Morgunblaðið - 18.10.1966, Page 31
Þriðjudagur 18. okt. 1966
MORGUNBLAÐIÐ
31
Árhus fór ósigrai - fyrsta
(Sanska liðið í mörg ár
Isl. „tilraunalandsliðið46 grált
leilcið i síðasta leiknum í gær
Danir sigruðu 26 - 20
Dönsku handknattleiksmennirn
Ir frá Árhus KFUM halda héðan
heim í dag eftir þriggja leikja
heimsókn — og fara fyrstir
danskra liða — að minnsta kosti
um margra ára skeið — ósigrað-
ir. Þeir hafa að vísu sýnt ágætan
leik — ekki sízt í síðari hálfleik
leiksins í gær, en leikur peirra
hefur aldrei náð að vera svo
glæsilegur eða framkvæmdur af
þeirri snilld að ísl. handknatt-
leiksmenn hefðu ekki vel við
ráðið, hefði æfing verið að baki.
Þetta er ekki afsökun, heldur
skýring. Ekkert ísl. handknatt-
leikslið hefur hafið inniæfingar
af alvöru, hvað þá keppni.
Reykjavíkurmótið hefst eftir
miðjan mánuð — og oft hafa
ísl. lið mætt í það æfingalaus og
1. deildarkeppnin hefst ekki fyrr
en í desember. Danska liðið hef
ur hins vegar æft undir 1. deildar
keppnina þar og leikið 4 leiki í
henni og þar á meðal tapað fyr-
ir núverandi dönsku meisturum
með 23-16.
En segja verður það með sanni
að ekki komu ísl. handknattleiks
menn frá þessari fyrstu reynslu
í vetur með neinni sæmd. Hverki
íslandsmeistaralið FH eða SV-
landsúrvalið gátu sýnt hinu
danska liði, sem nú er á fallauda
fæti í dönskum handknattleik,
og mætti þó ekki hér með íulit
lið þá keppni sem verðug getur
talist. Og veilan er ekki aðeins
æfingaleysi að kenna heldur og
skorti og taktik.
Við skulum fyrst ræða um
leikinn í gær — leik reynsiu-
landsliðs.
' Fyrstu mín. tóku íslendingar
leikinn í sínar hendur, léku hratt
skemmtilega og tilbreytingaríkt
svo að Danir fengu ekki vörn-
um við komið. Staðan komst í
6-2 og síðar 7-3 fyrir ísl. liðið.
Smám saman fundu Danir lag
ið. Þeir héldu jöfnu eða næstum
því næsta stundarfjórðunginn —
eða til hlés.
í síðari hálfleik hafði ísl. liðið
ekkert að segja móti Dönunum.
Danirnir gerðu að engu allar
tilraunir Gunnlaugs, Ingólfs,
Birgis og Geirs, þá er þeir höfðu
„lært“ hringekju leiks þeirra.
Það var annað og meira sem bil
aði heldur en úthaldið eitt. Það
er annað og meira sem þarf að
bæta en aðeins úthaldið.
Vörn ísl. liðsins brást gersam-
lega er á leið. Hún opnaðist næst
um að vild Dananna er á leið
og verst var þó ástandið í upp-
hafi síðari hálfleiks er Kaae
skoraði 7 mörk í röð. Góður er
hann eji yfirburðamaður enginn.
Enda var hann sjálfur stundum
Framhald á bls. 25
Sprettur í síðari hálf
leik tryggði sigurinn
Danirnir unnu
íslandsmeistairana
vörður svo forskot sitt 25-19 í
rólegheitum.
DÖNSKU handknattlelksmenn
irnir frá Árhus KFUM léku
fyrsta leik sinn hér á laugardags
kvöld frammi fyrir 250 áhorfend
um. Mótherjarnir voru Ármenn-
ingar sem styrktu lið sitt með
Karli Jóhannssyni KR. Úrslit
urðu að Danir unnu með 29-25.
Þrír leikmenn danska Iiðsins,
Kl.ius Kaae, Jörgen Vodsgaard
og Ivan Christiansen skoruðu 27
af mörkum liðs síns, Kaae 14 (5
úr víti), Vodsgaard 8 og Christ-
iansen 5. Allir eru þeir lands-
liðsmenn síns lands og báru af
í leikjum liðsins hér að þessu
sinni.
Leikurinn á laugardagskvöld
var vægast sagt lélegur. Hvorugt
liðanna sýndi tilþrif, en sýnilegt
var að Danirnir lögðu á það meg
ináherslu að sigra — hvað sem
öðru leið. Og það sjónarmið
ættu ísl. lið að taka upp í rikara
mæli en gert er í — á löglegan
hátt að sjálfsögðu.
Mörk íslendinga skoruðu Karl
Jóhannsson sem lék sem gestur
með Ármanni 12, Hreinn og Grim
ur 4 hvor, Árni 3 og Hans 2.
