Morgunblaðið - 12.10.1966, Side 4
4
MORCUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 12. okt. 1966
BÍLALEIGAN
FERÐ
SÍMI 34406
SEN DU M
MAGNUSAR
skipholti21 símar21190
eftir lokun simi 40381
1-44-44
mniF/Difí
Hverfisgötu 103.
Daggjald 300
og 3 kr. ekinn km.
Benzín innifalið.
Sími eftir lokun 31100.
LITLA
bíloleigon
Ingólfsstræti 11.
Sólarhringsgjald kr. 300,00
Kr. 2,50 ekinn kílómeter.
Benzin innifalið í leigugjaldi
Sími 14970
Bifreiðaleigan Vegferð
Sími 23900.
Sólarhringsgjald kr. 300,00.
Kr. 3,00 pr. km.
BÍLALEIGAN
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
BÍLALEIGA S/A
CONSUL CORTINA
Sími 10586.
BÍLALEIGA H A R Ð A R
Sími 1426 — Keflavík.
Lækkað verð.
BíLALEICAN
mm—BiLALEI
Falur
Kr. 2,50
á ekinn km.
300 kr. daggjald
RAUÐARÁRSTlG 31
Sl’MI 22022
Málflutningsskrifstoía
JON N. SIGLRÐaSON
Simi 14934 — Laugavegi 10
böTc~h
Háspennukefli
t/k
6 volt
\'í volt.
Brœðurnir Ormsson
Lágmuia 9. — Sinji 36620.
-k Sumargestir
á fjöílum
Ég var að fá nýjasta Speg-
ilinn í hendur. Ég rakst þar á
tvö ljóð, sem þið hefðuð e. t. v.
gaman af að sjá. í>að fyrra er
um sumargesti á fjöllum:
Um hásumarshelgar allar
hamslaus útþráin kallar,
þótt bæði sé blautt og hvasst,
þá til fjalla menn fara,
farnesti hvergi spara,
bæði fljótandi og fast.
Uppi á öræfaleiðum
ekki sérlega greiðum,
hossast þeir lengi og hátt,
öðlast unað og gæði,
enda þótt stormur næði,
og rigni af ýmsri átt.
Mörg eru og augljós merki
hvar mannskepnan er að verki
þar sem um fold hún fer,
eygja má æði vfða
áningarstaði prýða,
blikkdósir, bréf og gler.
Hrollköldu sumri hallar,-
hraunslóðir teppast allar,
hörfa þá fjöllum frá
velktir og votir hópar,
og veturinn þvær og sópar
öræfin eftir þá.
Balli
-k Þegai þeir lokuðu
fyrir vatnið
Hitt Ijóðið er ort í tilefni
átaka þeirra, sem urðu á Seyð
isfirði um neyzluvatn staðar-
manna:
Illt er að mega þola þorsta,
þetta er að nálgast kvalalosta,
sötra ég tóman séniver,
sárt að innan kokið er,
og brunnið er gat á magann
í mér.
Miklu finnst mér eiga til að
kosta.
Þetta er alveg ódrekkandi,
óblandaður spírafjandi.
Ólgar og síður oní mér
eins og Deildartunguhver
samanþjappaður séniver
Svona nokkuð er bannað í
frjálsu landi.
Fógetinn þarf að fara að spana
um fjörðínn til að opna krana
áður en komið verður ver,
ég veit ekki nema kvikni í mér.
Já, fógetinn ætti að flýta sér
að finna vatnsveituna og kunna
á hana.
S.R.
-k Öryrkjaheimili
Ingibjörg Þorgeirsdóttir
skrifar:
„Nýlega hefur verið hleypt
af stokkunum, á okkar mæli-
kvarða, umfangsmiklu og dýru
leikfangi, þar sem er íslenzka
sjónvarpið.
Þetta nýja leikfang, sem fólk
ið hefur nú eignazt til viðbót-
ar við öll hin, sem fyrir voru,
getur eflaust orði'ð mörgum til
dægrastyttingar og vonandi
líka til nokkurrar fræðslu og
menntunar. Og hversu hratt og
rösklega hér var að verki geng
ið til að hrinda þessu í fram-
kvæmd, er eitt augljóst dæmi
þess, hvað hægt er að gera,
þegar fyrir hendi er mikill á-
hugi, ósérhlífni og dugnaður.
Og þá ekki síður hitt, hversu
almenningur getur lagt ótrú-
lega mikið af mörkum peninga
lega, þegar svo ber undir. í>að
sýndi sig glöggt í þessu til-
viki, og hefir sýnt sig í ýmsum
öðrum, þegar til hans hefur
verið höfðað fyrir einhverra
hluta sakir.
