Morgunblaðið - 10.11.1966, Síða 22
22
MORGUNBLADIÐ
Fimmtudagur 10. nóv. 1966
Af hrærðum huga þakka ég Garðbúum, sem búsettir
eru hér í byggðarlaginu, og öllum öðrum fyrir þær
rausnarlegu peningagjafir, sem þeir hafa sent mér vegna
brunatjóns, sem ég varð fyrir 5. okt. sl. — Hjartanlega
þakka ég frú Helgu Þorsteinsdóttur og konum úr Slysa
varnadeild kvenna í Garði, sem stóðu að þessari fjár-
söfnun. Einnig flyt ég öllum hjartans þakkir fyrir auð-
sýndan vinarhug í veikindum mínum, með heimsóknum
til mín á sjúkrahúsið, blómum, gjöfum og margháttaðri
hjálpsemi. —< Það hefir verið óumræðanlegur styrkur
fyrir mig í erfiðleikum mínum, að finna þennan hreina
mannkærleika streyma til mín úr öllum áttum.
Guð blessi ykkur öll.
Pálína H. Þorleifsdóttir,
Nýlendu, Garði.
Innilegar þakkir færi ég öllum þeim, sem heiðruðu
mig á sextugs afmæli mínu 29. okt. með heimsóknum,
gjöfum og árnaðaróskum. — Lifið heil.
Björn Lárusson, Fitjarmýri.
Mínar innilegustu þakkir til allra, sem heiðruðu mig
með heimsóknum, gjöfum og skeytum á 60 ára afmæl-
isdegi mínum, 3. nóvember sl. — Guð blessi ykkur öll.
Ólafur Jónsson, Akranesi.
Faðir minn,
ÁMUNDÍNUS JÓNSSON
andaðist að Elliheimiiinu Ási, Hveragerði, þann 8. þ.m.
Útförin auglýst síðar.
Haraldur Ámundínusson.
Konan mín,
LÁRA ÓLAFSDÓTTIR
Urðarbraut 3, Smálöndum,
lézt 7. þ. m. — Jarðarförin auglýst síðar.
Hinrik B. Ólafsson. >
Eiginmaður minn og faðir okkar,
GUÐMUNDUR MAGNÚSSON
kaupmaður, Flókagötu 21,
andaðist í Borgarspítalanum, þriðjudaginn 8. þ. m.
Sveinbjörg Klemensdóttir og synir.
Hjartkær eiginmaður minn,
ÁRNI ÓLAFSSON
Njálsgötu 74,
andaðist 8. þ. m. á Landakotsspítala.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Anna G. Guðmundsdóttir.
Eiginmaður minn,
KRISTJÁN SIG»j«DaSON
Þórshamri, Skagaströnd,
er lézt 3. nóvember sl. verður jarðsettur frá Skaga-
strandarkirkju, laugardaginn 12. nóvember kl. 2 síðdegis.
Unnur Bjömsdóttir.
Útför föður okkar og tengdaföður,
BENEDIKTS G. WAAGE
heiðursforseta I. S. I.
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 11. nóvember
kl. 10,30 f.h.
Helga Weisshappel,
Kristín og Gunnar Gíslason,
Magnea og Einar B. Waage.
Jarðarför mannsins míns,
GUÐJÓNS E. SVEINSSONAR
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. nóvember,
kl. 13,30. — Þeim er vildu minnast hins látna er bent
á líknarstofnanir.
Jóna Jóhannesdóttir
og fósturböm.
Útför,
ARA GUÐMUNDSSONAR
skósmiðs frá Höfn í Hornafirði,
fer fram frá Fossvogskirkju laugardaginn 12. nóv. og
hefst athöfnin kl. 10,30 f.h. — Athöfninni í kirkjunm
verður útvarpað. k
Vandamenn.
Hans Jepsen, yfirmatsveinn í SAS eldhúsinu í Osló, sker hrein
dýrasteik fyrir danska flugfleyju. Stúlka í norskum þjóðbúningi
horfir á.
— Matur 1
— „Miðnætursól"
Framhald af bls. 17
um. Farið er með rennibraut
upp á fyrstu hæð, þar sem
verður sameiginlega deildin
fyrir öll Norðurlöndin og veit-
ingasalir, bæði loftkældur salur
og útiveitingahús, sem snýr út
að St. Lawrencefljóti með út-
sýni yfir borgina. Þaðan má
halda áfram með rennibraut
upp á þriðju hæðina, í sérdeild
ir Norðurlanda, þar sem ísland
hefur 115 ferm. sal, en hinir
450 ferm. Vinna færustu innan-
hússarkitektar að því að út-
búa deildirnar. Danir ætla að
sýna „manninn sem hráefni",
þ.e. hvernig Danir framleiða
gæðavörur í hráefnasnauðu
landi. Svíar ætla að túlka sitt
velferðarríki. Norðmenn munu
segja frá afrekum sínum í sam-
bandi við vatn og sjó. Og ís-
lendingar munu ætla að sýna
umheiminum hvernig þeir hafi
komið sér fyrir í eldfjallalandi
og tekið jarðvarma í þjónustu
sína.
