Morgunblaðið - 10.11.1966, Page 23
Fimmtudagur 10. n5v. 1968
MORGUNBLAÐIÐ
23
Samvinna Krags og
Aksels Larsens?
DÖNSKU blöðunum verður að
vonum tíðrætt um þingrofið, sem
ríkisstjórnin ákvað í síðustu viku
og kosningar þær, sem fram eiga
að fara hinn 22. þ.m. Á meðal
þess, sem hvað mesta athygli
hefur vakið er það, að ýms
dönsku blaðanna halda þvi fram,
að kosningunum loknum muni
hefjast náið samstarf sósíaldemó
krata og sósíalístíska þjóðar-
flokksins, flokks Aksels Larsens.
Þannig sagði blaðið Informa-
tion á fimmtudaginn var, að í
ríkisstjórninni væri þegar vilji
fyrir hendi til þess að taka upp
pólitískt samstarf við sósíalist-
íska þjóðarflokkinn, en ekki, að
það yrði tekin upp stjórnarsam-
vinna við hann.
Blaðið B.T. segir enn fremur
s.l. föstudag, að strax á öðrum
degi kosningabaráttunnar hafi
komið í ljós viðhorf, sem værl
í fullkominni andstöðu við fyrra
viðhorf sósíaldemókrata t.il
sósíalistíska þjóðarflokksins og
verið hefur ráðandi árum saman,
þ.e. að þessir flokkar muni nú
taka upp samstöðu.
B.T. skírskotar til viðtals, sem
varaformaður sósíaldemókrata,
Hans Rasmussen og Aksel Larsen
áttu við Kristilegt Dagblad, þar
sem þeir segja báðir, að tími sé
til kominn að flokkarnir taki
upp samstarf.
Hundruð þúsunda Hindúa í;
Nýju-Delhi með helga menn:
í broddi fylkingar efndu á ■
mánudaginn var til mót- :
mælagöngu, í því skyni að ■
mótmæla slátrun kúa, en:
víða í Indlandi er á þeim ■
mikil helgi. Myndin hér að :
ofan er frá þessum óeirðum ■
og sýnir lögreglumenn reka C
einn hinna helgu manna;
næstum nakinn á undan sér C
j í áttina að lögreglubíl. Að ■
C minnsta kosti 7 manns biðu"
......................
Montevideo, 8. nóv. AP.
RÍKISSTJÓR.N Uruguay gaf í
dag allri verzlunarnefnd Austur-
Þýzkalands í landinu 10 daga
frest til þess að yfirgefa landið,
ellegar yrði til þess beitt lög-
regluvaldi. Hinn 30. september
6.1. var nefndinni veittur mánað-
arfrestur í framangreindu mark
miði, en síðan 10 dagar til við-
bótar að viðlöfðu lögregluValdi,
ef fyrirskipuninni yrði ekki
hlýtt.
Kosningar
í Trinidad
Port of Spain, Trinidad,
8. nóvember, AP.
ÞJÓÐLEGI alþýðuflokkurinn
(PNM) vann algjöran sigur í
fyrstu almennu þingkosningun-
um, sem fram hafa farið í Trini-
dad og Tobago, síðan íbúarnir
þar urðu sjálfstæð þjóð. Flokk-
urinn, en leiðtogi hans er dr.
Eric Wil'liams, forsætisráðherra,
hlaut 24 þingsæti í kosningunum,
Bem fram fóru á mánudag, en
Lýðræðislegi verkamannaflokk-
urinn hlaut 12. Alls eiga 36 þing-
menn sæti á þingi landsins.
Innanríkísráðherra Ind-
lands segir af sér
Nýju Delhi, 9. nóv. NTB.
INNANRÍKISRÁÐHEBRA Ind-
lands, Gulizarilal Nanda sagði í
gær af sér embætti vegna hinna
miklu óeirða, sem urðu í Nýju
Delhi á mánudag, er átta manns
létu lífið.
Hefur frú Indira Gandhi, for-
sætisráðherra, tekið embætti
Nanda í sínar hendur og hyggst
gegna því þar til fundinn hefur
verið heppilegur maður í hans
stað. Talið er víst, að hún muni
nota tækifærið til þess að láta til
sín taka ýmis mikilvæg innan-
ríkismál, er hún telur, að ekki
hafi verið sinnt sem skyldi, m.a.
matvælaástandið í landinu.
Nanda var gagnrýndur innan
síns eigin flokks — Kongress-
flokksins — fyrir að hafa sýnt
of litla röggsemi í sambandi við
hinar umfangsmiklu óeirðir, sem
urðu í Nýju Delhi. Mörg hundruð
þúsund Hindúar fóru þá um göt-
ur borgarinnar og kröfðust banns
við því, að kúm yrði slátrað.
