Morgunblaðið - 10.11.1966, Side 21

Morgunblaðið - 10.11.1966, Side 21
Fimmtudagur lö. nðv. 1968 MORGUNBLAÐIÐ 21 FRÁ AE.ÞINGH mÍmÆ TímgKtærf að hefjg rekstur lýsMSverlcsmiðiu í FYRIRSPURNATIMA samein- aðs Alþingis bar Skúli Guð- mundsson (F), fram fyrirspurn, sem hann flytur ásamt öllum þingm. Norðurlandskjördæmis vestra, um það, hvað frétta væri af rannsókn þeirri, sem samkv. ályktun Alþingis var hafin 1965, á því, hvort tímahært væri að byggja lýsisherzluverksmiðju hér á landi. Eggert G. Þorsteinsson (A), sjávarútvegsmálaráðherra, svar- aði fyrirspurninni og sagði: Vegna þessarar þingsályktun ar ritaði ráðuneytið bréf t,il stjórna síldarverksmiðjanna og fól þeim að kanna málið. Þær hafa síðan haft þetta mál til at- hugunar, en vegna anna var Jón Gunnarsson, verkfr., ráðinr. til verksins. Hann hefur nú skilað skýrslu um málið, og hefur rík- isstjórnin beðið umsagnar Efna- hagsstofnunarinnar. Jón telur það timabært að stofnuð verði lýsisherzluverk- smiðja. Afurðir muni seljast og rekstur hennar muni verða hag- kvæmur og verksmiðjurnar fái greiðari aðgang með sölu afurða en nú selji þær um 80% þeirra til sama aðila. Þá muni fslend- ingar fá meiri reynsiu i úr- vinnslu afurðanna, og jafnframt skapist möguleiki á útflutningi smjörlíkis. Jón Gunnarsson telur hag- kvæmast að staðsetja verksm. í nágrenni Rvk. Þvi til stuðnings telur hann, að hægara verði rr.eð ráðningu tæknifræðinga, einnig séu hér lægri rafmagnsverð og lægri farmgjöld, auk þess sé haf íshætta fyrir Norður- og Aust- urlandi. Þá telur hann og, að lýsisherzluverksmiðjan geti lát- ið smjörlíkisgerðunum í té hrá- efni, ef hún væri í nágrenni Rvk. Einar Olgeirsson (K): Með hvaða stærð er reiknað í skýrslu Jóns Gunnarssonar? Ég tel það undarlegt að staðsetja eigi verk smiðjuna í nágrenni Rvk, erida tel ég að hún eigi að framleiða fyrir erl. markað en ekki ísl. Unilever-hringurinn einokar að vísu allan markað í V-Evrópu, en við eigum að keppa við hann. Það er þessi hringur, sem kaup ir 80% af síldarlýsi okkar, og hann ákveður að mestu verðið á síldarlýsi. Ragnar Arnalds (K): Hér ct stórmál á ferðinni og vonandi tekst að stofna þessa verksmiðju enda tímabært að við hættum að vera eingöngu hráefnisfram- leiðendur á lýsi. Ég tel, að eins margt, ef ekki meira, mæb á móti staðsetningu verksmiðjunn ar í nágrenni Rvk. t.d. íjarlægð frá hráefni. Eggert G. Þorsleinsson (A): Ég vil taka það fram, að þetta voru aðeins skoðanir Jóns Gunn arssonar sem ég las upp, en ekki skoðanir rikisstjórnarinnar. Hún hefur falið Efnahagsstofn- uninni að segja álit sítt og síð- an mun stjórnin taka sínar ákvarðanir. Samkvæmt skýrslu Jóns, leggur han til, að verk- smiðjan verði miðuð við 50 tonna lýsisvinnslu á dag. Einar Olgeirsson (K): Þessi verksmiðja kemur ekki til með að vinna úr nema einum fimmta af framleiðslu síldarverksmiðj- anna, og tel ég það allt of lítið. Við eigum að byrja stórt og hefja slag við Unilever um mark aðinn. Við erum einn stærsti framleiðandi á síldarlýsi í heim inum og stöndum því vel að vígi, og þótt erfitt verði