Og nú langar mig til að
minna almenning á, að einmitt
um þessar mundir hefur verið
hafizt handa um merkilegar
framkvæmdir, kannske engu ó-
merkari en sjónvarpið, en þa'ð
er bygging öryrkjaheimilisins,
sem Öryrkjabandalagið hefir
gengizt fyrir, að verði reist
við Suðurlandsbraut; án efa
eitt gagnmerkasta spor, sem
stigið hefur verið í öryrkja-
málum okkar til þessa, fram-
kvæmd, sem hundruð vanheilla
einstæðinga horfa á með von
og þrá. En hér þarf mikið
fjármagn, sem meðal annars,
að einhverjum hluta gæti kom
ið sem gjafir frá einstakling-
um, sem vildu flýta fyrir, að
þessi draumur öryrkjanna
verði að veruleika. Og þörfin
fyrir, að einhver hluti bygg-
ingarinnar komist upp hið
fyrsta, er ótrúlega brýn. Það
vitum við, sem til þekkjum".
★ Sjálfsbjörg og
Styrktarfélag
lamaðra
„Jafn brýn þörf, og ef til
vill enn brýnni, er „Sjálfs-
björgu", félagi fatlaðra, á að
koma upp sinni æfingastöð og
vistheimili, sem einnig er ætl-
aður staður við Suðurlands-
braut, skammt frá byggingu
Öryrkjabandalagsins. „Sjálfs-
björg“ hefir þegar byrjað á
þessu stóra verkefni, sem í
raun og veru þolir enga bið,
og ætti ekki síður að vera á-
stæða til að koma upp „með
hraði" en t. d. flugvallarhó-
teli. „Sjálfsbjörg er félag fatl-
aðs fólks, sem nú skiptir hundr
uðum á landinu. Og alltaf bæt
ast vi'ð nýir í þann hóp vegna
slysa og lamana af ýmsum or-
sökum.
Til er einnig annað félag,
„Styrktarfélag lamaðra", sem
um mörg ár hefur af dugnaði
rekið æfingastöð fyrir fatlað
fólk hér í bæ. Nú hefir flog-
ið fyrir, að það hafi í hyggju
að færa sína gömlu stöð og
byggja á nýjum stað. Af sjón-
arhóli hins almenna borgara
væri þá eðlilegt, að þessi tvö
félög, þessir samherjar, tækju
höndum saman um að koma
upp Jiinni nýju stöð við Suður
landsbraut, að „Styrktarfélag
lama'ðra" flytti starfsemi sína
þangað og ætti hluta af hinni
nýju æfingastöð „Sjálfsbjarg-
ar“. Með því yrðu líkur fyrir,
að þessi nauðsynjastofnun kæm
ist miklu fyrr upp en ella og
bæði stærri og fullkomnari en
annars yrði. Auk þess má gera
ráð fyrir, að heildarrekstur
stöðvarinnar yrði þá bæði hag
kvæmari og ódýrari, t. d. hvað
varðar nýtingu starfsmanna-
liðs, æfingatækja o. s. frv.
Við íslendingar erum of fáir
og smáir til þess að sundra
okkur í smáhópa um eitt og
sama málefnið, og þá í raun
og veru um einar og sömu fram
kvæmdirnar, a'ð minnsta kosti
í þeim málum, þar sem segja
má, að líf og velferð margra
liggi við.
Ingibjörg Þorgeirsdóttir
-k Meiia drukkið
en sungið ?
Lesandi skrifar:
„Heiðraði Velvakandi.
Ég gat nú ekki orða bundizt
þegar ég sá þessa setningu i
Mbl. í dag, laugardag. „Til að
bæta fyrir óforsjálni sína
sigldi skipstjórinn til Gíbralt-
ar, þar sem vínbirgðir voru
endurnýjaðar og fslendingar
tóku aftur gleði sína“.
Það hefur líklega flestum
þótt það ágætis árangur að
drekka upp fimm daga vínbirgð
ir á tveim dögum — meira að
segja íslendingum. Annars ætl
aði ég nú ekki að ræða það
mál frekar, heldur bara a’ð
segja það, að það er ófært að
kenna skipstjóranum um ófor-
sjálni, þótt hann hafi ekki
reiknað með því, að fslending
ar myndu ekki nota þessa för
til annars en drykkjuskapar,
svo þetta er eiginlega orðin
meira drykkjuför en söngför“.
Lesandi.
Einbýlishús
í Fossvogi
Lóðahafar einbýlisliúsa í Fossvogi. — Fundur verður
haldinn í Hótel Sögu, innri sai, fimmtudaginn 13.
þ.m. kl. 8,30 e.h.
Rædd sameiginleg framkvæmdamál lóðahafa.
Jón Bergsson, verkfr. mætir á íundmum og gefur
upplýsingar um möguleika á byrjunarframkvæmd-
um.
Undirbúningsnefnd.
l'ngl!ngar
piltar eða stú'kur
óskast til sendiferða hálfan eða
allan daginn.
HF. Eimskipafélag íslands
Afgreiðslustúlka
óskast
MOKKO-KAFFI
Skóiavörðustíg 8. — Sími 23760.
Vil|um ráða
járniðnaðarmenn
Stálver
Súðavogi 40. —
Sími 33-2-70.
Lyfjoverzlun ríkisins
óskar að ráða karlmann og konu til afgreiðslustarfa.
Upplýsingar á skrifstofunni, Borgartúni 7, fimmtu-
daginn 13. október, kl. 10—12 f.h.