Morgunblaðið - 07.09.1966, Qupperneq 3
MiSvikuíagnr 7. eept. 1966
MORGUNBLAÐIÐ
3
Tízkusýningin \
endurtekin S
^ SÍBASTLIÐINN sunnudag', ái
I degi fataii'ni'ðarins á Iðnsýn j
I ingunni, var efnt til tízkusýn-i
t ingar kl. 4 og kl. 8,30 síðdeg-i
í)
is. Geysimikil aðsókn var að
' sýningunni þennan dag og )
I gátu miklu fmrri en vildu séð j
l nýjustu lifiust- og vetrartízk-i
una. /
Því befur verið ákveðið, að i
1 endurtaka tízkusýninguna kl.i
8,30 í kvöld. Alls munu 13 k
I fyririæki sýna framleiðslu,
sína.
DAGUK tré- og húsgagna-
iðnaðarins var í gær á Iðn-
sýningunni. Þá sýndu bólstr-
arar og smiðir gömul og ný
vinnubrögð í iðn sinni. Einn-
ig var komið fyrir risastór-
um rekaviðardrumb fyrir
utan sýningarhöllina. Á
myndinni sjást tveir menn
saga drumbinn með stórvið-
arsög, en á hinum endanum
var sýnt, hvernig nýtizku
sögunarvél er notuð.
Brezkur sjónvarps-
þáttur um Papa hér
Bonn, 3. september — NTB-
FRÁ því var skýrt í Bonn,
höfuðborg V-Þýzkaiands, í gær,
að Heinz Trettner, herstíöfðingi,
sem fyrir skömmu sagði af sér
yfirstjórn v-hýzka hersins, hafi
gert það, vegr.a þess, að hann
teldi, að stjórnmálamenn hefðu
tekið æðstu vtld hersins í sínar
hendur.
Trettner gerði grein fyrir máli
sínu á lokuðum fundi varnar-
málanefndar v-þýzka þingsins í
gær.
Höfn, Hornafirði, 3. sept.:
HINGAÐ ti) Hornafjarðar kom
í gær sex manna sjónvarpslið
frá B.B.C. í London í þeim til-
gangi að laka mvndir fyrir sjón-
varpsdagskrá um Papa, sem
voru á íslartdi þegar fyrstu nor-
rænu landnámsmeiínirnir komu.
Þeir hafa sérstaklega veitt at-
hygli eldgömlum tóftum, sem
heita Papatættur við Papaós. Eru
tættur þessar nokkru utar, en
kaupstaðurinn á Papaósi var. —
Töldu þeir mjög miklar líkur til
þess, að þttta væru Papatættur
frá 9. öld, sem þyrfti að grafa
upp við fyrsta tækifæri. Um
þetta hafa þeir haft samband við
Kristján Eldjárn þjóðminjavörð
og hjá honum hafa þeir sérstak
lega myndað 3 bronsbjöllur, sem
taldar eru frá 10. öld og 3 nælur
úr bronsi og haus af biskups-
Framhald á bls. 31
Gísli J. Johnsen
sótli A5a!hjörgu
út á Faxaflóa
í GÆR skeði bað, er vélskipið
Aðalbjörg RE 5 var á leið til
fiskiveiða héðan frá Reykjavik,
að öxull bilaði í kælivatnsdæli
er skipið var komið út að bauju
9 hér í Flóanum. Aðalbjörg er
30 tonna skip. Gat skipið ekki
haldið áfram og bað Slysavarna
félagið 'um hjálp. Lagðist Aðal-
björg við festar og beið eftir
björgunarskipinu Gísla J. John-
sen, sem fór á vettvang um há-
degisbilið undir skipsstjórn Hann
esar Hafstein. Hingað til Reykja
víkpr var svo komið með Aðal-
björgu kl. rúmlega 15.00 í gær.
Golukaldi var, þegar skipið var
dregið til hafnar, en allt gekk
vel.
Kviknar í báti
í FYRRAKVÖLD um kl. 21
kviknaði í bátnum Dröfn frá
Dalvík þar sem hann var á drag-
nótaveiðum á Skagafirði út af
Málmey. Vélbáturinn Haraldur
fór út frá Hofsósi bátnum til
Nýr vegur hefur verið lcigð
ur yfir Hálfdán
Samgóngumál Bíldælinga
batna til
LAGNINGU á hinum nýja vegi |
yfir Hálfdán, sem liggur a milli |
Tálknaf jarðar og Bildudals er
nú senn lokiö. Allri vinnu með
jarðýtum er lokið, en eftir er að
fullbera ofan í veginn og ganga
frá honum að öðru leyti, og mun
því verki verða lokið eftir um
hálfan mánuð, miðað við að tið
verði góð.
Með tilkomu hins nýja og
glæsilega vegar gjörbreytist að-
stoð okkar Bílddælinga í s:un-
göngumálum. í staðinn fyiir
krókótta og holótta ruðninga,
sem lokuðust við fyrstu snjóa,
er nú kominn glæsilegur átta
metra breiður og upphækkaður
vegur alla leið, og mun hann
að vonum verða fær mest allt
árið miðað við sæmilega tið.
