Morgunblaðið - 29.10.1966, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 29.10.1966, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 29. okt. 1966 65 ára: Bjarni Bjarnason læknir f dag er sextíu og fimm ára •inn af þekktustu læknum höf- wðborgarinnar, Bjarni Bjarna- son frá Geitabergi. Hann er fyr- ir löngu þjóðkunnur af læknis- störfum sínum og fyrir hinn mikla skerf, er hann hefur lagt tfl lista- og menningarmála — og ekki sízt fyrir hin óeigin- gjörnu störf, er hann hefur unn- ið í þágu líknar- og heilbrigðis- mála landsins. Bjarni læknir er fæddur á Geitabergi 29. október 1901. Kann er sonur hinna þjóðkunnu Geitbergshjóna, Sigríðar Einars dóttur og Bjarna hreppstjóra Bjarnasonar. Bjarni hreppstjóri á Geitbergi var einn af merk- ustu bændum í byggðum Borgar fjarðar um sína daga, gei'ði garð inn frægan og rausnarskap og atorku. Hann var söngelskum og músíkalskur og var Geitbergs- heimilið frægt víða um sveitir f j rir söngmennt og menningar- fc. g. Það var mjög í þjóðbraut á búskaparárum Sigríðar og Bjarna, reyndi því mjög á dugn- að húsfreyjunnar, því að þar var mikil rausn í veitingum við gesti og greiði aldrei sparaður. Sig- ®íður var af þekktum borgfirzk- om bændaættum, en Bjarni /ar érneskur í ættir fram, kominn af Ásgarðsætt I Grímsnesi, af Sig- urði bónda Guðnasyni í Ásgarði, afa Jons Sigurðssonar forseta. Bjarni læknir ólst upp á þjóð- legu og myndarlegu heimili, þar voru holl og gó‘ð áhrif, jafnt við ■tarf og í leik. Á æskuárunum kynntist hann söng og hljóðfæra slætti, og urðu þau áhrif rík og mótuðu lífsviðhorf hans síðar. ÍHann var snemma hneigður til Iserdóms og fór þvi í mennta- Skólann og varð stúdent árið [L922. Að því loknu hóf hann nám f læknisfræði við Háskóla ís- iands og varð kandídat í læknis- fræði árið 1927. Hóf hann þá framhaldsnám erlendis í sjúkra- húsum í Björgvin, Vínarborg og f Kaupmannahöfn. Varð hann •érfræðingur í meltingarsjúkdóm «m árið 1935. Síðar fór hann námsfedðir i sérgrein sinni til SKaupmannahafnar, New York, Skotlands og Þýzkalands. Að loknum glæsilegum námsferli varð hgnn aðstoðarlæknir við •júkrahúsið á Akureyri 1928— D933 og var hann jafnframt starf andi læknir í bænum. Árið 1934 varð hann læknir í Reykjavík >— og þá hefst raunverulega hið merka og mikla ævistarf hans, sem hefur orðið til heilla og hamingju, jafnt einstaklingum og samfélaginu. Samhliða eril- aömu læknisstarfi hefur Bjarni verið sjúkrahúslæknir í Hvíta- bandinu, Elliheimilinu Grund og á Sólheimum, en það sjúkrahús aekur hann ásamt tveimur öðr- wm læknum, og hefur það gegnt mikilvægu hlutverki í heilbrigð- iwnálum höfúðborgarinnar. Bjarni læknir hefur starfað mikið að félagsmálum læknastétt arinnar og líknarmálum yfir- ieitt, enda er honum ekkert mann tegt óviðkomandi. Með aldrinum hefur hann sinnt í auknum mæli atörfum í þágu heildarinnar, jafnt almennum heilbrigðismál- «m og baráttu gegn einstökum sjúkdómúm. Hann var formaður Krabbameinsfélags Reykjavíkur, en jafnframt varaformaður og rit mri Krabbameinsfélags íslands, en þegar Niels Dungal prófess- or féll frá varð hann formaður þess og er enn. Einnig er hann