Morgunblaðið - 18.10.1966, Síða 30
»1» w •% %t W • « tW lm tá#’ i W
jr>nojuaagur jö. okt. Lyoa
KR í baráttu um bikarinn á nýjan leik
Vann Keflavík 3-0 og mætir nú
bikarmeisturum og íslands-
meisturum Vals
KR-ingar hafa ekki lagt skóna á
hilluna, þó þeir hlytu aðeins 4.
sætið á tslandsmótinu. Liðið
mætti í góðri æfingu í 5. um-
ferð bikarkeppninnar, nýkomið
úr Frakklandsferð. KR-ingar
unnu Keflvíkinga á „heima-
vellinum" i Njarðvík með 3—0
og hafa nú tækifæri til að sýna
Íslandsmeisturum Vals í tvo
heimana um næstu helgi, þó um
scinan sé að keppa um íslands-
bikarinn við Valsmenn — í ár.
Leikur Keflvíkinga og KR var
áílvel leikinn á báða bóga. Spil
var mikið í leiknum og leikkafl-
ar mjög góðir hjá báðum. Það
sem baggamuninn reið var mun-
ur á vörnum liðanna og þá um
leið afgerandi sóknarleikur ógn-
andi og árangursríkur. í þessu
höfðu KR-ingar nokkra yfir-
burði og unnu því verðskuldaðan
sigur .
Keflvíkingar sóttu öllu meira
í leiknum, en þegar að því kom
að gera út um sóknina brást
Keflvíkingum bogalistin. Mun-
aði hjá þeim einnig mikið um að
missa Karl Hermannsson, svo
ágætur sem hann hefur reynzt í
undanförnum leikjum. f hans
innherjastöðu lék nú Magnús
Torfason, en náði alls ekki sömu
tökum á þeirri stöðu og fram-
varðastöðu.
Og KR tók því forystuna á 29.
Hræðsla
en ekki
vandamál
„LITLU Olympíuleikarnir"
eða einskonar reynsluleikir
hafa staðið yfir í Mexíkóborg.
Nú sem í fyrra hafa keppend-
urnir veríð undir lækniseftir-
liti og aðrir vísindamenn gert
sínar rannsóknir í sambandi
við keppnina þar í borg. Er
svo rík áherzla lögð á þessar
rannsóknir vegna þess hve
hátt borgin liggur eða nálega
2400 m hæð.
Mexíkanskur læknir hefur
tjáð blaðamönnum að iþrótta-
menn geti náð „toppafrekum"
í Mexikóborg eins og annars-
staðar, en það sé meira og
minna tilbúin „grýla“ rð vinn-
ist ekki góð afrek, sé það
þunnu loftslagi að kenna. Seg-
ir þessi sérfræðingur að hið
þunna loftslag hafi engin
skaðleg áhrif á íþróttafólk.
Slíkt sé sannað með rannsókn-
um fjölmargra lækna. Hins
vegar sé öll „skaðsemin“ fólg-
in í hugarfóstri iþrótíamanna
og Ieiðtogar viða um heim,
sem vilja kenna loftþynningu
um lakari afrek.
1 sama sreng og hinn mex-
íkanski læknir tekur austur-
rískur sérfræðingur og hafa
þeir sagt blaðamönnum, að 13
rússneskir læknar séu á sömu
skoðun og þeir. íþróttamenn
og íþróttaleiðtogar séu aðeins
Framhald á bls 25
mín. þrátt fyrir meiri sókn
Keflvíkinga allan leiktímann
fram að því. Mark KR-inga var
fallegt. Sótt var upp hægri
væng, Kjartan plataður út úr
markinu, gefið fyrir og Jón Sig-
urðsson skallaði í mark ákveðið
og vel.
Á 4. mín síðari hálfleiks skor-
aði Einar ísfeld af stuttu færi.
Það var þó næsta tilviljanakennt
mark, því hann fékk víst ekki
að eygja fyrirsendinguna frá
hægri kanti, sem kom í fót hans
og í netið.
9 mín. fyrir leikslok bætti
Baldvin þriðja markinu við. Það
var ávöxtur hraða hans og bar-
áttuvilja. Hann hljóp af sér illa
staðsetta vörn ÍBK og tókst að ^
skjóta framhjá . úthlaupandi
Kjartani markverði.
í samleik og spili höfðu Kefl-
víkingar öllu betur. Þó voru ein
stakir samleikskaflar KR-inga
það fallegasta sem sást af því
tagi og reyndar mjög góðir.
Keflavíkurliðið hefur í undan
förnum tveim leikjum ekki haft
þann sama kraft og oft sást hjá
því um mitt sumarið. Vörnin tek
ur að mínu viti óþarfa áhætt’
með því hve framarlega hún leik
ur, því ekki skapar leikur henn
ar þar áhættu fyrir mótherjana.
Sókn er bezta vörnin — en að-
eins að vissu marki. Framherjar
ÍBK megnuðu sárasjaldan að
skapa hættu við KR-markið og
skotin voru auðveld — flest —
fyrir Guðmund Pétursson. Mágn
ús Torfa einlék um of á kostnað
sameiginlegs máttar. Kjartan er
óöruggari í markinu en fyrri í
sumar.
