Morgunblaðið - 18.10.1966, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.10.1966, Blaðsíða 32
Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað Langstærsta og íjölbreyttasta blað landsins Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra á Varðarfundintim í gær: Ríkisstjúrnin dskar samstarfs við allar stéttir um verðstöðvun seinni heimsstyrjöldinni og fyrst eftir hana lifum við blómatíma, en svo hallaði aftur undan fæti. 1953 kom varnarliðsvinnan á ný, en hafði þó verulega þýðingu aðeins skamma stund. Þetta er Framhald á bls. 23 -helzt um eins árs skeið Aukin veiðiheimild iorsendn Innsnnr n vnndn- mnlum tognrn, minni bntn og irystihúsn í lok ítarlegrar ræðu á fjölmennum fundi Landsmálafél- agsins Varðar í gærkvöldi sagði Bjarni Benediktsson, for- sætisráðherra: „Við þurfum að kunna fótum okkar forráð. Tími hinnar öru framsóknar kann að vera liðinn í bili. Við skulum fara varlega og stöðva tekjuaukningu til handa hverjum og einum. í þeirri vitund óskar ríkisstjórnin eftir því við allar stéttir, að þær fallist á verðstöðvun, helzt um eins árs skeið, frá 1. ág. sl. til 1. ág. næsta ár. Ríkissjóð- ur er þess megnugur að greiða niður þær verðhækkanir sem orðið hafa síðan 1. ág. sl. En þetta krefst þess, að hver og einn segi, ekki við sinn nágranna, þú skalt verða við þessum óskum, heldur við sjálfan sig: Það er mér fyrir beztu, að ég fallist á þessar óskir, að ég kunni hóf mínum kröfum þennan tíma. Og það er þjóðinni fyrir beztu og henni til farsældar“. Forsætisráðherra hóf mál sitt á því að segja, að ekki væri orð um aukið, að eftir að íslending- ar hefðu búið í landinu í 1000 ár hefðu lífskjörin verið lakari en á fyrstu öldum fslands byggðar. Auðvitað hafa skiptzt á skin og skúrir á þessum öldum en lær- dómsríkt er, að einn hezti fræði maður íslendinga, sem fjallað hef ur um fjölda þjóðarinnar áður fyrr, telur, að jafnan þegar fólks fjöldinn var orðinn um 50 þús- und, hafi eitthvað gerst, svo að fólkinu hætti að fjölga og fækk- aði jafnvel. Landið hefur ekki borið meiri fólksa-ukningu. Við vitum öll, að íslendingar hafa lifað löng og erfið ár og landið sjálft var lakara eftir þessi 1000 ár en í upphafL En á þeim 90 árum, sem síð- an eru liðin hefst endurreison sem fór hægt i fyrstu. Það er rétt, að okkar elstu félagar geta sagt, að þeir hafi þekkt 1000 ára baráttu íslenzku þjóðarinnar, því að þeir þjuggu í æsku við þau lífskjör sem þjóðin fyrr á öld- um bjó við. Tækniþróunin hefst skömmu fyrir aldamótin og á þeim tíma Verulegar umbætur á lánamálum námsmanna Nýtt stjórnarfrumvarp: Styrkir til framhaldsnáms oð loknu háskólanámi. Námslán til stúdenta á fyrsta ári v/ð Háskóla íslands L gær var lagt fram á Alþingi stjórnarfrumvarp um náms- lán og námsstyrki, sem gerir ráð fyrir verulegum endur- bótum á því fyrirkomulagi, sem nú ríkir í þeim efnum. Aðalatriði frumvarpsins eru: deildaskipting sú sem í gildi er milli lánadeildar náms- manna erlendis og lánadeild- ar stúdenta við Háskóla ís- lands er felld niður. Fram skal fara alhliða könnun á námskostnaði íslenzkra