Morgunblaðið - 03.09.1966, Síða 27

Morgunblaðið - 03.09.1966, Síða 27
Laugarcfagut 3. S®pt. 1366 MORGUNBLAÐIÐ 27 Fegurstu garðar í Kópavogi verðlaunaðir EINS og undanfarin ár hefur bæjarstjórn Kópavogs og Lions- og Rotaryklúbbar Kópavogs veitt viðurkenningu fyrir fegurstu garða í Kópavogi á þessu ári. í dómnefnd áttu sæti að hálfu bæjarins þeir Hermann Lundholm garðyrkju ráðunautur, Pétur Guðmundsson heilbrigðisfulltrúi og Sigurbjart- ur Jóhannesson, byggingafulltrúi. Ennfremur þeir Ingibergur Sæmundsson yfirlögregluþjónn frá Lionsklúþbi Kópavogs, og Johan Schröder garðyrkjumaður að hálfu Rotaryklúbbs Kópavogs. Hinn 26. ágúst s.l. bauð bæjar- stjórn þeim sem viðurkenningu hlutu að þessu sinni til kaffi- drykkju í Félagsheimili Kópa- vogs. Hjálmar ólafsson, bæjar- stjóri lýsti niðurstöðum dóm- nefndar og afhenti verðlaun og viðurkenningarskjöl bæjarins. Heiðursverðlaun bæjarstjórnar hlutu hjónin Jakobína og Johan Schröder að Birkihlið við Ný- bvlaveg fyrir langt og árangurs ríkt brautryðjendastarf að garð- rækt og skógrækt I Kópavogi. J>au hjón hafa búið í Kópavogi um þrjá áratugi. Fyrir fegursta garð f Austur- bæ afhenti sr. Gunnar Árnason form. Rotary-klúbbsins sérstaka viðurkenningu hjónunum frú Guðrúnu Guðmundsdóttur og Kolbeini Kolbeinssyni, Reyni- hvammi 40, og form. Lions- klúbbsins Ingibergur Sæmunds- son færði þeim systrum Sigríði og Kristrúnu Bjarnadætrum sér- staka viðurkenningu fyrir garð- inn að Þinghólsbraut 59, sem fegursta garð í Vesturbæ. Þá hlutu hjónin frú Ólína G. Sigurðardóttir og Dagur Daníels són og frú Álda Sófusdóttir og Þorsteinn Jónsson, Álfhólsvegi 82 heiðursskjöl fyrir sérstaka snyrti mennsku, svo og hjónin frú Hrefna Maríasdóttur og Björn Gísiason, Melgerði 34. (...... Bæjarstjóri gat þess, að bærinn héfði tekið miklum stakkaskipt- um' á undanförnum árum, gróð- urblettúm fari ört fjölgaridi. IV ‘iðliiól skemmt Þótti honum sjálfsagt að halda áfram að örfa íbúanna til átaka í þessum efnum með því að vekja athygli á þeim görðum, sem sköruðu fram úr og þakka eigendum þeirra sérstaklega. Að lokum sýndi Kristinn Guð- steinsson garðyrkjufræðingur, fagrar litskuggamyndir af erlend um og innlendum jurtum, sem hér eru ræktaðar f görðum. Var gerður góður rómur að myndum hans og fróðleik. (Frá bæjarskrifstofun- um í Kópavogi). Sinfóníutónleik- i ar í Vestm.eyjum Sinfoníuhljómsveit íslands hefur nú hafið starfsemi sína á ný að afloknum sumarleyfum og leikhléum. Vehða fyrstu tón- leikarnir haldnir í Vestmanna- eyjum á sunnudaginn kemur í Samkomuhúsinu, og hefjast þeir kl. 5. Stjórnandi hljómsveitarinnar verður að þessu sinni Martin Hunger, skólastjóri Tónlistar- skólans í Vestmannaeyjum og organisti við Landakirkju. Að loknu prófi frá Musikkonserva- toriinu í Leipzig árið 1964 hóf hann störf í Vestmannaeyjum og hefur af miklum dugnaði og atorku eflt mjög allt tónlistar- líf bæjarins. Martin Hunger hef ur áður stjórnað hljómsveitinni á tónleikum í Vestmannaeyjum við góðan orðstír, og einnig hef- ur hann stjórnað við upptöka fyrir Ríkisútvarpið. Einsöngvari með hljómsveit- inni verður Guðmundur Jóns- son, óperusöngvari. Hann þarf ekki að kynna frekar, svo kunn- ur sem hann er. Allir þekkja Guðmund a'ð góðu einu og hans ágætu hæfileika, en hann hefur um langt áraibil verið einn af máttarstólpum sönglífsins í land inu og unnið mjög gott starf. Verkefni hljómsveitarinnar á tónleikunum verða þessi: 1. Forleikur að óperunni „Brúðkaup Figaros," eftir W. A. Mozart. 2. Einsöngur: Guðmundur Jónsson. Nokkur íslenzk sönglög og óperuaríur, m. a. úr Rigoletto Giuseppi Verdi og Carmen eftir George Bizet (Söngur nauta- banans). 