í hléi var staðan 14-13 fyrir
Dani en lengst af höfðu Ármenn
ingar haft forystu í mörkum. En
um miðbik síð. hálfleiks — töku
þeir sprett“ eins og þeir gerðu
reyndar í öllum leikjunum — og
Á móti íslandsmeisturunum
byrjaði betur hjá Dönum. Þeir
skoruðu 3 fyrstu mörkin og iiéldu
forystu allan fyrri hálfleik utan
það að FH jafnaði 8-8 á 16. mín.
10-10 á 20 mín og 13-13 var stað
an í leikhléi.
í upphafi síð. hálfleiks tóku
Danirnir „sinn sprett“ komust
yfir og sköpuðu sér er um 10
mín voru eftir 4 marka forskot.
Það forskot vörðu þeir vel og
unnu örugglega.
FH liðið sýndi í heild lélegan
leik, slæm markvarzla en þó var
Kristófer betri, mjög götótt vórn
og sóknarleikurinn uppbyggður
af fáum mönnum sem auðvelt
var að gæta, þar sem tilbreyting
var lítil sem engin.
Engin kraftveiði
af rjúpu ens
BLAÐIÐ hafði í gær samband
við Gunnar bónda Guðmundsson
í Fornahvammi og spurði hann
hvernig rjúpnaveiðin hefði geng
ið fyrstu dagana, sem hún er
heimil.
Hann sagði að ekki hefði sézt
mikil rjúpa og engin kraftveiði
væri enn sem komið er. Afrakst
ur rjúpnaskyttanna er nokkuð
misjafn, en þeir, sem kunnugir
eru og nokkuð vanir, hafa feng
ið 30—50 stk. á dag. Veiðin hefir
verið mest í Tröllakirkju og
Snjófjöllum.
Norðmenn þeir, sem ætla að
stunda hér rjúpnaveiðar í einá
viku, er unú komnir og munu
byrja í dag að veiða frá Forna-
hvammi.
Fyrsta veiðidaginn, 15. okt.,
PRÓFESSOR Áke Angren frá
Uppsölum flytur fyrirlestur á
vegum Guðfræðideildar Háskól-
ans í dag kl .10,15 í 5. kennslu-
stofu. Umræðuefni: Nýjustu um
ræður um tilgang og eðli guðs-
þjónustunnar. Allir velkomnir.
— Brezhnev
Framh. af bls. 1
stöðu, sem hindraði aðstoð við
Vietnam.
Þá sagði Brezhnev, að John-
son Bandaríkjaforseti blekkti
sjálfan sig á merkilegan hátt ef
hann héldi að sambúð Bandaríkj
anna við Sovétríkin og önnur
sósíalísk lönd mundi breytast
til batnaðar að óbreyttu ástandi
í Vietnam.
Toppfundur í Moskvu.
Ljóst er, að fyrir dyrum stend
ur meiri háttar fundur leiðtoga
þeirra kommúnistaríkja, sem
fylgja Sovétrikjunum í deilu
þeirra og Kínverja. í fyrstu var
það hald manna, að til fundar
þessa myndu aðeins koma leið-
togar kommúnistaflokka A-
Evrópu, en í dag tóku málin aðra
stefnu, áður en sjálfur fundur-
inn er hafinn. Þá komu til
Moskvu m. a. Osvaldo Dortieos,
forseti Kúbu og Raoul Castro,
varnarmálaráðherra og bróðir
Fidel Castro. Ennfremur eru
komnir fulltrúar Mongólíu að því
er óstaðfestar fregnir herma.
Af öðrum leiðtogum, sem taka
þátt í fundinum, má nefna Walt
er Ulbricht, forseta A-Þýzka-
lands, Janos Kadar, forseta Ung
verjalands, Antonin Novotny,
forseta Tékkóslóvakíu, og leið-
toga rúmenskra kommúnista, þá
Nicolae Ceausescu og Ion Maur-
er.
Að því er góðar heimildir í
röðum kommúnista herma, mun
dagskrá fundarins í Moskvu
verða eitthvað á þessa leið:
Mánudagur — Leiðtogar Búlga
ríu, Tékkóslóvakíu, A-Þýzka-
lands, Ungverjalands, Póllands,
Sovétríkjanna, Rúmeníu, Kúbu,
og Mongólíu hittast í Kreml.
Þriðjudagur — Umræður, sem
einkum snúast um Kína og sam-
búðina við leíðtoga Kínverja.
Miðvikudagur — Heimsókn til
borgarinnar Novosibirsk í Síber
íu, en þar eru miklar vísinda-
rannsóknir í gangi með mikilli
leynd.
Fimmtudagur — Heimsókn til
Baikonur, helztu geimferðar-
stöðvar Sovétríkjanna i Mið-
Asíu, 2090 km. SA af Moskvu.