Um 1500 manns hafa verið hand
t'eknir í Nýju Delhi eftir óeirð-
Fjölþæft skólastarf-
semi í Reykjanesi
ÞÚFUM, 4. nóv. — Héraðs-
skólinn og barnaskóHnn í
Reykjanesi tók til starfa 15. okt.
sl. og verður fullsetinn og fjöl-
sóttur eins og áður. 1 héraðsskól
anum og gagnfræðadeildinni
verða 85 nemendur, en í barna-
skólanum um 30 börn. Verður
börnunum skipt í flokka, sem
verða eins mánaðar námstíma
í einu fyrir hvern flokk. Börn-
in eru öll úr nágrenninu svo
slíkt er auðvelt. Auk þess fara
þau með námsefni heim. Skóla-
stjóri hefur farið um til eftir-
lits og heimsótt heimili og for-
eldra barnanna. Er þetta góð til
Rdðsteina til að bæta
ríkisreksturinn,
lækka tilkostnað og auka afköstin
MBL. barst í fyrrad. eftirfarandi
frétt frá fjármálaráðuneytinu:
Fjármálaráðherra hefur boðið
forstöðumönnum ýmissa stærri
Btofnana og fyrirtækja, sem ríkið
rekur eða á hlut að, til ráðstefnu
17.—19. nóv. nk.
Verkefni ráðstefnunnar er að
fhuga þær aðferðir, sem reyndar
hafa verið á liðnum árum til að
bæta ríkisreksturinn, lækka til-
kostna’ð eða auka afköst rekstr-
arins. Er ráðstefnunni ætlað að
íneta árangur þessa starfs og erf-
iðleika, sem kunna að hafa gert
vart við sig.
Ráðstefnan verður ha'ldin á
vegum hinnar nýstofnuðu fjár-
laga- og hagsýslustofnunar fjár-
málaráðuneytisins og er ætlað að
verða þeirri stofnun til stuðnings
í viðleitni hennar til að koma
fram umbótum 1 opinberum
rekstri.
Á ráðstefnunni verða flutt
nokkur erindi, erlend og innlend,
auk þess sem gert er ráð fyrir
hópumræðum, þar sem sérstök
viðfangsefni verða tekin til íhug
unar.
Þátttaka í ráðstefnunni er tak-
mörkuð, svo að ýrnsar mikilvæg-
ar greinaor ríkisrekstrar eiga
ekki aðild að henni. Ætlun fjár-
laga- og hagsýslustofnunar er að
hlutast til um, að síðar verði
haldnar sams konar umræðu-
fundir um einstakar greinar ríkis
rekstrarins og sérstök viðfamgs-
efni þeirra, t.d. skólarekstur og
opinbert eftirlit og gæzlu.
högun og líkleg til góðs árang-
urs.
Eins og kunnugt er varð stór-
bruni í skólanum haustið 1965,
en það ár voru miklar nýbygg-
ingar í smíðum, sem unnið hef-
ur verið að í ár og nokkuð við-
bótarhúsnæði fengizt í notkun,
sem ljósavélar o.fl. eru hafðar
í. Næsta ár er áformað endur-
bygging hins brunna skólahúss
svo smá saman eykst húsakost-
ur skólans, enda þegar komnar
myndarlegar og góðar vistarver
ur til skólahaldsins.
Að þessu sinni varð mikil
breyting á kennaraliði skólans.
Skólastjóri er nú Kristmundur
Hannesson, sem verið hefur
kennari þar undanfarin ár. Bók-
námskennari við héraðsskólann
er Magnús Pétursson, ungur og
vel menntaður kennari. Þá er
tímakennari við bóknám sr.
Baldur Vilhelmsson. Kennari
barnaskólans er Skarphéðinn
Ólafsson, er kenndi þar sl. vet-
ur. Kennari við bókband er
Niels Bjarnason. Vélgæzlumað-
ur og ráðsmaður er Guðmundur
Benediktsson. Smíðakennari
pilta er Sigurbjörn Samúelsson,
en handavinnukennari stúlkna
frú Ragnheiður Hákonardóttir.
Auk þess verður um tíma í vet-
ur Guðlaug Kristófersdóttir, er
kennir sund. Bryti skólans er
Hans Júlíusson er starfaði þar
við sama sl. vetur.
Páll Pálsson.
irnar á mánudag. Hindúar
reyndu þá að ná þinghússbygg-
ingunni á sitt vald með áhlaupi
og tókst ekki að stöðva það, fyrr
en lögreglumenn hófu skothríð
og köstuðu táragassprengjum.
Um 500 þeirra, sem handteknir
voru, eru úr hópi helgra manna
Hindúa, en þeir voru í farar-
broddi í óeirðunum. Margir
þeirra voru enn fremur handtekn
ir í dag, er þeir söfnuðust sam-
an á ýmsum stöðum í borginui
til þess að halda að nýju til
þinghússbyggingarinnar.
Tveir þeirra, sem særðust í
óeirðunum, dóu í dag á sjúkra-
húsi og hafa þá alls átta manns
látið lífið í sambandi við óeirð-
irnar, .en að minnsta kosti 45
særzt.
Hindúar líta á kýr sem heilög
dýr, er þeir dýrka sem tákn.
móður og frjósemi og það er
slátrun kúa, sem hleypti óeirð-
unum af stað.