ritstjóri Frétta bréfs um heilbrigðismál, en það er málgagn félagsins. Bjarni leeknir hefur unnið mikið starf fyrir Krabbameinsfélagið, sem hvorttveggja er hið merkasta og margir hafa notið góðs af fóm- fýsi hans og brautry’ðjandastarfi I baráttunni gegn þessum skæða eg illkynjaða sjúkdómi. Bjarni iæknir hefur unnið mik Mt fyrir stéttarfélag sitt.1 Hann var um tíma varaformaður Læknafélags íslands, formaður Félags meltingarsérfræðinga á íslandi, ‘ formaður húsanefndar Læknafélags íslands og formað- ur stjórnar Domus Medica. Bjami læknir lyftir sönnu Grettistaki, er hann fremstur í flokki fékk því áorkað, að hús Domus Medica var reist. Bjart- sýni hans og trú á hið góða mál- efni vann bug á flestum erfið- leikum. Sigur hans varð full- kominn í verki, þegar hann stakk fyrstu skóflustunguna að húsinu — og nú er það þýðingarmikill liður í heilbrigðismálum höfuð- borgarinnar. Þó Bjarni hefði ekkert annað unnið sér til ágæt- is í málefnum lækna og heil- brigðismálúm landsins, en bygg- ingu Domus Medica myndi það verk vera nægilegt til þess að halda nafni hans á loft á kom- andi tímum. Það mætti ætla, að það, sem þegar er talið, væri nóg starf venjulegum manni. En svo er ekki með Bjarna lækni, enda er hann enginn meðalmaður. Hann er einn þeirra, sem alltaf hefur tíma til alls, á alltaf næg áhuga- mál — og hefur alltaf nóga' at- orku til að leysa þau á þann hátt, sem ákjósanlegastur er og heilla vænlegastur. í æsku nam hann söng og hljómlist á heimili foreldra sinna. Við störf og nám á ung- um aldri helgaði hann sönggyðj- unni margar tómstundir. Þegar fábreytileiki samfélagsins þarfn- aðist krafta hans, lagði hann óhik að til lei'ks við úrlausnarefnin á vettvangi hinnar lifandi listar — á sviði í leik og söng. Hann varð þátttakandi í leiklífi höfuðborg- arinnar, og gat sér brátt góðan orðstír, er seint firnist, enda hafði hann áður tekið þátt í söng- og leiklistarlífi Akureyrar. í söng lei’knum „Einu sinni var“ gat hann sér góðan orðstir við hlið Brynjólfs Jóhannessonar og Hreins Pálssonar. Einnig fór hann með hlutverk prinsins í „Gamla Heidelberg". Hlutverk hans í „Bláu kápunni“ og í söng leiknum „í álögum", gleymdist seint þeim, sem sáu. í raun réttri markaði meðferð Bjarna læknis á hlutverki hans í „í álögum“, eftir Dagfinn Sveinbjörnsson og öll sýningin viss tímamót, því þar er um að ræða brautryðj- anda verk, þar sem leikrit og hljómlist voru eftir islenzka listamenn. Tónskáldið Sigurður Þórarinsson mótaði þar sérstæða íslenzka stefnu í söngleik, þjóð- legan og heillandi, sem var fram- sett af skilningi og fágaðri túlk- un af íslenzkum listamönnum. En sennilega má segja að stærsta hlutverk hans á leik- sviði hafi verið er hann tók við hlutverki Eisensteins í Leður- blökunni eftir Strauss af Einari Kristjánssyni óperusöngvara. Þegar velmegun íslenzku þjóð arinnar hófst á heimstyrjaldar- árunum síðari, varð mörgum beztu mönnum landsins Ijost, áð þörf var á að gefa út í nýjum alþýðlegum útgáfum gullaldar- rit iandsins. Bjarni læknir var einn þeirra manna, sem kom auga á þessa nauðsyn. En hug- sjón varð honum eins og oftar raun í verki. Hann