Morgunblaðið - 07.09.1966, Blaðsíða 30
30
MORGU N BLAÐIÐ
Miðvlkudagur 7. sept. 1966
KR-ingar mæta bezta
félagsliði Frakka í kvöld
! Franska liðið hefur ekki tapað
leik í haust — Finnst kalt hér
en móttökurnar þeim mun
hlýrri
f DAG KL. 7 síðdegis hefst leik
ur KR og Frakklandsmeistaranna
Nantes F. C. en það er fyrri leik-
nr liðanna í 1. umferð keppn-
innar um Evrópubikar meistara-
liða.
Eins og tekið hefur verið fram
er lið Nantes eitt sterkasta félags
lið Mið-Evrópu nú, vann Frakk-
landsmeistaratitilinn tvö s.l. ár
og nú síðasta með miklum yfir-
burðum. Þrír þeirra er í kvóld
leika i Laugardal, voru í liði
Frakka á lokakeppni um heims-
meistaratitil í Englandi í júlí og
2 aðrir með í sömu för, þó þeir
ekki léku í úrvalsliði Frakka
þá. *
Hlýjar móttökur.
Frakkarnir komu til landsins
í fyrrinótt og tóku létta æfingu
á velli KR í gærdag. Þó kalt væri
og hráslagalegt og æfingin alls
ekki til þess að sýna fulla getu
leikmanna, mátti sjá knatttækni
listir sem næsta sjaldséðar eru
og yfirleitt byggðist öll þessi
létta æfing liðsins á hraða.
Með aðstoð Alberts Guðmunds
sonar lögðum við nokkrar spurn
ingar fyrir forseta félagsins, sem
er aðalfararstjóri.
Hann rómaði mjög móttökur
hér og einnig hinn fullkomna að
búnað á Loftleiðahótelinu. Hann
kvað leikmönnum hafa brugðið
nokkuð í brún við nepjuna nér,
því þeir hefðu verið suður á
Spáni í síðustu viku og þar hefoi
verið allheitt. En liðsmenn væru
hins vegar alls ekki óvanir kulda
í leikjum sínum í Frakklandi vf-
jr vetrarmánuðina.
■fc Hafa ekki tapað leik í haust.
Hann sagði liðsmenn alla
vera komna í fulla þjálfun.
Sumarleyfum leikm. hefði
lokið 20. júli og siðan hefði
verið þjálfað af fullum krafti.
Deildakeppnin í Frakklandi
er hafin og hefur Nantes leik-
ið 5 leiki. Hefur liðið unnið 4
þeirra en einn orðið jafntefli
og er Nantes þegar orðið eitt
sér í forystu í 1. deildinni
frönsku með 9 stig.
Þjálfarinn skipti leikmönnum
í tvö lið sem reyna áttu samspil
og að skora mörk á litlum hand-
knattleiksvelli. Þannig þjálfá þeir
liðsmenn sína í spili við þröngar
aðstæður — því handknattleiks-
völlur er ekki nema brot af knatt
spyrnuvelli.
ár Liðin.
Báðir aðilar hafa valið lið sín
sem mætast í kvöld. Lið KR er
þannig skipað — og það byggir
leik sinn á 4-2-4 kerfinu.
Markvörður: Guðm. Pétursson.
Vörn: Kristinn Jónsson, Ársæll
Kjartansson, Þórðui; Jónsson og
Óskar Sigurðsson.
Miðjumenn: Eyleifur Hafsteins-
son, Ellert Schram.
Sóknarmenn: Baldvin Baldvins-
son, Jón Sigurðsson, Gunnar
Felixson og Hörður Markan.
Varamenn eru Heimir Guð-
jónsson, Einar ísfeld og Bjarni
Felixson.
Lið Frakklandsmeistaranna er
þannig skipað:
Markvörður: Castel.
Bakverðir: Le Chenardec og De
Michele.
Framverðir: Röbin, Budzinski og
Suaudeau.
Framherjar: Blanchet, Kovacevic
Gondet, Simon og Prou.
Þeir Budzinski miðvörður,
Gondet miðherji og Simon léku
með franska landsliðinu í heims-
meistarakeppninni í Englandi.
Ef að líkum lætur sýnir þetta
franska lið áhorfendum beztu
tegund knattspyrnu. Er
svo sjaldgæft að svo góð lið sem
Nantes komi hingað, að
enginn sem áhuga hefur á knatt-
spyrnu ætti að láta slíkt tæki-
færi, sem nú gefst til að sjá lið-
ið, fram hjá sér fara.
I nnanf élag smót
KR í frjálsum
INNANFÉLAGSMÓT hjá Frjáis
íþróttadeild KR fer fram n.k.
fimmtudag og föstudag.
