Morgunblaðið - 07.09.1966, Side 21
Miðvikudagur 7. sept. 19C6
MORGUNBLAÐIÐ
21
B/acksi Decken
IJtsölustaðir:
Málning & Járnvörur
Laugavegi 23, Rvík.
Slippfélagið verzlun
Mýrargötu, Rvík.
Valdimar Paulsen verzlun
Klapparstíg 29, Rvík.
O. Eliingsen hf.
Hafnarstræti 15, Rvík.
Byggingavörur
Laugavegi 176 ,Rvík.
Byggingavöruverzlun
Kópavogs.
Axel Sveinbjörnsson
Akranesi.
Atlabúðin
Strandgötu 23, Akureyri.
Háaleiti, verzlun
Hafnargötu 90, Keflavík.
Elís Guðnason
Eskifirði.
IHagni, verzlun
Vestmannaeyjum.
G. ÞORSTEINSSON 8 JOHNSON H.F.
Ármúla 1 - Grjótagötu 7
Simi 2-42-50
Austfirzkir ökumenn!
Stofnfundur
Klúbbsins ÖRUGGUR AKSTUR á Aust-
fjörðum, verður haldinn í Valaskjálf,
Egilsstöðum, föstud. 9. sept. n.k. kl. 21.
Á fund þennan, sem boðaður var skriflega
á s.l. hausti, en varð að fresta, eru hér með
endurboðaðir allir þeir, er hlotið hafa við-
urkenningu Samvinnutrygginga fyrir ör-
uggan akstur.
Dagskrá fundarins:
1. Ný afhending viðurkenningar fyrir
öruggan akstur.
2. Framsaga og umræður varðandi
stofnun nýrra samtaka í umferð-
aröryggismálum.
3. Kaffiveitingar.
4. Umferðarkvikmynd.
Baldvin Þ. Kristjánsson og Gunnar Sig-
urðsson mæta frá Aðalskrifstofunni.
Viðkomandi ökumenn! Fjöímennið á
fundinn.!
Samvinnutryggingar.
sýn-
ing
ÞÁ befur verið opnuð fjórða
sýningin í Unuhúsi við Veghúsa-
stíg, og nú er það Hafsteinn
Austmann með ný verk á ferð-
inni. Ragnar Jónsson hefur færzt
mikið í fang með þessum sýning-
arsal, og vonandi verður fyrir-
tækið honum ekki ofviða. Það
er annars óþarfi að velta vöng-
um yfir því, þar sem Ragnar hef-
ur oft lyft Grettistökum í lista-
lífi þessarar borgar, og hér er
hann á ferð með sérstaklega
þarft fyrirtæki, sem hann verður
ekki nógsamlega virtur fyrir.
Eins og öðrum sýningum í
Unuhúsi, þá fylgir þessari sér-
staklega vönduð sýningarskrá
með litprentun af einu listaverki
og ljósmynd listamannsins, og nú
er það Þorsteinn frá Hamri er
tekið hefur saman textana. Þessi
háttur Ragnars er einnig ómet-
anlegur og ætti að verða öllum
til ánægju.
Tuttugu og sex málverk eru á
þessari sýningu Hafsteins Aust-
manns, og eins og áður segir, eru
það eingöngu ný verk, er hann
sýnir að sinni. Hafsteinn hefur
alltaf vakið nokkra athygli með
verkum sínum, og það er því
skemmtilegt að geta sagt um
þessa sýningu, að hún sé fremri
þeim er hann hefur áður látið
frá sér fara. Þessi verk eru yfir-
leitt með léttari svip en áður var
hjá Hafsteini, og ég held mér
sé óhætt að segja, að hann sé
rómantískari nú í verkum sínum
en áður. Hann er ekki mikill
átakamaður í list sinni, og á það
bæði við litameðferð og form. Sá
heimur, er hann hrærist í er
samfelldur og áferðarhreinn, auð
skilinn og tær. Hafsteinn teflir
saman litum með næmleik og
leikni, en honum er það ekki
gefið að skapa sterkar andstæð-
ur, sem gefa verkinu dýpri merk-
ingu og tilþrif. Þegar Hafsteinn
vinnur í gráum og léttum tón-
um, finnst mér hann ná beztum
árangri, og ég sé ekki betur en
að einmitt þetta atriði sé í deigl-
unni hjá listamanninum. Það eru
mjög samstillt verk, er Hafsteinn
sýnir í Unuhúsi, og gefur það
sýningu hans heilan og persónu-
legan blæ, og það er enginn vafi
á, að hann hefur ýmislegt, er
hann getur sannarlega kallað sitt
eigið. Ég er hér sérstaklega að
tala um litameðferð hjá Hafsteini
Austmann, sem ég held að sé
hans sterkasta einkenni.
Það er ánægjulegt að sjá, þeg-
ar ungir listamenn sýna það í
verki, að þeir vinna af alvöru
og dugnaði. Það gerir Hafsteinn
Austmann, og þótt mér finnist
þessi sýning nokkuð misjöfn á
köflum, þá er það mest um vert,
að Hafsteinn Austmann hefur
sannað, að hann er í framför sem
listamaður, og ég held, að allir
aðilar geti vel við það unað. Ég
skora á þá, sem ánægju hafa af
myndlist, að sjá þessa sýningu
í Unuhúsi, og ég veit, að það
munu margir hafa ánægju af.
Valtýr Pétursson.
Saigon, 3. september — NTB.
EINN leiðtoga Viet-Cong var í
gær handtekinn á flugvellinum
í Saigon, er hann hugðist stíga
um borð í farþegaflugvél, sem
var í þann veginn að leggja .af
stað til Danang. Á manni þess-
um fundust skjöl, sem sýna, að
hermdarverkamenn kommún-
ista hafa lagt á ráðin um
skemmdarverk, er gengið verð-
ur til kosninga í S-Vietnam
síðar í haust.
m>ouAi»»
hjólbarðar fyrir allan akstur.
HI-MILER
Veitingahúsið Askur
SUDURLANDSBRAUT 14
býður yður
smurt brauð, snittur
og samlokur
PANTANIR í SÍMA 38550.
Skólatöskur
Skólapeysur
Skólabuxur
Skólaskyrtur
Mærföt
Miklatorgi — Lækjargötu 4.
Akureyri — Vestmannaeyjum.
Akið á Good Year dekkjum.
Laugavegi 170—172. — Símar 13450 og 21240.
XTRA-GRIP dekkin gefa 25%
roeiri spyrnu. Framleidd úr
úrva'ls gúmmíi og endast því
lengur. XTRA-GRIP dekkin
eru munstruð af nákvæmni
til þess að aksturinn verði
þýðari, en veiti aukna spyrnu
þegar mest á ríður.
Fyrirliggjandi: 750x16.
GOOD/YE4R
Fleiri aka á Good Year en nokkrum öðrum dekkjum
P. Stefánsson hf.