Morgunblaðið - 29.10.1966, Side 28
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
. ——.......... ......... 248. tbl. — Laugardagur 29. október 1966
Langstærsta og
fjölbreyttasta
blað landsins
Kjöt að verðmæti 10 milljónir
í hættu vegna ammoníakleka
Holti, Síðu, 28. okt.
SÍÐDEGIS í dag sprakk
ammoníakleiðsla í einum
klefa í frystihúsi Sláturfélags
Suðurlands á Kirkjubæjar-
klaustri. Slátrun stendur yfir
og því unnið í írystihúsinu, en
svo heppilega vildi til, að eng
inn var staddur inni er slysið
varð.
Ókannað er enn um skemmd-
ir, enda ekki hægt að komast inn
að svo stöddu. Væntanlega munu
koma viðgerðarmenn úr Reykja-
vík í nótt. Ammoníak hefur að
minnsta kosti íarið í tvo klefa og
eru þeir báðir fullir af kjöti, en
magnið mun nema 1500—2000
skrokkum. Vélstjóri Sláturfélags
Suðurlands á Klaustri er Jón
Björnsson. — Siggeir.
Vegna þessarar fréttar sneri
blaðið sér til Vigfúsar Tómasson-
ar hjá Sláturfélagi Suðurlands
og spurði hann um hver áhrif
þessi ammoníakleki kynni að
hafa á það mikla magn af kjöti,
sem þarna er geymt
Vigfús sag'ði, að það byggðist
Nýtt sklp til
Neskaupstaður
Neskaupstað, 28. okt.
í DAG kom til Neskaupstaðar
nýr og glæsilegur bátur. Heitir
hann Sveinn Sveinbjörnsson.
Báturinn er smíðaður hjá Homm
elvik í Noregi og er 250 tonn að
stærð. Aðalvél bátsins er List-
er-diesel, 60 hö. og gekk bátur-
inn 11.5 sjómílur í reynsluför.
1 bátnum eru að sjálfsögðu öll
nýjustu fiskileitar- og siglinga-
tæki.
Skipstjóri á bátnum er Guð-
mundur Karlsson, en eigandi er
Sveinbjörn H. Sveinsson í Nes-
kaupstað.
mjög á því hve fljótt lekans hefði
orðið vart, og þá hve mikið magn
hefði komizt inn í klefana. Hefði
komizt þangað fljótandi ammoní-
ak brennir það frá sér allt líf-
rænt, sem fyrir verður. Sláturfé-
lagið hefur áður orðið fyrir því
að ammoníakloft hefur komizt í
klefa þax sem kjöt var geymt.
Það kjöt var harðfrosið. Er teki'ð
var utan af því hvarf öll lykt, og
er kjötið hafði verið þýtt og síð-
an rannsakað, kom í ljós, að ekk-
ert ammoníak var að finna í þvi.
Á þessu stigi málsins verður því
ekkert um það sagt hvort kjötið
Þungt hald-
inn enn
SAMKVÆMT upplýsingum
rannsóknarlögreglunnar þá var
maðurinn, sem varð fyrir bif-
reiðinni í Skipholti í fyrrakvöld
enn mjög þungt haldinn í gær-
kvöldi, og var ekki kominn til
meðvitundar. Hann heitir Jó-
hann Guðnason til heimilis að
Skipholti 51, og er tæpra 50 ára
að aldri. Rannsóknarlögreglan
biður alla þá sem urðu vitni
að þessu slysi að hafa samabnd
við sig sem fyrst.
hefur orðið fyrir skemmdum eða
eyðileggingu.
Hér er um a'ð ræða um 200
tonn kjöts, sem að verðmæti eru
rúmar 10 milljónir króna. Þetta
kjöt er í hættu, en í nótt var þess
að vænta hve alvarlegt ástandið
væri, en viðgerðarmenn fóru
austur í gærkvöldi.
Þannig leit ein bifreiðin út eftir
um mánuði.
einn af árekstrunum í þess-
2028 slys og árekstrar
í Rvík það sem af er árinu
Erfiðistu tímar umferðarinnar fara í hönd
NÚ FARA hættulegir tímar í
hönd í umferðinni, því að fram-
undan eru þeir tveir þrír mán-
uðir, sem hafa orðið árekstra
og slysahæstir á undanförnum
árum, samkvæmt skýrslum lög-
reglunnar. Af þessu tilefni sátu
fréttamenn fund í gær með
þeim sem með umferðamál í
borginni hafa að gera, og gerðu
þeir þar grein fyrir ýmsum at-
riðum varðandi umferðina í ár
miðað við árið í fyrra.
Skipulag saltdreif-
ingar á götur bætt
ÞAÐ kom fram á fundi með lög
reglunni og umferðanefnd Rvík-
ur í gær, að saltdreifing á götur
hefur verið skipulögð, og hefur
Guttormur Þormar hjá umferða
deild Borgarverkfræðings haft
umsjón með þeirri breytingu.
Er þessi breyting aðallega fólg
in í því að einum af hverfis-
stjórum borgarinnar hefur verið
falið að sjá um dreifingu salts-
ins, og hefur hann þrjár bifreið-
ar til umráða með saltdreifing-
artækjum. Hafa verið skipulagð
ar akstursleiðir fyrir hverja bif-
Framhald á bls. 27
Verst að tapa því, sem
óbœtanlegt er
Rætt við Gunnar i Vallholti
í G Æ R átti blaðið tal við
Gunnar Gunnarsson, bónda
í Syðra-Vallholti í Skaga-
firði, en bær hans brann
sl. miðvikudag, er hann
var staddur úti á Sauðár-
króki ásamt konu sinni,
Stefaníu Sæmundsdóttur.
