Morgunblaðið - 12.10.1966, Page 10
10
MORGUNBLADIO
Miðvikudagur 12. okt. 1966
Söknuður kvcðinn að
hundaeigendum í Kópavogi
~ , - * >//■& 'fryjF' ~ 'Wmm
„Hundagreyin gera ekkert mein"
HUNDAHALD hefur verið
bannað í Reykjavik með lög-
um siðan 1924. Aðalástæðan
fyrir banninu mun hafa
verið sullaveikin, sem á þeim
árum grasseraði mjög í höfuð
borginni og víðar á landinu.
Einnig mun sóðaskapur og
ólæti af dýrunum hafa vald
ið nokkru um bannið. Það
er ekki oft sem hundar sjást
á götum Reykjavíkurborgar,
mun tíðari er sjónin í Kópa-
vogi, enda var hundahald
fyrst bannað þar löglega
1958, þrem árum eftir að
Kópavogur fékk kaupstaðar-
réttindi.
Undanfarið hefur mikið
verið rætt og ritað um hunda
hald í þéttbýli, og eru skoð-
anir manna í þeim efnum sem
öðrum mjög frábrugðnar. —
4. ágúst er sagt frá því í dag-
blöðum höfuðborgarinnar að
hundur hafi bitið framan af
fingri barns í Kópavogi og
spannst út af því nokkurt
mál. Ekki mun slysið hafa
verið alvarlegs eðlis. Morgun
blaðið hefur haft tal af tveim
fyrrverandi hundaeigendum í
Kópavogi, sem sökum hunda-
bannsins urðu að sjá af dýr-
unum. Einnig hefur blaðið
haft tal af Ingólfi Ingólfs-
syni, varðstjóra. Frú Ágústa
Lúðvíksdót'tir að Melgerði 2
veitti greið svör við spurn-
ingum blaðamanns.
— Hundurinn okkar var
skozkur veiðihundur, ekki
mjög stór, ljósbrúnn á lit,
fallegur og mjög vitur, sagði
Ágústa í upphafi samtalsins.
Hann hafði verið hjá okkur
í 4 mánuði, þegar við urðuöri
að sjá af honum. Hann hét
Bangsi og kom til okkar ofan
úr Borgarfirði. Það var kunn-
ingi okkar hjónanna, sem ætl
aði að nota hann við gæsa-
veiðar, svo upphaflega átti
Bangsi bara að vera hjá okk
ur til bráðabirgða. En hinn
upprunalegi eigandi dó tveim
dögum eftir að Bangsi kom
til okkar, svo úr varð að hann
ílengdist hjá okkur hér að
Melgerði 2, og var hér þar
til yfirvöldin skárust í málið.
Húsið okkar er einbýlishús
með afgirtum garði og hafði
Bangsi litli eigið herbergi i
kjallaranum. Hann var aldrei
laus úti á götu, við höfðum
hann í bandi í garðinum.
Fallegur er Bangsi. Hann bjó um 4 mánaða skeið að Mel-
gerði 2 í Kópavogi. Öllum var hann til ánægju, ekki sízt
börnunum, sem lærðu að elska dýrin. En nú ei Bangsi farinn,
yfirvöldin skárust í leikinn, hundahaldið hefur verið bannað
í Kópavogi siðan 1958, — og
16 ára sonur okkar fór með
hann í göngutúra í garðinum
og einstaka sinnum fórum
við með hann á selveiðar. Það
var aldrei kvartað yfir
Bapgsa, ^nágrannarnir höfðu
meira að segja mikla ánægju
af honum, komu oft og gáfu
honum bein, og sá sem kom
og tók hann, gaf enga ástæðu
fyrir brottnáminu, nema þá
sem við þekktum til, að
hundahald er bannað með lög
um í Kópavogi.
Mér sárnaði, þegar ég dag
inn eftir að ég hafði látið
Bangsa frá mér, sá hund
hlaupandi lausann fyrir fram
an nýju lögreglustöðina í
Reykjavík.
— Já, ykkur hefur auðvitað
fundist sá'rt að þurft að sjá
af dýrinu?