Yfir Hálfdán þurfum við Bíl-
dælingar að fara allt árið um
kring. T.d. er á Patreksfirði
sjúkrahús fyrir Barðastrandar-
sýslu, og hefur oft verið erfitt
að koma sjúklingunum yfir heið-
ina að vetrarlagi. Einnig eru á-
mtma
ætlunarferðir á vegum F.f. lil
Patreksfjarðar tvisvar til þrisvar
»í viku, og hafa þessar ferðir ver-
ið mikið notaðar hér, og muv.u
aukast ennþá með tilkomu þessa
nýja vegar.
Framkvæmdir við veginn
byrjuðu í júnímánuði, og hafa
mest allan tímann unnið við
hann fjórar stórar jarðýtur að
gerð vegarins ásamt 10—15
manna vinnuflokk undir verk-
stjórn Braga Thoroddsen. ,
hjálpar og tókst að slökkva eld-
inn í Dröfn. Vélbáturinn Frosti
frá Hofsósi var einnig að fara
út til hjálpar, er tilkynnt var að
tekizt hefði að ráða niðurlögum
eldsins. Hélt Haraldur síðan með
Dröfn til Sauðárkróks og komu
bátarnir þangað síðari hluta
nætur í fyrrinótt. Talsverðar
skemmdir urðu í vélarrúmi
Drafnar á leiðslum, en það tókst
að koma vél bátsins í gang eftir
að búið var að slökkva eldinn.
Mun ætlunin að Dröfn haldi til
Akureyrar til viðgerðar og kemst
þangað af eigin rammleik, að
því talið er. Annar bátur er
staddur á Sauðárkróki, einnig
frá Dalvík, og ekki talið ósenni-
legt að þeir verði samferða inn
á Eyjafjörð. Veður var slæmt
fyrir norðan í gær.
STAKSTEIMAH
Útvarpið og að-
gerðir kommúnista
Það fór sannarlega ekki fram-
lijá útvarpshlustendum að komm
únistar héldu ráðstefnu í Bifröst
um sl. helgi ásamt meðreiðar-
sveinum sínum í utanríkis- og "
varuarmálum. Naumast voru svo
lesnar útvarpsfréttir að ekki
væri þrástagazt á þessu ráð-
stefnuhaldi, svo merkilegt sem
það er, að kommúnistar hóa liði
sínu saman þetta árið eins og öll
ár önnur og fá sakleysingjana
sína til að skrifa upp á víxilinn
fyrir sig. Moskvuvíxillinn er orð-
inn þekkt plagg á fslandi, og er
ekki fremur nú en áður gjald-
gengt viðskiptabréf með þeim
nöfnum, sem á hann rita. En
ríkisútvarpið á að vera hlut-
laus stofnun og meta fréttir eftir
fréttagildi, en ekki pólitísku
áróðursgildi. Er þó engu líkara
en fréttastofa útvarpsins sé orð-
in útibú frá hinum svoköll-
uðu „samtökum hernámsand- >.
stæðinga".
Útvarpið og erlend-
ar fréttir
Raunar eru það ekki einungis
innlendu fréttirnar, sem mönn-
um finnst stundum litaðar stjórn-
málalega í fréttum rikisútvarps-
ins. Á það hefur verið bent, að
oft og tíðum finnist mönnum
einnig, sem erlendar fréttir út-
varpsins séu litaðar, og er þó
erfiðara um það að dæma, þar
sem hver og einn hefur ekki við
hendina þau gögn, sem fréttirnar
eru unnar úr. Hitt er auðvelt að
meta, þegar skrípalæti kommún-
ista, sem árlega eru endurtekin,
eru gerð að aðalfréttum í út-
varpi þjóðarinnar.
Syndih
200 m.
í staðinn fyrir mjóan og krókóttan veg yfir Hálfdán, sem venjulega varð ófær strax við fyrstu
snjóa er nú kominn þessi breiði og góði vegur. (Ljósm. V.B.O.).
Sigur iðnaðarins
í ritstjórnargrein Alþýðublaðs-
ins í gær, sem nefnist „Sigur
iðnaðarins" er fjallað um vanda-
mál iðnaðarins og þar segir m.a.:
„Margt hefur verið gert til að
styðja iðnaðinn á þessum sviðum,
ekki sízt með eflingu lánastofn-
ana hans. Hins vegar verða
stjórnendur hvers fyrirtækis að
meta hvort viðkomandi fram-
leiðsla er arðbær og hagstæð við
íslenzkar aðstæður án þeirrar
tollverndar, sem til skamms tíma
hefur verið. Á þessu mati byggist
velmegun fyrirtækjanna oft á
tíðum, og er þá rétt að hafa í
huga, að framleiðsla og neyzla i
bjargálna þjóðfélagi er og verður
stöðugum breytingum háð.
Iðnsýningin 1966 staðfestir
mesta sigur, sem íslenzkur iðn-
aður hefur unnið, sigurinn á
hinni rótgrónu tortryggni al- —
mennings gagnvart gæðum og
verði. Sýningin leiðir í ljós
mikla tækniþróun, sem almenn-
ingur þarf að beina inn á hag-
stæðustu brautir í framtiðinni.
Og hún minnir á ýms vandamál
samtíðarinnar, sem eru iðnaðin-
um þung í skauti, ekki síður en
öðrum atvinnugreinum.
Fáar þjóðir hafa náð góðum
lífskjörum án fjölbreytts iðnað-
ar. Iðnaðurinn á meginþátt í nú-
verandi velmegun íslendinga og
verður um langa framtíð ein af
undirstöðum þjóðarhags".
IÐNISYNINGIN
w
Kaupum íslenzkar
iðnaðarvörur