Morgunblaðið - 18.10.1966, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 18.10.1966, Qupperneq 12
r 12 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 18. okt. 1966 Frá stríðsárunum í Danmörku. Kristján X ríður um á hesti sín- um, og lætur sem hann sjái ekki þýzka hermann, sem heilsa að hermannasið. í bókinni „Minningar Stef- áns Jóhanns Stefánssonar“, ræðir höfundur um stjórn- málaferil sinn og koma í því sambandi ýmsar markverð- ar upplýsingar í ljós, sem al menningi hefur ekki verið kunnugt um fyrr. í kafla bókarinnar, sem ber nafnið „Flokkurinn og störfin“ ræð ir höfundur klofningu Al- þýðuflokksins, árið 1938. Stefán skýrir frá því, að Héðinn Valdimarsson hafi feng- ið Verkamannafélagið Dags- brún til að samþykkja tillögu til sameiningar Alþýðuflokks- ins og Kommúnistaflokksins, þar sem m.a. kvað svo á: „Félagið skorar því á með- limi Alþýðusambandsins og Kommúnistaflokksins að ganga nú þegar til endanlegra samn- inga um tafarlausa samein- ingu flokkanna í einn samein- aðan alþýðuflokk, er. starfi á lýðræðisgrundvelli, án inn- byrðis flokkadrátta, og í einu stjórnmálafélagi í hverju kjör- dæmi, að sigri og valdatöku al- þýðunnar". Stefán segir, að tillögu þessa hafi Héðinn fengið samþykkta án samráðs við stjórn Alþýðu- flokksins, enda þótt hann hafi verið varaformaður hans. Stjórn Alþýðuflokksins reyndi að bæta fyrir frumhlaup Héðins og ákvað að reyna „þolrifin i kommúnistum" eins og segir í bókinni. Var því af hálfu Al- þýðuflokksins kosin nefnd til samninga við kommúnista, en bæði Jón Baldvinsson og Stefán Jóhann töldu flokkinn fara inn á mjög varahugaverðar brautir með þessu. Stefán Jóhann rekur ekki „sorgarsögu samninganna", en segir að komið hafi í ljós álit hans og Jóns Baldvinssonar um að kommúnistar vildu enga sameirtingu. Síðan segir Stefán Jóhann: „Á flokksþinginu haustið 1937 var samið og samþykkt næstum einróma tilboð til Kommúnistaflokksins um sam- einingu hans og Alþýðuflokks- ins, en það var bundið skilyrð- um, sem segja má að hafi bjargað heiðri, sóma og svip sósíaldemókratísks flokks. Ekki gerðum við ráð fyrir, að því tilboði yrði tekið af kommún- istum. En í sambandi við það samþykkti flokksþingið álykt- un, þar sem tekið var fram. að þingið ætlaðist til, að „ekki verði vikið frá“ tilboðinu, enda bæri miðstjórn flokksins að koma fram, „sem einn maður gagnvart Kommúnistaflokkn- um, og hver sá, sem tekur sig út úr, gerir sig sekan um klofningsstarfsen)i, hættulega einingu xlokksins, er nauðsyn ber til að komið verði í veg fyrir“. í>ess var afdráttarlaust krafizt af kommúnistum, að þeir segðu til fyrir 1. desember 1937, hvort þeir gengju að til- boði Alþýðuflokksins". Stefán Jóhann Stefánsson Stefán segir að komið hafi 1 ljós að Héðinn hafi haldið áfram samningaumleitunum við kommúnista, jafnvel eftir hinn 1. desember og þrátt fyr- ir að hann og Jón Baldvinsson hafi talið það „óviðurkvæmi- legt og ámælisvert“. Héðinn lét I KAFI.A er ber nafnið „Skiln- aður Islands og Danmerkur" ræðir Stefán Jóhann Stefáns- son hinar mismunandi skoðan- ir islenzkra stjórnmáiamanna á því, hvernig framkvæma ætti skilnaðinn við Dani. F.inkum hafi mönnum ekki komið sam- an um, hvenær sambandsslitin skyldu koma til framkvæmda, en í 18. gr. sambandslaganna var svo fyrir mælt, að eftir árs- lok 1940 gæti hvor ríkisstjórn