Samkv. opinberumr fréttum var
annars friðsamlegt í Nýju Dellii
í dag.
Afli Vestfjarða-
báta í október
PILTAR, =—
EFÞlÐ EIGIÐ UNNUSTUNA
ÞÁ Á td HRINMNfl /
/fétterraer/ 8
ÍSAFIRÐI, 8. nóv. — Róðrar
með línu hófust víðast hvar í
byrjun mánaðarins og fengu
margir bátarnir við Djúp góðan
afla, en á Vestfjörðunum var
mun tregari afli. Ógæftir höml-
uðu þó mjög sjósókn, en þegar
gaf á sjó fengust oft 8i—10 lestir
í róðri af góðum fiski og komst
upp í 12 lestir í róðri. Þessi afli
fékkst aðallega djúpt út af Horn
inu og austur við Drangál.'
Dragnótabátarnir voru að
mestu leyti hættir veiðum, enda
lítið hægt að stunda veiðar á
litlum bátum, eins og dragnóta-
bátarnir eru flestir. Handfæra-
bátarnir voru einnig að mestu
leyti hættir veiðum.
Heildaraflinn í mánuðinum
varð 1648 lestir, sem er lítið eitt
meiri afli en á sama tíma í fyrra.
Aflinn í einstökum verstöðvum:
Patreksfjörður: Dofri aflaði 86
lestir í 13 róðrum, en afli drag-
nótabátanna í mánuðinum varð
34 lestir.
Tálknafjörður: Sæfari aflaði
93 lestir í 17 róðrum, en afli
dragnótabátanna var aðeins 11
lestir.
Bíldudalur: Andri aflaði 70 lest
ir í 17 róðrum ,en dragnótabát-
arnir voru allir hættir og byrj-
aðir rækjuveiðar.
Þingeyri: Þorgrímur var búinn
að fara 6 róðra og aflaði 21 lest.
Flateyri: Bragi aflaði 42 lestir
í 14 róðrum og Hinrik Guðmunds
son 30 lestir í 5 róðrum, en þeir
reru báðir með línu. Þorsteinn
landaði 14 lestum úr einum
róðri.
Suðureyri: Sjö bátar stunduðu
veiðar með línu og 5 bátar reru
stopult með handfæri. Varð
heildaraflinn á Suðureyri 344
JARBSKJÁLFTI fannst í nótt
í borginni Skople. Jarðskjálftinn
olli skelfingu á meðal borgar-
búa, en tjón varð ekkert. Upp-
haf hans var í Skopledalnum og
var styrkleiki hans fimmta stigs
samkv. hinum alþjóðlega mæli
á þessu sviði.
lestir í mánuðinum. Aflahæstu
línubátarnir voru Stefnir með 85
lestir í 20 róðrum; Gyllir 59 lest-
ir í 16 róðrum; Vilborg 59 lestir
í 17 róðrum; Friðberg Guð-
mundsson 52 lestir í 10 róðrum
og Jón Guðmundsson 38 lestir
í 13 róðrum.
Bolungarvík: Fjórir bátar reru
með línu, 1 bátur var á dragnót
og 13 bátar stunduðu stopult
veiðar með handfæri og línu.
Varð heildaraflinn í Bolungar-
vík 323 lestir í mánuðinum. Afla
hæstu línubátarnir voru Guðrún
með 75 lestir í 24 róðrum, Húni
72 lestir í 25 róðrum, Heiðrún
II 54 lestir í 9 róðrum og Einar
Hálfdáns 14 lestir í 2 róðrum.
Sædís landaði 20 lestum úr 10
róðrum með dragnót.
Hnífsdalur: Þrír línubátar voru
byrjaðir róðra og varð afli þeirra
í mánuðinum þessi: Svanur 37
lestir í 6 róðrum, Pólstjarnan 47
lestir í 14 róðrum og Mímir 31
lest í 5 róðrum.
ísafjörður: Fjórir línubátar
voru byrjaðir róðra frá ísafirði.
Varð afli þeirra í mánuðinum
þessi: Guðný 112 lestir í 17 róðr-
um, Víkingur II 74 lestir í 13
róðrum, Gunnhildur 58 lestir í
10 róðrum og Straumnes 38 lest-
ir í 7 róðrum. Gylfi landaði 47
lestum úr 11 róðrum með drag-
nót.
Súðavík: Tveir bátar reru með
línu frá Súðavík. Trausti landaði
49 lestum úr 13 róðrum og
Freyja 39 lestum úr 13 róðrum.
Hólmavík: Þaðan reri aðeins
einn bátur með línu og aflaði
lítið.
Drangsnes: Þrír bátar reru
með línu frá Drangsnesi og var
Smári aflahæstur með 13 lestir
í 8 róðrum. H. T.
Briissel, 8. nóv. — NTB.
EFNAHAGSBANDALAG Ev-
rópu skortir um 750.000 verka-
menn að því er fram kemur í
skýrslu frá yfirstjórn bandalags-
ins í Brussel í dag. Mestur er
skorturinn á verkafólki í Vestur-
Þýzkalandi.