Tvíbýli er í Syðra-Vallholti
og bjuggu þau hjón í svo-
nefndum austurbæ ásamt
dóttur 5 ára að aldri. Gunn-
ar er um fertugt.
— Húsið brann til grunna,
sagði Gunnar. — Hér var um
gamlan bæ að ræða, timbur-
hús með torfveggjum á köfl-
um. Nágrannarnir björguðu
talsverðu af innbúi og auk
þess tveimur hundum, sem
lokaðir voru inni í bænum,
Gunnar Gunnarsson,
bóndi í Syðra-Vallholti.
Austurbærinn í Syðra-Vallholti
meðan við fórum í kaupstað-
inn. Annar hundanna var illa
farinn vegna reyksins, en
hann hefir náð sér að fúllu.
Það sem bjargaðist var í vest
ur álmuhússins, en allt fór,
sem í austurálmunni var svo
sem húsmunir talsverðir, öll
matvara, nýjar mjaltavélar og
Framhald á bls. 27
ic Slys og árekstrar.
Það kom m.a. fram að frá
áramótum til septemberloka
hafa orðið 2028 árekstrar og um
ferðarslys innan lögsagnarum-
dæmis Reykjavíkur, og hafa 323
manns slasast. Á sama tíma í
fyrra voru þessar tölur 1998
árekstrar og slys, en 296 manns
| höfðu slasazt. Fyrir þennan mán
: uð ligja ekki fyrir endanlegar
j tölur um árekstra og umferða-
slys, en 25. okt. sl. höfðu verið
bókaðir 202 árekstrar og um-
ferðaslys þar sem 25 manns
höfðu slasazt, og dauðaslys hafa
orðið tvö, eins og fólki er í
fersku minni. I öllum október-
mánuði í fyrra urðu 28 árekstrar
og umferðaslys, þar sem 35
manns slösuðust, og dauðaslys
urðu 3 talsins. Á þessu ári hafa
orðið fjögur banaslys, en urðu
8 á öllu sl. ári. Ef þessar tölur
eru miðaðar við hina gífurlegu
aukningu, sem orðið hefur á bif
reiðum í umferðinni hér á sL
ári, er þessi aukning ekki svo
mjög mikil.
★ Skammdegið hættulegt.
Ástæðuna fyrir því að flest
slys og árekstrar verða yfirleitt
síðustu þrjá mánuði ársins má
vafalaust rekja til skammdegis-
ins. Á þessum tíma í fyrra slös-
uðust 97 manns og urðu þá
dauðaslysin fimm. Á hinn bóg-
inn má geta þess að í desember-
mánuði verða yfirleitt fæst slys
á fólki af völdum umferðar, en
hann hefur aftur á móti lang-
flesta árekstra.
★ Banaslys aukast.
Banasiysum hefur fjölgað
ískyggilega á þessu ári, og má
í því sambandi nefna að frá ára
mótum til septemberloka hafa
Framhald á bls. 27
Island sigraði Austur-
riki 3,5 gegn 0,5
1 SKEYTI frá Guðbjarti Guð-
mundssyni fararstjóra Kúbufar-
anna segir, að biðskákir úr
fyrstu umferð hafi verið tefldar
í gærmorgun, en eins og getið
var í blaðinu í gær, saUíslenzka
sveitin hjá i fyrstu uimerð.
Eftir fyrstu umferð standa
leikar þannig, að Júgóslavíu
vann Tyrkland með 3 gegn 1
vinning, Mongólía vann Mexíkó
með 2,5 gegn 1,5 og Austurríki
vann Indónesíu með 2.5 gegn 1.5.
í annarri umferð vann Frið-
rik Ólafsson Austurríkismann-
inn Kinzel, Ingi R. Jóhannsson
vann Stoppel, Guðmundur
Pálmason gerði jafntefli við
Winiwarter og Freysteinn Þor-
bergsson vann Jantschek. Sam-
kvæmt því hefur ísland þvi
unnið Austurríki með 3.5 gegn
0.5.
Önnur úrslit í annarri umferð
urðu: Júgóslavía vann Mongóliu
á öllum borðum og Tyrkland og
Indónesía skildu jöfn 2 gegn 2.
í þriðju umferð teflir ísland
við Tyrkland.
GRIItlDAVÍK
SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Grinda-
víkur heldur aðalfund í húsi
Kvenfélagsins nk. sunnudag kL
2 síðdegis.
Nótin tryggingarhæf
í DAG fóru hér fram sjópróf
vegna þess að síldveiðiskipið
Ólafur Friðbertsson hafði tapað
nót sinni er það var að veið-
um út af Austurlandi aðfara-
nótt miðvikudagsins.
Skipið tapaði nótinni við veið
ar vegna veðurs og vegna þess
að snurpuvír slitnaði. Stinnings-
kaldi var er óhappið átti sér
stað.
Verið er að setja upp nýjá nót
fyrir Ólaf Friðbertsson í Neta-
gerð Seyðisfjarðar og vonast er
til að hún verði tilbúin á sunnu-
daginn. Áhöfnin tók sér frí á
meðan og fóru skipsmenn heim.
Að loknu sjóprófi taldi Bjarni
Árnason, fulltrúi tryggingafélags
ins, líklegt að nótin væri bóta-
skyld samkvæmt tryggingarskil
mólum. — Sveinn.