um sig krafizt þess að byrjað væri á samningum um endur- skoðun laganna og ef ekki yrði samkomulag innan þriggja ára gæti alþingi fellt lögin úr gildi með ¥<t greiddra atkvæða. Stefán Jóhann segist hafa álitið, að í öllu ætti að fara eftir ákvæðum sambandslag- anna, en hins vegar hafi strax komið fram raddir í Framsókn- ar- og Sjálfstæðisflokknum og þá ekki sízt meðal kommúnista um að framkvæma bæri skiln- aðinn hið bráðasta. Stefán Jóhann segist frá upphafi hafa verið þessum skoðunum mót- fallinn og ekki talið tímabært að ræða þær á þessu stigi máls- ins. Síðar hafi risið af þessu harðar deilur. Stefán Jóhann segir: „Meðan stóð á umræðunum um skilnaðarmálið, fékk ís- lenzka ríkisstjórnin öðru hvoru vitneskju um álit og skoðanir erlendra ríkisstjórna á áform- um Islendinga í skilnaðarmál- inu. Þar sem ég fór með utan- ekki segjast og í janúar 1933 tókst honum að knýja fram samþykkt í fulltrúaráði verka- lýðsfélaganna um sameiginleg- an framboðslista kommúnista og Alþýðuflokksins, með þeim afleiðingum að bæjarstjórnar- kosninganar urðu Alþýðú- flokknum mjög óhagstæðar. Varð þetta til þess að Héðinn var rekin úr Alþýðuflokknum, enda eins og Stefán Jóhann segir: „farinn að vinna með kommúnistum gegn sínum eigin flokki“. Hinn 9. febrúar 1938 lagði Jón Baldvinsson fram svo- hljóðandi tillögu með greinar- gerð, sem samþykkt var í mið- stjórn flokksins: „Héðni Valdimarssyni verði nú þegar vikið úr Alþýðu- flokknum og þar með úr stjórn Alþýðusambands íslands og Alþýðuflokksins og úr þeim störfum, er Alþýðusambandið eða Alþýðuflokkurinn kann að hafa falið honum“. Svar Héðins Valdimarssonar var síðan að reka Jón Bald- vinsson úr Verkamannafélag- inu Dagsbrún hinn 13. febrúar 1938. Stefán Jóhann segir að allir sem þekkt hafi Héðin Valdi- marsson hafi orðið þess varir, hann hafi brátt orðið fyrir von- brigðum í sambúðinni við hina nýju félaga, enda yfirgaf hann þá eins og alkunnugt er og hafði síðustu árin, sem hann lifði engin afskipti af stjórn- málum. ríkismál á árinu 1941, talaði sendiherra Breta, Mr. Howard Smith, stundum við mig um þessi mál“. Síðan segir Stefán frá skilaboðum, sem sendiherr- ann lét hann fá munnlega. Stefán segir, að skilaboðin hafi verið þessi: „Brezka stjórnin teldi það mjög miður fara, ef íslending- ar ryfu sambandslagasáttmál- ann við Dani eða riftuðu hon- um, fyrr en lög stæðu til. Hún teldi slíkt rof að því leyti skipa íslendingum á bekk með þeim þjóðum, sem Bretar eiga nú í stríði við, meðal annars af þeirri ástæðu, að þær halda ekki gerða samninga við önnur Erik Scavenius, utanrikisraðherra Dana ríki. Hún telur að slíkt „unfair“ gagnvart Dönum, einmitt eins og nú stendur á fyrir þeim. Hún skilur heldur ekki þörfina á því að hraða þannig meðferð málsins, því ef krafizt er, þeg- ar þing kemur saman, endur- skoðunar sambandslaganna á löglegan hátt, svo sem sam- bandslögin mæla fyrir um, hafa íslendingar í hendi sér að slíta samningunum í sam- bandslögunum að öllu leyti lög- lega, eftir ákvæðum sambands- laganna án þess að nokkur gæti réttilega að því fundið eða mótmælt. Þrjú ár væru svo stuttur tími í sögu þjóðarinnar, að ekki ætti að sýnast áhgrfs- mál að bíða í stað þess að hrapa að óþörfum samningsrof- um. Um konungssambandið væri það að segja, að það félli ekki undir samninginn í lög- unum. En „uppsögn“ á