3. Pétur Gautur, lagaflokkur eftir Edward Grieg við leikrit Henrik Ibsen. 4. „ítalska symfonian," eftir Felix Mendelsohn — Bartholdy. Eins og sjá má á þessari verk efnaskrá eru hér á ferðinni mjög aðgengileg og vinsæl verk, sem mundu sóma sér hvar sem er í tónleikasölum heimsins. þau eru verk hinna ágætustu meist- ara, dásamlega falleg og hríf- andi, og ætti enginn, sem með nokkru móti getur því við kom- ið, að láta hjá líða að sækja konsertinn á sunnudaginn. Hár gefst einstakt tækifæri til að njóta hinna beztu verka á sviði tónlistar, og ekki er að efa, áð flutningur þeirra muni takast með ágætum. Aðgöngumiðar að tónleikun- um fást í verzlun Björns Guð- mundssonar, og ennfremur í samkomuhúsinu á sunnudaginn, ef eitthvað verður óselt. í árekstri L.R. æfir Fjalla Ey- vind og ,Tveggja þjónn^ f GÆR um kl. 14.10 var dreng ur á reiðhjóli á leið vestur Lauga veg. Við gatnamót Rauðarár- stígs var Landrowerbíl, hvítum að lit, .ekið í veg fyrir hann og rakst hann á bilinn. Hjólið skemmdist, ökumaður, sem drengurinn hafði tal af, taldi það lítilfjörlegt, svo ekkert var gert í málinu. Við athugun kom þó í ljós að skemmdirnar á hjól- inu voru meiri en leit út fyrir. Er ökumaðurinn því beðinn um að hafa samband við umferðar- deild rannsóknarlögreglunnar. LEIKFÉLAG Reykjavíkur er byrjað æfingar fyrir veturinn. Hafnar eru æfingar á leikritinu „Tveggja þjónn“ eftir Goldoni. Leikstjóri er Kristian Lund, en hlutverk þjónsins leikur Arnar Jónsson. Fjölmargir aðrir leik- arar fara með hlutverk í leikn- um, þau Brynjólfur Jóhannes- son, Haraldur Björnsson, Sigríð- ur Hagalín, Kristín Anna Þór- arinsdóttir, Guðmundur Pálsson, Borgar Garðarsson, Valgerður Dan, Jóhann Pálsson og Sig- mundur örn Arngrímsson. Á mánudag hefjast æfingar á Fjalla Eyvindi eftir Jóhann Sig- urjónsson. Höllu leikur Helga Backmann og Kára Helgi Skúla- son. Leikstjóri er Gísli Halldórs son. I í gær var austlæg átt hér vestanverðu landinu. Hiti var I á landi, dálítil rigning annað um 10 stig sunnan lands, en I slagið um mikinn hluta lands heldur kaldara fyrir norðan. f ins, en) bjartast veður á norð- :.r 'w.'r í haust verða teknar upp aft- ur sýningar á Dúfnaveizlunni eftir Halldór Kiljan Laxness, en í vor var alltaf sýnt fyrir fullu húsi. Er ætlunin að sýna leikin 12. nóvember á 25 ára afmæli Félags ísl. leikara, en þá verður hér formannsráðstefna norrænu leikarafélaganna. Einnig verða teknar upp sýn- ingar á „Þjófar, lík og falar kon- ur“. SYIMDIÐ 200metrana Meiri stórgripa- slátrun en venjulega MEIRA er nú á þessu hausti 1 um slátrun á stórgripum en und- anfarin ár. Er mikið af stór- gripakjöti á boðstólum, bæði af því meiri birgðir eru til frá í fyrra en venjulega og vegna meiri slátrunar nú. Mun ýmis- legt koma til. Víðast er mun minni heyskapur en venjulega, svo bændur þurfa að fækka við sig. Og þar sem rætt er um of mikla mjólkurframleiðslu mun það ganga út yfir kýrnar. Ekki stendur það þó í neinu sambandi við það, að ekki er sumarslátrun nú á dilkum. Það stafar af því að nægilega mikið er til af dilkakjöti frá í fyrra. í fyrrasumar var mikið kvartað undan því að ekki væri nóg kjöt, enda var sums staðar heldur þunnt á borðum af því undir haustið. Nú var því haldið eftir meira dilkakjöti, svo að örugglega yrði nóg. Þess vegna nægja birgðir nú fram á haust- slátrun og engin sumarslátrun er á dilkum. Santvinna um hitaveitu mál í stór-Reykjavík AÐ FRUMKVÆÐI fjarhitunar- nefndar Kópavogs hefur verið komið á fót samvinnunefnd um hitaveitumál á höfuðborgarsvæð- inu. t nefndinni eiga sæti: Jóhannes Zöega, hitaveitu- stjóri í Reykjavík, sem er formað ur