— Já, en við hlýddum
strax skipun yfirvaldanna um
að láta deyða hann, ekki
tjóir að sýna börnunum að
maður óhlýðnist yfirvöldun-
um. Við neituðum að Bangsi
yrði skotinn, hann var veiði-
hundur og þekkti vel byss-
una. Hann var því svæfður
fullum svefni.
— Já það er leiðinlegt að
vita af hundum í næstu hús-
um og sjá þá á götunni eftir
að hafa þurft að sjá af sín-
um?
— Já, okkur sárnaði það
og þó sérstaklega börnunum,
— þau skilja það ekki. Ég
tel það mjög slæmt að bann-
ið skuli ekki vera algjört.
— Finnst yður að það eigi
að leyfa hundahald í þétt-
býli?
— Þar sem aðstæður leyfa
finnst mér að það ætti ekki
að skifta máli ef vel er farið
með dýrið. Við eigum fjögur
börn á aldrinum 6 til 16 ára,
sem ég tel að hafi haft mjóg
gott af að umgangast Bangsa.
Síðan eru þau ekki hrædd
við dýr.
Þá hefur blaðið náð tali
af Óskari Jakobssyni, Nýbýla
vegi 34 a. Einnig hann veitti
greið svör við spurningum
blaðamanns:
— Ég hef átt marga hunda,
sagði Óskar, — og alla af
þeirri tegund sem notuð er
við minkaveiðar. Þeir eru
innfluttir frá Danmörku, en
ættir þeirra má víst rekja
allt til Egyptalands allt að
4000 ár aftur í tímann, að
því er Carl Carlsen minnka-
bani sagði mér. Ég fékk að
hafa alla mína hunda í friði,
nema þann síðasta, þann, sem
mér þótti vænst um og gerði
Þetta er hvolpurinn hann Snati, sem áður bjó að Nýbýla-
vegi 34 a. Þegar myndin er tekin, er Snati fallegur lítill
hvolpur og mikið eldri varð hann ekki. Hann varð að fara
frá Nýbýlavegi á minnkabúið, þar sem hann varð fyrir slysi
og dó.
mér mestar vonir um sem
góðan veiðihund. Yfirvöldin
virðast hafa tekið þessi hunda
mál alvarlega núna upp á
síðkastið, það er þá vonandi
að þau láti bannið koma jafnt
niður á öllum, úr því að þau
eru nú svona allt í einu byrj
uð upp á kraft að útrýma
þessum skepnum okkar.
Ég var svo lánsamur að
þurfa ekki að láta deyða
hann Snata minn, því þar
sem ég hef fengizt dálítið við
minkaveiðar á ég tvö pláss
fyrir hunda á minnkabúi
Carls Carlsens. Þar kom ég
Snata fyrir eftir að yfirvöld-
in höfðu gert mér aðvart.
En svo óheppilega vildi til
að stuttu eftir að dýrið var
komið til sinna nýju heim-
kynna, var það fyrir slysi og
dó.
Hvernig brugðust þér við
þegar yfirvöldin gerðu yður
aðvart?
— Ég varð hvumsa við og
spurði hvort yfir hvolpnum
(hefði verið kvartað. Hinir
hæstvirtu kváðu svo ekki
vera, en sögðu að fyrir stuttu
hefði hundur bitið framan af
fingri barns hér í Kópavogi
og að reynt yrði á allan hátt
að fyrirbíyggja að slíkt gæti
komið fyrir aftur. Ég trúi
því nú mátulega að hundur-
inn hafi bitið svo duglega.
ekki nema þá að krakkinn
hafi átt þar sök að máii.
Aldrei gera þessi grey mem
til sveita, því skyldu þexr
frekar gera það hér.
— Hvað finnst yður um
hundahald. Á að leyfa það
í þéttbýli?
— Já, endilega, þeir gera
ekki frekar mein hér en í
sveitunum. Að vísu er ekki
hægt að vera með skepnur
í fjölbýlishúsum, en t.d.
hérna í einbýlishúsi með
stórum garði fyrir framan,
hér eru þeir eingöngu til
gleði og ánægju. Þá á bara
að láta menn borga skatta
og setja þeim skilyrði. Þeir,
sem svo brjóta þau, mega
missa af sínum hundum fyrir
mér.