stofnaði út- gáfufyrirtæki, ásamt félögum sín um til að leysa þetta verkefni, Hrappseyjarprent og íslendinga- sagnaútgáfuna. Þessi fyrirtælý gáfu út nokkur gullaldarrit. Út- gáfur þessar eru hinar merk- ustu og urðu vinsælar og glæddu áhuga alþýðu á hinum fornu bók menntun.. Ég er ekki nægilega kunnugur þessum málum, en mér er ekki grunlaust, að Bjarni læknir hafi verið einn aðalhvata maður að þessu, enda er það í samræmi við önnur áhugamál hans. Árið 1925 kvæntist Bjarni læknir Regínu Þórðardóttur kaupmanns Bjarnasonar frá Reykhólum. Þau eiga tvær dæt- ur: Erlu, gifta Hei'ði Ólafssyni hæstaréttarmálaflutningsm., og Kolbrúnu gifta Sigurði Jónssyni kennara frá Yztafelli í Þingeyj- arsýslu. Regína er þekkt leik- kona og hefur löngum leikið á sviði í leikhúsum höfuðborgar- innar. Mér hefur oft þótt það með ágætum, hve þessi hjón eru samstillt í áhuga og framkvæmd í listalífi borgarinnar. Það er ekki mitt í stuttri grein að lýsa því, en ég er vel vitandi þess, að þegar leiklistarsaga fslend- inga verður skráð, þá verður hlutur þeiria mikilli. Þegar Bjarni Bjarnason varð læknir í Reykjavík árið 1934, hófst vinátta ökkar, er aldrei hef ur rofnað. Með auknum kynnum okkar á miHi, varð mér brátt IjÚst, a'ð hann var sérstæður mannvinur og lét fátt sér óvið- komandi, er til heilla horfir í þjóðfélagi voru. Sjúklingar hans, sem vafalaust skipta mörgum þúsundum, bera traust till hans, háttprúð framkoma hans og virðuleiki bera vott um skap- festu hans, hjartahlýju og hjálp- semi. Bjarni hlaut í vöggugjöf góðar gáfur, er hann hefur farið vel með og ávaxtað landi og lýð til blessunar og farsældar. Mér þykir leitt, að á þessum merku tímamótum í lífi Bjarna læknis Bjarnasonar, að hann skúli ekki vera hér á landi. Hann og kona hans eru austur í Jap- an. Búa þau á hótelinu Hilton Hawaiian Village í Tókíó. Er hann að kynna sér nýjar aðferð- ir í sérgrein sinni, til heilla ís- lenzku þjóðinni. Ég veit, að hin- ir mörgu vinir hans og velunn- arar munu senda honum hlýjar hugsanir og heillaóskir. Óska ég Bjarna lækni till hamingju á þessum merku tímamótum, og vona ‘ áð framtíðin færi honum gæfu og gengi, og íslenzka þjóð- in megi njóta starfskrafta hana sem lengst. Hróbjartur Bjarnason. Fermingar á morgun Ferming i Laugarneskirkju sunnudaginn 30. okt. kl. 10,30 f.h. (Séra Garðar Svavarsson). STÚLKUR: Esther Selma Sveinsdóttir, Þykkvabæ 10. Jóhanna Magnúsdóttir, Lauga- teig 54. Jónína Vilborg Ólafsdóttir, Miðtún 42. DRENGIR: Benedikt Þór Valsson, Klepps- vegi 70. Einar Viggo Maack, Selvogs- grunni 33. Gunnar ÁstþórSson, Laugarnes- vegi 58. Hákon Hákonarson, Rauðalæk 31. Helgi Lúðvíksson, Hjallavegi 24. Kári Jón Halldórsson, Klepps- vegi 16. Karl Jóhgnn Halldórsson, Kleppsvegi 16. Jens Björgvin Helgason, Silfur- teig 4. Jón Sturla Axelsson, Rauðalæk 14. Jón Guðmann Jónsson, Laugar- nesveg 81. Jón Heiðar Sveinsson, Þykkva- bæ 10. Ólafur Ágúst Gíslason, Miðtúni 90. Tómas Halldór Ragnarsson, Álftamýri 46. • Ferming í Háteigskirkju 30. okt. kl. 2. (Séra Jón Þorvarðs- son). STÚLKUR: Birna Pálsdóttir, Mávahlíð 47. Ingibjörg Pálsdóttir, Máva- hlíð 47. Jóhanna