Morgunblaðið - 07.09.1966, Page 10

Morgunblaðið - 07.09.1966, Page 10
10 MORGUNBLAÐI0 i Miðvikudagur 7 sept. 1966 Haukur Eggertsson: Umbúðir og um- bdðaframleiðsla greinum jafn mikilsverð og þeir eru henni. í þessu sem öðru er hver öðrum háður. Enginn þátt- ur athafnalífsins getur staðið einn og óstuddur án hinna. leiddum umbúðum verða dósa- framleiðsla hjá Blikksmiðju Péturs Jónssonar, er hóf fram- leiðslu á þeim með sérstökum vélum árið 1907. Árið 1928 stofn- aði sama fyrirtæki, er þá hét Blikksmiðja J. B. Péturssonar, Tunnuverksmiðjuna. Framleiddi hún trétunnur með blikktunn- um innan í, og voru þær gerðar til útflutnings á lýsi. Þessi fram- leiðsla lagðist þó brátt niður. Sömu aðilar stofnuðu Stáltunnu- gerðina 1922, einnig til lýsis- tunnuframleiðslu, en nú er starf semi hennar hætt. Kassagerð Reykjavíkur h/f var stofnuð Umbúðir á Iðnsýningu. Á Iðnsýningunni 1966, sem nú stendur yfir, sýna flestir aðal- umbúðaframleiðendurnir vörur sínar. Eru það eftirtalin fyrir- tæki: Dósaverksmiðjan h/f sýnir margar gerðir af lakkbornum blikk- og áldósum, áletruðum og skreyttum, — einnig óáletraðar — fyrir niðursuðu, málningu o. m. fl. Etna h/f sýnir ölduflösku- hettur frá öllum öl- og gos- drykkjaverksmiðjunum, en starf semi hennar einskorðast við þá framleiðslu. Kassagerð Reykjavíkur h/f sýnir bylgju-pappakassa, pappa- öskjur og límmiða í mjög fjöl- breyttri litprentun (Offset og Letterpress) fyrir innlenda iðn- aðarframleiðslu og útflutnings- vörur frystihúsanna, ásamt mjólkurumbúðum, er m.a. hafa verið teknar í notkun á Akur- eyri og Keflavíkurflugvelli. Plastprent h/f sýnir fjölbreytt úrval af plastpokum, plastdós- um, pappírspokum, sellofanpok- um og öðrum umbúðum úr ál- þynnum (alúmínium foil), sello- fan og umbúðapappír í anilín- prentun. Sigurplast h/f sýnir mikið úr- val af plastdósum, plastflöskum og öðrum umbúðum úr plasti, — prentað sem óáprentað. Stálumbúðir h/f sýna stál- tunnur í mismunandi stærðum til útflutnings á meðalalýsi, svo og- bakka úr áli og ryðfríu stáli fyrir matvælaiðnaðinn. Við yfirsýn áhorfenda hljóta þeir að veita athygli hinni miklu fjölbreytni í íslenzkri umbúða- framleiðslu. >eir hljóta einnig að sjá, hve víða innlendar umbúðir skreyta vörur annarra framleið- enda. Nú verða framleiðendur flestra vörutegunda, einkum hinna svokallaðra neyzluvara, að fullganga frá þeim til af- HUGTAKIÐ umbúðir mun fyrst og fremst fela í sér efni eða hluti gerða til varðveizlu eða flutnings vöru eða annarra hluta. Frumtilgangurinn er því hag- nýts eðlis, þótt viðleitni til samræmingar fegurðar og til- gangs hafi snemma komið til sögu. Áður fyrr voru umbúðir meira í formi íláta, enda var framleiðsla þeirra til skamms tíma kölluð ílátasmíði í íslenzku máli. í formi íláta hafa um aldir verið framleiddir skrautmunir og listaverk, sem að öðru leyti höfðu takmarkað hagnýtt gildi. Gerð og framleiðsla umbúða hefur tekið miklum breytingum og framförum hin síðari ár með •tilkomu nýrra efna og aukinnar kröfu um hagnýtt og viðskipta- legt gildi þeirra. Hið hagnýta gildi miðast fyrst og fremst við varðveizlu vörunnar, er þær hafa að geyma, en hið við- skiptalega að vekja athygli á henni og notagildi hennar á smekklegan hátt. Fyrr á tímum mun úmbúðar- eða ílátasmíði að mestu hafa vérið unnin á verk- stæðum í smáum stíl, eða sem heimilisiðnaður, en nú hin síðari ár sem stórfelld verksmiðjufram leiðsla. Upphaf innlendrar umbúða- framleiðslu. Umbúðaframleiðsla í nútíma- mynd á sér ekki langa sögu á íslandi. Ílátasmíði, eins og það hugtak mun almennt skýrt, er þó mjög gömul, — en sem sjálf- stæð iðn eða atvinnurekstur er beykisiðn lang elzt. Samkvæmt heimildum í Iðnsögu íslands hafa fslendingar fyrst lært beykisiðn á dögum einokunar- verzlunarinnar og í fyrri heim- styrjöldinni voru trétunnur framleiddar hér í stórum stíl, á þess tíma mælikvarða, til út- flutnings á íslenzkum afurðum. Sú smíði mun þó fyrst og fremst hafa verið handverk, en fyrstu tunnugerðarvélarnar voru flutt- ar til landsins árið 1915 af Pétri Bjarnasyni, beyki, og sonum hans, Tryggva og Bjarna. Nú mun beykisiðn að fullu vera lið- in undir lok, nema þá samseteig á síldartunnum á Siglufirði og Akureyri. Að beykisiðn frátalinni mun fyrsti vísir að verksmiðjufram- 1932, en í raun hóf hún störf tveim árum