Morgunblaðið - 18.10.1966, Síða 19

Morgunblaðið - 18.10.1966, Síða 19
Þriðjudagur 1R oTct. 1986 MORGU NBLAÐtÐ 19 Tvær vígstöövar í Vietnam Hin hernaðoilegn - cg ■ bardtlnn um hugi fólksins Sagt frá fyrirlestri Julius C. Holmes, fyrrv. sendiherra á fundi Stúdenta- félags Reykjavikur s.l. laugardag Það er barizt á tveim víg- stöðvum í Vietnam. Önnur er hin hernaðarlega, hin er bar áttan um hugi og hjörtu fólks ins. Þar er barizt gegn þjóð- félagslegu ranglæti, gegn hungri, sjúkdómum og fá- fræði. Við mikla erfiðleika er þar að stríða, en engu að síð- ur hefur mikill árangur náðst. Þetta kom m. a. fram í fyrir- lestri sem Julius C. Holmes fyrr verandi sendiherra Bandarikj- anna hélt á almennum fundi, sem Stúdentafélag Reykjavíkur gekkst fyrir í Tjarnarbúð s. 1. laugardag. I fyrirlestri þessum skýrði sendiherrann stefnu og markmið Bandaríkjastjórnar í. Suðaustur-Asíu, en megin hluti fyrirlestursins var að sjálfsögðu um styrjöldina í Vietnam. Holmes sagði m. a. að það sem nú blasti við í Vietnam væri hið sama og á'ður hefði oft gerzt frá því að síðari heimstyrjöld- inni lauk, þ. e. nauðsyn á því að koma í veg fyrir útþenslu kommúnismans. Mönnum hefði lærzt af þeirri reynslu, að fékkst á árunum eftir 1930 — í Man- sjúriu, Eþíópiu, Tékkslóvakíu o. s. frv. að árás verður að mæta, áður en hún hefur náð að verða öflug, því að ella verður að hrinda henni síðar, er aðstæður eru orðnar örðugrL VALE' ER ALLTAF \ IJIMDAM Hvort sem lyfta þarf hátt eða lágt, léttu eða þungu, er verkið unnið af öryggi og nákvæmni, með aðstoð VALE lyftara Veljið VALE vegna þess, að hann er framleiddur úr fyrsta flokks efni, af reyndustu lyftitækja- verksmiðjum heims, undir forustu manna, sem leggja mesta áherslu á framleiðslu tækis, sem er í senn hag- kvæmt fyrir eigandann, og öruggt og þægilegt fyrir stjórnandann. VALE fæst rafdrifinn, með Ivftiorku frá 600 — 5000 kg., og drifinn benzín- eða diesel hreyfli, með lyftiorku 1000 — 11000 kg. Lyftihæð veljið þér eftir þörfum yðar, og einnig hvert gálgi skal vera einfaldur, tvöfaldur, þrefaldur eða jafnvel fjór- faldur. Kynnið yður ótvíræða kosti VALE i, miTEiimi t ttntti Grjótagötu 7 — Sími 24250. u Ef kommúnistar næðu Suður- Vietnam á sitt vald, mætti ekki einungis vænta árásaraðgerða í framtíðinni gagnvart þjóðum landa eins og Thailands og Malaysiu, sem þegar hefðu verið ákveðin sem næstu áfangar í þessu skyni, heldur og einnig í Afríku og Suður-Ameríku. Ef á hinn bóginn tækist að veita kommúnistum viðnám í S-Viet- nam, þá myndi það m. a. verða til þess að varðveita fri'ð með því að sannfæra kommúnistarík in, að ódýrir sigrar væru ekki lengur mögulegir og það verð, sem gjalda verður fyrir árás, er of hátt til þess að girnilegt geti talizt að halda henni áfram. Er fram líða stundir, myndu kommúnistaríkin vonandi kjósa heldur áð beina kröftum sínun\ að sínum eigin miklu innanlands vandamálum. Sendiherrann skírskotaði m. a. til ummæla Paul Henri Spaaks frá því í ár, þar sem hinn síðar- nefndi hefði sagt, með tilliti til þeirrar hættu, sem Evrópu hefði stafað af Sovétríkjunum á ár- unum eftir heimstyrjöldina, að þá hefðu nær allir fagnað því, að Bandaríkin hefðu komið til hjálpar. Hinum frjálsu ríkjum Asíu væri nú ógnað af kín- verskri heimsvaldastefnu. Hvern ig gæti þá nokkur maður kom- izt hjá því að gera sér grein fyrir þeirri staðreynd, að staða Bandaríkjanna í heiminum krefð ist þess af þeim, að þau tækju þar sömu afstöðu í Asíu og þau höfðu áður gert í Evrópu. Holmes sendiherra gerði síðan grein fyrir mikilvægi þeirra um fangsmiklu aðgerða, sem fram færu nú í Suður Vietnam og ekki væru hernáðarlegs eðlis. Þegar talað væri um styrjöldina þar, væri yfirleitt dregin upp mynd af hersveitum, byssum og flugvélum í bardögum. Þessi myhd væri að sínu leyti sönn, en segði hins vegar ekki nema hluta þess, sem segja bæri. Þetta væru hinar hernaðarlegu vígstöðvar. Baráttan væri hins vegar ekki síður fram á öðrum vígstöðvum, sem oft væri minni gaumur gef inn á opinberum vettvangi, þar sem rætt væri um þessi mál. Þetta væri hin svokallaða önn- ur