Hjá KR sýndu framherjarnir
skemmtilegust tilþrif. Það var
ekki alltaf sem þeir voru með í
leiknum — en af og til tóku þeir
fjörkipp og sýndu leik og sam-
spil, sem því miður er of sjald
gæft hér — spil sem miðar að
markinu, ógnar því og leiðir til
mar ka. /
Frá leik Keflvíkiuga og KR
Dómari var Grétar Norðfjörð
og dæmdi vel viðkvæman leik,
þar sem alltaf má búast við öllu
eins og leikjum bikarkeppni er
eiginlegt. Var stundum grunnt á
því góða, eins og t.d. þegar Sig
Albertsson braut á Herði Mark-
an og leit illa og var sagt eftir
leikinn að hann hefði fengið
hrækt á sig í staðinn.
— A St,
Þróttarar höfðu úthald hálf-
an leik en Valur vann 5 — 0
ÞAÐ má með sanni segja, að
keppnisskilyrði reykvískra knatt
spyrnumanna eru ekki burðug,
þegar kemur að því á haustnótt-
um að útkljá aðra stærstu
knattspyrnukeppni landsins.
Grasvöllinn í Laugardal má
ekki nota og Melavöllurinn er í
slíku ástandi, að hann getur ekki
talizt frambærilegur. Við þessar
aðstæður kepptu Valur og Þrótt-
ur á laugardaginn og skammt var
á leikinn liðið er völlurinn var
svo troðinn og hrært upp í for-
inni að tilviljun ein réði því hvort
það tókst sem lejkmenn ætluðu
sér.
Það var mikil barátta í leikn-
um framan af og næsta jöfn, —
mikiu jafnari en búist hafði
verið við, þar sem topplið Jg
„botnlið" í 1. deild áttust við.
Varð fyrsta hálftimann vart séð,
hvort af hinu bar. Telja má að
slæmur völlur hafi meir skemmt
fyrir hjá Val sem er betri tækni
búið — á meðan úthald Þróttar
til harðrar baráttu entist.
Fyrst á 37. mín. kom fyrsta
mark leiksins. Hermann fékk
góða sendingu frá hægri, iék
laglega óvaldaður inn á teiginn
<5>og skoraði örugglega.
Á síðustu mín. hálfleiksins
var dæmd vítaspyrna á Val
fyrir brot sem framhjá flestum
ef ekki öllum er í stúkunni sátu.
Sigurður Dagsson sýndi nú enn
einu sinni afburða hæfileika sína
í marki og varði allgott skot
mjög vel.
Með þessu afreki Sigurðar
misstu Þróttarar móðinn. Þeir
höfðu ekkert að gera í Vals-
menn er hlé kom — úthaldið og
þrotið og vonin og óvæntan sig-
ur horfin.
Valsmenn tóku leikinn í sínar
hendur og nú var það aðallega
barátta við vallaraðstæðurnar
sem þeir áttu í.
Á 14. mín. komst Ingvar inn
fyrir með sendingu frá hægri og
vippaði laglega yfir markvörð
Þróttar. Reynt var að bjarga á
línu en um seinan.
Á 17. mín. átti Bergsteinn
skot sem virtist ekki hættumik-
ið. En markv. Þróttar missti
knöttinn undir sig og staðan var
3—0.
Á 25. mín. leika Valsmenn upp
hægri kant og Ingvar gefur fyrir
frá hægri og skorað er af stuttu
færi. 4—0.
Á 33. mín. gefur Gunnsteinn
útherji vel fyrir og Hermann
skorar af stuttu færi 5—0.
Fleiri urðu mörkin ekki, en
yfirburðir Valsmanna í síðari
hálfleik hefðu jafnvel nægt til
enn fleiri marka.
Valsliðið er nú í góði úthalds-
þjálfun — miðað við ísl, lið,
en Þróttarmenn sennilega löngu
hættir að taka knattspyrnuna
alvarlega í sumar. Þessir yfir-
burðir Vals komu vel fram —
og enn betur en ella við erfiðar
aðstæður.
Lið Vals er all samstillt nú
og ætti af þeim sökum að hafa
góða möguleika til að vinna hinn
eftirsótta „tvöfalda sigur“ meist-
aratitilin og . bikarinn.
— A. St.
Enska knattspyrna
12. UMERÐ ensku deildarkeppn- i
innar fór fram s.l. laugardag og
urðu úrslit leikja þessi:
1. deild.
Burnley — Leicester 5—2
Everton — Sheffield W. 2—-1 I
Fulham — West Ham 4—2 ;
Leeds — Arsenai 3—11
Manchest.er U. Chelsea 1—1
Newcastle — Manchester .C 2—0
N. Forest — Liverpool 1—1
Sheffieid II. Sunderland 2—0
Stoke — Southampton 3—-2
Portsmotuh — Ipwich 4—2
Preston — Charlton — 2—1
Rotherham — Derby 0—0
Plymouth — Cartíiff 7—1
í Skotlandi urðu úrslit m a.
þessi:
Celtic — A'rdrenonians 3-0
Dundee U — Clyde 4—3
Falkir — Dundee 3—2
Hearts — Rangers 1—1
Kilmarnoek — Hibemian 2—1
St. Mirren — Dunfermline 0—5
Staðan er þá þessi:
Tottenham — Blackpool W.B.A. — Aston Villa 1— 3 2— 1 1. 2. 1. UCllU. Stoke Chelsea 18 stig 17 —
2. deild. 3. Burniey 17 —
4. Tottenham 17
Birmingham — Bristol Ciey 4—0
Couvenery — Blackburn 2—0 2. deild.
Hull — Wolverhamton 3—1 1. Hull 18 stig
Millwall — Crystal Palace 1—1 2. Bo:ton 17 —
Northampt. — Huddersfield 0—1 3. Crystal P. 17 —
Norwich — Carlisle 2—0