náms manna heima og erlendis. Vextir af námslánum verða framvegis 5% á ári, en afborg anir hefjist fyrst að liðnum 5 árum frá námslokum. Hafa skal hliðsjón af efnahag náms manna við ákvörðun náms- lána. Teknir verða upp styrk ir til framhaldsnáms að loknu háskólaprófi. Stúdentar við Háskóla íslands fá námslán þegar á fyrsta námsári, en Framhald á bls. S Bjarni Benediktsson sem síðan er liðinn verða tvenn ar stórbreytingar í lífskjörum þjóðarinnar. í fyrra skiptið með heimsstyrjöldinni fyrrL með þeirri tekjuaukningu, sem hún hafði í för með sér. Síðan kom illlur afturkippur á árunum 1930 —1940, þegar þúsundir gengu at vinnulausar. Á því var ráðin bót með varnarliðsvinnunni í Drengnr fyrir bíl ÞAÐ slys varð sl. Iaugardag á Grenimel að sex ára drengur, Gunnar Karl Guðmundsson Grenimel 30, varð fyrir bifreið. Bifreiðinni var ekið vestur götuna, í þann mund sem dreng urinn kom hlaupandi út á hana mili tveggja bifreiða, sem stóðu við gangstéttina. Drengurinn lenti fyrir vinstra framhorni bif- reiðarinnar, og kastaðist í göt- una. Hann var fluttur í Slysa- varðstofuna með áverka á höfði sem ekki var þó talinn alvarlegs eðlis. Skemmdarverk r á skóla í fyrrinótt voru unnin skemmd arverk á Laugarlækjaskóla. Þar voru tvær stórar rúður með tvö földu gleri brotnar í sitt hvoru skólahúsinu, sem þar standa. Þá var einnig troðið í hvert einast.a skrárgat á öllum útidyrahurðum skólans. Eru þeir sem einhverjar upplýsingar gætu gefið um at- burð þennan beðnir að hafa samband við rannsóknarlögregl- una. Alvarlegt slys á Suðurlandsbraut MJÖG alvarlegt slys varð á gatnamótum Grensásvegar og Suðurlandsbrautar um kl. 18 í gær. Þar varð niu ára drengur fyrir bifreið með þeim afleið- ingum að hann hlaut mikið höfuð högg, og var hann fluttur með- vitundarlaus í Landakot. Slysið var rétt austan við i gatnamótin á Suðurlandsbraut- inni. Þar beið barnahópur cftir því að fara yfir götuna, er dreng urinn tók sig skyndilega út úr hópnum, og hljóp út á götuna. Þar lenti hann fyrir bifrcið, með þeim afleiðingum að hann skall í götuna. Hlaut hann mjög alvar ■ leg höfuðmeiðsli, s«lm fyrr segir. Maöur handtekinn fyrir að tæla stúlkubarn Hefur vióurkennt brot sitt MAÐURINN, sem gerzt hefur sekur um að tæla litlar telpur upp í bifreið sína, aka þeim út fyrir borgina og leita þar á þær náðist sl. laugardag. Viðurkenndi hann brot sitt við yfirheyrzlur hjá rannsóknarlögreglunni skömmu síðar, og kom í ljós að hann hafði í fleiri skipti reynt að fá litlar telpur upp í bifreið sína. Maðurinn náðist fyrir tilstilli ungs lögreglumanns umferða- deildar götulögreglunnar, þekkti hann af bifreið sem hann ók, og telpurnar höfðu gefið lýsingu á. Maðurinn sem er rúmlega tvítugur að aldri hefur aldrei unnið neitt líkamlegt tjón á stúlk unura, heldur þuklað á þeim. Rannsóknarlögreglan leitar en mannsins, sem reyndi að svívirða litla telpu í Laugardal sl. fimmtu dag, og vinnur hún nú úr ýms- um upplýsingum, iera borizt hafa um menn, sem lýsingin, er litla telpan gaf gæti átt við.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.