nefndarinnar; Hjálmar Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi og er hann ritari nefndarinnar, Jón Jónsson, jarðfræðingur, fulltrúi Garðahrepps, Guðmundur Óskarsson, bæjar- verkfræðingur í Hafnarfirði, Eyþór Stefánsson, oddviti Bessastaðahrepps, Sigurgeir Sigurðsson, sveitar- stjóri Seltjarnarneshrepps, og Höskuldur Ágústsson, stöðvar- stjóri, fulltrúi Mosfellshrepps. Forstöðumaður jarðhitadeildar rikisins, Guðmundur Pálmason, jarðeðlisfræðingur, er nefndinni til ráðuneytis. • (Frá bæjarskrifstofum i Kópavogi). — Peking Framhald af bls. 1 klíkan er skipuð óskammfeiln um svikurum. Þeir hafa brugð izt marxism-leninismanum, brugðizt októberbyltingunni miklu og brugðizt hagsmun- um hinnar miklu sovézku þjóðar og allra sósíalískra þjóða. Því verðum við að berjast gegn þeim unz yfur lýkur“. Rauðliðar falla Sovézkt tímarit um utan- ríkismál, „Za R.ubesjom“, sem kemur út í 500.000 eintökum, birti í dag tveggja blaðsíðna lýsingu á ástandinu í Peking og fleiri kínverskum borgum síðan rauðu varðliðarnir hófu þar aðgerðir sinar til stuðn- ings „menningarbyUingu ör- eiganna". Segir tímaritið að varðliðarnír hafi keyrt endur skoðunarsinna og b'orgara svipum ‘á götum úti, bundið við háðungarstaura eða neytt til að ganga um með spjöld sem á var letrað „aúðvalds- hyggjumaður" andbyltingar. sinni eða glæpamaður. Þá birtir „Za Rubesjom" einnig símskeyti eitt þar sem segir að margir af rauðu varðliðun- um hafi fallið í átökum í Pek ing fyrir nokkrum dögum og sömuleiðis hafi fallið átta varðliðar og einn drengur úr „frumherja“-sveitum komm- únistaflokksins í átökum ann- ars staðar. Endurskoðuð fundarlýsing Fréttastofan „Nýja Kína“ dró í dag til þaka fyrri lýs- ingu sína á fjöldafundinum á miðvikudag á „Torgi hins himneska friðar" í Peking og birti nýja lýsingu á fundin- um, frábrugðna hinni að því leyti að þar var skýrar og skilmerkilegar greint frá titl- um ráðamanna innan komm- únistaflokksins og stigmun á virðing þeirra og vináttu v'ð Mao í hinni nýju lvsingu er Lin Piao, varnarmálaráðherra, einn um virðingarheitið „ná- inn stríðsfélagi" Mao Tse Tungs, og eiginkona Maos, Chiang Ching, er sögð „fyrsri varaleiðtogi" kliku þeirrar er stjórnar „menningarbylting- unni“ en ekki aðeins vara- leiðtogi hennar. Samkvæmt hinni nýju virð- ingaskrá sem á era 15 nöfn. eru fimm æðstu menn i Kina- veldi (á eftir Mao sjálfum og Lin Piao), Chou En-lai, for- sætisráðherra, Tao Chu, vara- forsætisráðherra, Teng Hsiao- Ping, aðalritari flokksins, Kang Shengog, hugmynda- fræðilegtjr^ sérfræðingur flokksins og svo Liu Sha-chi forseti. Fimmti maður á virð- ingaskránni fyrir tveimur vik um, ChénPo-ta, leiðtögi stjórn arklíku „menningarbyltingar- innar“. var ekki á nafn nefnd ur er taldir voru upp þeir virðingarmanna sem á fjölda- fundinúm voru. — Sjónvarpið Framhald af bls. 28 yrði til móttöku eru sæmileg, þó nokkuð misjöfn. Þykir Vestmannaeyingum nokk uð mikið um að vera vegna sjónvarpsins nú, með tilliti til þess að Útvarp og Landssíma hefur illa tekizt að bæta nægi- lega hlustunarskilyrði útvarps, og FM-sendir sá sem átti að bæta útsendingar oft bilaður og ekki til að treysta á. — Björn — Enginn Framhald af bls. 26 200 m hlaup karla Evrópumeistari: Bambuck Frakkland 20.9 2. Dudziak Pólland 21.0 3. Nallet Frakkland 21.0 4. Jan Werner Pólland 21.1 5. Kriz Tékkóslóvakía 21 2 6. Roderfeld V-Þýzkaland 21.4 400 m grindahlaup Evrópumeistari: Frinolli ftalíu 49.8 2. Lossdorfer V-Þýzkal. 50.3 3. Poirier Frakklandi 50.5 4. Anisimov Sovét 50.5 5. Toumineh Finnlandi 50.9 6. Giessler V-Þvzkalandi 51.2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.