Morgunblaðið - 18.10.1966, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 18.10.1966, Qupperneq 21
Þriðjudagur 18. old. 198® MORCU N BLAÐID 21 Tónllst SINFQNiUHLJOMSVEITIN Sinfóníuhljómsveit íslands hef lendir einleikarar (þar me'ð tal- ir nú fyrir nokkru hafið vetrar- starfið og farið myndarlega af stað. I heildarefnisskrá starfs- ársins eru, auk hinna venjulegu fimmtudagstónleika, sem eru jafnmargir og áður (16) og með líku sniði, boðaðir sex sunnu- dagstónleikar, þar sem flutt verður „létt“ tónlist, svo og þrennir kammertónleikar. Tón- leikar fyrir börn og unglinga verða einnig fleiri en áður eða tólf alls, átta þeirra ætlaðir ung- lingum 16—21 árs, en fjórir börnum á aldrinum 6—12 ára. Allt er þetta góðra gjalda vert og verður vonandi þakksamlega þegið. Ýmsar athugasemdir mætti þó gera. Ein er sú, að lín- urnar milli hinna „alvarlegu“ fimmtudagstónleika og hinna „léttu“ sunnudagstónleika mættu vera skýrari. Mér sýnist t.d., að Semiramide-forleikurinn eftir Rossini, Gosbrunnar Rómaborg- ar eftir Respighi, Bolero eftir Ravel og Lyrísk svíta eftir Grieg — svo að nokkur dæmi séu nefnd — hefðu mátt víkja fyrir viðameiri verkum af efnisskrám fimmtudagstónleikanna, þótt þau hefðu sómt sér ágætlega á sunnu dagstónleikunum. Eða hvers- vegna er fiðlukonsert Paganinis fluttur á fimmtudegi en pianó- konsert Liszts á sunnudegi? — Og hvers eiga þau blessuð börn að gjalda, sem eru svo ógæfu- söm að vera á aldrinum 13—15 ára á þessum vetri? Merkasta nýmælið af þeim sem hér um ræðir eru kammertón- leikarnir, sem ráðgert er að verði fluttir í hátíðasal Háskól- ans. Þeir bæta úr brýnni þörf í annars furðu fjölskrúðugu tón- listarlífi höfuðborgarinnar. En minnst ástæða sýnist til að fara þar inn á það svið, sem Musica nova hefir helgað sér og rækt með prýði á margan hátt, en við það jaðrar efnisskrá hinna síð- ustu þessara tónleika. Margt mætti segja um verk- efnaval fimmtudagstónleikanna, en ekki fer hjá því að ýmis- legt af því, sem þar er boðað, veki forvitni, eftirvæntingu og tilhlökkun tónleikagesta. Er þar meðal annars að nefna nokkur ný verk íslenzkra höfunda. Og ekki má gleyma þeirri hefðar- kvinnu Miss (Þannig í efnis- skránni) Solemnis, sem verður kynnt okkur, þegar daginn fer að lengja í vor. Annars vekur það athygli, að ef sleppt er þeim tveimur verkum Beethovens, sem þegar hafa verið flutt i haust, er hátíðamessan eina verk hans á efnisskrá vetrarins. Þetta minn- ir svolítið á píanónemandann, sem var „búinn með Mozart“. Athygli vekur það líka, að höf- undum klassíska og rómantíska tímabilsins — sem raunar leggja til langmestan hluta verkefna á sinfóníutónleikum um ..llan heim — eru hér gerð miklu betri skil að því er einleiksverkin varðar en verk fyrir hljómsveit eina. Þannig verða fluttir í vet- ur báðir píanókonsertar Brahms og fiðlukonsertinn (tvö þessara verka með hálfs mánaðar milli- bili), en engin af sinfóníum hans. Þrjú konsertverk verða flutt eftir Mozart, en aðeins ein sinfónía. Mendelssohn nýtur hins vegar þeirrar óvæntu hylli, að tvær af sinfóníum hans hafa verið teknar á efnisskrána, önn- ur þeirra mjög sjaldheyrð. Það sem hér hefir verið nefnt — og fleira hefði mátt tína til — virð ist benda til þess, að tilviljun og handahóf hafi ráðið of miklu um val og röðun verkefna — eða kannske að kokkarnir hafi verið of margir? Hér er þórf ákveðnari stefnu, og skal ég þó fúslega játa — og veit af reynslu — að hægra er um að tala en í ftð komast. Ekki færri en tíu er- in ein söngkona) koma fram á fimmtudagstónleikunum í vetur, og eru margir þeirra víðfrægir og sumir áður að góðu kunnir hér. Er ekki að efa, að þeir munu ljá mörgum tónleikanna talsverð an ljóma. En því verður naum- ast neitað, að hlutur íslenzkra listamanna er hér minni og ó- veglegri en vera mætti og eíni standa til. Hitt er tilhlökkunar- efni, að kórar koma fram á þrennum