt, fyrirvara- laust, kannski svolitla fjall- deplu milli steina, nýútsprung- inn fífil í klettaglufu eða fjalla- sveifgras, eitt eða tvö græn grasstrá í nakinni auðninni. En grjótið á líka sinn yndisþokka og skemmtilegheit. Ég man sér- staklega eftir einni fagurlega sorfinni móbergshellu austar- lega í dalnum, átján lystilega gerðir skessukatlar standa þarna hlið við hlið í klöppinni, vindurinn og sandkornið höfðu tekið sér stundarhvíld, og skessu katlarnir voru þurrir í botn, það hafði ekki rignt síðustu dag ana. Á öðrum stað varð á vegi mínum heljarmikið Grettistak, hellulaga basaltbjarg, sem lyft hefur verið upp á lítinn mó- bergsklett og skilið þar eftir. Jötunninn mikli, sem fyrir daln um ræður, hefur sjálfsagt ver- ið þarna að gamna sér eitthvað við kviahelluna sína. Ekki er síður skemmtilegt að virða fyr- ir sér jökulinn, grænan og blá- an, þar sem hann skríður niður skörðin milli hnúkanna, svo hægt, að ekki verður greint en með slíkum ógnarþunga, að stór grýtið hrannast upp framan við jökulsporðinn í gráa og gróð- urlausa urðarhryggi, einn fram af öðrum. Hér eru hin feikna- legustu öfl að verki. Þetta er tröllslegur dalur, hrjúfur og harðneskjulegur, með fremur lága lífsþægindaprósentu en á þó vinsældum að fagna meðal vand látra ferðamanna. Gestur Guðfinnsson. I TILBOÐ óskast í að grafa 1700 m langan vatnsveituskurð við skíðaskála ÍR. Nánari upplýsingar hjá for- manni skíðadeildar ÍR., Borgartúni 3, sími 10135. Skíðadeild ÍR. Bezt að auglýsa í Murgunblaðinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.