kannski í byrjun, þá verðum við að taka því, annars er stríðið tapað. — Alþingi Framhald af bls. 12 þegar frv. var samið lágu ekki fyrir upplýsingar um tolla og aðflutningsgjald af sjónvarps- tækjum, en nú liggja þær fyrir og því hægt að gera áætlanir samkv. því. Menntamálaráð mun leggja till. fyrir fjárveitinga- nefnd, að hún taki til meðferðar byggingu stöðva á Skálafelli og Vaðlaheiði á næsta ári, og komi það inn í frv. Eysteinn Jónsson (F). Ég vil lýsa ánægju minni yfir byrjun ísl. sjónvarpsins og mín skoðun er sú að það eigi að sigla undir fullum seglum til allra landsm. Fjárhagur sjónvarpsins er glæsi legur, sem sést á því að Rvk,- stöðin verður skuldlaus um ára- mót. Við eigum strax að ráðast í byggingu allra stöðvanna, enda er það ákaflega vel viðráðan- legt það þarf aðeins að taka nokkra tugi milljóna að láni, sem sjónvarpið ætti vel að geta greitt. Þetta þyrfti að athuga núna í sambandi við afgreiðslu fjárlaga, og ég vona að samkomu lag verði um þessa stefnu. Þórarinn Þórarinsson (F) Ey- steinn sagði margt af því sem ég ætlaði að segja, en ég vil þó taka fram að ég er á móti því að tolltekjur verði látnar standa undir kostnaðinum við uppbygg ingu sjónvarpsins. Þá vil ég spyrja menntamála- ráðherra hvort nokkuð hafi rætzt úr deilu tæknifræðinga sjónvarpsins og forráðamanna þess og eins hvort sjónvarpið fái að fjölga starfsmönnum sínum. Þá vil ég og spyrja að því hver afnotagjöld verði. Þorvaldur G. Kristjánsson (S) Spurningin er sú hvað fljótt sjón varpið nái til landsmanna og hve mikið það kosti. Menntamála ráðherra sagði að stofnkostnaður Bvk.-stöðvarinnar væri um 80 imillj., en hefði hins vegar verið áætlaður um 30 j millj. en þá var ekki meðreikn- aður rekstrar- kostnaður, sem varð. Líklega mun sjónvarp það sem eftir er kosta um 180 millj. og mun það ná tl um 80. þús. manns. Ef gert er ráð fyrr að 10% kaupi tæki verða tolltekjur um 60 millj. og og eru þá eftir 120 millj. þannig að með áfnotagjöldum, tvö til þrjú þúsund, ættu þessi 80 þús. manns vel að geta staðið undir þessu. Það er einnig augljóst, að það á að taka þetta mál föstum tök- um og ákveða á hve löngum tíma sjónvarpið nái til allra lands- manna. Sjónvarpsnefndin gerði ráð fyrir tveimur áætlunum, 5 og 7 ára, og tel ég, að miða eigi við fimm ára áætlunina. Ölafur Jóhannesson (F): Ég læt í ljós ánægju mína og tek undir með öðrum þingmönnum að hraða beri útbreiðslu sjón- varpsins. Hins vegar vil ég leggja fyrir menntamálaráðherra nokk- rar fyrirspurnir sem eru þessar. Með hvaða hætti er gert ráð fyrir að sjónvarpið nái til Húnavatns sýslu og Skagafjarðar og hvort ekki sé að vænta frv. um sjón- varpið enda hafa dómstólar litið svo á að útvarpslögin nái ekki til sjónvarpslaga í öllu tilliti. sbr. sjónvarpsmálið í Vestmanna eyjum. Gylfi Þ. Gíslason (A): Varð- andi fyrirspurnir hv. 5. þm. Rvk. vil ég svara, að unnið er að þess um málum. Ákvörðunar um af- notagjald er að vænta eftir mið- bik þessa mán. og vil ég geta þess, að samkv. áætlun er miðað við að sjónvarpið verði 4 st. á dag 6 daga vikunnar. Varðandi