Morgunblaðið - 29.10.1966, Side 1
28 sföur
53 árgangur
248. tbl. — Laugardagur 29. október 1966
Prentsmiðja Morgunblaðsins
De Gaulle á blaðamannafundi:
Hernaðarlegur sigur
óhugsandi í Vietnam
— Lausn útilokud án þáittöku Kinver/a
5 Mynd þessi var tekin í Aber- ;
C fan í Wales sl. fimmtudag, er !
^ fram fór jarðarför allmargra j
; barnanna, sem grófust undir ;
■ gjallskriðunni á föstudaginn j
í fyrri viku. Börnin voru jarð j
Z sett í einni og sömu gröf. !
■
i*................................
Morrænn
orlofsbær
Helsingfors, 28. okt. — NTB
• Sex finnskir þingmenn hafa
beint þeim tilmælum til Norður
landaráðs, að kanna möguleik-
ana á því að koma á fót nor-
rænum „orlofsbæ" í einhverju
binna vanþróuðu ríkja, þar sem
loftslag er beppilegt.
Þingmennirnir gera þá grein
fyrir tilmælum sínum, að geysi-
legur fjöldi manna á Norður-
löndum taki sér sumarfrí í júlí-
mánuði, þar sem hann sé trygg
astur góðviðrismánuður — en
þetta hafi í för með sér marg-
háttuð vandræði. Frá efnahags-
Framhald á bls. 27
París, 28. okt. — NTB-AP
#De Gaulle, forseti Fiakklands,
hélt fund með fréttamönnum í
París í dag, Sagði hann þar m.a.,
að hernaðarlegur sigur í Viet-
nam væri óhugsandi — Banda-
ríkjamenn mundu aldrei fara
með sigur af hólmi — né væri
nokkur von fyrir Viet-Cong að
sigra bandaríska herliðið. Hins-
vegar væri það undir Banda-
ríkjamönnum komið, hvort frið-
ur kæmist á í landinu. Ef áfram
yrði haldið sömu stefnu hefði
það ekki annað í för með sér
en blóðbað á báða bóga. Kvað
forsetinn Frakka líta með fyrir-
litningu á að stórþjóð héldi uppi
Kjarnorkutilraun Kínverja:
Fagnaðarlæti í Peking
— IJ Thant fordæmHr
Talin hafa geysilega þýðingu,
hernaðarlega og pólitíska
Peking, Belgrad, Moskvu,
28. okt. — AP-NTB —
t FREGNIR frá Peking
herma, að geysilegur fögn-
uður hafi orðið þar í borg, er
frá því var skýrt, að Kínverj-
um hefði tekizt að skjóta á
loft flugskeyti með kjarnorku
hleðslu.
| Viðbrögðin { öðrum ríkjum
eru mismunandi. U Thant,
framkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna, hefur fordæmt
tilraunina og harmað að ekki
skuli hafa tekizt að koma í
veg fyrir frekari útbreiðslu
kjarnorkuvopna yfirleitt. Ind
verskir þingmenn hafa látið í
ljós þá skoðun, að þessi árang
ur Kínverja verði sennilega
Tölur Loftleiða reyndust
réttari en hjá SAS
— Rannsókn lokið á farþegafjölda
Loftleiða á Atlantshafsleiðinni
Samningaviðrœður halda átram
| í EINKASKEYTI til Mbl. farþega
nov.
frá Kaupmannahöfn í gær,
segir, að lokið sé rannsókn á
fjölda þeirra farþega, sem
Uoftleiðir flytji árlega á
Atlantshafsflugleiðinni. — Á-
kveðið hafi verið að gera
þessa rannsókn sökum þess,
að mikill munur hafi verið á
tölum þeim, er Loftleiðir og
SAS gáfu upp um farþega-
fjölda á þessari flugleið. Hafi
komið í ljós, að tölur Loft-
leiða væru réttari.
í skeytinu segir: „Loftleiðir
höfðu gefið upp, að árlegur fjöldi
Atlantshafsleiðinni
væri 16.000, en með því að bæta
við farþegum frá Finnlandi og
nokkur þúsund farþegum í leigu-
flugi, hækkar sú tala upp í
19.000. SAS hafði staðhæft, að ár-
legur fjöldi farþega Loftleiða á
þessari leið væri 27.000.
Nefndin, sem skipuð var til að
framkvæma rannsóknina, hefur
haldið fund í Kaupmannahöfn
undir forsæti Pauls Andersens,
skrifstofustjóra í danska sam-
göngumálaráðuneytinu. — Hinar
nýju upplýsingar verða lagðar
fyrir samgöngumálaráðherra
Norðurlandanna, áður en hinar
eiginlegu samningaviðræður
halda áfram í nóvember nk.