tónleikum (Filharmón- íukórinn tvisvar og Pólýfónkór- inn), og þá að því er virðist með einsöngvurum af okkar eigin liði. Því miður fóru fyrstu tón- leikar hljómsveitarinnar (bæði fimmtudags- og sunnudagstón- leikar) fram hjá mér vegna fjar- veru úr bænum. En ég hlýddi með mikilli ánægju á fimmtu- dagstónleikana 13. þ.m. Að vísu hefði mér fundizt betur við eiga, að forleikur eftir Beethoven (eða Mozart) hefði verið borinn fram eftir Beethoven í stað þeirrar ljúffengu lagfroðu, sem Rossini hefir fram að færa í forleiknum að óperunni Semiramide. En um það skal ekki sakazt. Fiðlukon- sertinn var unaðslegur á að hlýða í meðferð snillingsins Alfredo Campoli, og undrunar- efni.hve næmur og mjúkum tök um þessi þrekvaxni og kraftalegi maður tók hið viðkvæma hljóð- færi sitt. Fiðlukonsert Beethov- ens kann stundum að hafa sýnzt „stærra" verk, en sjaldan feg- urra. Skylt er að geta þess, að hljómsveitin lagði þar fyllilega sinn skerf til. „Tútti-sinfónían“ mætti hún kallast, fjórða sinfónían eftir tékkneska tónskáldið Bohuslav Martinu. Fáar munu þær sinfón- íur vera, þar sem allir hljóðfæra leikarar hafa jafn mikið að gera allan tímann. í þessum flutningi sýndist þetta ljóður á verkinu. Það orkaði á áheyrandann eins og blásara- (og slagverks-) músik með „obbligat“ strengjum. En hér mun strengjafæð hljómsveit arinnar um að kenna eins og stundum áður. Strokhljóðfærin höfðu einfaldlega ekki bolmagn á við blásarana. Sanni næst mun vera, að verkið sé athyglisverð „stúdía“ í „instrúmentation“ (og hljómsveitaspili) en ekki mikið meira. Víst er um það, að þegar allur gnýr sinfóníunnar var um garð genginn, skaut hin- um hljóðlátu laglínum Beethov- ens aftur upp í huganum, og þeirra vegna verða þessir ioit- leikar eftirminnilegir. Sinfóníuhljómsveitin á því láni að fagna að hafa aftur íeng ið Bohdan Wodiczko til starta hér í vetur. Hann lyfti hljórn- sveitinni í fyrra úr þeirri niður- lægingu, sem hún var komin i á tveimur-þremur síðustu árum, og vonir standa til að honum takist nú í vetur að magna hana til enn stærri og meiri átaka. Hann er mikill hæfileikamaður með óvenjulega mikla og fjöl- breytta starfsreynslu, og áhugi hans, atorka, vinnuþrek og verk vilji eru með fádæmum. Ég á ekki aðra ósk betri hljómsveit- inni til handan nú í byrjun starfs árs en að henni megi nýtast sem bezt ágætir kostir stjórnanda síns. Jón Þórarinsson. — Sambandsslit Framhald af bls. 12. isráðherra, frá því, að það væri álit sijórnar sinnar, að stöðva ætti eins og á stæði allar ein- hliða aðgerðir fslands til þess að fella sambandslagasamn- inginn úr gildi. Ríkisstjórnin bar fram skrifleg andmæli af sinni hálfu gegn þessum skila- boðum, en 20. ágúst 1942 af- henti sendifulltrúi Bandaríkj- anna forsætisráðherra ný skrif- leg skilaboð, sem lauk með svo- felldum orðum: „Samkvæmt framansögðu endurtekur stjórn Bandaríkj- anna þá ábendingu, að sam- bandsslitamálin beri að fresta til hentugri tíma. ekki aðeins í þágu Bandaríkjanna og íslands, heldur og alls heimsskipulagsins og skilnings milli þjóðanna yfir- leitt“.“. Stefán Jóhann segir, að þrátt fyrir þessar yfirlýsingar Breta og Bandaríkjamanna hafi for- sætisráðherra Ólafur Thors lýst því yfir á alþingi, að Sjálf- stæðisflokkurinn stefndi að því að lýðveldi yrði stofanað 1943, en samt hefði ríkisstjórnin skipað sendiherra sínum í Washington að kynna sér nánar afstöðu Bandaríkjastjórnar, en hún endurtók fyrri óskir sínar með bréfi til forsætisráðherra 14. október 1942: „Með skírskotun til hinnar munnlegu orðsendingar, sem þér hágöfugi herra, fenguð 27. september 1942 með ameríska sendifulltrúanum, sem þá gegndi störfum hér, leyfi ég mér að staðfesta það, að stjórn Bandaríkja Norður-Ameríku myndi alls ekki vera mótfallin þeirri uppástungu, sem þér hágöfugi herra, eruð nú að at- huga, sem sé þeirri, að ályktun verði samþykkt af hinu