Thorsteinsson, Skip- holti 16. Kornelía Guðrún Kornelíus- dóttir, Kleifarvegi 14. Kristjana Þorsteinsdóttir, Bcga- hlíð 7. Sif Breiðdal, Sólheimum 23 Þórbjörg Árný Oddsdóttir, Stigahlíð 34. DRENGIR: Gísli Gissur Ófeigsson, Máva- hlíð 21. Pétur Gunnar Kornelíusson, Kleifarvegi 14. Ragnar Lárusson, Mávahlíð 16. Reynir Ólafsson, Háaleitis- braut 121. Steindór Kristinsson, Safa- mýri 71. Fermingarböm í Fríkirkjunni 30.10. kl. 2 Prestur: Sr. Þorst. Björnsson. STÚLKUR: Anna Lísa Óskarsdóttir, Suðurlandsbraut 95. Ásta Einarsdóttir, Lyngbrekku 18, Kóp. Eyrún Björg Hafsteinsdóttir, s. st. Erna Björk Guðmundsdóttir, Grenimel 45. Guðrún Edda Guðmundsdóttir, Nesvegi 76. Valgerður Guðbjörg Þórðar- dóttir, Ásgarði 76. Jórunn Kristinsdóttir, Blóm- vallagötu 10. DRENGIR: Bjarni Kristinsson, Blómvalla- götu 10. Daníel Gunnar Gunnarssoa, Bergstaðastr. 63. Einar Gunnarsson, Laugaveg 142. Grímur Kristinn Kolbeinsson, Freyjugötu 44. Guðmundur Þorsteinsson, Garða stræti 36. Haukur Ásgeirsson, Valarbraut 19, Seltj.n. Júlíus Valdimar Óskarsson, Suðurlandsbraut 95. Magnús Magnússon, Hólm- garði 46. Magnús Magnússon, Hjalla- vegi 62. Ragnar Guðm. Gunnarsson, Víðimel 3'7. Rúnar Ásgeirsson, Valarbraut 19 Seltj.n. Sófus Guðjónsson, Berkkustíg 17. Tryggvi Eyþórsson, Holtagerði 66, Kóp. Þorgeir Þorsteinsson, Garða- stræti 36. Stefán Haraldsson, Skildinga- __ nesveg 34. Ásprestakall: Fermingarbörn sr. Gríms Grímssonar í ■Laugarneskirkju 30. október 1966. Líneik Sigríður Jónsdóttir, Skipasundi 47. Guðmundur Hannes Jónsson, s. st. Ragnheiður Gestsdóttir, Laugar- ásveg 7. Ferming i Hallgrímskirkju, sunnudaginn 30. okt. 1966 kl. 11 f.h. Dr. Jakob Jónsson. DRENGIR: Axel Sölvi Axelsson, Nýbýla- veg 38, Kópavogi. Guðbjörn Jóhannsson, Háaleitits braut 36. Sigurður Örnólfsson Thorlacius, Háaleitisbraut 117. Þórir Örn Guðmundsson, Háa- leitisbraut 34. STÚLKUR: Anna Ríkarðsdóttir, Eiríks- götu 11. Björg Hauksdóttir, Mávahlíð 3. Fermingarbörn í Dómkirkj- unni, sunnudaginn 30. okt. kl. 2. Sr. Óskar J. Þorláksson. G.E. uppþvottavélar WUMM liDll (lM« 1HII STÚLKUR: Eva. G. L. Jörgensen, Ljós- heimum 16 B. Hrefna Björgvinsdóttir, Lauga- vegi 32. María Vilbogadóttir, Suðurlands- braut 74 A. Ragnhildur Á. Gunnarsdóttir, Skipholti 58. Sigríður M. Jónsdóttir, Skóla- stræti 5 B. DRENGIR: Alfreð Ó. ísaksson, Melabraut 41, Seltjarnarnesi. Elías R. Sveinsson, Grundar- stíg 1L Þórhallur Halldórsson, Öldu- götu 24. Örn J. Petersen, Njálsgötu 4. BÍLASALINN við Vitotorg Nýir eigendur! Áherzla lögð á góða þjónustu. BfLASÝNING Á LAUGARDÖGUM Til sölu Volkswagen Fastback 1960. Opel Caravan 1965. Volkswagen 1965—’66 Zephyr 1962. Saab 1963—1964. Opel Record 1961—1965. Rambler Classic 1963—1964 Opel Cadett 1965—1966 Moskwitch 1960—1966 Hilmann Himp 1965. Fiat 850, sport. Cortina 1963—1966. Willys 1960—1966. Chevrolet ’57, fyrir skuldabréf Chevrolet 1961—1964. Opel Capitan 1960—1962 M.G. sportbíll. Ford 1958, tveggja dyra. — Harðtopp. Höfum kaupendur að Volkswagen, flestum árgerð- ura. Rússajeppum, flestum árgerð- um. Einnig 4—5 manna nýlegum bifreiðum. Mikil útb.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.