víglína. Það væri baráttan um hugi og hjörtu fólksinns og væri fólgin í því að vinna bug á þjóðfélagslegu ranglæti, hungri, sjúkdómum, fáfræði o. fl. Við geysilega erfiðleika væri þarna að etja, sem vera myndu nógu miklir á friðartímum, en vegna styrjaldarinnar yxu of- boðslega. Engu að sfður væri unnið þarna mikið starf og það væri ekki svo lítill árangur, sem náðzt hefði. Svo að nefnd væru dæmi: Meir en 12000 heilsugæzlu- stöðvum hefði verið komið upp í þorpum víðsvegar í landinu og þær birgðar upp með lyfjum. Læknamenntun væri aukin og færð í nútímahorf. Yfir 8000 skólastofur hefðu ver ið byggðar fyrir barnaskóla og framhaldsskóla. Meir en 8 millj. námsbóka hefði verið úthlutað á s. 1. þrem árum. Meir en 25000 opinberir starfs menn í þorpum út um landið hefðu fengið fræðslu í stjórn- sýslustörfum með því að þjálfa þá í starfi. Meir en 8000 verklegar fram- kvæmdir hefðu verið gerðar fyr næstum millj. dollara á árunum 1964 og 1965 til margvíslegra framkvæmda á sviði heilsugæzlu, fræ'ðslu, o. s. frv. Geysilegu starfi og fjármun- um væri enn fremur varið til þess að skapa því fólki, sem flú ið hefði frá þeim svæðum, sem Viet Cong hefði náð á sitt váld, aftur lífsskilyrði cg koma þvi fyrir. Sú bylting, sem hafin væri i félagslegum efnum, myndi verða til þess að sannfæra fólkið um, að það væri því fyrir mestu að fá vernd gegn Viet Cong. Kosn- ingar þær sem fram fóru 11. september sl. hefðu geffð mikla ástæðu til bjartsýni í þessu efni, því að þrátt fyrir ofbeldisverk Viet Cong og hótanir þeirrar hreyfingar um ofbeldisverk hefðu 80% kjósenda tekið þátt í kosningunum. Holmes sendiherra sagði í lok ræðu sinnar, að enginn skyldi e£ ast um einbeitni Bandaríkja- manna varðandi markmið þeirra í Vietnam. Bandaríkjamenn kysu á hinn veginn miklu fremur að binda enda á bardagana og leiða Vietnam deiluna til lykta við samningaborðið og hefðu látið í té óyggjandi sannanir fyrir því. Það væri brennandi von þeirra, að hinn aðilinn kæmi auga á, að sú leið væri hin rétta, sam- þykkti að hætta mannvígum og samþykkti að ganga að hefðar- , , ... * legur og réttlátu samkomulagi eigin atorku íbuanna og unnið “ við samningaborðið. Að fyrirlestrinum ioknum svar ir væri að mörgum þúsundum slíkra framkvæmda. Þær væru af mörgum tegundum allt frá aði sendiherrann fyrirspurnum. samkomuhúsum til brúarsmíða ________________________________ og vegaviðgerða. Umfangsmiklar endurbætur varðandi skiptingu jarðeigna og tækniframþróunar í landbúnaði hefðu verið hafnar og landbún- áðarframleiðsla hefði stóraukizt. Þessi barátta á víglínu II. væri ekki háð af Bandaríkjunum ein- um eða þeim einum í samvinnu við Suður-Vietnam, heldur tækju um 40 þjóðir hins frjálsa heims þátt í þessu starfi með margvís legum hætti, svo sem með því að senda hjúkrunarfólk og birgð ir, kennara og sérfræðinga o. s. frv. Til viðbótar mætti nefna, að Sameinuðu þjóðirnar ættu þarna hlut að máli. Sem dæmi mætti taka, að samtökin hefðu látið í té fyrir tilstilli UNICEF Chicago 15. október - AP Fyrsti snjostormur vetrarins geisaði í dag í mið- og vestur- ríkjum Bandaríkjanna. Olli ó- veðrið miklu tjóni, og er síðast var vitað höfðu 12 manns beðið bana af völdum þess, en 200 særzt, þar af 20 lífhættulega. Bjarni Beinteinsson LÖGFBjEBINGUR AUSTURSTRÆTI 17 (SIL.LI & VALOll SlMI I3S36 Hópferðabilar allar stærðlr rr------- ■e IWBIMAB Hákon H. Kristjónsson iögfræðingur Þingholtsstræti 3. Sími 13806 kl. 4,30—6. Hópferðabilar 10—22 farþega, til letgu, í iengri og skemmri ferðir. — Sinn 15637 og 31391. iijörn Sveinbjörnsson hæstaréttarlögmaður Sölvhólsgötu 4., 3. hæð (Sambandshúsið). Símar 13343 og 23338. Ver lifiin fáfnir Klapparstíg 40 auglýsír TRES8Y og systir hennar TOOÍS Tressy og Toots eru einu dúkk- urnar, s e m hægt er að 1 e n g j a og stytta hárið á. Þ e s s. vegna er hægt að greiða þeim á ótal mis- munandi vegu. Gífurlegt úrval af aukafötum. Vr.RZLUNIN F Á F N I R Klapparstíg 40 Verkamannafélagið Dagsbrún Félagsvist ■ Lindarbæ í kvöld klukkan 8.30. — Fjölmennið. SKEMMTINEFNDIN.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.