ný- kjörna alþingi, þegar það kem- ur saman, þar sem lýst sé yfir því, að ísland verði gert að lýðveldi 1944“. Síðan segir Stefón Jóhann — Baltica Framhald af bls. 11 ég kynnist er yndislegt". Páll Pampichler Pálsson, tónskáld, hljómsveitarstjóri og söngstíóri. — „Það kom mér mjög á óvart hvað bæði þjónustufólk og áhöfn er starfi sínu vel vaxin. Aðbúnað ur er góður og maturinn prýði legur og mér virðist flestir á nægðir. Það er ákaflega skemmtilegt um borð og á sundlaugin sinn þátt í þvL Leikir og skemmtiatriði eru í ríkum mæli og gleðskapur mikill, en þó í hófi“. Þetta er sem sagt álit og Sundlaugin: Óvenju fáir þessa stundina. Þó má geta þess, að það er Svala Nielsen, óperu sóngkona, sem situr lengzt tii hægri á mynuinni. skoðun flestra farþeganna. — Auðvitað eru nokkrir óánægð ir og það hlytur alltaf að vera þegar 430 íarþegar eru sam- ankomnir í sKipi, sem er þó nær 9 þúsund smálestir að stærð. Þessi hópur er eins og stórt þorp á íslandi og engan skyldi furða þótt ýmislegt komi upp. en það er greini- legt, að hvorki þarf lögreglu né annað eftirlit til að fylgjast með hinu daglega lífi, því all- ir virðast vera samstilltir um að ferðin verði sem ánægju- legust. Eini farþeginn um borð, sem lítinn sem engan frið hef ur, er íslenzki læknirinn, Sig urður Þ. C-uðmundsson. Hann er líka óþreytandi að lækna, gefa lyf og holl róð, þótt eng- inn hafi raunar fengið alvar- legan sjúkdóm, utan Henry Hansen eins og áður er getið. Þetta er nóg í bili. Sendi meira frá Grikklandi. Allir senda kærar kveðjur til vina og vandamanna heima. — Ragnar. að Ólafur Thors hafi horfið frá yfirlýsingu sinni. Segir hann að holl ráð Breta og Banda- ríkjamanna hafi þar\iig ótt sinn þátt í því að hindra það að íslenzkir stjórnmálamenn leggðu út á vafasamar brautir til þess að hraða skilnaði ís- lands og Danmerkur. Stefán Jóhann Stefánsson segist hafa hugsað mikið um það meðan skilnaðarmálið stóð hæst, hvernig koma mætti á umræðum um málið milli Dana og íslendinga. Hann segist hafa komið að máli við sænskan vin sinn, Otto Johansson, sendi- herra Svía hér og leitað hóf- anna um það, hvort ekki væri unnt að koma á fundi þessara aðila í Svíþjóð. Hinn 18. marz 1943 hefði sænski sendiherrann skýrt sænsku stjórninni frá því að for maður Alþýðuflokksins hefði óskað eftir þessum fundi en í bréfi dagsettu 26. marz frá sænska utanríkis- ráðuneytinu hefðu Svíar sagt, að þeir hefðu ekki áhuga á að eiga frumkvæði að slíkum fundi. Þess væri þó óskað, að dönsku stjórninni væri í alger- um trúnaði skýrt frá þessari ósk. Síðan segir Stefán Jóhann: „í bréfi 29. marz sama ár skýrði sendiherra Svía í Kaup- mannahöfn forstjóra stjórn- máladeildar sænska utanríkis- ráðuneytisins frá því, að þeg- ar danska utanríkisróðherran- um, Erik Scavenius, hafi verið tilkynnt þessi íslenzku tilmæli, hefði hann sagt, að hann skildi þetta þannig, að af íslands hálfu væri verið að reyna að fá Dani, eins og aðstæður væru, til þess að ganga inn á skilnaðinn, en ekki væri unnt að fá yfirlýsingu þeirra um það. Scavenius taldi það ekki æskilegt, að fulltrúar frá Dan- mörku og íslandi, báðum her- setnum af stórveldum, sem ættu í stríði hvort við annað, kæmu saman á fund til þess að ræða stjórnmál. Með bréfi 2. apríl 1943 bað forstjóri stjórnmáladeildarinn- ar sendiráðið í London að koma áleiðs eftirfandi svari sænska utanríkisráðuneytisins til sænska sendiherranns í Reykjavík, sem hann tilkynnti síðan hlutaðeigandi: „Eftir upplýsingum þeim, sem fyrir hendi eru, skortir skilyrði til þess að koma á um- beðnum dansk-íslenzkum fundi í Stokkhólmi. Hér eru engar óskir um að taka frumkvæðið í málinu.“ “ „Þannig lauk þessari til- raun“, segir Stefán Jóhann, „og neita ég því ekki, að mér þétti það miður, að hún skyldi mis- takast". rra lyoveiaissioinunmm a Þingvouum 1944.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.