A fimmtudaginn verður keppt
í fimmtarþraut kvenna fyrri
hluta og 110 m. grindahl., há-
stökki og kúluvarpi karla og
hefst kl. 17.30. Á föstudaginn
verður keppt í síðari hluta
fimmtarþrautarinnar og 100 m.
hl. karla og hefst kl. 17.00.
Frönsku félagarnir í Nantes, sem léku í liöi Frakka á heims-
meistarakeppninni í Englandi, voru á æfingu liðsins í gær á KR.
svæðinu voru beðnir að „sitja fyrir“. Þeir stilltu sér þannig upp.
Það er Gondet miðherji sem heldur á Budzinski miðverði og inn-
herjinn Simon er til hægri. — Ljósm. Sveinn Þormóðsson.
Einn bezti kúluvarp-
ari heims hingaö
1 DAG er væntanlegur hingað
til lands einn bezti kúluvarpari
heimsins, Bandaríkjamaðurinn
Neal Steinhauer. Hann kemur
hingað að aflokinni keppnisför
um Norðurlönd. Dvelst hann
hér í nokkra daga og veitir isL
kösturum tilsögn.
Steinhauer er sem fyrr segir
einn af mestu afreksmönnum
Gísli Halldórsson forseti I.S.l. setur íþróttaþingið í Góðtemplarahúsinu á Isafirði. Við lrá-
borðið sitja frá v. Hermann Guðmundsson framkv. stjóri l.S.l. Þorsteinn Einarsson íþróttafull-
trúi, sem flutti erindi um æskulýðsstarf, Guðjón Einarsson varaforseti, Ben. G. Waage heiðurs
forseti, Birgir Kjaran form. OL-nefndar og Björgvin Sighvatsson forseti bæjarstjórnar Isa-
fjarðar.
Einróma samþykkt iþróttaþings á ísafirði:
fþrdttamiðstöð rísi að Laugarvatni
ÍÞRÓTTAÞINGIÐ sem haldið
var á Isaíirði um lieig.ua gevöi
margar tillögur sem getið verð
ur á næstunni. Ein hinna merk-
ustu fjallaði um íþróttanuóstöð
l.S.l. og er þannig:
Iþróttaþing LS.Í 1966 lýsir
yfir stuðningi sínum vió undir-
búning þann, sem hafinn er, til
að koma upp sumanþruuamiö-
stöð á Suðurlandi.
Heimilar þingið framkvæmda
stjórn að halda þeim undirbún-
ingi áfram og ráðast í bygging-
ar og aðrar nauðsynlegar fram-
kvæmdir við að koma upp sum-
ariþróttamiðstöð að Laugar-
vatni, náist viðunandi samning-
ar við þá aðila, sem þar eiga
hlut að máli.“
Fjölrituð greinargerð fylgdi
tillögunni, sem og öllum öðrum
tilögum er lágu fyrir þinginu
frá framkvæmdastjórninni. Sá
háttur, sem mun næsta sjald--
gæfur, gerði ásamt öðrum góð-
um undirbúningi þingsins, sem
Hermann Guðmundsson fram-
, kv.stj. á mestan heiður af, flýtti
i mjög fyrir þmginu og átti smn
■ þátt í að þetta mun starfsam-
asta íþróttaþing að minnsta
kosti um langt skeið. 1 greinar-
gerðinm segir svo m.a.
Eins og uam kemur í skýrslu
framkvæmdastjórnar, er þegar
búið að ákveða íþróttamiostóð
fyrir vetraríþróttir á Akureyri.
En það var einróma álit síðasta
formannaíundar að stefna bæri
að því að koma upp minnst
tveimur íþróttamiðstöðvum, sem
, væru styrktar eða reknar af ÍSÍ.
Iþróttamiðstööin á Akureyri
| verður rekin af ÍBA, en að ein-
hverju leyti styrkt af' ÍSÍ, t.d.
með því að kosta kennara á viss
námskeið ,sem haldin yrðu fyrir
Skíða- eða skautaíþróttina.
Öðru máli gegnir um þá
íþróttamiðstöð sem reisa á sunn-
anlands. Þegar rætt hefur verið
um hana, hefur ávallt verið talið
rétt og nauðsynlegt að ÍSÍ kost-
aði þá miðstöð að öllu leyti, enda
Framhald á bls. 22
Nel Steinhauer varpar kúlunnL
heims í kúluvarpi. Hann hefur
lengst varpað 20.44 m. en heims
met landa hans Randy Matson,
er 21.51.
Steinhauer sem er 22 ára, er
einnig góður kringlukastari,
kastar um 58 m.
Sænskur þjálfari er hér hefur
starlað hafði milligöngu um að
Steinhauer hefði nokkra daga
viðdvöl hér. Hann mun veiva
frjálsíþróttamönnum tilsögn og
einnig að likindum taka þótt í
móti, sem enn er þó ekki ákveð-
ið.
SYNDIÐ
200 metrana