Morgunblaðið - 18.10.1966, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 18.10.1966, Qupperneq 2
NORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 13. okt. 1966 1 gærdag brotnaði krani er verið var að taka ketil upp úr gamla Magna vestur við Granda- garð. Ketillinn féll niður í skip ið aftur, en kraninn liggur brotinn á bryggjunni. Ljósm. Sv. Þ. Klofningur í Ita'ska kommúnistaflokknum Svissneskir kommúnistar seg^ast íylgja kenningum Mao Livorno og Genf 17. okt. NTB - AP. HLUTI kommúnistaflokks Ítalíu (PCI) hefur sagt sig úr lögum við flokkinn og stofnað nýjan kommúnistaflokk, sem styður stefnu kínverskra kommúnista. Lýstu leiðtogar hins nýja flokks því yfir á sunnudag, að aðeins væri hægt að ná völdum með byltingu og valdbeitingu. Um 100 kommúnistar, sem stofnað hafa klofningsflokkinn, luku á sunnudag 3 daga fundi í Livorno, þar sem þeir settu á stofn nýjan „ítalskan marx-len- ínískan kommúnistaflokk". Ræðu menn á síðasta fundinum lýstu því yfir, að kommúnistaflokkur- inn (PCI) hefði misst byltingar- eldmóðinn og reyni nú að kom- ast til valda með kosningum. Kommúnistaflokkur Ítalíu telur 1,6 miilj. meðlima. „Þetta er draumsýn, því völd- um er aðeins hægt að ná með byltingu og valdbeitingu", var sagt á fundinum í Livorno. Kommúnistaflokkurinn (PCI), sem hefur meirihluta í borgar- stjórn Livorno, gekkst á sunnu- dag fyrir fundi í leikhúsi stað- arins. Þar voru 1500 manns maettir, og meðal ræðumanna var Gus Hall, leiðtogi bandarískra kommúnista. Talsmaður PCI sakaði þar meðlimi hins nýja flokks um sví- virðilegt athæfi. Hefðu þeir á laugardag reynt að má nafn Palmiro Togliatti af minnismerki kommúnista í bænum. Togliatti var um árabil leiðtogi ítalskra kommúnista. Hinn örsmái kommúnistaflokk- ur Sviss lýsti því yfir í dag, að héðan í frá myndi flokkurinn fylgja kenningum Mao tse Tung. Var yfirlýsing þessa efnis birt í flokksmálgagninu l’Etincelle (Neistinn). Þar er sagt að svissn- eskir kommúnistar muni fylkja sér um stefnu kommúnista í Albaníu og Kína. Svissneski kommúnistaflokkurinn telur 300 meðlimi samkvæmt eigin upp- lýsingum Frumvarp um höfunda- greiðslur vegna afnota rita í bókasöfnum ALMENNUR fundur var haldinn í Tjarnarhúð í gærkvöldi í Rit- höfundasambandi íslands og var þar aðalmc-1 á dagskrá frumvarp til laga um höfundagreiðslur vegna afno1..-! rita í íslenzkum bókasöfnum. Frumvarp þetta sömdu þeir Björn Th. Bjömsson listfræðing- ur er sæti átti í nefnd til þess af hálfu Rithofundasambandsins og Knútur Hnllsson fulltrúi í menntamá) aráðuneytinu. Frumvarp þetta var á fundin um rætt sem trúnaðarmál og því ekki hægt á þessu stigi að skýra frá efni þess. Forsætisráðherra hefir boðað þetta sem eitt af fyrstu frv ríkisstjórnarinnar á yfirstandandi þingL Snör handtök logreglumanna Sl. laugardag var Volvo-bifreið stolið hér í bæ. Þegar eigandi bifreiðarinnar var þess var, fór henn þegar af stað til þess að tilkynna atburðinn á lögreglu- stöðina. Á leiðinni hitti hann bif- hjólalögreglumann, og greindi honum frá stuldinum. Lögreglu- maðurinn hafði þegar samband við stöðina og skýrði frá þjófnað inum. Var þá hafin eftirför, og > níu mínútum síðar hafði einn bifhjólalögreglumaðurinn upp á I bifreiðinni hér í borginni. Voru bæði þjófurinn og bifreiðin kom in á lögreglustöðina, er eigandi bifreiðarinnar kom þangað til þess að kæra stuldinn. AÐFARANÓTT sunnudagsins var brotizt inn í verkstæðið Diesel við Vesturgötu 2. Þar var þó engu stolið, en hins veg- ar mun þjófurinn hafa misst eld niður, eða kveikt í á rishæð húss ins, því að þar kom upp eldur. Var slökkviliðið kvatt á vett- vang og tókst bráðlega að ráða IMýr Loftleiðafar- þegi fæddist í Keflavík FARÞEGUM hjá Loftleið- I um f jölgar með ýmsu móti, | má með sanni segja. í fyrra- i kvöld bar það við, er ein af vélum félagsins var á leið1 vestur um haf með viðkomu | hér, að pólsk kona, sem var | farþegi ásamt ungu barni , sínu, veiktist svo að skilja' varð hana eftir í Keflavík. Barnið hélt áfram vestur um | með vélinni og tók eiginmað- ur konunnar á móti barni þeirra hjóna við komu vél-' arinnar til New York. Konan I var hinsvegar lögð inn á i sjúkrahúsið í Keflavík og, fæddi hún þar barn í gæ.