Laugavegi 33.
Á Expo 67, eins og heims-
sýningin í Montreal er nefnd,
verður vissulega keppt um at-
hygli hinna 30 milljóna gesta,
sem reiknað er með að komi
þangað. En allir þurfa þeir eitt
hvað að borða, eins og einn
starfsmaðurinn sagði. Og 70
veitingastaðir ætla að reyna að
freista hvers og eins. Þar þykj-
ast Norðurlandamenn heppnir,
því þeir telja sig vera á bezta
stað, nálægt hinum miklu skál
um, er sýna vísindaafrek manns
ins og munu hafa mikið að-
dráttarafl og svonefndu „þjóða-
torgi“ ,þar sem fólk streymir
að á hátíðisdögum. Og þeir sem
að veitingarekstrinum standa
ætla vissulega ekki að láta sitt
eftir liggja og bjóða upp á það
bezta frá Norðurlöndunum.
E. P'
— Kísilvegur
Framhald af bls. 14
þessa máls.
Ein veigamesta mótbáran,
sem borin hefur verið fram gegn
efri leiðinni er sú, að með þvi
að fara þá leið kljúfi vegurinn
Reykjahlíðarhverfið frá væntan-
legu kísiliðjuþorpi, sem rísa á
í hrauninu austur af Reykjahlíð.
Það skal fúslega játað, að hér
er um ókost að ræða, en það er
skoðun mín, að hann sé hvergi
nærri svo mikill, að hann rétt-
læti þau náttúruspjöll, sem veg-
arlagning milli vatns og byggð-
ar hlýtur að hafa í för með sér.
Þennan vanda mætti líka leysa
með því að fara þriðju leiðina
með veginn, en sú leið væri
sennilega sú langæskilegasta.
Hins vegar sá Náttúruverndar-
ráð sér ekki fært að benda á
þá leið þar sem lagning hins
nýja vegar austan Reykjahlíðar
var þegar hafin. Þessi þriðja
leið felst í því, að fara með
veginn frá verksmiðjunni í
Bjarnarflagi vestur yfir hæða-
drögin norðan Reykjahlíðar og
ofan (norðan) við bæði kísiliðju
þorpið og Reykjahlíðarbyggð-
ina. Mér er ekki kunnugt um,
hvort vegarstæði á þessum slóð-
um hefur nokkurn tíma verið
kannað til hlítar, en ef þessi
leið hefði þegar í upphafi verið
valin, hefði hún allan vanda
leyst, og jafnframt hefði þeirri
viðurkenndu reglu verið fylgt,
að bægja beri vegum, sem
ætlaðir eru til þungaflutninga,
frá þéttbýli.
Mörgum kann ef til vill að
finnast, að hér sé fullmikið
veður gert út af lagningu stutts
vegarspotta í Mývatnssveit, en
mikilvægi þessa máls er samt
meira en flesta grunar. Hér er
einfaldlega um það að ræða,
hvort taka á tillit til náttúru-
verndarsjónarmiða í s ambandi
við mannvirkjagerð hér á landi.
Hingað til hefur það ekki verið
gert.
ATHUGIÐ!
Þegar miðað er við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
Nýkomið, hollenzkar
telpna peysur og
stretsh-buxur
Falleg og góð vara.
Hollenzku
dömuúlpurnar
með loðskinnsbrydduðu hettunum
komnar aftur. — Síðasta sending seldist
upp á fáum dögum. — Ódýrar — vandaðar.
Laugavegi 31.
Sinfóníuhljómsveit íslands
Ríkisútvarpið
Sunnudagstónleikar
i Háskólabíói sunnudaginn 13. nóvember kl. 15.
Stjómandi: Bohdan Wodiczko.
Einleikari: Ladislaw Kedra frá Póllandi.
Á efnisskrá er m.a. Píanókonsert og Rhapsody in
Blue eftir Gershwin og lög úr West Side Story.
Aðgöngumiðar eru seidir í bókabúðum Lárusar
Blöndal, Skólavörðustíg og Vesturveri og bókaverzl
un Sigfúsar Eymundssonar.
Til sölu
26 lesta véihátur
Allur nýendurbyggður með nýlegri aðalvél.
KRISTJÁN EIRÍKSSON, HRL.
Fasteignasala — Skipasala.
Laugavegi 27. — Sími 14226.
Husnæði óskast
Vil kaupa eða leigja hús í nágrenni Reykjavíkur,
helzt í Vatnsendalandi. — Upplýsingar í síma 60032.