Mbl. hafði samband við Martin
Petersen, fulltrúa Loftleiða, og
staðfesti hann, að þetta væri rétt.
Loftlefðir hefðu gefið upp, að
Framhald á bls. 27
til að herða mjög á kjarnorku
vísindavinnu Indverja. Rúss-
ar birtu fregnina athuga-
semdalaust — og haft er eftir
frönsku stjórninni, að Kín-
verjar hafi nú sennilega fund
ið svar við hugsanlegum til-
raunum Bandaríkjamanna til
að færa út stríðið í Víetnam
til Kína.
Fréttamaður júgóslavnesku
fréttastofunnar „Tanjug“ skrifar
frá Peking ,að mikil fagnaðar-
læti hafi verið í Peking í dag,
hópgöngur og dans á götum úti,
trumbusláttur og myndum sveifl
að af Mao Tse-tung. Segir frétta
maðurinn, að fregnin hafi komið
mjög á óvart og sýni, að Kín-
verjar hafi tekið skjótari fram-
förum í smíði kjarnorkuvopna
og eldflauga en nokkurn hafi
órað fyrir. Segir hann, að sér-
fræðingar um kínversk málefni
séu sammála um, að atburður
þessi hafi geysilega vísindalega,
hernaðarlega og pólitíska þýð-
ingu fyrir kínverska kommún-
ista og tilraunin hafi verið gerð
á heppilegasta tíma. Bæði hafi
Framhald á bls. 27
loftárásum á smáþjóð.
Forsetinn sagði, að Banda-
ríkjastjórn ætti að flytja brott
herlið sitt frá Vietnam og sam-
þykkja, að Suð-austur Asía yrði
gerð að hlutlausu svæði undir
ströngu eftirliti. Ljóst væri jafn
framt, að óhugsandi væri að
leysa þessi mál, án þátttöku
Kína. Ekki kvað hann Frakka
hyggja á milligöngu í Vietnam-
deilunni.
De Gaulle kvaðst þeirrar skoð
unar, að Frakkar fylgdu utan-
ríkisstefnu, sem væri heirr.inum
einkar holl, ekki sízt Bandaríkja
Framhald á bls. 27.
Barnsrán
hindrað ■
Khöfn ...
Kaupmannahöfn, 28. okt.
— NTB —
é í GÆR var komið í veg
fyrir barnsrán í Kaup-
mannahöfn.
Tvær konur stóðu og töluðu
saman á Amagerbrogade, er
þær sáu unga konu aka burt
barnavagni, er nokkra stund
hafði staðið fyrir utan verzl-
un skammt frá þeim. Þeim
virtist konan taugaóstyrk og
ýmislegt í háttalagi hennar
vakti tortryggni þeirra.
Konurnar gengu því til henn
ar og spurðu hvort hún ætti
barnið í vagninum. Því svar-
aði hún engu, heldur hljóp i
burt sem bráðast og hvarf í
mannþröngina. — Konurnar
tvær gáfust upp vi'ð að fylgja
henni eftir og tóku vagninn
með sér til verzlunarinnar,
þar sem hann hafði staðið.
Þar hittu þær fyrir móður
barnsins, sem fékk taugaáfall,
er hún heyrði, hvað gerzt
hafði.
Lögreglunni var ekki til-
kynnt um atburð þenna fyrr
en seint í gærkvöldi, eftir að
móðirin hafði skýrt manni sín
um frá honum.
Krabbameinshvetjandi
efni finnast í tei
Tokió, 28. okt. — AP
é TVEIR bandarískir vís-
indamenn hafa skýrt svo
frá, að komið hafi í ljós, að
í tei eru efni, svokölluð
Phenol-efni, sem aukið
geta vöxt krabbameins.
Vísindamenn þessir, lækn-
arnir Hans Elmar Kaiser og
John C. Bartone, sem starfa
við læknadeild George Was-
hington-háskólans í Washir.g-
ton, skýrðu frá þessu á ní-
undu alþjóðaráðstefnunni um
krabbamein, sem yfir stendur
í Tokíó.
Þeir kváðust hafa getað
unnið úr tei fyrrgreind
Phenol-efni, sem aðrir vís-
indamenn höfðu áður sýnt
fram á, að gætu aukið vöxt
krabbameins. Síðan hófu þeir
tilraunir á músum með
krabbameinsvekjandi efni,
sem nefnist benzpyrene, og
tei. Þeir báru benzpyrene á
háisinn á sextíu músum.
Myndaðist ekki krabbamein i
neinni þeirra. Þá tóku þeir
aðrar sextíu mýs og báru
einnig benzpyrene á háls
þeirra og báru síðan 55 sir.n-
um á þær te, sem hafði verið
búið til á venjulegan hátt.
Allar þessar mýs fengu
krabbamein á mismunandi
Framhald á bls. 27