\ Heilsast báðum vel og fer Íkonan áfram til Bandaiiltj- anna er hún er heil orðin. Nú er það hinsvegar spurning hvort farseðill hennar gildir , áfrasm þar sem greiða ber ] 10% af fargjaldi fyrir korn- börn. Slysfarir og hrakföll UM HELGINA var nokkuð um slys og hrakfarir, sem lögreglan hér varð að hafa afskipti af. Á laugardagskvöldið hljóp hest ur fyrir bifreið upp við Lækjar botna og olli skemmdum á fram hurð og bretti bifreiðarinnar, sem var að aka að austan. Til- kynnti ökumaður um atburðinn, en hesturinn, steingrár að lit, hvarf út i myrkrið og fannst hann ekki við leit. Á sunnudags- kvöldið kastaði maður sér í höfn ina og bjargaði lögreglan honum og varð honum ekki meint af. f gær, laust eftir hádegið, var tilkynnt um að strákur, 15 ára að aldri, hefði stolið úr bóka- verzlun Evmundssonar, en skömmu siðar hafði strákur orð ið fyrir bifreið á Suðurgötu. Var hér um sama pilt að ræða. Bif- reið sú er hann lenti á, er hann hljóp fyrir hana, skemmdist nokkuð, en strákur slapp með skrámur. Klukkan rúmlega 6 í gærkvöldi hljóp drengur fyrir bifreið, sem ók vestur Suðurlandsbraut hjá Grensásvegi. \ar talið að hér hefði venð um aivarlegt slys að ræða. Alþjóðahagsmuns- samtök rithöfunda - stofnuð 1 París um næstu helgi HINN 23. október hefst í París i ráðstefna rithöfunda um allan heim, þar scm stofnuð verða hags ; munasamtök rithöfunda, en til þessa hefur engin slík stofnun verið starírækt. Af hálfu íslands munu sitja þessa ráðstefnu rit- verki að gegna og STEF en slíkt alþjóðasamband hefði aldrei ver ið til. Þau félagasamtök, sem rit höfundar hafi hafí með sér, hefðu öll verið félagsleg og lítt skipt sér af hagsmunamálum. Á fundinum munu flokkar rit- höfunda ræða um þær kröfur, sem gera á. og rætt verður um stofnskrá samtakanna. Gunnar Gunnarsson er nú staddur í Danmörku, en mun brátt halda til Parísar, Aðspurð- ur um hvor Halldor Laxness væri með honum, svaraði hann neit- andi, en kvaðst hafa heyrt af skotspónum að hans væri að vænta af suðlægari slóðum. Að lokum bað Gunnar fyrir beztu kveðjur heim. Gunnar Gunnarsson höfundarnir Gunnar Gunnarsson og Halldór Laxness. Morgunblaðið náði í gær tali af Gunnari Gunnarssyni og tjáði hann blaðinu, að Halldór yrði fulltrúi leikritaskálda, en hann skáldsagnahöfunda. Ráðstéfnan hæfist hinn 23. okt. og stæði til 28. Gunnar sagði, að rithöfunda- samtök þau. er ráðgert væri að stofna í París, hefðu sama hlut- Halldór Laxness Fundur Lögfræðiuguiélugsins í kvöld um umdæmuskipt. lundsins LÖGFRÆÐIN GAFÉLAG ís- lands efnir til fundar í kvöld kl. 20.30 í Tjarnarbúð niðri. Á fund- inum mun Hjálmar Vilhjálmsson ráðuneytisstjóri, flytja erindi um skiptingu landsins í umdæmi en efni þetta er nú ofarlega á baugi, þar sem nú stendur yfir endur- skoðun á skipan lögsagnarum- dæma og sveitarstjórnarum- dæma. (Jrum stolið INNBROT var framið í Skart- gripaverzlun Sigurðar Jónasson- ar, Laugaveg 10, aðfaranótt sunnudags. Þar hafði verið brot- in rúða í sýningarglugga, og þaðan stolið þrem úrum. Háskólafyrir- lestrum aflýs! Háskólafyrirlestrum aflýst.... 4 ÁÐUR auglýstir fyrirlestrar Próf. N. F. Bisgaard, vararektors tækniháskóla Danmerkur, þriðju dag 18. og fimmtudag 20. októ- ber, falla niður vegna veikinda prófessorsins. Á HÁDEGI í gær var norð- austan gola eða kaldi á land- inu. í Æðey var allhvasst og stinningskaldi við utanverðan Húnaflóa. Rigning var á Aust fjörðum, og á annesjum fyrir norðan voru skúrir, annars- staðar þurrt veður. Hiti var víðast 2-6 stig, hlýjast 8 stig á Fagurhólsmýri. Horfur eru á lítt breyttu viðri, því að hæðin yfir Græn landi færist ekki úr stað, og lægðin vestan Bretlandseyja þokast hægt austur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.