fyrirspurnir hv. 1. þm., Norður- landskjördæmis vestra vil ég segja það að sendingar til Húna flóasvæðis og Skagafjarðar munu fara í gegnum Stykkishólmsstöð ina, en ég mun gera nánari grein fyrir því á eftir. Næstu daga verður lagt fram frv. um breyt- ingu á útvarpslögunum til sam ræmingar við stofnun sjónvarps- ins. Lánveitingar hafnar Ér byggingasjóði EINAR Ágústsson bar fram fyr- irspurn á sameinuðu þingi í gær um það, hvort hafnar væru lánveitingar úr byggingasjóði. Eggert G. Þorsteinsson, félags- málaráðherra, svaraði og sagði, að þær væru hafnar. Þá gat ráð herra þess, að nú lægju fyrir 563 umsóknir um framhaldslán að upphæð 79,4 millj., 311 sæktu um ný lán að upphæð 43,5 millj., nýjar umsóknir væru 283 að upp hæð 488 millj. og sérstök Ján að upphæð 8 millj. Samtals væru þetta 1342 umsóknir að upphæð 168,8 millj. Ráðherra gat þess einnig, að tekizt hefði að standa við alla lánaskilmála við verkalýðshreyfinguna, sem ríkisstjórnin hétr í samningun- um 1964 og 1965. Á síðastliðnu ári voru lánaðar 274,2 milljónir úr byggingar- sjóði, en nú væri þegar búið að afgreiða 241,8 millj. og við bætt ust að minnsta kosti 125 milij., þannig að á þessu ári yrðu lán- veitingar a.m.k. 367 millj. Þá gat ráðherra þess, að sam kv. lögum hækkuðu lánin í hlut falli við byggingarvísitölu, þó ekki minna en um 15 þús. á ári, og yrðu lánin því 340 þús. á þessu ári. - I.O.G.T. - Stúkurnar Einingin, Frón og Verðandi . halda sameiginlegan fund í G.t.-húsinu, þriðjudagskvöld- ið 22. nóv. kl. 8,30. Dagskrá auglýst síðar. — Samstarfs- nefnd. Stúlkur vantar í mötuneyti Héraðsskólans í Reykjanesi við ísafjarð ardjúp. Upplýsingar gefur skólastjórinn á staðnum Símstöð: Skálavík. Stúkan Freyja nr. 218 Fundur í kvöld kl. 8.30 í Góð- templarahúsinu. 1. Inntaka. 2. Tekin ákvörðun um hækk- un félagsgjalda. Hagnefndaratriði: Séra Árelí- ur Níelsson, sjálfvalið efni. Kaffi eftir fund. Eerbergi óskost til leigu Ungan, reglusaman mann vantar herbergi. Uppíýsingar í síma 38497 eftir kl. 8 á kvöldin. Vélctæknifræðingur óskar eftir atvinnu. Lauk prófi frá Odense Teknik- um í október sl. — Upplýsingar í síma 50221 milli kl. 4 og 7 e.h. næstu daga. Ný sending enskar vetrarkápur og nælonpelsar með loðkrögum. líápu- og dömubúðin Laugavegi 46. Stúlka óskast Góð ensku- og vélritunarkunnátta nauðsynleg. - Umsóknareyðublöð hjá Upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna. Óskum eftir skrifstefustúlku með nokkra kunnáttu í málum og vélritun. Við- komandi þarf að geta starfað nokkuð sjálfstætt. Laun fara eftir menntun og reynslu. Umsóknir sendist afgr. Mbl. fyrir föstudagskvöld nk., merkt- ar: „Sjálfstætt skrifstofustarf — 9918“. Ulpur Herraúlpurnar með prjónakrögunum komnar aftur í stærð- unum: 52 og 54. Regnhelt ytra byrði. Vatterað fóður. Verð kr. 695 ..liiliun inmmuiti'iii ■iuiuinmnnn m im n m.m..... .•■>)■>>. i.i.ii .......................msm................... -----ll.l.tltlf. 'ÍHlMftllHll.iMIMffMfffffMMI T Mamannaskálanum — Miklatorgi. Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.