Morgunblaðið - 10.11.1966, Síða 5
Fimmtudagur 10. nóv. 1966
MORCUNBLAÐIÐ
5
UR
ÖLLUM
ÁTTUM
' - t
Athöfnin hófst með því að
sveitarstjórinn, Eyjólfur Þor-
kelsson bauð gesti velkomna
til þessarar tvíþættu sam-
komu, sem væri. í fyrsta lagi
formleg afhending hins glæsi
lega skólahúss, og í öðru lagi
setning barna- og unglinga-
skólans.
Því næst tók til máls odd-
viti Suðurfjarðarhrepps, Jón-
as Ásmundsson. Gat hann þess
m.a. í ræðu sinni, að 60 ár
væru liðin síðan skólinn tók
til starfa í gamla húsnæðinu.
Taldi hann athugandi að nota
gamla skólahúsið fyrir æsku
dýrari en gert var ráð fyrir
í upphafi, vegna bleytu í jarð
vegi. Kom það niður á fram
kvæmdum við bygginguna
næstu 2 ár. — Skólahúsið er
að grunnfleti 296 ferm. — Á
neðri hæð eru 2 skólastofur,
kyndiklefi, hreinlætisklefar og
fíeira. Á efri hæð eru 2
kénnslustofur m.a. er önnur
stofan með leiksviði. Einnig
er þar skrifstofa skólastjóra,
bókaherbergi, snyrtiherbergi
o. fl.
Stærsti verktakinn við verk
ið var Trésmiðjan Kvistur
hér í Bíldudal, Byggingameist
ari var Heimir Ingimarsson.
Skólavígsla í Bíldudal
KLUKKAN 2 e.h. sunnudag-
inn 30. október fór fram á
Bíldudal vígsla og setningar-
athöfn hins nýja, glæsilega
barnaskóla Bíldudals. Húsfyll
ir var við þessa athöfn, sem
fór í alla staði vel og skemmti
lega fram.
lýðsstarfsemina hér hér í kaup
túninu.
Síðan lýsti oddvitinn hinu
nýja skólahúsi. Guðmundur
heit. Guðjónsson úr Reykja-
vík teiknaði skólann. Bygging
skólahússins hófst í ágúst
1960. Grunnur hússins varð
Heildarkostnaður við bygg-
inguna er nú 4,8 millj. kr., en
eftir er að mála húsið að ut-
an og gangá sumpart frá lóð.
Gert var ráð fyrir í upphafi
að heildarkostnaður yrði 5
millj. kr.
Að lokum afhenti oddviti,
skólastjóranum skólann, og
óskaði skólastjóra og nemend
um alls góðs, og árangurs í
starfi. — Sveitarstjóri tók því
næst til máls, las m.a. upp
mörg heillaskeyti sem borizt
höfðu í þessu tilefni og þakk-
aði fyrir hlýhug sýndan skól-
anum.
Síðan tók til máls skóla-
stjórinn, Pétur Bjarnason. —
Hann gat m.a. um hinar miklu
og glæsilegu gjafir er höfðu
borizt skólanum.
Frá Sólarkaffi Bílddælinga
og Arnfirðinga í Reykjavík,
barzt mynd af Jens heitnum
Hermannssyni, er var skóla-
stjóri hér á Bíldudal í 26 ár,
frá 1919 til 1945.
Börn hans gáfu vandaðan
stól til minningar um föður
sinn. Bílddælingar og nágrann
ar, gamlir nemendur Jens Her
mannssonar gáfu 10 þúsund
kr. til minningar um hinn
látna læriföður sinn. Gamlir
velunnendur skólans óg stað-
arins gáfu trésmíðavélar til
kennslu í skólanum.
Kvennadeild Slysavarnafé-
lagsins hér á Bíldudal gáfu
mjög vandað píanó til minning
ar um þá sem fórust í Þormóðs
slysinu (17,—18. febrúar ’43).
Skólastjóri þakknði þessar
miklu og höfðinglegu gjafir,
er bæru vott um mikinn hlý-
hug og vinarhug til skólans og
kauptúnsins. Skólastjóri gat
Pétur Bjaruason skólastjóri.
Séð yfir eina kennslustofuna.
þess og í ræðu sinni að þessi
mikla bygging, á svo fámenn-
um stað bæri vott um mikla
og almenna velmegun á staðn
um.
Nemendur í skólanum í vet-
ur verða 72, er skiptast í 6
bekkjardeildir. — 2 fastir
kennarar munu starfa við skól'
ann í vetur auk skólastjórans,
þau; Kristín Pétursdóttir og
Sigurður Guðmundsson.
Anna Knauf, kirkjuorgan-
isti mun kenna söng við skól
ann, en söngur hefur ekki ver
ið kenndur hér lengi.
Handavinnukennari verður
Ingrid Guðmundsson.
Við athöfnin söng kirkju-
kórinn undir stjórn Önnu
Knauf.
Séra Tómas Guðmundsson
flutti ávarp og bæn. Að lok-
um þakkaði sveitarstjóri öll-
um komuna og lauk athöfn-
inni með kaffidrykkju í Fé-
lagsheimilinu. — Hannes.
Skólahúsið.
Nýkomið iró Ameríku
Drengjahúfur og hattar. Ennfremur lamb
húshetturnar vinsælu.
Takmarkaðar birgðir.
________Aðalstræti 9. — Laugavegi 31.
Útgerðurmenn og sjómenn
Fasteignamiðstöðin tekur til sölu allar tegundir
skipa. — Höfum ávallt til sölu mikið úrval af
smærri og stærri skipum. Leggjum áherzlu á góða
þjónustu.
Austurstræti 12.
Sími 14120.
Heimasími 35259
Skipadeild.
ÍSAFIRÐI, 8. nóv. — Það sem
af er þessum mánuði hefur ver-
eintaklega stiríi tíð og miklar
ógæftir hér á Vestfjörðum og
bátarnir hafa sáralítið getað ró-
ið.
23 bátar munu byrjaðir á
rækju í ísafjarðardjúpi, og hafa
þeir fengið ágætan afla, yfirleitt
náð dagskammtinum sem veiða
má, en það eru 40 kg. á bát á
dag. Rækjan er yfirleitt nokkuð
góð. H. T.
RYMINGARSALA
Scl jum í dag og næstu daga, allar barna- og ungl-
ingaúlpur, þar sem við höfum hætt framleiðslu á
þeim. — Verð allt niður í kr. 150,00.
Nælonblússur og sloppa og einnig ýmsa gallaða
voru svo sem; rúmteppi, sængur og fleira.
Bláfeldur hf.
Síðumúla 21.
Heildverziun
Fjársterkur tnaður óskar að komast í samband við
slíkan rekstur. Óska að kaupa hlutabréf í fyrirtæk-
inu, get einnig útvegað mikið rekstrarfé. —
Tilboð, merkt: „Þagmælska — 8080“ sendist afgr.
Mbl. fyrir 16. nóv. nk.