Þá hefur blaðið haft tal af
Ingólfi Ingólfssyni, varðstjóra
í Kópavogi, sem góðfúslega
veitti svör við spurningum
blaðamanns.
— í ljós hefur komið Ing-
ólfur að sumir þeirra, sem
hafa átt hunda í Kópavogi,
kvarta yfir því að bannið
komi ekki jafnt niður á öll-
um. Kvað vilduð þér segja
um þetta?
— Lögreglan gengst fyrir
því að reglum sé fylgt jafnt,
þessari um hundahaldið sem
öðrum, og tel ég það vera
út í bláinn að segja að hunda
bannið komi misjafnt niður
á íbúum Kópavogs. Hitt er
svo annað mál að við höf-
um ekki tekið dýrin strax af
fólki, heldur gefið mönnum
tækifæri til að koma þeim
fyrir upp í sveit eða þá að
láta aflífa þau á Keldum. Þá
hefur bæjarfélagið ráðið
mann til að hreinsa bæinn
af hundum og köttum, og ef
lögreglan sér hund eða veit
af hundi, gerir hún honuni
þegar aðvart. Á ágúst bar það
við, að hundur beit framan
af fingri barns svo sem kunn
ugt er af fréttum, og verða
þannig atvik auðvitað til að
herða á banninu.
— En nú telja sumir að
slysið hafi ekki verið alvar-
legs eðlis?
— Sjálfur skoðaði ég ekki
slysið eða áverkan, en í lög-
regluskýrslu stendur skrif-
að, að hundur í Kópavogi hafi
bitið framan af fingri barns,
sem síðar varð að fara með
á Slysavarðstofuna. Ekki var
hægt að gera að sári barnsins
fyrr en eftir 3—4 daga, er
í Ijós kom að um eitrun var
ekki að ræða. Ég geri ráð
fyrir að sá sem gefur skýrsiu
viti hvað hann er að gera.
.
FULLTRLASTARF
Opinber stofnun óskar eftir að ráða íulltrúa til skrif
stofustarfa. Bókhaldsþekking nauðfynleg. — Góð
launakjör. — Umsóknir ósamt appl\singum um ald
ur, menntun og fyrri störf sendist aígr. Mbl. fyrir
15. þ.m., merktar: „Fulltrúastarf -— 4312“.
Góð 5 Kerb. íbúð
Um 120 ferm efri hæð, ásamt risi í Norðurmýri til
sölu. Sérinngangur, sérhitaveita. Bíiskur fylgir.
Laus eftir samkomuiagi.
Nýja fasteignasalan
Laugavegi 12 — Simi 24300
Ungur norskur maáur
22 ára að aldri óskar eftir
vinnu í Reykjavík eða á Ak-
ureyri í eitt ár eða lengri
tíma. Hefur lokið gagnfræða-
skólaprófi og einnig prófi frá
verzlunarskóla. Auk þess um
það bil 3 ára reynsla í út-
reikningi og var um tíma að-
stoðarbókari. Ef þér hafið
lausa stöðu í fyrirtæki yðar,
þá sendið vinsamlega bréf til
Jan Erik Lindberg, Regnbue-
veien 3, Oslo 6, Norge. Seinna
verða vottorð og meðmæli
send.
Bezt að auglýsa
. MorgunbJaðinu
Iðnaðarhúsnæði
Höfum til sölu 350 fermetra iðnaðar- og skrifstofu-
húsnæði við Bolhoit. — Teikningar á skrilstoiunni.
Skip & fasteignir
Austurstræti 18 — Sími' 21735.
Logerhúsnæði til Ieigu
300 til 400 ferm. lagerhúsnæði, sm emnig mætti
nota til iðnaðar til leigu nú þegar i nýju húsi. —
Innkeyrslumöguleikar í húsnæði beint at götu.
GUÐJÓN HÓLM, hdl.
Aðalstræti 8. — Sími 10950.