kon- ungi liti aldrei vel út, og engin STEFÁN Jóhann Stefánsson var utanrikisráðherra á dögum hernáms Breta í síðari heims- styrjöldinni. I bók sinni víkur hann nokkuð að vandamálum þeim, sem spunnust, i sambandi við sambúð íslendinga við her- inn, af skrifum kommúnista- blaðsins „Þjóðviljinn'*. í kaflanum „Þjóðstjórnarár" lýsir höfundur því að sendi- herra Breta, Howard Smith, hafi oft átt tal við sig og kvart- að undan framferði kommún- ista og óskað þess eindregið að ríkisstjórnin gerði ráðstafanir til þess að hindra skefjalausan áróður þeirra gegn Bretum. Sveinn Björnsson sendi'herra í Kaupmannahöfn hafði verið kvaddur heim til þess að vera ríkisstjórninni til ráðuneytis í utanríkismálum og einu sinni hafði hann sent Stefáni Jóhanni hugleiðingar sínar þar sem segir: „Ófriður er ófriður, og margt er það, sem venjulega er ekki þolað íbúum af hervaldi í her- teknu landi. Frjálslyndi Breta á þessum sviðum má ekki mis- brúka til þess að knýja þá til einhvers, sem allir góðir menn óska að komizt verði hjá“. Stefán Jóhann lýsir þeirri skoðun sinni að hefta hefði átt prentfrelsi á þessum hættulegu ófriðartímum og hafi það komið til álita hjá ríkisstjórninni, og Stefán Jóhann segir: „En innan ríkisstjórnarinnar fékk þessi skoðun mín engar undirtektir. Einkum var ólafur sérstök ástæða sýndist til þess, þar sem búast mætti við, að hann vildi ekki vera konungur, ef sambandslagasáttmálinn yrSi algjörlega felldur úr gildi. Það væri að sjálfsögðu allt annað og færi miklu betur á því, að konungur leggði niður völd, en gerð væri tilraun til að setja hann af. Þetta voru að efni til nákvæmlega skilboð brezka sendiherrans“. Forsætisráðherra og Stefán Jóhann svöruðu því einu til að ríkisstjórn íslands óskaði ekki eftir að ræða málið. Síðan segir Stefán Jóhann: „Þegar kom fram á árið 1942, fór að bera á þeim rödd- um, að slíta bæri sambandi ís- lands og Danmerkur tafarlaust. En sumarið 1942 gerðist sá við- burður, að sendimaður Roose- velts Bandaríkjaforseta skýrði Ólafi Thors, þáverandi forsæt- Framhald á bls. 21 bannaður Thors henni mótfallinn. Ég man vel, að hann hélt því fram, að ráðstafanir gegn rógi komm- únista gætu orðið til þess að varpa á þá einhverjum píslar- vættisljóma og auka fylgi þeirra. Má vel vera, að hann hafi haft nokkuð til síns máls, en ég mat slíkar röksemdir ekki það mikils, að þær ættu að hindra að mér fannst, nauð- synlegar ráðstafanir rikisstjórn arinnar. En niðurstaðan varð, að hún gæti ekki fallizt á skoð- anir mínar. Hún gerði því ekk- ert í þessum efnum, lét allt dankast". Stefán segir að óánægja brezkra ráðamanna hafi farið vaxandi og að lokum létu þeir til skarar skríða og handtóku ritstjóra „Þjóðviljans" eins og alþjóð er kunnugt, en ríkis- stjórn íslands mótmælti. Stefán Jóhann Stefánsson skýrir frá samtali, er hann átti við ræðismann Bandaríkjanna á íslandi, Mr. Kuniholm og segir: „í samtalinu skýrði hann mér frá því, að íslenzkir kommúnistar myndu áreiðan- lega hafa mikinn fjárstyrk frá kommúnistum í U.S.A. — frá „central" þeirra í New York —■ og myndu peningar vera fluttir með áhöfnum á íslenzku skip- unum. Hann taldi, að íslenzkir kommúnistar myndu fá % af öllum kostnaði við Þjóðviljann greiddan frá kommúnistum erlenðis". Sambandsslitin við Dani Þjóðviljinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.