Þar segja góðar heimildir að
Sovétmenn muni sýna gestunum
geimskot, líklega mannað. Sum-
ir telja þó, að aðeins verði skot-
ið á loft gerfitungli.
Pravda, aðalmálgagn Sovét-
stjórnarinnar, veittist að stefnu
og hugmyndafræði Pekingstjórn
arinnar í mörgum greinum í
dag og eru kínverskir leiðtogar
þar harðlega ásaka'ðir fyrir að
hafa snúizt gegn öllum sósíalista
. ríkjum og stofnað sósíalismanum
I í voða með íramferði sínu.
hafði ein rjúpnaskytta 18 rjúpur
austur á Hellisheiði.
— Asluför
Framh. af bls. 1
í för með Johnson er kona
I hans. Humphrey, varaforseti,
Dean Rusk, utanríkisráðherra,
McNamara, varnarmálaráðherra
og fleiri ráðherrar voru mættir
á flugvellinum til þess að kveðja
Johnson. Virtist forsetinn í bezta
| skapi er hann kvaddi þá, svo og
! sendimenn erlendra ríkja á
' Dulles-flugvelli skammt frá
Washington, en þangað kom
forsetinn með þyrlu beint frá
Hvíta húsinu. Þrátt fyrir að kalt
væri í veðri bar forsetinn enga
yfirhöfn. Fréttamenn segja, að
hann hafi aldrei virzt jafn róleg-
ur og hvíldur, og það þrátt fyrir
mikið starf síðustu daga. John-
son sagði á flugvellinum að
Bandaríkin og bandamenn þeirra
myndu gera sitt bezta til að
koma á friði með sæmd í Viet-
nam svo skjótt sem auðið væri.
f ræðu, sem forsetinn flutti
síðan eftir komuna til Honolulu
í kvöld, hvatti hann Kína til þess
að taka upp betri sambúðarhætti
gagnvart Bandaríkjunum, en
hann bætti við, að Bandaríkin
myndu hinsvegar aldrei láta af
hendi frelsi sitt né bandamanna
sinna til þess að friðþægja Kína.
Forsetinn flutti ræðu þessa í
háskólanum í Honolulu. Hann
sagði, að tekið væri að gæta nýs
samsstarfsanda í Asíu sem mið-
aði að því, að vinna að friði og
efnahagslegri framvindu. „En
við okkur blasa mörg og mikil
vandamál", bætti hann við. „í
Asíu finnast einnig aðrir straum-
ar, en þeir eru ekki í samræmi
við hinn nýja anda og þeir ein-
angrast æ meira. Leiðtogar Asíu
og þjóðir líta lengra en til þjóð-
ernisstefnunnar. Fyrr eða síðar
mun hin nýja stefna breiðast út
til hinna lokuðu þjóðfélaga í hir
um kommúnistísku hlutum Asíu.
Fyrr eða síðar mun raunsæis-
andi kínversku þjóðarinnar
vinna bug á bókstafstrúnni. Að
því, er til okkar tekur, munum
við gera allt í okkar valdi til
þess að flýta fyrir þessu. Við
munum halda lífi í voninni um
frjálsari skipti hugmynda og
manna milli Kína og Bandaríkj-
anna“, sagði forsetinn.
Árdegis á morgun, þriðjudag,
heldur forsetinn til Nýja-Sjá-
lands, en hann mun einnig
heimsækja Ástralíu, Filippseyj-
ar, Thailand, Malasíu og S-
Kóreu. Allt er hinsvegar enn á
huldu um hvort forsetinn heim-
sækir S-Vietnam.
í Ástralíu og Nýja-Sjálandi
hafa yfirvöldum borizt nafnlaus-
ar hótanir um að forsetinn verði
myrtur. Áströlsk blöð hafa feng-
ið upphringingar frá nafnlaus-
uin aðilum. Einn slíkur lýsti
yfir. „Ég er nýkominn af keng-
úruveiðum og hef kíki á rifflin-
um. Ég ætla að beita honum
á Johnson“. Annar aðili, nafn-
laus, kvaðst ætla að skjóta John-
son vegna þess að sonur sinn
hefði fallið í Vietanm.
Keith Holyoake, forsætisráð-
herra Nýja-Sjálands, sagði í.dag,
að hann hefði fengið skýrslu um
að lífi hans væri ógnað, en hins-
vegar kvaðst hann ekki taka
þetta alvarlega.
Mikill fjöldi öryggislögreglu-
manna mun gæta hvers fótmáls
Johnsons í þeim sex löndum,
sem hann heimsækir. Að auki
eru í fylgd með Johnson banda-
rískir leyniþjónustumenn undir
stjórn Rufus Youngblood. Það
var Youngblood, sem kastaði
sér yfir Johnson og skýldi hon-
um með líkama sínum er skotin
dundu á bíl Kennedy forseta í
Dallas.