fyrr. Upphaflega miðaðist framleiðslan við tré- kassa fyrir niðursoðna mjólk, smjörlíki og fisk til útflutnings, en verksmiðjan varð brátt að breyta til, því að nú hafa bylgju pappakassar og pappaöskjur leyst trékassana af hólmi. Pappírspokagerðin h/f og Dósa- verksmiðjan h/f fylgdu brátt 1 kjölfarið. Síðan hafa nokkur önnur umbúðafyrirtæki bætzt við og víkkað svið þessarar grein ar. Á hinum tiltöllega stutta tíma frá því að umbúðafram- leiðsla hófst hérlendis sem at- vinnugrein, hafa orðið stórstíg- ar breytingar og framfarir. Umbúðir og pökkun eru orðin mjög mikilvægur þáttur í við- skiptalífi nútíma þjóðfélags og til þeirra gerðar miklar kröfur. Veltur því á miklu, að umbúða- framleiðendur séu færir um að uppfylla þær kröfur, enda er notendum umbúða ljóst, hvílík- um úrslitum smekklegur frá- gangur á vörum getur valdið i harðri samkeppni frjálsra við- skipta. Innland umbúðafram- leiðsla er því öðrum atvinnu- greiðslu til neytenda. Tími hand pökkunar og uppvigtunar i verzlunum er liðinn, — og tími afgreiðslu á flestum tegundum fatnaðar úr hillum verzlana, þar sem hann lá óvarinn og velktur, er einnig liðinn. Nú verður sérhver hlutur að vera frágenginn á smekklegan og hreinlegan hátt. Það er hætt að vélarkosti, þar sem lánamögu- leikar eru stundum litlu meiri en nemur áðurnefndum gjöld- um. Fjármagnsnýting verður bví mjög slæm og eykur reksturs- kostnað fyrirtækja óeðlilega mikið. Segja má, að verulegur, hluti umbúða, er landsmenn nota, sé nú framleiddur innan- lands. Nokkuð vantar þó á, og tína nokkra brjóstsykurmola eða kexkökur upp úr búðar- skúffum með höndum í kramar- hús. Hreinlætiskröfur nútímans leyfa ekki slíkt, — neytendur kaupa ekki slikar vörur. Frá- gangur vörunnar, útlit og geymsluhæfni, verða að miðast við kröfur neytenda, því að þeir ráða, þegar miðað er við eðli- lega viðskiptahætti. Samkvæmt þessu verða not- endur umbúða að haga sér og eftir því verða framleiðendur umbúðanna að fara. í frjálsri verzlun tjáir ekki að segja: „Þú skalt hafa þetta eða ekkert“. — Á næsta götuhorni er önnur verzlun, sem fólk getur snúið sér til. Þó finnast enn nokkrar und- 'antekningar frá þeirri reglu, (sem sanna ágæti hennar)! Lítil tollvernd Að loknum ofangreindum hug- leiðingum mætti spyrja: Hvar stendur íslenzk umbúðafram- leiðsla í hinni hörðu verð- og gæðasamkeppni við erlendar umbúðir nú á tímum frjáls inn- flutnings? Að sjálfsögðu á hún nokkuð erfitt uppdráttar, enda er hér yfirleitt um að ræða ung og fjár magnslítil fyrirtæki, og mikill hluti umbúða nýtur engrar eða lítillrar tollverndar. Vélar til umbúðagerðar eru mjög dýrar og krefjast oft örrar endurnýjun ar vegna sífelldra breytinga á umbúðum, — og nýrra, er ryðja þeim eldri úr vegi. Samanlögö gjöld af innfluttum iðnaðarvél- um er hér almennt 35%. Rýrir þetta mjög getu fjármagnslítilla iðnrekenda til að búa sig góðurn er það einkum, þar sem þörf er dýrra véla. Núverandi tolla- og skattalöggjöf hindrar þetta i vissum mæli, — og svo í sumum tilvikum ónógur markaður. Nauðsyn vörukynninga. f heild á íslenzkur iðnaður nú mjög í vök að verjast fyrir er- lendum varningi, sem hóflaust er fluttur inn og auglýstur í mun ríkara mæli en íslenzkir framleiðendur geta almennt veitt sér. Það hefur lengi legið í landi ótrú á því, sem innlent er. Stundum hefur þetta átt rétt á sér, en oft ekki. Iðnsýning sem þessi, er nú stendur yfir, þar sem sýndar eru aðal framleiðslu vörur iðnaðarins, er líklegust til að eyða tortryggni, því að þar geta neytendur kynnt sér á hlut lægan hátt fjölbreytt vöruval og gæði þess. Einnig er nauðsyn- legt fyrir hina einstöku iðnrek- endur að kynnast vel fram- leiðslu annarra með það fyrir augum að geta notað þeirra framleiðsluvörur til sinnar eigin starfrækslu. Hin síðari ár er verkaskipting í iðnaði og samvinna á milli fvr- irtækja að færast mjög í vöxt. Hvað umbúðaframleiðsluna varðar, þá er henni sérstök nauð syn kynningar gagnvart öðrum framleiðendum og dreifendum. Umbúðir eru orðnar all stór lið- ur í rekstri annarra framleið- enda og verzlana. Er því mikils um vert, að þær séu valdar af kostgæfni. En þótt góðar um- búðir séu oft dýrar, verða þær venjulegast ódýrari í raun vegna miklu betri varðveizlu vörunnar og aukinnar söluhæfni. MUNA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.