Morgunblaðið - 12.10.1966, Síða 21
Miðvikudagitr 12. okt. 1966
2!
MORGUNBLADID
Söluu«iboð:
Heildverzlún
Davíð S. Jónsson
Þinglioltsstræti 18. — Sími 24333.
N auSungaruppboð
annað og siðasta, á húseigninni Fagrabae 15, hér í
borg, þingl. eign Þorláks Ásgeirssonar, fer fram á
eigninni sjálfri, laugardaginn 15. október Í966, kl.
3 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Opinber
stoinun
óskar að ráða nú þegar fulltrúa.
Laun samkvæmt 21. launaflokki.
Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fvrri störf sendist afgr.
Mbl., merkt: ,J07 — 4204 .
Mikið úrval af
rn’ög fallegum
leðurtö&kum
skinnfóðruðum.
Ennfremur mjög vandaðir skinnhanzkar.
Töskubúðin
Laugavegi 73.
Bifreið til sölu
Opel Reckord, árgerð 1903 í góðu lagi.
til sýnis og sölu að Óðinsgötu 1. —
Upplýsingar í síma 38344.
Haust / sveit
Framhald af bls. 17.
hann úr gerðinu, þar sem
safnið er geymt. Og við
gjamm hunda og hó og hæ
réttamanna þokast seinustu
hóparnir inn. Og þarna eru
allir jafngildii og sköll og
fyrirmæli karla og kvenna á
ýmsum aldri gjalla við sam-
tímis og fylla út í fyrirferðar-
mikinn samnefnara, sem rís
fjöllum ofar. Og það er sam-
eiginlegt með öllum fyrirskip-
ununum og formælingunum,
að enginn ætlast til, að á
þeim sé tekið mark, og eng-
inn tekur þennan dómadags-
gauragang til sín nema fén-
aðurinn helzt, sem æðrulaust,
þokast undan þunga mann-
fjöldans og inn í réttina.
Seinna kemur að því, að
þegar lömbin okkar hafa ver-
ið fituð dálítið heima í túm
að þau verða leidd til slátrun-
ar. En nú hleypum við út úr
dilknum okkar og rekum fén-
aðinn heim. Um það er að vísu
of snemmt að spá, en ekki sé
ég betur en heimtur sé góð-
ar, að minnsta kosti söknum
við fárrá kinda fullorðinna.
Það bíður morgundagins að
kasta tölu á hópinn, því að
við komum ekki heim fyrr en
í myrkri. En einhver.n næstu
daga veljum við líflömbin og
bólusetjum þau. Og okkur
sækist reksturinn seint, því
að féð er langsolt ið og vill
grípa niður í annarri hvern
þúfu.
Spori okkar er rómur og
utan við sig eftir smala-
mennskur og volk seinustu
dægra. Líklega þess vegna
uggir hann ekki að sér, þar
sem hann skokkar veginn eft-
ir rekstrinum. Kannski hefir
hann líka blindazt af skærum
ljósum bílsins. sem kom í
flasið á okkur og hann varð
undir. Hvað einu gilti, því að
aldrei framar mundi hann
reka trýnið sitt kalda í okk-
ur, er hann vildi vekja á sér
athygli og tala við okkur með
þessum trúföstu, biðjandi
augum. Ekki mundi hann
heldur oftar koma hlæjandi
á móti honum húsbónda sír,-
um og neyta þess þá, að vera
fljótari að hlaupa en aðrir u
bænum til að verða fyrstur.
Því eins og krakkarnir sóttist
hann eftir að fá að htja í
bilnum. Skrýtið, hve latt og
óræstilegt hundkvikindi get-
ur skilið eftir stóra eyðu.
Þeim heim kemur, er ekki
talað mjög margt, og það
kemur jafnvel í ljós, að matar
lystin að kvöldi réttadagsins
er engin. Öðru vísi mér áður
brá. En út undan mér sé ég
áleitin, hvikul tár laumast
niður með litlu nefi.
Undarlegir eru þessir dag-
ar.
Norsku rat'magnsþilofnamir komnir aftur
í stærðunum 600/W, 800/WT, 1000/W
og 1400/W
Allir með þrískiptum rofa.
Einnig venjulegir rafmagnsofnar
með og án blásara.
Rafmagn hf.
Vesturgötu 10. — Sími 14005.
Glæsilegt einbýlishús
Höfum til sólu nýtt glæsilegt einbýlisnús á eignarlóð
á einum bezta stað á Seltjarnarnes' Húsið er 146
ferm. á einni hæð 3 svefnherbergi. 2 stofur, hús-
bóndaherbergi, eldhús, bað og gestasnyrting. —
Tvöfalt gler, harðviðarinnréttingar, bilskúrsréttindi.
Skipti á 5—-6 herb. íbúðarhæð möguleg.
Skipa- og fasteignasalan
Orösending frá
olíufélögunum
Til viðbótar áður auglýstum söl uskilmáluni olíufélaganna hefur
verið ákveðið að gefa viðskiptamönnum kost á eftirfarandi
greiðsluhætti:
„Viðskiptamenn. sem æskja mánaðarlegra reikningsviðskipta
geta leyst sig uncian greiðslu in nheimtugjalda með því að greiða
fyrirfram andvirði áætlaðrar má naðarúttektar, enda séu þeir
skuldlausir við viðkomandi olíufélag. — Fyrirframgreiðsla skal
standa óhreyfð inni á viðskipta reikningi viðkomandi viðskipta-
manns og endurskoðast með hlið sjón af viðskiptum. Viðskipta-
maður, senr greitt hefir fyrirfra m, skal þó jafnan greiða mánað-
arreikninga sína fyrir lok 15. dags næsta mánaðar eftir út-
tektarmánuð í skrifstofu viðkomandi félags eða senda greiðslu
með tékka'*.
Oliufélagið h.f.
Olíufélagið Skeljungur h.f.
Olíuverzlua ískmds h.f.